Morgunblaðið - 26.08.1987, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 26.08.1987, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987 51 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691100 KL. 13-14 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Morgunblaðið/Ámi Sæberg Bréfritari vill gera þyrstum vegfarendum unnt að fá sér vatnssopa sem víðast en líklega er þetta of mikið af því góða. Vatn handa þyrstum vegfarendum Heiðraði Velvakandi Það er nú ekki oft sem ég tek mig til og skrifa í blöð en nú hef ég fengið hugmynd sem mér finnst vel þess virði að koma á framfæri við rétta aðila. Undanfarið hefur mikið verið rætt um sælgætis— og sykurneyslu landsmanna og það böl sem tómar umbúðir utan af alls konar rop— og sykurvatni er orðið. Þetta eru vitaskuld hin verstu mál og verða því miður varla leyst með þeirri lausn sem ég hef fram að færa en varla ætti ástandið að versna fyrir vikið. Ég legg til að komið verði upp einhvers konar vöskum eða litlum gosbrunnum (hvað á annars að kalla þessi fyrirbrigði?) á fjölförnum stöðum þar sem menn geti svalað þorsta sínum með köldu, hreinu, ómenguðu og bráðhollu vatni. Svona brynningarstöðvar hef ég séð víða erlendis og við nokkra sundstaði í Reykjavík. Þær eru afar hreinlegar því að sá sem drekkur kemur ekki við neitt nema vatns- bununa og því engin hætta á að Fast verð á áfengi og tóbaki Vegna tilskrifa Víkveija í Morg- unblaðinu 13. ágúst sl. um vindla- verð á tilteknum veitingastað norður í landi, vill ÁTVR taka fram eftirfarandi: í 3. gr. laga nr. 63/1969 um verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf segir að fjármálaráðherra ákveði útsöluverð áfengis og tóbaks á hverjum tíma. í gildi er verðskrá ÁTVR frá 1. júlí 1987. Verð það, sem Víkveiji greinir frá á ekki stoð f þeirri gjald- skrá. f.h ÁTVR Gústaf Níelsson bakteríur berist á milli manna. Þetta gæti sett skemmtilegan svip á umhverfíð, að minnsta kosti á sumrin, en ég geri ráð fyrir að skrúfa yrði fyrir vatnið í frosti nema ef hægt væri að koma bunaranum (þar kom nafn á fyrirbrigðið) fyrir innanhúss. Það kæmi til dæmis til greina að setja svona bunara upp í biðskýlum SVR á Hlemmi og Lækjartorgi, í flugstöðvum, BSÍ og víðar. Ég get ekki ímyndað mér að svona tæki kosti mikið eða séu dýr í rekstri og ef þetta yrði til að draga úr drykkju á rop— og sykurvatni þá myndi líklega það fé sem sparað- ist í tannviðgerðum nægja til að borga brúsann. Þyrstur Kóngar á f erð um Borgarnes Ágæti Velvakandi Það var varla að ég tryði eigin augum þegar ég las bréfið frá konu í Borgamesi í Velvakanda síðastlið- inn sunnudag. Hún er að fjargviðr- ast út í lögregluna fyrir þá „ósvinnu“ að hafa áminnt hana fyr- ir að teíja umferðina. Ég leyfi mér að vitna í bréf henn- ar en lýsingin á atburðum gefur vel til kynna hvað það var sem lög- reglan sá athugavert við aksturs- lagið. „Fjórar konur voru í bíl í skemmtiferð á Borgarfjarðarleið. Veðrið og landið skartaði öllu því fegursta sem ísland getur nokkru sinni átt. Bílstjórinn ók rólega í nokkurri umferð og hélt sig vel úti í kanti. Útsýnið heillaði og verið var að horfa til fjalla og jökla og ræða um umhverfið og njóta hinnar björtu sunnudagsferðar, þegar allt í einu kemur vegalögregl- an og stöðvar bílinn." (Leturbreyt- ing mín) Seinna í bréfinu kemur fram að þama var 90 km hámarkshraði og framúrakstur bannaður sem bendir til þess að ekki hafí sést langt fram á veginn. Ég leyfi mér að halda því fram að með þessum akstri hafí bréfrit- ari ekki bara sýnt öðmm ökumönn- um fádæma ósvífni heldur líka valdið umtalsverðri hættu, ekki bara á því að einhver æki aftan á hennar eiginn bíl heldur líka á því að einhver slasaði sig og aðra ef hann freistaðist til þess að taka fram úr náttúmskoðumnum. Ég skil vel að konumar hafi vilj- að njóta náttúmnnar en var ekki til of mikils mælst að allir aðrir sem leið áttu um þjóðveginn, sem er hluti af samgöngukerfí landsins en ekki eins konar þjóðgarður, ækju á gönguhraða vegna þess? Ef konumar í Borgamesi em svona miklir náttúmunnendur ætti varla að vera þeim ofviða að leggja blikkbeljunni í nokkrar mínútur og ganga um þannig að þeir sem hafa brýnni erindi um þjóðvegina geti komist leiðar sinnar? Hámarki náði samt óskammfeilni bréfritara í niðurlagi bréfsins, þar segir hún: „Við sem ökum á lög- leyfðum hraða krefjumst I nafni frelsisins að mega aka á vegum landsins eins og okkur hentar...“ (Leturbreyting mín) Það er ekki að spyija að okkur smákóngunum. Ég má aka eins og mér hentar, hinir verða bara að sjá um sig. Það er líklega ekkert skrýtið að slys verða allt of oft í umferðinni á íslandi. Þreyttur ökumaður Öllum þeim mörgu safnaÖarsystkinum mínum, vinum og vandamönnum fjœr og nœr sem heiÖr- uöu mig á 80 ára afmœli mínu meÖ blómum, skeytum, gjöfum og IjóÖum og geröu mér dag- inn ógleymanlegan þakka ég af öllu mínu hjarta. GuÖ blessi ykkur öll. Ólöf Gestsdóttir. Jazzballett: Haustnámskeið 4x í viku í 2 vikur fyrir 13 ára og eldri. Vetrarnámskeiðin byrja 12. sept. Inn- ritun hafin. Bama-Jazz 1 x í viku um helgar frá 2ja ára aldri. Foreldrar barna sem voru í fyrra hringið sem fyrst vegna að- sóknar. Nýtt! Skólakort: Jazzballett-klassísk tækni-stepp-danstími-Aerobic. Innritun í síma 13880, 84758, 13512. Meir en 12 gerðir af háfumálagereða til afgreiðslu með stuttum fyrirvara. Einar Farestveit &Co.hf. Borgartúni 28, símar 91 -16995,91-622900. v.. tr'
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.