Morgunblaðið - 26.08.1987, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 26.08.1987, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987 -t Hreinar götur og fallegir garðar í Keflavík. Af görðum og góðu fólld í Kefiavík Keflvíkingar eru farnir að rækta garðana sína. Eg sá það þegar ég ók í gegnum bæinn. Og ég sem hélt að þeir hefðu engan áhuga fyrir görðum eða fögru um- hverfi, geymdi í minningu minni mynd af bænum óaðlaðandi og oft illa lyktandi. Fyrir utan nú útsynning- inn og útlendingana. Bæ, þar sem íbúarnir hugsuðu eingöngu um að græða peninga, bæði á fiskinum og Kananum, en skeyttu engu um umhverfi sitt og menn- ingu. Og svo er þetta bara tóm della í mér. Keflavík er einkar snotur bær, hreinar götur og fallegir garðar. „Þetta er maðurinn sem þú leitar að,“ sagði Björgvin stöðvarstjóri(t. h.) og hélt utan um Guðleif. •*- Sú var tíðin að ekki sást í Kefla- víkurrútuna fyrir drullu þegar hún kom öslandi eftir Hafnargötunni og skvetti í leiðinni aurnum upp á nærliggjandi hús. Svo steig maður út úr rútunni og ofan í forarpolla á spariskóm og missti allan glans og klassa. „Þúsund vatna Hafnar- gatan," sagði víst Kristján Reyr í ljóði sínu. Fimm hundruð númer utanað Úr því að ég var 'stödd á um- ræddri götu þá ákvað ég að fara inn á pósthúsið og grennslast fyrir um þessa breytingu sem mér virtist ~ hafa orðið á bænum. Mér hafði vérið sagt að á pósthúsinu væri kona sem eitt sinn hefði kunnað öll símanúmer bæjarbúa utanað, slík kona hlyti að vita eitt og annað um bæinn sinn. Ég gat króað hana af niðri á kaffístofu í matartímanum, Önnu Pálu Sigurðardóttur, ættaða frá Akureyri. Hún kom með foreldrum sínum til Keflavíkur aðeins 10 ára gömul og fannst bærinn ömurlegur, en núna gæti hún ekki hugsað sér að búa annars staðar. __ — Hvers vegna er svona gott að búa í Keflavík, Anna Pála? „Af því að það er svo gott fólk héma, Keflvíkingar eru léttir og hressir og það er auðvelt að kynn- ast þeim,“ ansar hún að bragði. — En hvað með bæinn sjálfan, voru það ekki viðbrigði að koma frá Akureyri þar sem allt á að vera svo " fallegt og hingað í útsynninginn og gróðurleysið? „Jú, mikil viðbrigði, enda þráði ég að komast norður aftur. Svo fékk að fara þangað í heimsókn, en þá brá svo við að mig langaði bara aftur til Keflavíkur. Annars hefur bærinn breyst svo mikið síðustu árin. Hann stækkaði ört meðan á uppbyggingu flugvallarins stóð, kannski of ört því fólk fékk ekki tíma til að sinna umhverfi sínu, auk þess sem menn fengu sífellt að heyra hið gamla orðatiltæki, að það þýddi ekkert að setja niður tré í Keflavík vegna sjávarseltunnar. En bærinn hefur tekið miklum stakkaskiptum hvað varðar gróður og snyrtimennsku, satt er það, og þá helst núna síðustu þrjú kjörtíma- bil eða svo. Mér finnst bærinn minn bara mjög fallegur núna.“ Ég er henni alveg sammála, en spyr hana hvort það sé þá ekkert sem mætti betur fara? „Jú, biddu fyrir þér, hirðuleysið við Hafnargötuna er alveg óþol- andi. Það þarf að mála og snyrta húsin og gera götuna meira aðlað- andi, þetta er nú einu sinni aðalgata bæjarins og sú fyrsta sem aðkomu- menn aka um. Innkeyrsluna í bæinn mætti svo sannarlega fegra líka, hún hefur að vísu skánað síðan gúanóverksmiðjan hvarf, en betur má ef duga skal.