Morgunblaðið - 26.08.1987, Side 16

Morgunblaðið - 26.08.1987, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987 Kauptilboð sjávarútvegsaðila hagstæðara; Útvegsbankinn verði áfram útvegsbanki - segir Kristján Ragnarsson, formaður LIU Blaðamaður gerði ferð sína á fund Kristjáns Raguarssonar, for- manns Landssambands íslenzkra útvegsmanna. Erindið var að gefa lesendum Morgunblaðsins kost á því að horfa smástund - um hans gleraugu - til sjávarútvegsins, undirstöðuatvinnuvegarins. Tilboð sjávarútvegsaðila annarsvegar og Sambands íslenzkra samvinnufé- laga hinsvegar í eignarhluta ríkisins í Útvegsbanka íslands hf. ber að sjálfsögðu á góma, enda mál málanna hjá sjávarútveginum á líðandi stund. Lífskjörin eru sótt í sjó Blaðamaður hefur stuttan for- mála að viðtalinu: íslendingar eiga enga auðlind mikilvægari en fiski- stofnana í hafinu umhverfis landið. Lífskjör landsmanna eru að stærst- um hluta sótt ísjó. Þijár af hveijum fjórum krónum útflutningstekna fást fyrir sjávarvöru. Ogþorskurinn er hornsteinn efnahagslegs fullveld- is okkar. Hvernig hefur okkur tekizt varðveizla og nýting þessarar auð- lindar, að dómi formanns LIU, frá því að fiskveiðilandhelgin var færð út í 200 mílur fyrir 12 árum? - Með útfærzlu fiskveiðilögsög- unnar í 200 sjómílur tókum við á okkur ábyrgð á varðveizlu og nýt- ingu þeirrar auðlindar, sem nytja- fiskar eru íslenzkri þjóð, sagði Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ. Áður áttum við í samkeppni við erlenda aðila um þessa nýtingu. Þá gagnaði ekki að við gættum hófs í eigin veiðisókn meðan þeir gerðu hið gagnstæða. Þessvegna var það mál málanna fyrir okkur að ná yfirráðum yfir fiskimiðunum umhverfis landið og axla þá ábyrgð, sem þeim yfirráðum fylgir. Það má segja að okkur hafi tekizt misjafnlega til á þessu tíma- bili, bæði að því er varðar fiski- fræðilegar ráðleggingar og veiðistýringu, þó heildarmyndin sé viðunandi. Hinsvegar höfum við mikið lært á þessum tíma. Þekking fiskifræðinga hefur aukizt og tiltrú sjómanna og útvegsmanna á starfi þeirra og ráðleggingum sömuleiðis. Ég tel að nú séu betri aðstæður til að meta stöðu þessara mála og framfylgja fiskifræðilegum ráð- leggingum en áður var. Sem mestur arður með sem minnstum kostnaði Við ofveiddum þorskinn 1980, 1981 og 1982. Þá fór of mikill sókn- arþungi saman við slæm skilyrði í sjónum; þorskurinn óx mun hægar en við eðlilegar kringumstæður. Þetta tvennt virkaði saman til óeðli- legrar skerðingar þorskstofnsins. Með upptöku kvótakerfísins 1984 hefur verið unnið markvisst að því að nýta fiskistofnana, ekki aðeins þorskstofninn, með það megin- markmið í huga, að þeir gefí sem mestan arð í þjóðarbúið - án þess að stefna þeim í hættu eða hrun. Þetta byggist á margvíslegu sam- komulagi við stjómvöld, t.d. um stærð fiskiskipaflotans, sem aug- Ijóslega er of stór nú, eins og bezt sést af öllum þeim veiðitakmörkun- um sem við þurfum að búa við. Það er mikilvægt en jafnframt erfitt að takmarka stærð veiðiflotans. Það er gert á strangan máta; það skal víkja skip fyrir hveiju nýju skipi og veiðiréttur nýs skips verður ekki meiri en hins eldra, er víkur. Veiði hefur hinsvegar aukizt, m.a. vegna betri uppvaxtarskilyrða fiskistofna í sjónum, en einnig