Morgunblaðið - 26.08.1987, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987
Vestur-þýskir
jafnaðarmenn:
Þingfundur
um Pershing
lA-flaugar
Lögregla leitar í bif-
reið á leið til
Wunsiedel. A inn-
felldu myndinni sést
Hess á líkbörunum.
Reuter
Lögfræðingur Hess:
Lík Hess verður flutt
til Wunsiedel síðar
Wunsiedel, Reuter.
ALFRED Seidl, lögfræðingur
fjölskyldu Rudolfs Hess, sagði í
gær að líklega yrði lík Hess graf-
ið í fjölskyldugrafreit hans i
Wunsiedel í Bæjaralandi að ósk
hins nýlátna nasistaforingja.
Seidl sagði að það yrði þó ekki
fyrr en ólguna vegna dauða Hess
hefði lægt.
Hess var grafinn í kyrrþey á
óþekktum stað í fyrradag til þess
að forðast mótmæli nýnasista, sem
ætluðu að vera viðstaddir jarðarför-
ina. Fjölskyldan vill þó enn að Hess
fái síðustu ósk sína uppfyllta, líkið
verði grafið upp og fái að hvíla hjá
ættmennum sínum í kirkjugarði
Wunsiedel. Bæjarstjórinn í Wun-
siedel, Karl Walther, sagði að
honum hefði enn ekki borist ósk frá
Hess-fjölskyldunni um að fá að
flytja líkið til bæjarins, en sagði að
slík ósk yrði tekin til umræðu ef
tii kæmi. „Fyrir okkur [bæjarbúa]
er þetta spurning um mannúð, rétt
eins og áður,“ sagði hann.
Þrátt fyrir að Hess hafi nú verið
grafínn annars staðar, standa 600
lögreglumenn enn strangan vörð
um kirkjugarðinn í Wunsiedel og
vegi til bæjarins. Ymsum hefur þó
tekist að koma krönsum og blómum
á leiði ættingja Hess.
Gamall maður, sem sagðist vera
fyri-um meðlimur í SS, lífvarðasveit-
um Hitlers, og hafa þekkt Hess
vel, lagði stóran blómsveig á leiðið.
Á borða, sem festur var við krans-
inn, var merki SS-sveitanna og
áletrunin „In memoriam — félagar
úr SS:“ Lögregla kom aðvífandi og
Bandaríkin:
Washin£ton, Reuter.
KVIÐDÓMUR átta yfirmanna úr
röðum landgönguliða úrskurðaði
á mánudag Clayton Lonetree,
sem á laugardag var fundinn
sekur um að hafa selt Sovét-
mönnum upplýsingar, í þrjátíu
ára fangelsi.
Lonetree, sem dæmdur var fyrir
að hafa stundað njósnir þegar hann
var vörður við sendiráð Bandaríkja-
manna í Moskvu og Vín um tveggja
ára skeið, var einnig gert að greiða
fimm þúsund dollara sekt (um 200
þúsund ísl. kr.).
Lögfræðingar Lonetrees sögðu
að úrskurðurinn hefði komið þeim
á óvart. Höfðu þeir búist við
lífstíðarfangelsi. Lonetree er fyrsti
landgönguliðinn í tvö hundruð ára
sögu þeirra, sem fundinn er sekur
um njósnir.
klippti merkið af borðanum. „Þetta
er vanhelgun grafarinnar," hrópaði
gamli maðurinn er hann var leiddur
á brott.
Við kirkjugarðshliðið stóð hópur
nasista og harmaði að útförin hefði
ekki farið fram. 75 ára gamall
maður, sem barðist í Rússlandi í
stríðinu, sagði að Hess hefði ekki
verið glæpamaður. „Ef hann var
það, þá er ég það líka. Þeir, Bret-
arnir, kyrktu hann.“
Bonn, Reuter.
VESTUR-ÞÝSKIR jafnaðar-
menn (SPD) komu því til
leiðar á mánudag að þing
yrði kvatt saman sérstaklega
2. september til umræðna um
Pershing lA-flaugar, sem eru
í eigu vestur-þýska flug-
hersins.
Jafnaðarmenn kváðust ætla að
leita eftir afstöðu rieðri deildar
sambandsþingsins í Bonn varð-
andi Pershing lA-flaugamar og
hvort þingmenn gætu samþykkt
að þær stæðu í vegi fyrir hugsan-
legu afvopnunarsamkomulagi
risaveldanna.
