Morgunblaðið - 26.08.1987, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 26.08.1987, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987 31 Ein af myndum Matthews James Driscoll. Ljósmyndasýning í Hafnargalleríi MATTHEW James Driscoll opn- ar ljósmyndasýningu í Hafnar- galleríi, Hafnarstræti 4 (efri hæð bókaverslunar Snæbjarnar), fimmtudaginn 27. ágúst nk. Á sýningunni eru 55 litmyndir, teknar víðsvegar í Evrópu og Bandaríkjunum á sl. 8 árum, en flestar þeirra eru frá Islandi. Matt- hew er fæddur 1954 í Boston í Bandaríkjunum. Hann nam enskar bókmenntir í Skotlandi og stundar nú nám í íslenskum fornbókmennt- um við Háskóla íslands. Hann hefur verið búsettur hérlendis frá 1979. Sýningin er opin á venjulegum verslunartíma og henni lýkur 9. september. iásIT 'v v' t'4' ■ I & é •M'nWÍWfi k %* 11 j. . ■ itm é - w Atriði úr sýningu Light Nights. Leikendur: María Ingibjörg Reynd- al, Ragnheiður Þorsteinsdóttir, Kristín G. Magnús, Guðjón Guðlaugs- son og Jóhanna Jónasdóttir. Sýningum Ferðaleik- hússins að ljúka SÝNINGUM Ferðaleikhússins á Light Nights er nú að ljúka. Síðustu sýningamar verða nk. fimmtudags-, föstudags-, laugar- dags- og sunnudagskvöld. Sýningarnar fara fram í Tjarn- arbíói við Tjörnina í Reykjavík og hefjast kl. 21.00. Light Nights sýningamar eru sérstaklega færðar upp fyrir ensku- mælandi ferðamenn. Efnið er allt íslenskt, en flutt á ensku, að undan- skildum þjóðlagatextum og kveðn- um lausavísum. Sýningaratriði eru 25 alls sem em ýmist leikin eða sýnd með fjölmyndatækni („audio visual"). Leiksviðsmyndir em af baðstofu um aldamótin og af víkingaskála. Stofnendur og eigendur Ferða- leikhússins em Halldór Snorrason, Kristín G. Magnús og Magnús S. Halldórsson. Þetta er 18. sumarið sem Ferðaleikhúsið stendur fyrir sýningum á Light Nights í Reykjavík. Síðasta sýningin verður eins og áður er getið sunnudaginn 30. ágúst. Sýnir í Eden SIGURPÁLL Á. ísfjörð opnaði myndlistarsýningu þriðjudaginn 25. ágúst í Eden í Hveragerði. Á sýningunni í Eden sýnir Sigur- páll 36 vatnslita- og olíumyndir sem allar em til sölu. Þetta er 17. sýn- ing Sigurpáls. Sýningin stendur til 7. septem- ber. Morgunblaðið/Einar Falur -m Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Ogrynni fjármuna og tíma hafa farið í rallið hjá Steingrími Ingasyni og Ægi Ármannssyni. Til þessa hafa þeir aðeins einu sinni uppskorið árangur, í Skagarallinu, þar sem þeir náðu öðru sæti. Hér þeysa þeir sérleið við Bæ, sem verður í Ljómarallinu. Ljómarall 1987: Fallvölt og dýr toppbarátta — rætt við Steingrím Ingason, einn af toppökumönnum rallsins „Tel íslendinga hiklaust hafa hæfileika á við þá bestu erlendis, en okkur vantar tíma og peninga til að nýta þá,“ segir Steingrím- ur m.a. i viðtalinu. Hér er bíll hans á miðju smíðatímabilinu. ___________Rall Gunnlaugur Rögnvaldsson „EG tel að menn verði að hafa virkiiega trú á sjálfum sér, ef þeir ætla að ná árangri í rall- akstri. Sjálfstraust er mikil- vægara í rallinu en mörgum öðrum íþróttum. Ef ég hefði ekki fullkomið sjálfstraust væri ég ekki að leggja jafnmikið undir til árangurs og ég hef gert.“ Svo mælti Steingrímur Ingason, einn af þeim sem stefnir á sigur í Ljómarallinu og á árangur í framtíðinni. Hann hefur oft ekið geysilega vel, en toppbaráttan hefur reynst honum fallvölt og dýr. I ár hefur hann einu sinni náð öðru sæti í keppni en óvæntar uppákomur hafa slegið hann út af laginu í öðrum mótum. Steingrímur og aðstoðaröku- maður hans, Ægir Ármannsson, fengu slæman skell í síðustu keppni á Húsavík. Þeir fóru út af á mikilli ferð og eyðilögðu Dats- un-bílinn sem þeir óku. „Ég vann í allan vetur við smíði bílsins, byrjaði alveg frá grunni. Yfír- byggingin var sandblásin, eftir að allt hafði verið hreinsað burt, hver skrúfa og rafmagnsþráður. Bíllinn var mældur og togaður í rétt horf og bytjað að smíða hann upp að nýju. Fjaðrakerfi, stýri, stólum, rafkerfi — öllu var raðað að nýju • L bílinn. Ég var eiginlega öll kvöld og allar helgar að þessu með