Morgunblaðið - 26.08.1987, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 26.08.1987, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987 44 Minning: Hólmfríður Gunn laugsdóttir Fædd 29. apríl 1929 Dáin 17. ágúst 1987 I dag, miðvikudaginn 26. ágúst, fer fram frá Dómkirkjunni útför Hólmfríðar Gunnlaugsdóttur, er síðast var til heimilis á Þinghóls- braut 53, Kópavogi. Hún lést um nónbil miðvikudag- inn 17. þ.m., á krabbameinsdeild Landspítalans eftir langa og stranga legu. Hólmfríður, sem nefnd var Lúlú af ættmennum og vinum, var fædd á Akureyri 29. apríl 1929, dóttir hjónanna Gunnlaugs Guðjónssonar, útgerðarmanns og Hólmfríðar Sig- uijónsdóttur frá Siglufirði, en þau hjónin bjuggu þá á Akureyri. Gunnlaugur er látinn fyrir all mörgum árum en Hólmfríður er nú á Hrafnistu í Hafnarfírði. Foreldrar Hólmfríðar voru hjónin Kristjana Bessadóttir, Þorlákssonar frá Stór-Holti í Fljótum, og Siguijón Benediktsson, jámsmiður frá Bráð- ræði á Skagaströnd. Þau hjónin áttu heimili á Siglufirði frá árinu 1907 og til dauðadags. Foreldrar Gunnlaugs vom hjónin Kristín Árnadóttir frá Hörgshóli í Vestur-Hópi og Guðjón Helgason, síðast fiskmatsmaður á Akureyri. Er Lúlú var fjögurra ára fluttu foreldrar hennar til Siglufjarðar og þar ólst hún upp. Eftir nám þar í barnaskóla lá leið hennar í Menntaskólann á Ak- ureyri, en síðan fór hún í verslun- arnám til Svíþjóðar og eftir námið starfaði hún í Stokkhólmi í rúm tvö ár. Þaðan fer hún síðan til Frakk- lands til frekari frönskunáms og er þar í rúmt ár. I Frakklandi greiddu götu hennar hjónin Albert Guðmundsson, fyrr- verandi ráðherra og kona hans, Brynhildur Jóhannsdóttir, er var frænka hennar. Þau hjónin reyndust henni traustir vinir og sýndu það eftir- minnilega, er hún átti í sem mestum erfiðleikum í veikindum sínum, og var hún þeim ævinlega þakklát fyr- ir þá aðstoð. Eftir að Lúlú kom heim frá námi í Frakklandi fór hún í Húsmæðra- skólann á Laugalandi í Eyjafirði, en á Syðra-Laugalandi hafði hún verið í sveit á summm frá sjö ára aldri fram að fermingu hjá prests- hjónunum þar í sveit, séra Benjamín Kristjánssyni og móður minni, Jónínu Björnsdóttur. Var hún þeim tryggur vinur, heimsótti þau oft bæði meðan þau bjuggu fyrir norðan og hér syðra, meðan þau bæði lifðu. Að námi loknu sest Lúlú að í Reykjavík, vinnur fyrst við skrif- stofustörf, en ræðst síðan til Flugfélags Íslands 1954 sem flug- freyja og starfaði sem slík um langt árabil eða fram yfir það að hún gekk í hjónaband og var yfir-flug- freyja hjá Flugfélaginu er hún lét af störfum, var leiðbeinandi á flug- freyjunámskeiðum svo sem sjá má er minnst var atvinnuflugs í hálfa öld í Morgunblaðinu 3. júní sl. Er hún lét af störfum fékk hún sérstaka viðurkenningu frá félaginu fyrir heillaríkt starf og hún bar ætíð hlýjan hug til félagsins og alls þess starfsfólks er hún hafði starfað þar með og vildi hag félagsins sem mestan. Þann 30. nóvember 1963 gekk hún að eiga Mangús Jóhannsson, kaupmann í Reykjavík, en þau hjón- in slitu samvistir fyrir nokkrum árum. Börn þeirra eru tvíburarnir Gunnlaugur Jón Ólafur og Jóhann, f. 14 ágúst 1966 og Hólmfríður, f. 22. júlí 1967. Á árinu 1981 var hún farin að fínna fyrir þeim sjúkdómi er leiddi hana til bana. Hún reyndi þó að láta ekki á því bera, og leyndi því lengi fyrir börnum sínum og aldr- aðri móður, er var á heimili hennar. Hún fékk sér vinnu og vann meðan heilsan leyfði í ferðaverslun- inni Rammagerðinni á Hótel Esju, og var hún í mikilli þakkarskuld við forstjóra verslunarinnar, Hauk Gunnarsson, fyrir að fá að starfa þar svo lengi, þó honum væri full kunnugt um að hún væri ekki heil heilsu og þyrfti oft að vera í burtu í sjúkrahúsi hin síðari ár. Hugur hennar var mjög bundinn bömum sínum og hjá aldraðri móð- ur, sem átti hana eina barna, en annar drengja hennar lamaðist eftir bílslys barn að aldri. Það olli henni áhyggjum hvað við tæki, er hennar njdi ekki við. I veikindum hennar var henni mikil stoð og styrkur af traustum vinum er hún hafði kynnst í starfi hjá