Flokkarnir í samsteypustjóm
Helmuts Kohl kanslara for-
dæmdu jafnaðarmenn fyrir að
grípa til þessa bragðs og sögðu
að flokkurinn hugsaði aðeins um
pólitíska hagsmuni sína.
Eduard Shevardnadze, ut-
anríkisráðherra Sovétríkjanna,
hefur sagt að 72 Pershing 1A-
flaugar Vestur-Þjóðveija standi
í vegi fyrir samkomulagi stór-
veldanna, en stjórnvöld í Bonn
kveðast eiga flaugamar og þær
séu ekki til umræðu í Genf. Sov-
étmenn segja aftur á móti að þá
verði að fjarlægja bandaríska
kjarnaodda, sem þær séu búnar.
Krabba-
meinssjúkl-
ingarklífa
Mont Blanc
Á sunnudag komust þrír sjö
japanskra fjallgöngumanna á
efsta tind Mont Blanc í
frönsku Olpunum, en það er
hæsta fjall Evrópu. Það væri
í sjálfu sér ekki frásögur
færandi nema vegna þess að
fjallgöngumennirnir eru allir
krabbameinssjúklingar, sem
reyna að sigrast á sjúkdómi
sínum með viljakrafti. Hinir
fjórir gáfust upp þegar þeir
voru komnir í 4.362 m hæð,
en fjallið er 4.807 m hátt.
Þetta er þó ekki fyrsta fjall-
ið, sem hópurinn klífur —
áður hafði fólkið lagt Fuji-
fjall að fótum sér.
Filipseyjar:
Um 21#milljón
heimilislausir
Manilla, Reuter
Um 40% allra íbúa eyjanna eru
heimilislausir, eða búa í óviðun-
andi og heilsuspillandi húsnæði,
að því er segir i skýrslu þingnefnd-
ar um þessi mál.
I skýrslunni kemur fram, að um
10 milljón manns búi í hreysum fá-
tækrahverfa, þar sem ástandið sé svo
ömurlegt, að ekki verði til neins jafn-
að.
Reuter
Landgönguliðinn Clayton Lonetree leiddur á brott eftir að herréttur
dæmdi hann til þrjátíu ára vistar í fangelsi fyrir njósnir í þágu
Sovétmanna. Lonetree var einnig rekinn úr bandariska hernum með
skömm.
Landgönguliði fékk
30 ár fyrir njósnir
Finnland:
Hafin barátta fyrir
forsetakosningarnar
Váyrynen telur sjálfstæði landsins ógnað
Helsinki, frá Lars Lundsten fréttaritara Morgunbladsins.
PAAVO Váyrynen, formaður finnska Miðflokksins og fyrrum
utanríkisráðherra, hóf á sunnudag baráttu sína fyrir forsetakosn-
ingarnar í janúar á næsta ári. Hann kveðst einn allra forsetafram-
bjóðenda vilja stuðla að menningarlegu og efnahagslegu sjálfstæði
Finnlands. Váyrynen flutti fyrstu stefnuræðu sina á miklum
fjöldafundi miðflokksmanna í borginni Oulu á vesturströnd Finn-
lands.
Váyrynen varð þannig fyrstur
allra til að hefja kosningabarátt-
una fyrir alvöru. Raunar tilkynnti
hann einnig fyrstur um framboð
sitt í fyrra sumar. Keppinautar
hans, Harri Holkeri forsætisráð-
herra, sem er hægri maður, og
Mauno Koivisto, núverandi for-
seti, hyggjast hefja kosningabar-
áttuna í haust. Gert er ráð fyrir
að Kalevi Kivistö lénshöfðingi
verði einnig í framboði en stuðn-
ingsmenn hans vinna enn að því
að safna nöfnum á stuðnings-
mannalista. Kivistö, sem kemur
úr röðum alþýðubandalagsmanna
(folkdemokrater), var í eina tíð
ráðherra en stuðningsmenn hans
vilja að framboðið verið óflokks-
bundið og vonast þeir til að hann
höfði til þeirra sem vilja ekki að
venjulegur stjómmálamaður verði
næsti forseti Finnlands.