“ — Eigið þið ekki nægan pening til að gera alla þessa hluti, Anna Pála? Aðkomustúlka í bænum sagði mér að það væru ekki til druslur í Keflavík, allir ækju um á nýjum bílum. Anna Pála brosir breitt en finnst „Fer þessi mynd á minjasafnið", spurði Anna Pála á Símanum þegar smellt var af. þetta ágæt athugasemd og alls ekki út í hött, því atvinna hefur alltaf verið næg í Keflavík og fólk því haft ágæt fjárráð. — Mér var líka sagt, held ég áfram, að lífsgæðakapphlaup væri mikið í Keflavík og að það bitnaði á fjölskyldulífínu. Skilnaðir margir því hjón hefðu ekki tíma hvort fyr- ir annað, alltaf verið að vinna fyrir nýjum bílum, utanlandsferðum og mublum. Anna Pála rekur upp stór augu. „Kapphlaup? Ég veit það ekki. Ég bý ennþá í sama húsinu, með sama sófasettið og sama karlinn." — En er það satt að þú hafir kunnað öll símanúmer utanað héma einu sinni? „Æ, elskan mín, það var ekkert að muna, þetta voru nú ekki nema fimm hundruð númer í þá daga. En nú má ég ekkert vera að þessu, það er allt orðið vitlaust þarna uppi.“ Og hún stendur á fætur með sveiflu og hverfur með þyti upp á efri hæðina. Fór á sjöundu hæð niður á við En á efri hæðinni er ys, þys og þrengsli. Stöðvarstjórinn Björgvin Lútersson kemur þrammandi eftir ganginum þungur á brún með fjóra menn á eftir sér og segir um leið og hann gengur fram hjá mér: „Þú átt að tala við hann Grasa-Leif ef þú vilt vita eitthvað um gróðurinn í bænum." En meðan ég er að basla við að ná mynd af Önnu Pálu, sem fíflast bara og spyr hvort myndin eigi að fara á minjasafnið, þá fylgist ég um leið með bæjarbúum sem streyma inn með bréf og böggla eða eru bara að borga símreikning- ana sína. Allt í einu stendur stöðvar- stjórinn aftur fyrir framan mig á miðju afgreiðslugólfi, nú skælbros- andi og með honum maður. „Þetta er maðurinn sem þú ert að leita að, taktu mynd!" Guðleifur Sigurjónsson, öðru nafni Grasa-Leifí, eins og Helgi S. Jónsson kallaði hann, er Keflvíking- ur „síðan 1960“ eins og hann sjálfur segir. Hann er lóðarskrárritari en einnig forstöðumaður byggðasafns- ins og landgræðsluvörður, kannski sitthvað fleira, en í 18 ár var hann garðyrkjustjóri Keflavíkurbæjar og flest þau tré sem nú skarta garða heimamanna, sum orðin há og fög- ur, voru keypt hjá Guðleifi. Hann var með plöntusölu heima hjá sér í mörg ár. Menn segja að hann hafí haldið uppi áróðri fyrir gróðri og umhverfismálum eftir að hann tók við embætti garðyrkjustjóra um árið. Haldið fundi og þess háttar með bæjarbúum. Ég spyr hann aðeins út í þetta þama á pósthúsgólflnu, en hann gerir ósköp lítið úr sínum þætti í þeim málum. Þá segi ég honum hversu fallegur og snyrtilegur mér finnist bærinn vera orðinn, hveiju þetta sæti eiginlega? Þá bregður fyrir bliki í augunum, þessum aug- um sem virðast alltaf ljóma þótt ekkert bros sjáist, og hann segist halda að þetta sé almenn vakning, fólk hafi meiri áhuga fyrir um- hverfi sínu en áður. Annars væri nú víða