Morgunblaðið - 26.08.1987, Síða 5
5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987
Morgunblaðið/KJS
Best að setja örlitinn kinnalit til að byija með. Hinn ungi Akureyringnr er samt
ekki of viss i sinni sök hvort eigi að halda þessu málningarstússi áfram.
Félagar i leiklistarklúbbnum Sögu skreyttu gesti og gangandi i göngugötunni á
dögunum þegar Hljóðbylgjan stóð að skemmtun með unglingahljómsveitum og fleiru.
Afmæli Akureyrar:
Saga setur svip á skrúðgöngur
Leiklistarklúbburinn Saga, sem
er hópur ungs fólks á Akureyri
verður með skemmtiatriði á
125 ára afmæli bæjarins næst-
komandi laugardag og mun
hann setja svip sinn á skrúð-
göngur i bænum auk þess sem
hann mun koma fram á dag-
skránni i göngugötunni sem
hefst klukkan 14.30.
Saga hefur verið starfandi í
nokkur ár og meðal annars farið
í leikferð um Norðurlöndin. Félag-
ar í klúbbnum hafa þegar látið
nokkuð til sín taka varðandi und-
irbúning hátíðarhaldanna sem nú
eru í fullum gangi því á dögunum
voru þau uppábúin við pallinn í
göngugötunni og buðust til að
skreyta viðstadda i framan. Var
þvi misjafnlega tekið; ihaldssamir
eldri borgarar voru ekki á þeim
buxunum að láta mála sig i fram-
an en yngri kynslóðin var tilleið-
anlegri, eins og sjá má á myndum.
Einkareikningur Landsbankans
er tékkareikningur sem tekur
öðrum fram: Háir vextir, kostur á
yfirdráttarheimild, láni og margvís
legri greiösluþjónustu. Reikningur sem er
saminn að þínum þörfum í nútíð og framtíð.
Með Einkareikningi sameinar Landsbankinn þau viðhorf
sem ríkjandi eru í fjármálaviðskiptum um góða ávöxtun,
greiösluþjónustu og sveigjanleika.
Einkareikningur er um margt frábrugðinn hefðbundnum
tékkareikningum. Vextir eru reiknaðir daglega og eru miklu
hærri en áður hafa þekkst svo þú þarft ekki lengur að eltast
við að millifæra á milli tékkareikninga og sparisjóðsbóka til
að fá hærri vexti. Þeir fara ekki stighækkandi eftir upphæðum
heldur eru jafnháir af öllum innstæðum.
Einkareikningshafar geta sótt um yfirdráttarheimild, allt
að 30.000 krónur, til að mæta aukafjárþörf ef á liggur.
(tengslum við Einkareikning gefst ennfremur kostur á
láni að fjárhæð allt að 150.000 krónur í formi skuldabréfs til
allt að tveggja ára.
Einkareikningi fylgir bankakort sem þjónar tvennum
tilgangi, annars vegar að vera ábyrgðarkort í tékkaviðskipt-
um og hins vegar að vera aðgangskort að hraðbönkum.
Bankakortið gerir 16-17 ára unglingum fært að stofna
Einkareikning þótt þeir hafi ekki aldur til að nota tékkhefti.
Snúðu þér til næsta afgreiöslustaðar Landsbankans og
fáðu nánari upplýsingar um þennan nýja reikning.
Einkareikningur er tékkareikningur sem tekur öðrum fram.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna