Morgunblaðið - 27.08.1987, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987
3
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra:
Ræddi við græn-
lenska ráðamenn
um loðnudeiluna
HALLDÓR Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra átti á mánu-
dag óformlegar viðræður við grænlenska ráðamenn um
deilur ríkjanna vegna norsk-íslenska loðnustofnsins, en
Grænlendingar vilja fá til umráða 10-12% af þeim kvóta
sem úthlutað er úr stofninum til veiða. Hingað til hafa
íslendingar og Norðmenn nær eingöngu veitt upp í kvó-
tann og íslendingar langstærsta hlutann eða 85%. Engin
niðurstaða varð af þessum viðræðum en Halldór ítrekaði
við Grænlendinga að þeir legðu fram tillögur sínar um
lausn þessarar deilu.
Halldór var staddur á Grænlandi
vegna fyrirhugaðs fundar sam-
starfsráðherra Norðurlanda sem
var síðan aflýst vegna ófærðar.
Halldór sagði í samtali við Morgun-
blaðið að í janúar hefðu íslendingar
haft frumkvæði að lista upp þau
mál sem þessi ríki þurfa að taka
sameiginlega ákvörðun um varð-
andi sameiginlega fiskistofna, það
er loðnu, karfa og rækju. Halldór
sagðist hafa farið yfir þessi mál nú
í samræðum við Grænlendinga og
komist að því að lítið hefði þokast
áfram í sumar. Þar hefðu tafið
kosningar og stjórnarmyndanir,
fyrst á íslandi og síðan á Grænl-
andi og nú stæðu þar fyrir dyrum
kosningar til danska þingsins.
Halldór sagði að gert hefði verið
ráð fyrir að Grænlendingar legðu
fram hugmyndir til lausnar á deil-
unni um skiptingu loðnunnar en það
hefðu þeir ekki gert enn. Aðilar
hefðu samt verið sammála um að
reyna að koma á fundum sem fyrst
milli fulltrúa landanna þriggja sem
í hlut eiga.
Fulltrúar grænlenskra útgerðar-
manna hittu Halldór að máli í
Grænlandi og afhentu honum bréf
með óskum um viðræður við
íslenskra aðila. Grænlendingarnir
fyrirhuga að koma hingað til lands
í tengslum við sjávarútvegssýning-
una í september. Að sögn Halldórs
lögðu útgerðarmennimir mikla
áherslu á að þeim líkaði samstarf
við íslendinga vel og vildu auka
það. Grænlendingar hafa nú lönd-
unarheimildir með rækju og kaupa
hér mikið af vörum í tengslum við
sjávarútveg.
Bændur fá 60 kg á hvern
heimilismann út úr
sláturhúsunum
Gert til að draga úr heimaslatrun
FRAMKVÆMDANEFND um búvörusamninga hefur ákveðið að
veita bændum heimild til að taka 60 kg af lambakjöti á hvern
heimilismann út úr sláturhúsum
Meðalársneysla á mann í landinu
er um 40 kg af lambakjöti. Gert
er ráð fyrir að framleiðendur noti
kjötið meira en aðrir og því er mið-
að við 60 kg til þeirra, að sögn
Borghildar Sigurðardóttur hjá upp-
lýsingaþjónustu landbúnaðarins.
Hún sagði með þessu þyrftu bænd-
ur síður að fara út í heimaslátrun,
vilji þeir losna við alla milliliði við
af innleggi sínu í haust.
kaup á kjöti. Borghildur sagði að
auðvitað gætu bændur sótt kjöt
þetta á sláturhúsin, selt það sjálfir
til vina og ættingja og haldið heima-
slátruninni síðan áfram í eigin þágu.
Þessi ákvörðun nefndarinnar væri
þó ekki hugsuð þannig, heldur til
að stuðla að því að bændur hætti
heimaslátrun.
Feitt kjöt verður
verðfellt enn frekar
SAMÞYKKT hefur verið í sexmannanefnd að verðfella
feitt kjöt í svokölluðum O-flokki enn meira en í fyrra.
O-flokki verður nú skipt í tvo flokka í stað eins áður.
Annar O-flokkanna, sá magurri, verður verðfelldur um
11,2%, eins og gert var í fyrra. Hinn flokkurinn, sem sam-
anstendur af enn feitara kjöti, verður verðfelldur um 25%
til bænda.
Ef neytendur kaupa kjöt þetta í
heilum skrokkum og þar af leiðandi
alla fituna, rennur verðfellingin
beint til þeirra. Verði kjötið hins-
vegar sérstaklega meðhöndlað og
fitan skorin frá, verður kjötið selt
sem fyrsta flokks vara.
í fyrra fóru 7% kjöts í O-flokk
og var það magn verðfellt um
11,2%. I komandi sláturtíð er reikn-
að með að 7,5% fari í O-flokk.
Áætlað er að 2% af kjötinu lendi í
feitari flokknum og verði verðfellt
um 25%. 5,5% slátraðs kjöts í haust
munu þá verða verðfelld um 11,2%.
Hrefna um allan sjó
Sielufirði.
SJOMENN á Siglufirði hafa á
orði að aldrei hafi sést jafn mik-
ið af hrefnu norður af landinu
og nú.
Sjómenn sem sigldu í gær frá
Skagagrunni inn á Siglufjörð sögðu
að allt hefði verið morandi í hrefnu,
stórri og smárri. Minnast gamal-
reyndir sjómenn þessi ekki að hafa
séð slíkar vöður áður.
Matthías.