Morgunblaðið - 27.08.1987, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987
Davíð Oddsson borgarstjóri um aðskilnað
innheimtu Hitaveitu og Rafmagnsveitu:
Aðskilnaðurinn
á að auka þjón-
ustu Hitaveitunnar
ÁKVÖRÐUN borgarráðs að skilja
að innheimtu Hitaveitu
Reykjavíkur og Rafmagnsveitu
Reykjavíkur var tekin vegna þess
að forráðamenn Hitaveitunnar
töldu sig ekki geta veitt viðskipta-
vinum sínum nógu góða þjónustu
ef innheimta væri ekki á þeirra
vegum, að sögn Davíðs Oddsson-
ar, borgarstjóra. Forráðamenn
Rafmagnsveitunnar telja hins
vegar aðskilnað innheimtu fyrir-
tækjanna eiga eftir að leiða til
aukins kostnaðar og lakari þjón-
ustu. Innheimtan verður aðskilin
með haustinu en Rafmagnsveitan
hefur fram að þessu séð um inn-
heimtu fyrir Hitaveituna.
„Forráðamenn Hitaveitunnartelja
sig ekki geta veitt viðskiptavinum
nógu góða þjónustu ef innheimtan
er ekki á þeirra vegum," sagði Davíð
Oddsson, borgarstjóri, í samtali við
Morgunblaðið. „Einnig telja þeir að
kostnaður Hitaveitunnar muni
lækka með aðskilinni innheimtu.
Fyrst svona veigamikil rök voru
færð töldum við rétt að kanna þenn-
an kost, auk þess sem aukakostnað-
ur vegna þessarar breytingar er
óverulegur.
Ljómarallið
hefstí dag
Ljómarallið alþjóðlega hefst í
dag kl. 12.00 við Hótel Loftleiðir
og er 31 áhöfn skráð í keppnina,
sem stendur í þrjá daga.
Ljómarallið er rúmlega 1300 km
langt, þar af 486 km á sérleiðum.
Fyrsta sérleiðin verður kl. 12.15 á
Reykjavíkurflugvelli, en flestar leið-
anna eru á hálendi landsins.
Sjá frásögn á blaðsíðum 56-57.
Menn hafa deilt um hagkvæmni
aðskilinnar innheimtu og auðvitað
er ekki hægt að bera á móti því að
sameiginlegur rekstur ætti að geta
verið hagkvæmari. Sá spamaður
sem næst með sameiginlegri inn-
heimtu má þó ekki bitna á þjónustu
við neytendur, eins og forráðamenn
Hitaveitunnar halda fram. Þar af
leiðandi taldi borgarráð ekki annað
fært en að verða við beiðni þeirra
um aðskilnað innheimtunnar. Ef sú
breyting verður hinsvegar til þess
að þjónusta við neytendur versnar
og kostnaðurinn verði meiri en nú
er áætlað hljótum við að endurmeta
þessa ákvörðun."
Morgunblaðið/Sverrir
Veröld ’87
opnuðí dag
SÝNINGIN Veröld ’87 verður
opnuð almenningi í dag kl.
18.00 og stendur hún til 6. sept-
ember. Um 125 innflytjendur
og innlendir framleiðendur
taka þátt í sýningunni og
spannar hún allt — frá gólfi og
upp í loft — að sögn Guðmund-
ar Jónssonar framkvæmda-
stjóra sýningarinnar.
Tvö hundruð fermetra drauma-
íbúð Hólmfríðar Karlsdóttur er á
sýningunni, en íbúðina hefur hin
nýgifta fyrrverandi alheimsfeg-
urðardrottning hannað síðustu
vikumar eftir eigin höfði. í gær
var Hófí í óða önn að leggja
síðustu hönd á íbúð sína þegar
ljósmyndari Morgunblaðsins leit
inn í Höllina.
Sýningin verður opin alla daga
frá kl. 16.00 til 23.00 en um helg-
ar frá kl. 13.00 til 23.00.
Verið að skoða mögiileika á hækkun húsnæðislánavaxta:
Óraunhæfur munur á vöxtum
húsnæðis- og lífeyrissjóðalána
- segir Hrafn Magnússon framkvæmdastj óri SAL
HÆKKUN útlánsvaxta hjá Hús-
næðisstofnun ríkisins er í
athugun í sambandi við samninga
sem verið er að gera við lífeyris-
sjóðina um vexti á skuldabréfum
þeirra á næsta ári. Sigurður
Þórðarson skrifstofustjóri í fjár-
málaráðuneytinu segir að
raunhæft sé að húsnæðislána-
vextir tengist ávöxtunarkröfum
lífeyrissjóðanna og Hrafn Magn-
ússon framkvæmdastjóri Sam-
bands almennra lífeyrissjóða
segir að vaxtabilið á lánum Hús-
næðistofnunar annarsvegar og
lífeyrissjóðanna hinsvegar sé
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Gná NS aðstoðar Hroll GK. Byijað að draga í land.