vegna þeirra aðgerða, sem miðað hafa að því að ná sem mestu út úr auðlindinni með sem minnstum tilkostnaði. Hlutfallsleg notkun veiðarfæra og ojíu hefur minnkað, vegna veiðistýringar, sem heldur sókn í skefjum. Þetta samhliða auknum afla og stórhækkuðu verði á físki hefur leitt til þess að stjórn- völdum hefur tekizt að ná niður verðbólgu, sem er líka mikilvægt atriði í rekstri fískiskipaflotans, vegna þess að á honum hvílir mikið af erlendum lánum, sem að rísa með lækkuðu gengi. Jafnframt eru aðföng útgerðar, eins og olía og veiðarfæri, mjög tengd erlendum verðum, sem eru að sjálfsögðu háð gengi krónunnar. Staða útg’erðar hefur styrkzt Hefur rekstrarleg staða útgerðar þá styrkzt síðustu misseri, eftir hjöðnun verðbólgu, þrátt fyrir hið umdeilda kvótakerfi? - Hagstæð ytri skilyrði, bæði í sjónum og í verðþróun sjávarvöru, samhliða hjöðnun verðbólgu, sem og þeirri viðleitni að ná þeim afla, er fískifræðileg rök standa til að veiða, með sem minnstum kostn- aði, hefur samvirkandi leitt til þess að afkoma útgerðarinnar hefur batnað verulega frá því sem áður var. Það var og mjög nauðsynlegt eftir margra ára mikinn taprekstur, uppsöfnun skulda, skuldbreytingar, sem menn gátu síðan ekki staðið í skilum með. Nú virðist útgerðin, þegar við tölum um þetta almennt, rísa undir skuldbindingum sínum og nokkrum endurbótum að kröfum tímans. Afkoma útgerðar hefur batnað. Afkoma fískvinnslu einnig, sérstaklega saltfiskverkunar, en skortur á vinnuafli í frystiiðnaði hefur háð þeirri grein nokkuð. Blik- ur eru og á lofti loðnuútvegs og fískimjölsiðnaðar, en verðþróun þeirrar framleiðslu hefur verið nei- kvæð. Og fastgengisstefnan kemur ekki vel við framleiðslu, sem býr að lækkandi söluverði erlendis. Ég vil sérstaklega undirstrika þá skoðun mína að góð afkoma í sjáv- arútvegi er lykilatriði fyrir lands- byggðina, ef hún á að styrkja stöðu sína gagnvart höfuðborgarsvæðinu og halda sínum hlut í eðlilegri fjölg- un þjóðarinnar á næstu árum. Mikilvirkasta landsbyggðarstefnan felur í sér sterkan sjávarútveg, veið- ar og vinnslu. Hagriýtar rannsóknir Augu almennings eru smám saman að opnast fyrir gildi fiski- fræðilegra rannsókna. Gegnir sama máli um aðrar hagnýtar rannsókn- ir? - Hagnýtar rannsóknir í þágu atvinnuveganna, bæði fiskifræði- legar og annars konar, hafa meira vægi í hugum hagsmunaaðila og almennings en áður var. Ég tel að það þurfi að efla þessa starfsemi. Ég hefi látið þau orð falla að það væri æskilegt að sjávarútvegurinn stæði í ríkari mæli undir þessum rannsóknum en verið hefur, sam- hliða því að öðlast þá meiri áhrif á það, hvað gert er, hvem veg að málum er staðið. Það mundi og tengja þessa aðila betur saman og tiltrú milli manna myndi aukast. Frestur til miðs nóvembermánaðar Og síðast en ekki sízt: hvernig horfir samkeppni sjávarútvegsaðila og SÍS um Útvegsbankann við formanni LIÚ? - Tildrög þessa máls eru á þann veg að fyrrverandi ráðherra banka- mála talaði ítrekað um það við okkur hjá LÍÚ og aðila hjá sölusam- tökum sjávarútvegsins að við hefðum forgöngu um að sjávarút- vegurinn í heild keypti hlutabréf ríkisins í Útvegsbankanum. Þetta mál var rætt á fundi stjóm- ar LÍU 11. maí sl. Þar var samþykkt að leggja fram 50 milljónir króna til