Morgunblaðið - 26.08.1987, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987
TENNIS / HÆFNISLISTINN
. Kjartan efstur
Kjartan Óskarsson er efstur á
hæfnislista íslensku tennis-
samtakanna að loknu íslandsmót-
inu. Kjartan hefur staðið sig vel á
mótum sumarsins, en hann tapaði
úrslitaleiknum á íslandsmótinu fyr-
ir Úlfí Þorbjömssyni. Úlfur stundar
nám í Bandaríkjunum og hefur
mikla yfirburði yfir íslenska leik-
menn í íþróttinni, en hann hefur
ekki tekið þátt í mörgum mótum
hérlendis. Christian Staub, sem er
einn besti tennisleikari landsins er
erlendur ríkisborgari og er því ekki
á listanum, sem er eftirfarandi:
A flokkur:
Kjartan Óskarsson, Einar Ásgeirs-
son, Ámi T. Ragnarsson, Amar
Arinbjamar, Jón Páll Gestsson,
Ragnar T. Ámason, Kristján Bald-
vinsson, Guðmundur Eiríksson, Atli
Þorbjömsson, Reynir Óskarsson,
Einar Óskarsson, Hjálmar Aðal-
steinsson, Stefán Bjömsson, Stefán
Eggertsson, Einar Thoroddsen.
B flokkur:
Ingvar Guðjónsson, Alexander
Þórsson, Einar Þórhallsson, Guð-
mundur Friðfinnsson, Sigurður
Ásgeirsson, Einar Sigurðsson, The-
odór L., Einar Ólafsson, Guðmund-
ur T. Ámason, Reynir Friðfmnsson,
Jónas Bjömsson, Elías Leifsson,
Regin Grímsson, Stefán Franklín,
Garðar Jónsson, Óskar Guðmunds-
son, Jón Eysteinsson, Ámi Sig-
valdason, Birgir Jónsson.
C flokkur:
Þorsteinn Magnússon, Sigurður
Halldórsson, Uggi Agnarsson,
Gunnar Sverrisson, Árni Ámason,
Atli Arason, Þórarinn Ragnarsson,
Guðbjöm Svavarsson, Pétur Stef-
ánsson, Stefán Pálsson, Páll Stef-
ánsson.
Kjartan Óskarsson er efstur á hæfnislista tennissamtakanna.
GOLF / OLIS-BP MOTIÐ
Morgunblaðið/Ó^kar Sæmundsson
Verðlaunahafar á mótinu ásamt Björgúlfi Lúðvíkssjmi, framkvæmdastjóra GR, og Óla K. Sigurðssyni, forstjóra Olís.
Asgerður og Ragnar unnu
ÁSGERÐUR Sverrisdóttir og
Ragnar Ólafsson, bæði í Golf-
klúbbi Reykjavíkur, sigruðu á
Olís-BP mótinu í golfi, sem
fram fór í Grafarhoiti um helg-
ina, en Halldór Sigurðsson
einnig í GR sigraði í opnum
flokki með forgjöf.
Ragnar fór á 147 höggum, en
Gunnar Sigurðsson GR og Sig-
urður Hafsteinsson GR vom á 149
höggum.
Ásgerður sigraði í kvennaflokki á
174 höggum, Aðalheiður Jörgensen
var í öðm sæti á 176 og Jónína
Pálsdóttir í því þriðja á 177 högg-
um, en þær em allar í GR.
Halldór fór á 134 höggum í opnum
flokki með forgjöf, en Guðmundur
Ragnarsson GK, Hjalti Arason GR
og Guðmundur Jónasson GR vom
allir á 137 höggum.
Kristinn Jóhannsson var 130 cm frá
holu á 2. braut, Steinn A. Jónsson
55 cm á 6. braut, Arnar H. Ottesen
næstur holu á 11. braut og Guð-
mundur Ingólfsson á 17. braut og
fengu þeir sérstök verðlaun fyrir,
en Olíuverslun íslands gaf öll verð-
laun til keppninnar og fengu allir
136 keppendumir gjafapakka með
ýmsum golfhlutum.
SKIÐASTOKK
Stokkið af postu
línspalli í Noregi
Hér í Noregi fór á dögunum
fram fyrsta skíðastökkskeppni
pmpg í plastbrekku í Mari-
Fré Jóni kollen rétt fyrir utan
Óttari Osló. Meðal þátttak-
Karissyni enda vom margir af
/ Noregi beztu skíðastökkv-
umm heims. Stökkpallurinn er bú-
inn til úr postulíni og vatn notað
til að auka rennsli. Niðri í brekk-
unni er hálfgert gervigras og til að
stöðva stökkmennina er eins konar
sagmassi neðst í Brautinn.