Gríndavík:
Á reki 1 marga tíma
undan Krísuvíkurbjargi
Grindavík.
Handfærabáturinn Hrollur GK 38 sem er 9 tonna plastbátur varð
vélarvana vegna stíflu í bensínkerfi 1 mílu undan Krísuvíkurbjargi
um hádegisbilið í fyrradag.
Vegna misskilnings um borð í
nærliggjandi bát var aðstoðarbeiðni
ekki sinnt þar og fór svo að lokum,
að skipstjóri Hrolls sá ekkert annað
ráð en að hringja í konuna sína í
landi og biðja hana að koma boðum
til kunningja þeirra sem eiga trillu
og biðja þá að koma út og draga
hann í land. Bátur kunningjanna
var bilaður en þeir fóru samt niður
á bryggju þar sem þeir hittu fyrir
sama mann og áður hafði að hans
eigin sögn misskilið aðstoðarbeiðni
skipstjóra Hrolls.
Um kvöldmatarleytið var haft
samband við slysavarnasveitina
Þorbjöm og óskað eftir að björgun-
arbáturinn Oddur V. Gíslason GK
færi og aðstoðaði Hroll GK í land.
í þann mund eða um kl. 20.30 þeg-
ar slysavamabáturinn kom út að
Hrolli GK bar að trilluna Gná NS
og tók hún Hroll GK í tog en í land
komu trillumar tveim tímum
seinna. Eigandi Hrolls GK eignaðist
trilluna í apríl og hefur verið ein-
staklega óheppinn því oft hefur
komið til þess að nærliggjandi bátar
hafa dregið hann í land þó svona
færi nú. Veður var gott með landinu
þennan dag og báturinn ekki í
neinni hættu þó enginn viti hvenær
veðurbreytinga er von eða um
tvísýnu er að tefla.
— Kr.Ben.
óraunhæft. Sigurður E. Guð-
mundsson forstjóri Húsnæðis-
stofnunar ríkisins segir
hinsvegar að markmið stofnun-
arinnar sé að gera þannig
samninga við lífeyrissjóðina um
vexti af skuldabréfum að ekki
þurfi að hækka útlánsvexti Hús-
næðisstofnunar til húsnæðis-
kaupenda.
Ekkert hefur þokast í samninga-
viðræðum milli fjármálaráðuneytis-
ins, Húsnæðisstofnunar og lífeyris-
sjóðanna síðan á laugardag en þá
var rætt um að vextir af skuldabréf-
um sem Húsnæðisstofnun selur
lífeyrissjóðunum á næsta ári verði
í kringum 7% en jafnframt verði
athugaðir möguleikar á að hækka
vexti af eldri skuldabréfum sem nú
bera lægst 4,2% vexti. Húsnæðis-
stofnun tók að sér athugun á
ýmsum atriðum í sambandi við eldri
bréfín, svo sem meðaliánstima og
vægi þeirra í heildarskuldinni. Búist
var við að þessar upplýsingar lægju
fyrir á mánudag en í gær sagði
Sigurður E. Guðmundsson forstjóri
stofnunarinnar að enn væri unnið
að þessari athugun.
Sigurður sagði að um 3000 félag-
ar í lífeyrissjóðum hefðu lagt inn
fullgildar lánsumsóknir til Hús-
næðisstofnunar og biðu þess nú að
fá lánsloforð á grundvelli þeirra
samninga sem verið væri að gera
við lífeyrissjóðina nú. „Okkar mark-
mið er eins og fyrr að samningamir
um vextina verði á þann veg að
stjómvöld séu ekki nauðbeygð til
að hækka útlánavexti stofnunarinn-
ar. Lífeyrissjóðafélagamir hafa
væntanlega gert sínar áætlanir á
grundvelli þess að vaxtalqörin verði
með viðunandi móti,“ sagði Sigurð-
ur við Morgunblaðið í gær.
Fjármálaráðuneytið hefur gert
lífeyrissjóðunum tilboð um 6,25%
vexti af skuldabréfum keyptum á
næsta ári en hugmyndir lífeyris-
sjóðanna voru um 7,5% vexti.
