Morgunblaðið - 26.08.1987, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987
Samræmi náttúru
og nafngiftar
BÆRINN Skjaldfönn í Naut-
eyrarhreppi við Isafjarðardjúp
vekur athygli þeirra sem leið
eiga hjá. Þórir H. Óskarsson
ljósmyndari kom þessari mynd
á framfæri við Morgunblaðið
en sérlega snyrtileg bæjarhús
og umhverfi allt bera ábúend-
um þar góða söguna. Þá er því
ekki að neita að bæjarnafnið
er við hæfi.
Amnesty International:
Fangar mánaðarins
— ágúst 1987
Mannréttindasamtökin Am-
nesty International vilja vekja
athygli almennings á máli eftir-
farandi samviskufanga í ágúst.
Jafnframt vonast samtökin tii að
fólk sjái sér fært að skrifa bréf
til hjálpar þessum föngum og
sýna þannig í verki andstöðu sína
við að slík mannréttindabrot. eru
framin. Islandsdeild Amnesty
gefur einnig út póstkort til
stuðnings föngum mánaðarins
og fást áskriftir á skrifstofu sam-
takanna.
Pakistan: Ghanshyam Parkash
er læknanemi, virkur í stúdenta-
samtökum. Hanri var handtekinn
21. desember 1982 og fluttur í
ókunnugt hús þar sem fundust m.a.
bæklingar. Honum var haldið í
gæsluvarðhaldi án þess að hafa
aðgang að lögfræðingi né fá heim-
sóknir frá fjölskyldumeðlimum í 3
mánuði. Hann var loks dæmdur af
herrétti í maí 1985 og hlaut 7 ára
fangelsisdóm fyrir að eiga bæklinga
sem taldir voru „óæskilegir".
Gæsluvarðhaldstíminn var ekki
dreginn frá fangelsisdómnum. Am-
nesty telur að dómsmeðferðin hafi
ekki fallið innan ramma sann-
gjarnra réttarhalda.
Perú: Mauro Aristides Ochoa
er 29 ára búnaðarráðunautur. Hann
var handtekinn af lögreglunni á
heimili sínu 2. desember 1985. Lög-
fræðingur sem sá hann 7 dögum
síðar sagði að hann hafi verið illa
farinn eftir pyntingar sem hann
hlaut þegar reynt var að þvinga
hann til að játa aðild að hryðju-
verkasamtökum. Hann hefur verið
ákærður fyrir að taka þátt í hryðju-
verkastarfsemi og er eina sönnun-
argagnið gegn honum vitnisburður
skólapilts og var hann fenginn með
pyntingum. Þessi vitnisburður hef-
ur verið dreginn til baka. Einnig
hefur Mauro Ochoa stöðugt neitað
aðild að hryðjuverkasamtökum.
Ákæran stendur þó ennþá. Amnesty
telur að Mauro Ochoa sé í fangelsi
vegna aðstoðar sem hann veitir
bændum, en margir bændaleiðtogar
og búnaðarráðunautar hafa verið
handteknir og ákærðir fyrir hryðju-
verkastarfsemi.
Rúmenía: Dumitru Iuga er 40
ára rafvirki. Árið 1983 var hann í
samtökum sem í voru nemendur og
ungir verkamenn sem voru óánægð-
ir með stefnu forseta Rúmeníu,
Nicolae Ceausescu, og ætluðu að
kynna óánægju sína á prenti. Félag-
ar samtakanna voru handteknir
áður en það tókst og dæmdir í sept-
ember 1983 fyrir „áróður gegn
rúmenska ríkinu". Dumitru Iuga
hlaut 10 ára fangelsisdóm en 7
aðrir fengu 5 ára dóm. Skv. upplýs-
ingum sem Amnesty hefur aflað sér
hafa þessir 7 verið látnir lausir og
fangelsisdómur Dumiti-u Iuga kann
að hafa verið styttur vegna al-
mennrar sakaruppgjafar í landinu.
Þeir sem vilja leggja málum þess-
ara fanga lið, og þá um ieið
mannréttindabaráttu almennt, eru
vinsamlegast beðnir að hafa sam-
band við skrifstofu Islandsdeildar
Amnesty, Hafnarstræti 15 í
Reykjavík. Skrifstofan er opin kl.
16.00-18.00 alla virka daga.
Seiðaeldisstöð Fjallalax hf.
á Hallkelshólum vígð
Framleiðslugetan 1,5 milljón seiði á ári
Selfossi.
SEIÐAELDISSTÖÐ Fjallalax á
Hallkelshólum í Grímsnesi var
vígð á laugardag. Stöðin er sú
stærsta sinnar tegundar á Is-
landi. Framleiðslugetan er
1,5-1,7 milljónir seiða á ári og
framleiðsluverðmætið áætlað
140 milljónir á ári. Aðaleigend-
ur stöðvarinnar eru Gísli
Hendriksson og Hörður Falsson
sem eiga 51% og norska fyrir-
tækið Seafood Development AS
í Osló sem á 49% hlutafjár. Hlut-
afé fyrirtækisins er 33 milljónir
króna og framkvæmdastjóri
þess er Úlfar Antonsson og
stjórnarformaður Ragnar Aðal-
steinsson.
Stöðin var vígð við hátíðlega
athöfn þar sem séra Ingólfur Guð-
mundsson blessaði vatn stöðvar-
innar á táknrænan hátt og
Rannveig Albertsdóttir sleppti
nokkrum seiðum í eldisvatnið.
Gestir við athöfnina voru fjölmarg-
ir og skoðuðu þann hluta stöðvar-
innar sem hægt var að veita
aðgang að. Síðan var samkoma í
Félagsheimilinu Borg í Grímsnesi.
Framleiðslugeta stöðvarinnar er
um ein og hálf milljón 45 gramma
seiða á ári. Stöðin er sjálf 2500
fermetrar og eldisrýmið er 3600
rúmmetrar. Verðmæti ársfram-
Seiðaeldisstöð Fjallalax á Hallkelshólum í Grímsnesi.
leiðslunnar, um 140 milljónir, Fjallalax hf. mun rækta ólíka
nálgast að vera stofnkostnaður stofna af laxi, innlenda og er-
stöðvarinnar. lenda. Fyrirtækið hefur hafið
Rannveig Albertsdóttir, Gísli Hendriksson einn aðaleigenda Fjallalax
hf., Ragnar Aðalsteinsson formaður stjórnar Fjallalax hf., Cristian
Thommesen stjórnarformaður Seafood Development AS, Per Hans-
son í stjórn sama fyrirtækis, Úlfar Antonsson framkvæmdastjóri
Fjallalax hf. og Páll Úlfarsson.