Úrslit keppninnar uröu þau að Trond Göran
Pedersen hlaut 235,6 stig, Annar varð Jan
Boklöv frá Svíþjóð með 235,5 stig og þriðji
Ole Gunnar Fidjestöl Noregi 218,5, Qórði
Henz Kutten Austurríki 215,7 stig og fimmmti
Andreas Felder Austurríki 214,6 stig.
Kappamir stukku lengra en í snjónum, 94,5
metra það lengsta. Lengsta stökk þess sem
lengst hafði stokkið var 91,5 metrar.
VELHJOLAKAPPAKSTUR / HEIMSMEISTARAKEPPNIN
Sjötti
sigur
Wayne
Gardner
Ástralíubúinn Wayne Gardn-
er gefur ekkert eftir í heims-
meistarakeppninni í vélhjóla-
kappakstri fyrir 500 cc
véíhjól. Hann vann um helg-
ina sinn sjötta sigur í ár með
því að koma fyrstur í mark á
Brno kappakstursbrautinni í
Tékkóslóvakíu á Honda.
Gardner hefur nú 26 stiga
forskot á Bandaríkjamanninn
Randy Mamola í baráttunni
um heimsmeistaratitilinn.
Gardner náði strax forystu á
brautinni í Bmo, sem var
nýuppbyggð, Tékkar höfðu eytt
milljónum dollara í brautargerð
til að fá keppnina til sín. Hvorki
meira né minna en 180.000 áhorf-
endur mættu til að sjá kappana
frá Vesturlöndum, enda sjaldgæft
að keppni af þessu tagi fari fram
austantjalds. Bandaríkjamaður-
inn Eddie Lawson á Yamaha,
núverandi heimsmeistari, reyndi
hvað hann gat að halda í við
Gardner, en þrátt fyrir tilþrif varð
hann 1,87 sekúndum á eftir í
mark. Mamola á Yamaha náði
Morgunblaöiö/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Snilll Wayne Gardner á
Honda er engu lík. Hann hefur
unnið sex mót í heimsmeist-
arakeppninni í vélhjólakapp-
akstri og er líklegur til að
hljóta titilinn, nú þegar fjórum
mótum er ólokið. Gardner er
á fullri ferð á hjóli sínu á
myndinni að ofan. Á minni
myndinni fagnar hann sigri í
Tékkóslóvakíu um helgina.
Kampavínsflaskan fer sjálf-
sagt að gróa við Gardner ef
svo heldur fram sem horfir,
hann vinnur og vinnur á vél-
hjóli sínu.
aðeins íjórða sæti, en honum hefði
ekki veitt af sigri í kapphlaupinu
um heimsmeistaratitilinn. Ma-
mola hefur nú 109 stig á móti
135 stigum Gardners. Lawson
hefur 103 stig og titillinn virðist
nú úr greipum hans.
Simamynd/Reuter
GOLF / STENDHAL-MOTIÐ
Kristín sigraði
KRISTÍN Pálsdóttir GK sigraði
á Stendhal-opna kvennamót-
inu í golfi, sem fram fór á
Hlíðavelli í Mosfellsbæ um fyrri
helgi. Alls kepptu 36 kylfingar
á mótinu.
Kristin fór á 85 höggum, en
íslandsmeistarinn Þórdís
Geirsdóttir hafnaði í öðru sæti á
86 höggum. Alda Sigurðardóttir
varð þriðja á 87 höggum.
Hanna Aðalsteinsdóttir sigraði með
forgjöf á 71 höggi nettó. Kristín
Pálsdóttir varð önnur, einnig á 71,
og Svala Óskarsdóttir þriðja á 74
höggum nettó.
Veitt voru sérstök aukaverðlaun
fyrir lengsta teighögg á 7. eða 16.
braut og hlaut þau Svala Óskars-
dóttir GR. Anna Einarsdóttir NK
fékk aukaverðlaun fyrir að vera
næst holu á 9. eða 18. braut.
Á myndinni eru verðlaunahafamir ásamt Rósu Matthíasdóttur hjá heildversl-
unni Gasa, sem er með umboð fyrir Stendhalvörur.