Almennir vextir af lánum Hús-
næðisstofnunar samkvæmt nýju
húsnæðislögunum eru nú 3,5%. Sig-
urður sagði að upplýsingar erlendis
frá sýndu að boginn væri mjög
hátt spenntur hér á landi varðandi
vexti af þessum skuldabréfum líf-
eyrissjóðanna miðað við það sem
annars staðar tíðkast. „Það er frá-
leitt að menn skuli láta sér detta
það í hug að bera saman vexti á
þessum verðbólguspenntu verð-
bréfamörkuðum hér á landi annars-
vegar og hinsvegar á langtíma-
samningum sem við erum að koma
á laggimar og eiga sér enga hlið-
stæðu í landinu. Það væri nær að
svona mikil viðskipti eins og hér
um ræðir séu borin saman við þá
vexti sem tíðkast á stórlánum í
útlöndum. Og það sér hver maður
að ef Húsnæðisstofnunin á að taka
fé að láni með 7% vöxtum sem
endurlánað er með annarsvegar
3,5% vöxtum og hinsvegar 1% vöxt-
um stefnir slíkt í óefni," sagði
Sigurður E. Guðmundsson.
Hrafn Magnússon framkvæmda-
stjóri Sambands almennra lífeyris-
sjóða sagði að í húsnæðislögunum
stæði að ríkissjóður skuli bjóða
lífeyrissjóðunum hliðstæða vexti og
hann byði almennt á Qármagns-
markaði og eftir því væri að sjálf-
sögðu farið. Hrafn sagði ennfremur
að stjómvöld ættu að hafa þrek til
að hækka húsnæðisvextina þótt því
ætti ekki blanda inn í samningavið-
ræðumar nú. „Lífeyrissjóðimir eru
að lána sjóðfélögunum á 8-9% vöxt-
um meðan vextir af húsnæðislánum
eru 3,5%. Það sjá allir að þetta
vaxtabil er algerlega óraunhæft. í
fyrra voru almennir vextir 5% en
húsnæðislánavextir 3,5%. Það þarf
að vera sveigjanleiki í þessu þótt
ekki væri nema það að aðlaga hús-
næðisvextina að þeim vöxtum sem
almennt gilda þótt þeir nái þeim
aldrei alveg,“ sagði Hrafn Magnús-
son.
Sigurður Þórðarson skrifstofu-
stjóri fjármálaráðuneytisins sagði
við Morgunblaðið að til að mæta
háum ávöxtunarkröfum lífeyris-
sjóðanna væru tvær leiðir. Annars-
vegar að auka framlag ríkisins til
vaxtaniðurgreiðslu eða hækka
vextina á húsnæðislánunum. Sig-
urður sagði að engin ákvörðun hefði
verið tekin um þetta, enda samning-
um ekki lokið við lífeyrissjóðina.
Það hljóti að vera raunhæft að það
komi til hækkunar eða lækkunar á
húsnæðislánavöxtum hvemig um
semst við lífeyrissjóðina á hveijum
tíma.
Faðir ákærður fyrir
mök við dóttur sína
MAÐUR í Kópavogi, 45 ára gam-
all, hefur verið ákærður fyrir að
hafa misnotað dóttur sina kyn-
ferðislega í átta ár.
Sagt var frá máli þessu í Morgun-
blaðinu í lok júlí. Dóttir mannsins,
sem er fædd árið 1973, heldur því
fram að hann hafi misnotað hana
kynferðislega í átta ár, frá því hún
var fimm ára gömul og þar til hún
varð þrettán ára. Samkvæmt fram-
burði stúlkunnar var fyrstu árin um
annars konar kynferðislegar athafn-
ir að ræða en samfarir, en hún ber
að síðari árin hafí faðir hennar
nauðgað henni. Faðirinn kveðst ekki
muna málavöxtu sakir áfengisvímu,
en hann er áfengissjúklingur.
Faðirinn var í sumar úrskurðaður
í gæsluvarðhald til 24. júlí, en það
var síðar framlengt til 1. október.
Mál hans verður tekið fyrir hjá saka-
dómi Kópavogs.
Alþingi á Vatnsendahæð
og borgin fái Alþingishúsið
í augum uppi, ef menn á annað
borð hugsa fram í tímann," sagði
Gunnar. Sá staður sem Alþingi Is-
lendinga myndi sóma sér hvað best
á væri Vatnsendahæðin þar sem
útsýni væri einstakt til allra átta.
Hann benti jafnframt á að skammt
þar frá væri Þingnes við Elliðavatn
sem væri talinn þingstaður Kjalnes-
inga, en Kjalarnesþing var fyrsta
þing landsins.
Sjá frásögn af fundi Gamla
miðbæjarins á bls. 13.
Sú tillaga var sett fram á fundi
Gamla miðbæjarins í fyrrakvöld
að Alþingi yrði flutt upp á Vatns-
endahæð og Reykjavíkurborg
fengi Alþingishúsið fyrir ráðhús.
Það var Gunnar Bjarnason fyrr-
verandi ráðunautur sem ræddi
þessa hugmynd og sagði þær
hugmyndir sem nú væru uppi um
staðsetningu ráðhúss og bygg-
ingu nýs Alþingishúss einkennast
af skammsýni.
„Þessi lausn á vandanum liggur