Hafþóri Hermannssyni, smíða- meistara mínum. Það gagnrýndu mig margir fyrir að útfæra svona gamlan bíl á jafndýran máta, en ég taldi mig hafa það góða reynslu og þekkingu á bílnum að það borgaði sig. Reynslan er dýr og maður hefur betra hugarfar gagn- vart bíl, sem maður hefur hannað sjálfur. Hann hentar líka íslensk- um aðstæðum." „Þriðji hlekkurinn brást — ég sjálfur“ „Þegar maður hefur smíðað eigin bíl, þá verða vonbrigðin því meiri ef illa gengur og eitthvað klikkar. Fyrsta keppnin sem ég fór í á þessu ári var á Ólafsvík. Ég keyrði frá Akureyri, þar sem ég hafði smíðað bílinn, áleiðis til Ól- afsvíkur. Fer þá ekki vélin! Ég fór aftur til Akureyrar við illan leik og með miklum látum var vélin rifin í tætlur. Með aðstoðarmönn- um fann ég varahluti í vélina, úr tveimur vélum, við náðum að klára að setja vélina saman og ég slapp til Ólafsvíkur rétt fyrir keppni eftir langar vökur. Ég lagði af stað í keppnina, en eftir 15 kílómetra bilaði drifíð! Þá varð ég svekktur. Allt var til ónýtis, en samt sætti maður sig fljótt við orðinn hlut. í næsta ralli, Skagarallinu, ákváðum við að keyra af öryggi, fara varlega og láta aðra lenda í óhöppum. Þá náðum við öðru sæti eftir yfirvegaðan akstur. Okkur þótti hins vegar annað sætið ekki nóg, þegar til kom, og til að vera í alvöru toppslag ákvað ég fyrir Húsavíkurrallið að setja öflugri vél í bflinn. Ég hafði notað 150 hestöfl til þess, en lét smíða 260 hestafla vél með góðum og sterkum gírkassa. Nú skyldi taka þetta af alvöru. Vélin var góð, gírkassinn, drifíð, bremsur, allt var klárt. Ég klikkaði hins vegar. Á Vaðlaheiði ókum við hratt niður brekkuna í átt að Akureyri og það reyndist of hratt, ég hafði mis- reiknað hraðann, bíllinn missti veggrip, fór útaf á stein og stöðv- aðist í skomingi. Ég fékk gífur- legt högg á bakið, steinninn hafði gengið inn að stólnum. Tognun í baki varð afleiðingin og bfllinn fór ekki lengra. Orka og öflugur bíll nægði ekki, þriðji hlekkurinn brást — ég sjálfur." „Fyrsta sætið er eina sætið“ „Ég hélt fyrir þessa keppni að ég væri kominn yfír útafkeyrslur, hef lent í nokkrum, m.a. í Ljómarall- inu í fyrra. En það er óskaplega stutt milli þess að vera fljótastur og út í móa. En ég tel að menn læri fyrr að aka hratt ef þeir fara eins nærri og yfir lögmálin varð- andi hraða og tregðu. Það er betra að færa sig niður í hraða, en fálma endalaust uppávið. Ég vona það í það minnsta. Ég tel íslendinga hiklaust hafa sömu hæfíleika og þeir bestu erlendis hafa. Okkur vantar bara tíma og peninga til að gera þetta af alvöru. Ég legg allan minn tíma og pening í þetta og ætla á næstu tveimur árum að sjá hvort dæmið gengur upp. Ég ætla að reyna fyrir mér á er- lendri grund á næstu árum.“ Eftir Húsavíkurrallið leit dæ- mið ekki vel út hjá Steingrími, bfllinn var mjög illa farinn eftir óhappið, en því var bjargað. „Helgina á eftir skiptum við öllu kraminu yfír í aðra yfírbyggingu, sem er ekki síðri. Síðan höfum við smám saman verið að koma bílnum í keppnishæft ástand. Bfllinn verður klár fyrir Ljómaral- lið og í góðu lagi. Gallinn er sá að ég ætlaði að nota Húsavíkurr- allið til að öðlast reynslu á bílinn með þessa öflugu vél. Nú veit ég ekki hvar ég stend gagnvart topp- bílunum og hvemig gengur að ráða við bflinn. Fyrsta sætið er þó eina sætið í mínum huga. Ég lít á Jón S. Halldórsson á Porsche 911, Jón Ragnarsson á Ford Escort RS og Hjörleif Hilm- arsson á Talbot sem mína aðal- keppinauta. Þeir fara hraðast yfír, en það er ekki víst að það dugi í Ljómarallinu, sem krefst agaðs aksturs. Ég ætla að keyra hratt, en upp á að það bili ekki. Það eina sem ég treysti ekki fullkomlega í bílnum eru öxlamir, að þeir þoli ekki fulla orku og passa mig því eitthvað. Ég er þó staðráðinn að láta Jón Ragnars- son vinna ekki, hann hefur fengið nóg af dollum í ár. Ég væri sann- arlega ekki að leggja alla þessa vinnu og kostnað á mig ef ég stefndi ekki á sigur," sagði Steingrímur að lokum. i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.