Miðflokkurinn komst í stjómar-
andstöðu eftir þingkosningarnar
í marsmánuði og ákvað Váyrynen
þá að einbeita sér að forsetakosn-
ingunum. Miðflokkurinn er
stærsti stjómarandstöðuflokkur-
inn en Váyrynen hefur látið Seppo
Kááriáinen um að gagnrýna
stjómina. I stefnuræðu sinni lagði
Váyrynen áherslu á að honum og
flokki hans væri best treystandi
til að standa vörð um sjálfstæði
Finnlands.
Váyrynen telur þau öfl sem
stuðla vilja að efnahags- og menn-
ingarlegu samstarfí á alþjóða
vettvangi stefna sjálfstæði lands-
ins í voða. Núverandi ríkisstjóm
hægri manna og jafnaðarmanna
hefur lagt þó nokkra áherslu á
þetta atriði, einkum aukið sam-
starf Finnlands við ríki Vestur-
Evrópu, bæði á vettvangi
Evrópubandalagsins og EFTA. í
ræðu sinni gagnrýndi Váyrynen
stjómarflokkana harðlega. Vændi
hann flokkana um yfirborðs-
mennsku og efnishyggju og sagði
þá ekki gera sér ljóst að sjálf-
stæði landsins væri í hættu.
Ennfremur fullyrti hann að mið-
flokkamir hefðu ævinlega staðið
flokka fremst vörð um sjálfstæði
þjóðarinnar og kvaðst líta á sjálf-
an sig sem eina af sjálfstæðis-
hetjum þjóðarinnar. Einnig nefndi
hann þá K.J. Stahlberg, sem var
fyrsti forseti landsins og samdi
stjórnarskrána, Kyösti Kallio, sem
var forseti í Vetrarstríðinu
1939-1940 og Urho Kekkonen,
fyrmm forseta.
Paavo Váyrynen er rúmlega
fertugur að aldri og er stjóm-
málafræðingur að mennt. Á
síðasta kjörtímabili gegndi hann
stöðu utanríkisráðherra. Hann
hefur verið sakaður um valdafíkn
og frekju og hefur til marks um
það verið bent á að hann hafi
fyrst náð að sölsa undir sig emb-
ætti formanns Miðflokksins og nú
hafí honum tekist að hljóta útn-
efningu sem forsetaefni flokksins.
Almennt var talið að Váyrynen
hygðist freista þess að mynda
ríkisstjórn borgaraflokkanna eftir
síðustu þingkosningar og hefði
það treyst stöðu hans í komandi
forsetakosningum. Þegar Mauno
Koivisto forseti fól hægri mannin-
um Harri Holkieri að mynda
samsteypustjórn hægri manna og
jafnaðarmanna þótti mörgum að
með því væri verið að vega að
Váyrynen. Koivisto hefur vísað
öllum slíkum ásökunum á bug en
Váyrynen hefur gagnrýnt stjórn-
arhætti Koivistos og ríkisstjórnar-
innar. Miðflokksmenn fullyrða að
Koivisto og stjómarflokkamir hafi
ekki fylgt þingræði og vilja meiri-
hluta þjóðarinnar.
Andstæðingar Váyrynens
skopast mjög að honum og segja
hann framagosa. Fyrir skömmu
birti eitt dagblaðanna í Helsinki
niðurstöður skoðanakönnunar þar
sem fram kom að Váyrynen er
langóvinsælasti stjórnmálaleið-
togi landsins. Herferðin gegn
Váyrynen varð það áberandi að
nokkrir stjómmálamenn, þeirra á
meðal Harri Holkeri forsætisráð-
herra, tóku til máls og hvöttu
menn til að láta Váyrynen í friði.
Með þessu var ekki einungis
stefnt að því að vemda nætur-
svefn Váyrynens heldur vom
menn teknir að óttast að hann
yrði nokkurs konar píslarvottur.
Fréttaskýrendur í Helsinki em
almennt þeirrar skoðunar að her-
ferðin gegn Váyrynen hafi verið
stöðvuð of seint. Kosningafundur
hans á sunnudag gaf ótvírætt til
kynna að Miðflokkurinn hyggst
styðja hann í hvívetna. Áður höfðu
skoðanakannanir sýnt að þó nokk-
uð margir stuðningsmenn Mið-
flokksins hygðust styðja Mauno
Koivisto. Ólíklegt er talið Váyryn-
en sigri í forsetakosningunum en
talið er að hann stefni að því að
verða næstur Mauno Koivisto,
sem sagður er ömggur um sigur.