Morgunblaðið - 26.08.1987, Blaðsíða 56
ALHLIÐA PRENTÞJÓNUSTA
I GuðjónÓ.hf.
1
91-27233
SKOIAVBm
IBESN m WRSGXI
SKÖLflCÖNaj
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987
VEM) í LAUSASÖLU 50 KR.
Búvöru-
verð hækk-
ar 1. sept.
^NÝTT búvöruverð tekur gildi
frá og með næstkomandi
þriðjudegi 1. september.
Gunnar Guðbjartsson fram-
kvæmdastjóri Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins sagði í
samtali við Morgunblaðið að
þá mætti búast við einhveijum
verðhækkunum á sauðfjár-
afurðum, mjólk og mjólkur-
afurðum.
Gunnar sagði að einnig mætti
gera ráð fyrir verðhækkunum á
kartöflum og hrossakjöti þó
ákvörðun um það lægi ekki end-
anlega fyrir. Viðræður hófust um
nýtt búvöruverð í byrjun vikunn-
**ar bæði í sexmannanefnd og
fímmmannanefnd, en engin nið-
urstaða hefur fengist ennþá um
verðhækkanir búvaranna.
Alltkrökkt
af berjum
* i
GEYSILEG beijaspretta hef-
ur verið um land allt í sumar
og mikið hefur verið tínt í
ágústmánuði, samkvæmt upp-
lýsingum frá Búnaðarfélagi
Islands.
Berjalönd hafa verið svört og
blá af öllum helstu beijategund-
unum og ættu menn að geta farið
í beijamó næstu tvær vikumar
svo fremi sem jörð verður laus
við næturfrost. Sérstaklega hafa
helstu aðalblábeijasvæði landsins
þótt vinsæl svo sem fyrir vestan
og í Aðaldal í Þingeyjarsýslu.
Risastórar agúrkur og safaríkir tómatar
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Gróðurhúsarækt i stórum stíl hefur verið draumur manna í
tengslum við jarðhitann í Svartsengi eftir að Hitaveita Suður-
nesja tók til starfa en ekkert orðið úr framkvæmdum enn sem
komið er. Hjónin á myndinni, þau Þórarinn Sveinbjömsson
ferskfiskmatsmaður og Margrét Sveinsdóttir fiskmatsmaður,
sem bæði eru komin á eftirlaun létu ekki þar við sitja heldur
byggðu sér lítið en rúmgott gróðurhús í garðinum þar sem
þau búa í Grindavík. Þórarinn lét leggja leiðslu fyrir heita-
vatnsaffallið út i gróðurhúsið. Undanfarin sumur hefur
uppskeran af agúrkum, tómötum, jarðarbeijum og ýmsum
káltegundum nægt þeim og mikið er gefið til vina og vanda-
manna fyrir utan ómælda ánægju af ræktuninni.
Vigfús Jónssoil með minkinn. Morgunblaíið/Bjöm Sveinssor,
Egilsstaðir;
Drap mink með skóflu
Egilsatöðum.
SÁ FÁHEYRÐI atburður átti
sér stað í Fellabæ að maður sem
býr inn í miðju þorpi vann á
villimink við útidyrnar hjá sér
með skóflu.
Nánari málsatvik eru þau að
tveir menn sem voru að koma
heim að húsi sínu um hádegisbilið
urðu varir við eitthvað kvikt bak
við kassa sem stóð upp við húsið.
Annar mannanna, Vigfús Jóns-
son, greip malarskóflu sem var
eina tiltæka vopnið, velti kassan-
um við og undan honum spratt
minkur. Vigfús sem er reyndur
minkabani brá við skjótt og hijóp
á eftir minknum og gat króað
hann af við sólskýli sem er við
húsið og unnið þar á honum. Vig-
fús taldi að hér væri um ungt dýr
að ræða, líkiega hvolp frá í vor.
Þá gerðist það fyrr í sumar að
stangveiðimaður sem renndi fyrir
silung í Fjarðará í Seyðisfirði fékk
mink á stöngina og mun það eins-
dæmi að minkur veiðist á stöng.
— Björn
Islensk fisksölufyrirtæki:
íhuga vinnslu þorsk-
blokka í Bretlandi
Astæðan skortur á vinnuafli í fisk-
vinnslunni hér á landi
SKORTUR á vinnuafli í fiskverkun á íslandi og auknar kröf-
ur um gæði unninna þorskafurða á Bretlandsmarkaði gera
það að verkum að íslensk sölufyrirtæki þar velta fyrir sér
þeim möguleika að láta vinna blokk úr ferskum fiski þar í
landi.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Ingólfur Skúlason framkvæmda-
stjori Iceland Freezing Plants f
Grimsby í Bretlandi, sem er dóttur-
fyrirtæki Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna, að þar í landi væru
nú gerðar mun meiri gæðakröfur
til þorskafurða en áður, sérstaklega
eftir að hráefnisverð og smásölu-
verð hækkuðu verulega á síðasta
ári. „Það er af nú að hægt sé að
senda físk með ormum og beinum
á Bretlandsmarkað. En hér f landi
eru verulegir möguleikar á sölu á
fískafurðum og þegar verðið fer að
verða sambærilegt og í Banda-
ríkjunum ætti að leggja meiri
áherslu á sérvinnslu á Bretlands-
markað," sagði Ingólfur. „En þá
kemur aftur upp þetta vandamál
sem menn eiga við að stríða heima
og það er mann ekla. Þetta er mjög
erfítt mál og ég veit ekki hvort
menn eru að ætlast til þess að verk-
unin verði flutt úr landi. Sú spum-
ing hlýtur óhjákvæmilega að koma
upp. Heima em mikil vandkvæði
með blokkaframleiðsluna, fyrst og
fremst vegna skorts á vinnuafli og
þá hljótum við að spyija okkur
þeirrar spumingar hvort ekki borgi
sig að gera samninga við aðra um
að framleiða blokkir úr íslenska
fiskinum. Ég veit ekki hvort slíkt
væri rétt stefna en menn verða ein-
hvem veginn að fá hráefnið, sérs-
taklega þar sem við stöndum í
sölusamkeppni hér og eigum jafn-
vel í erfíðleikum með að afgreiða
vömna meðan fyrirtæki hér kaupa
ferskan íslenskan fisk á fískmörk-
uðum og framleiða í blokk," sagði
Ingólfur.
Borgarráð:
Samkeppni
um minjagripi
TILLAGA ferðamálanefndar um
að efnt verði til samkeppni um
minjagripi, sem tengjast Höfða
og Reylgavíkurborg, hefur verið
samþykkt í borgarráði.
Að sögn Gunnars Eydal, skrif-
stofustjóra borgarstjómar, verður
samkeppnin kynnt nánar með aug-
lýsingu. Gert er ráð fyrir að tilkynnt
verði um niðurstöður 12. október
næstkomandi.