kaupa á hlutabréfunum. Tilgang- urinn var sá að efla samstöðu meðal sjávarútvegsaðila um þessa aðgerð. Þá var og ákveðið þegar lög um Útvegsbankann vóru sett að heim- ila Fiskveiðasjóði að kaupa hluta- bréf fyrir allt að 200 m.kr., fyrst og fremst með það í huga, að styðja sjávarútveginn í kaupum þessara hlutabréfa. í stjóm sjóðsins sitja aðilar frá sjávarútveginum og þeir töldu að það væri hagkvæmt fyrir útveginn að Fiskveiðasjóður tæki með þéssum hætti þátt í þessum hlutabréfakaupum. Állt var þetta rætt og gert á grundvelli þess að sjávarútvegsaðilar keyptu hlutabréf í bankanum. Við töldum okkur hafa tíma fram til miðs nóvembermánaðar næst- komandi til að ýta úr vör víðtæku samátaki sjávarútvegsaðila og skila kauptilboði í hlutabréfin og það tímamark var að sjálfsögðu á vit- orði Sambandsmanna. Mál stóðu og þannig í mínum huga að eðlilegt væri að Sjávarafurðadeild SÍS tæki hliðstæðan þátt í þessu samátaki sjávarútvegsins og aðrir sjávarút- vegsaðilar. Sýnt er nú að við hefðum mátt hafa meiri hraða á, eftir að kauptil- boð SÍS er fram komið, en það breytir hinsvegar engu um rétt sjáv- arútvegsaðila til að fylgja fram því sem frá upphafí var að stefnt með hinum nýju lögum um Útvegs- bankann, að styrkja stöðu sjávarút- vegsins í bankakerfinu. Við teljum okkur hafa skilað til- boði, innan tímamarka, í öll óseld hlutabréf ríkisins í bankanum. Við höfum boðist til að greiða lítið eitt meira út en Sambandið og við geng- um að ákvæðum um greiðslutíma, fimm ár, en sambandsmenn óskuðu eftir viðræðum um þetta atriði. Þessvegna undrast ég þau ummæli SÍS-manna, að þeir hafí þegar gert kaup á bréfunum, enda hefur ráð- herra vísað þeirri staðhæfíngu á bug. Hann tók við kauptilboði úr hendi SIS með fyrirvara. Kauptilboð sj ávarútvegsaðila Ég tel að mér hafi verið falið það af stjórn LÍÚ að beita mér fyrir þessu máli. Þessvegna hefí ég tekið þátt í því að safna saman hlutaíjár- loforðum, sem eru langsamlega flest komin frá sjávarútveginum og viðskiptaaðilum hans og þjónustu- fyrirtækjum, sem alltaf stóð til að fá til samátaks um þetta mál. Fleiri hafa síðan bætzt í hópinn til að gera það mögulegt að kaupa allt hlutaféð og skilja ekkert eftir óselt, vegna þess að ríkið hefur naumast kost á því að selja það sem eftir yrði. Ég tel eðlilegt að sjávarútvegur- inn taki þátt í bankastarfsemi. Hann hefur ekki gert það vegna þess að það hefur verið ríkjandi viðhorf að hann eigi rétt á að fá þessa þjónustu frá ríkisbönkum. Hann fær og þessa þjónustu að stærstum hluta þaðan. Sjávarút- vegurinn er að meirihluta til í viðskiptum við Landsbankann. En það breytir ekki því að með því að kaupa Utvegsbankann verður sjáv- arútvegurinn áhrifaaðili í banka- starfseminni. Sameining og fækkun bankastofnana Að baki kauptilboði sjávarút- vegsaðila _býr einnig viðleitni til að sameina Útvegsbanka og Iðnaðar- banka og raunar einnig Verzlunar- banka, sem lengi hefur verið talið æskilegt hægræðingarátak í banka- kerfínu. Ég tel að nú liggi fyrir skýlaus viljayfirlýsing frá Iðnaðar- banka um þetta efni - sem og yfírlýsing frá Verzlunarbanka, sem eru mun ákveðnaðri en áður. Sam- runi þessara banka væri mjög þýðingarmikið skref til þess að bæta rekstur bankakerfisins og gera það