pottur brotinn svo sem við Gatklett, stað sem ferðamenn skoða gjaman, en heimamenn svo hugs- unarlausir að losa sig við rusl þar. — Gatklett, hvar er hann? „Komdu, það er best að ég sýni þér þetta,“ segir hann og svo stígum við upp í bláa bílinn hans og nú hefst ökuferð og uppfræðsla um Keflavíkurbæ. Við ökum Vatnsnes- veginn niður að sjó. Á leiðinni stöðvar Guðleifur bílinn og þarf að ræða við nokkra menn sem eru í byggingarvinnu við nýja hótelið. Ég tek eftir því að hann er sífellt að ræða við einhverja menn þennan tíma sem ég er með honum og virð- ist ekkert láta afskiptalaust hvað bæinn varðar. Allir þekkja hann. Svo byijar hann að benda mér á ruslið. „Sérðu þetta!“ segir hann og bendir mér á rusl við vegarkantinn. Ég sé það og finnst það voða leiðin- legt. „Sérðu þetta!“ segir hann aftur með þjósti og bendir mér á hroða- lega ruslahrúgu sem er staflað upp við frystihúsvegg. Ég síg hægt undir mælaborðið af skömm. Þegar við komum út að Gatkletti stígum við út úr bílnum og göngum fram á klett sem skagar fram í sjóinn. Við mér blasir bærinn, sjórinn, klettarnir, sýn sem fær íslendinginn til að klökkna af föðurlandsást en sú sýn virðist ekki hræra hið minnsta hjarta Guðleifs. Hann bendir mér á ruslið eftir endilöngum hafnarbakkanum og við Gatklett og föðurlandsástin hverfur sam- stundis. Þarna er sóðalegt um að litast, það er rétt hjá honum, og einmitt á þessum fagra útsýnisstað. Það er víst ekki bara nóg að hafa fallega garða. Nú sjást einnig bak- hliðar húsanna sem standa við Hafnargötu, flest grá og drungaleg. Guðleifur segir að sjómönnum finn- ist þetta ljótasta innsiglingin á landinu, allt út af þessum húsum. En nú vill hann sýna mér eitt- hvað annað en rusl (þótt hann geti nú ekki stillt sig þegar hann sér það á hinum ólíklegustu stöðum og fussar og sveiar í hvert skipti) og sýnir mér gamla garða. Kaupmenn á síðustu öld voru með matjurta- garða hjá húsum sínum, en elsti tijá- og blómagarðurinn sem hann sýnir mér er við Vallargötu 28 og mun hann vera frá 1926. Einhvem veginn berst talið að kaupmönnun- um og sögu bæjarins og áður en ég veit af er ég komin með báða fætur inn á Byggðasafn Suðumesja sem var opnað 1979. Helgi S. var aðalhvatamaður að stofnun þess eins og svo mörgu öðm. Guðleifur snarar sér inn á skrifstofuna og fer að gramsa þar í hillum og skúffum í leit að ágripi af sögu Keflavíkur handa mér, en ég ráfa um safnið og finnst það hreint ótrúlegt hversu miklu er hægt að koma fyrir í ekki stærra safnhúsi. Þarna em munir úr gömlu krambúðunum, í einu herberginu gömul áhöld og verk- færi, í öðm hljóðfæri sem sýna sögu tónlistarinnar í Keflavík, löngum verið músíkalskir bæjarbúar, og í einu herberginu er þetta forláta byssusafn, sumar byssumar frá tímum Tyrkjaránsins. Guðleifur segist hafa fengið þær fyrir tveim ámm frá Borge Sorensen, dóttur- syni Norðfjörðs kaupmanns, en Borge lá í liðagigt í fjömtíu ár og lá á þessum byssum í bókstaflegri merkingu, því hann geymdi þær undir dýnunni hjá sér allan tímann. Hundruð ljósmynda sýna sögu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.