Flugfélagi íslands og víðar og reyndust henni í erfiðleikum frá- bærlega vel. Áður en faðir hennar kvæntist átti hann tvo syni, Harald, sem nú er látinn og Eðvarð, kaupmann á Sauðárkróki. Nokkru áður er Lúlú skildi við bað hún fyrir hjartans kveðjur og þakklæti til Kristjáns Sigurðssonar, yfírlæknis á krabbameinsdeild kvenna í Landspítalanum, og alls hjúkrunarliðs fyrir alla þá hjálp og hjúkrun er henni var veitt. Gengin er góð og glæsileg kona er vildi öllum vel, væg í dómum um aðra og virti jafnan flest á betri veg. Hún var mjúklynd, þekkti gleði og sorg en flíkaði ekki tilfinningum sínum. Bjartsýn á sigur hins góða. Við hjónin vottum aldraðri móður hennar og börnum dýpstu samúð og biðjum þeim guðs blessunar. Björn Ingvarsson „Bognar ekki en brotnar í bylnum stóra síðast." Þessi hending kom mér í huga er frænka mín kvaddi þennan heim alltof fljótt að mati okkar er þekkt- um hana og þann mikla lífskraft og lífsgleði er hún átti. Hún var dóttir hjónanna Hólmfríðar Sigur- jónsdóttur (skagfirsk að ætt) og Gunnlaugs Guðjónssonar (hann var Húnvetningur) og starfaði lengst af við útgerð og síldarsöltun á Siglufirði. Gunnlaugur er látinn fyrir nokkrum árum en Hólmfríður lifír einkabarn sitt í hárri elli. Hólmfríður, eða Lúlu eins og hún var ávallt nefnd af vinum og flöl- skyldu, ólst upp hjá foreldrum sínum á Siglufirði á mjög traustu og góðu heimili og var augasteinn allra er henni kynntust. Á sumrin dvaldi hún í sveit hjá frú Jónínu Björnsdóttur og séra Benjamín Kristjánssyni á Syðra-Laugalandi í Eyjafírði. Átti hún þar annað heim- ili og var frú Jónína henni sérlega kær. Ekki er ólíklegt að þessi traustu heimili hafi mótað Lúlú og viðhorf hennar til lífsins. Hún var einstaklega skyldurækin og kröfu- hörð við sjálfa sig og gerði einnig sömu kröfur til annarra. Fljótlega eftir að skólagöngu lauk hér heima og erlendis hóf hún störf sem flugfreyja hjá Flugfélagi íslands og varð síðan yfirflugfreyja þar um langt árabil. Árið 1963 gekk hún að eiga Magnús Jóhanns- son og eiga þau þijú kjörbörn. Þau slitu samvistum. Árið 1972 varð hún fyrir þeirri sáru reynslu að annar drengurinn hennar varð fyrir alvarlegu slysi, þá 6 ára gamall. Urðu það mjög erfið ár sem á eftir fylgdu en allt var gert sem mögu- legt var, enda ekki að hennar skapi að gefast upp. Hin síðari ár starf- aði Lúlu hjá Rammagerðinni á Hótel Esju. Líkaði henni starfíð vel og eftir að heilsan bilaði og hún þurfti oftar inn á sjúkrahús var það alltaf hennar fyrsta hugsun að láta sig ekki vanta lengi í vinnuna, enda vann hún þar fram til þess dags er hún fór inn á sjúkrahúsið í síðasta sinn. Það eru svo margar minning- ar sem leita fram í hugann þegar vegir skiljast en allar þær minning- ar eru góðar. Lúlú fylgdi gleði og hressileiki hvenær sem maður hitti hana. Ég minnist hennar sem lítillar stúlku koma heim fannbarða og brosandi því snjórinn og stormurinn var svo skemmtilegur. Lúlú að koma úr flugi jafnvel kl. 6 að t Móðir okkar og tengdamóðir, ÞÓRDÍS STEFÁNSDÓTTIR, Holtageri 48, Kópavogi, lést á Gjörgæsiudeiid Landakotsspítala að kvöldi 24. ágúst sl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Börn og tengdabörn. t Utför litlu dóttur okkar, SÆUNNAR LIUU GUÐMUNDSDÓTTUR, sem lést 17. ágúst sl. hefur farið fram. Við þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug í okkar garð. Guðmundur Þór Guðmundsson, Steinunn Fjóla Ólafsdóttir. t Útför dóttur minnar og móður okkar, HÓLMFRÍÐAR GUNNLAUGSDÓTTUR, fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag miðvikudaginn 26. ágúst kl. 3 e.h. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaöir, en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á líknarfélög. Hólmfriður Sigurjónsdóttir, Gunnlaugur Jón Ólafur Magnússon, Hólmfríður Magnúsdóttir, JóhannMagnússon. t Ástkær kona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, LOVÍSA GUÐMUNDSDÓTTIR, Háagerði 11, Reykjavfk, er lést í Landspítalanum 18. ágúst. sl. veröur jarðsungin frá Þjóð- kirkjunni, Hafnarfirði, miðvikudaginn 26. ágúst kl. 15.00. Hjálmar Guðjónsson Elísabet Jónsson, Guðmundur Pálsson, Guðmundur Jónsson, Elfn Ingólfsdóttir, Sigurður Jónsson, Kristjana Friðgeirsdóttir, Stefán L. Stefánsson, Sigrún Ragnarsdóttir, Eyþór G.J. Stefánsson, Guörún Pótursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug viö andlát og út- för móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVÖVU ÁRNADÓTTUR, Sigtúni 53, Reykjavfk. Bryndís Sigurðardóttir, Kristinn Bæringsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HRANNAR KRISTÍNAR BALDVINSDÓTTUR. Tómas Njálsson, Gunnhildur Njálsdóttir, Haukur Kristófersson, Ragnheiður Njálsdóttir, Stefán Baldursson, Sólveig Knútsdóttir, Már Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útíöreiginmanns míns, fööurokkar, tengdaföður, afa og langafa, ÓSKARS JÓSÚASONAR, Kirkjuvegi 20, Vestmannaeyjum. Jósebína Grfmsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. morgni, glöð og hress og kom jafn- vel mestu svefnpurkum í gott skap. Ég minnist þess er hún fékk að vita að hún ætti aðeins fáa mánuði ólifaða. Ég dái þann kjark er hún sýndi þegar hún sagði við mig: „Ég veit að þetta fer með mig en ég ætla að beijast á móti eins lengi og ég dreg andann og ég held áfram að vinna á meðan ég stend.“ Hún stóð svo sannarlega við það. Lúlú var óvenju vinmörg og átti góða vini. Vil ég færa þeim innileg- ar þakkir, serstaklega vil ég minnast á frú Ólavíu og Aage Fog- ed og Jóhönnu og Jón Pálsson, sem komu til hennar svo til hvem ein- asta dag á sjúkrahúsið. Það er örugglega öllum mjög mikilvægt að finna að maður stend- ur ekki einn þegar heilsan brestur. Einnig vil ég þakka hjúkrunar- og starfsfólki á deild 21a Landspít- alanum fýrir framúrskarandi góða hjúkrun og hlýtt viðmót. Ég bið almættið að styrkja móð- ur hennar og börn og veita þeim huggun í þeirra miklu sorg. Sjálf vil ég þakka frænku minni alla hennar samfylgd, ekki síst þau ár er ég dvaldi á hennar góða heim- ili á Siglufírði. Á kynni okkar féll aldrei skuggi. Helga Ingvarsdóttir Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V.Briem) Við viljum hér með fáum orðum minnast vinkonu okkar Hólmfríðar Gunnlaugsdóttur, sem lést hinn 17. þessa mánaðar eftir erfitt veikinda- stríð. Kynni okkar hófust þegar við réðust til flugfreyjustarfa til Flug- félags Islands árið 1957, en þá var hún yfirflugfreyja félagsins. Hún starfaði hjá félaginu um margra ára skeið og var vel liðin af öllum, sem með henni störfuðu. Hún var dugnaðarforkur, samviskusöm og ósérhlífin og ætlaðist til hins sama af okkur, sem störfuðum með henni. Vináttan hefur haldist óslitið í þessi 30 ár. Margar ánægjulegar sam- verustundir áttum við saman, bæði við störf og leik og var Lúlú, en það var hún kölluð á meðal vina sinna, þá ætíð hrókur alls fagnaðar. Fyrir tveimur árum tók Hólm- fríður þann sjúkdóm, sem að lokum bar hana ofurliði, þrátt fyrir hetju- lega baráttu hennar og ótrúlegan sálarstyrk. Hólmfríðar verður sárt saknað úr okkar vinahópi og við þökkum fyrir að hafa fengið að kynnast henni og eiga hana að vinkonu. Við undirritaðar og fjölskyldur okkar sendum móður hennar, Hólmfríði Sigurjónsdóttur og börn- unum, Systu, Hönnu og Gulla, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hennar. Brynhildur Matthíasdóttir, Jóhanna Ólafsdóttir Hólmfríður Gunnlaugsdóttir hóf störf í Rammagerðinni í júní 1982. Við sem störfuðum með Hólmfríði fundum fljótt að þar fór dugleg og samviskusöm kona. Hún starfaði í útibúi Rammagerðarinnar á Hótel Esju og var mjcg vinsæl meðal við- skiptavina. Oft fékk hún kveðjur frá erlendum viðskiptavinum og þakkir fyrir mjög góða þjónustu. Fyrir tveimur árum fór að bera á veikindum hennar. Samt sem áður starfaði hún af elju og dugn- aði sem henni var eiginlegur þar til hún lagðist inn á spítala í hinsta sinn. Við sem störfuðum með Hólm- fríði þökkum henni samstarfið sem var alltof stutt. Vottum við bömum hennar og aldraðri móður okkar innilegustu samúð. Samstarfsfólk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.