hagkvæmara í þjónustu við viðskiptavini. Þessir aðilar hafa einnig átt viðtöl við forystumenn Alþýðubankans. Ég tel alls ekki útilokað að hann geti orðið aðili að þessu einnig. Ég veit ekki til að það liggi fyrir neitt samkomulag við SÍS þess efnis að Alþýðubankinn gangi til samvinnu við sambandið. Skrítin ummæli ut- anríkisráðherra Svona horfir málið við mér. Mér þykir miður að pólitísk átök hafa orðið um þetta mál vegna þess að innan LÍÚ er ekki tekizt á um pólitík. Hér eru allir sjávarútvegs- aðilar félagar, hver sem staða þeirra er í stjórnmálum, og hvaða form sem þeir hafa á sinni atvinnustarf- semi, einkarekstur, hlutafélög, samvinnuform, eða rekstur með þátttöku sveitarfélaga. Ég vona að þessi umljöllun öll verði ekki til að kveikja pólitískar umræður innan LÍÚ. Mér fínnst hinsvegar miður að SÍS-menn og Tíminn hafa veitzt persónulega að sumum okkar fé- laga í þessum 33ja aðila hópi, sem að kauptilboðinu stendur, en ég mun ekki gjalda líku líkt. Það hafði og verið rætt í okkar hóp að bjóða Sjávarafurðadeild SÍS þátttöku í þessari hlutafjársöfnun okkar ef hún hefði fengið að ganga fyrir sig með eðlilegum hætti til hausts, en mál þróuðust ekki svo. Utanríkisráðherra segir afdrátt- arlaust í sambandi við hugsanlega sölu á Búnaðarbanka, að sá banki verði alls ekki seldur nema í nánu samstarfi við bændasamtökin. En honum virðist hinsvegar finnast allt í lagi að selja Útvegsbankann í bendur SÍS án samráðs við samtök útgerðarinnar og sjávarútvegsins í landinu. Hér skýtur skökku við. Ég vil hinsvegar að gefnu tilefni taka fram að samtök útvegsmanna hafa átt mjög gott og árangursríkt samstarf við sjávarútvegsráðherra, sem nú er að heíja sitt annað kjörtímabil. Þetta samstarf sýnir vel að LÍÚ metur menn eftir mál- efnum og starfsárangri en alls ekki pólitískum línum. Meirihlutaeign eins aðila ekki æskileg Það liggur fyrir að okkar tryggingar eru fullgildar sem og tilboðið í heild. Þegar þessi tilboð eru borin saman og með hliðsjón af því hvar Útvegsbankinn starfar og hvar hans útibú eru þá undrast ég áhuga sambandsmanna í þessu máli og fínnst það liggja í augum uppi að það sé miklu eðlilegra fyrir viðskiptaráðherra að selja þessi hlutabréf sjávarútvegsaðilum held- ur en einni valdastofnun, sem Sambandið óumdeilanlega er. Ég vísa í því efni einnig til þess að það höfðu safnast 36 m.kr. með- al sjö til átta hundruð einstaklinga, sem yrðu þá sameignarmenn að bankanum með Fiskveiðasjóði og þeim 33 aðilum, sem að tilboði sjáv- arútvegsaðila standa. Það er aug- ljóst að bréf þessara aðila verða lítils virði ef að einn aðili fær meiri- hlutaeign í bankanum. Það má segja að það ætti ekki að vera ofverk samtaka útvegs- manna að beita sér fyrir því að útgerðin keypti þessi bréf og ætti þennan banka. Mér þætti það hins- vegar óeðlileg þróun, þó við getum státað af rúmlega 500 félagsmönn- um með allskonar rekstrarform, ef að samtökin hefðu átt meirihluta. Það er von mín að þetta mál fái farsælar lyktir fyrir sjávarútvegs- aðila og að Útvegsbankinn verði áfram útvegsbanki, eins og nafn hans og saga stendur til. Sam- vinnubanki er þegar til staðar. sf. Kristján Ragnarsson, formaður LÍU, á skrifstofu sinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.