Morgunblaðið - 27.08.1987, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987
13
Fjölmenni var á fundi samtakanna Gamli miðbærinn í fyrrakvöld. MorgunbiaOia/Ámi Sœberg
Gamli miðbærinn:
Austurstræti opnað
bílum og verslanir
opnar á laugardögum
SAMTÖKIN Gamli miðbærinn
efndu í fyrrakvöld til fundar á
Hótel Borg undir yfirskriftinni
„Framtíð miðbæjarins ræðst hjá
okkur og hvergi annars staðar.“
Fjölmenni var á fundinum þar
sem meðal annars kom fram al-
mennur vilji fyrir því að Austur-
stræti yrði aftur opnað fyrir
bílaumferð og að verslanir í mið-
bænum yrðu opnar á laugardög-
um frá kl. 10-16 eftir 1.
september.
I upphafi fundar rifjaði formaður
samtakanna Guðlaugur Bergmann
upp hvatann að stofnun þeirra fyrir
tveimur árum og sagði starfsemi
Kringlunnar krefjast þess að kaup-
menn í gamla miðbænum stæðu
saman um hagsmuni sína. Hann
AÐALFUNDUR Samtaka um
byggingu tónlistarhúss var hald-
inn í Súlnasal Hótel Sögu síðastlið-
ið þriðjudagskvöld. A fundinum
voru 36 manns kosnir i fulltrúaráð
samtakanna en ýmis samtök tón-
listarfólks tilnefna síðan 20 til
viðbótar. Fulltrúaráð kýs stjórn
og formann samtakanna.
Ármann Örn Ármannsson, formað-
ur samtakanna, flutti skýrslu stjómar
og kom þar m.a. fram að um eitt ár
er nú eftir af hönnunarvinnu áður
en byggingarframkvæmdir geta haf-
ist. Um miðjan september eiga að
liggja fyrir frumdrög að aðalteikning-
um hússins og verður þá hægt að
taka endanlega ákvörðun um útlit
þess. Hönnunarkostnaður er nú þegar
ræddi meðal annars opnunartíma
verslana og bílastæðamál sem
hefðu úrslitaþýðingu fyrir mið-
bæinn. Það væri óviðunandi fyrir
kaupmenn að greiða háar upphæðir
svo árum skipti í bílastæðasjóð og
síðan væri ekkert gert, en nú hefðu
samtökin fengið loforð borgaryfír-
valda um að 370 bílastæði yrðu
opnuð á Faxaskálasvæðinu fyrir 5.
september. Hvað opnunartímann
varðaði væri það niðurstaða hverfa-
funda að verslanir ættu að vera
opnar á laugardögum frá kl. 10-16
og hvatti hann verslunareigendur
til að standa saman um að hafa
verslanir sínar opnar á þeim tíma
frá 1. september. Hann gagnrýndi
hins vegar verslanir í Kringlunni
fyrir að hafa opið á laugardögum
orðinn 4 milljónir króna og er áætlað
að safna 10 milljónum til viðbótar
fyrir áramót til þess að standa straum
af kostnaði við hönnun.
Til þess að ná saman þessum fjár-
munum verður haldið happdrætti og
miðar seldir með því að ganga í hús.
Einnig verður gefin út hljómplata,
sem listamenn á borð við Gunnar
Þórðarson og Jóhann G. Jóhannson
hafa gefið verk á, og haldnir tónleik-
ar til styrktar málefninu. Ársgjald
samtakanna var einnig hækkað í
1500 krónur.
Að loknum aðalfundarstörfum
voru haldnir tónleikar. Bergþór Páls-
son söng við undirleik Jónasar
Ingimundarsonar og Einar Jóhanns-
son, klarinett, og Guðríður Sigurðar-
dóttir, píanó, léku saman.
í sumar og Verslunarmannafélagið
sem ekkert hefði látið frá sér heyra
þótt samningar væru brotnir. Bæði
sjónarmið komu fram á fundinum
að lenging á afgreiðslutíma versl-
ana væri sjálfsögð þjónusta við
viðskiptavini og það að lenging
væri afturför og gegn baráttu
verkalýðshreyfingarinnar um 40
stunda vinnuviku.
Önnur forgangsverkefni sagði
Guðlaugur vera opnun Austur-
strætis. „Það er staðreynd að allt
sem þarna hefur verið gert hefur
mistekist, nú seinast uppsetning
„bláu skrímslanna" og þau verður
að fjarlægja. Við verðum að sýna
samtakamátt og skulum ekki
gleyma því að það er hjá okkur sem
framtíð miðbæjarins ræðst og
hvergi annars staðar," sagði hann.
Ekki var annað að heyra en orð
formanns Gamla miðbæjarins féllu
í góðan jarðveg og fundargestir
klöppuðu honum lof í lófa að ræðu
lokinni.
Margir tóku til máls á fundinum
og kom fram bæði ótti við sam-
keppnisaðila í Kringlunni og einnig
sú trú að hún væri hvatning kaup-
mönnum um að standa saman, taka
sig á, bæta þjónustu og vöruval og
huga betur að útstillingum og um-
hverfi. Fram kom mikil óánægja
með umgengni í miðbænum og
ástand hreinlætismála og sagði einn
verslunareigenda rúður hafa verið
brotnar hjá sér 17 sinnum síðan
um áramót. Ekki væri við því að
búast að menn legðu mikið í
gluggaskreytingar eða útstillingar
á meðan svona væri. Það sjónarmið
kom einnig fram í því sem fundar-
stjórinn, Páll Líndal, kallaði inn-
blásna hugvekju Gunnars
Bjamasonar, að samtökin yrðu að
beita sér fyrir verndun miðbæjarins
í sinni gömlu mynd. „Þeir menn
skilja ekki menningu smáþjóðar og
tilfínningar fólksins ef þeir ætla sér
að reisa glerhallir og turnspírur í
nautabeit Ingólfs Arnarsonar, sjálf-
um sér til dýrðar,“ sagði Gunnar
og vísaði til hugmynda um bygg-
ingu nýs Alþingishúss og ráðhúss
við Tjörnina.
Á fundinum var frá því greint
að þann 5. september myndu sam-
tökin Gamli miðbærinn efna til
hátíðahalda í miðbænum í samvinnu
við kaupmenn. Þann dag verður
tekinn í notkun sérstakur Mið-
bæjarstrætisvagn. Með honum
verður frítt fyrir farþega um mið-
bæinn í framtíðinni. Á Laugavegin-
um, sem formlega verður opnaður
5. september, verður mikið um
dýrðir og efnt til götuhátíðar auk
þess sem kaupmenn verða með alls
konar kostaboð.
Morgunblaðið/Sverrir
Frá aðalfundi Samtaka um byggingu tónlistarliúss á þriðjudag. í
ræðustól er Ármann Öm Ármannsson, formaður samtakanna.
Aðalfundur Samtaka um byggingu
tónlistarhúss:
Tíu milljónum þarf
að safna fyrir áramót
Islenskar nútíma-
bókmenntir kynnt-
ar í ÞýskaJandi
LJÓÐABÓK Steins Steinarrs,
„Tíminn og vatnið“, verður gef-
in út á íslensku og þýsku í haust
af Kleinheinrich bókaútgáfunni
í Miinster. Útgáfan er liður í
almennri kynningu á norrænum
nútímabókmenntum sem for-
lagið hefur ákveðið að sérhæfa
sig í en skipulögð kynning á
islenskum nútímabókmenntum
er hafin á meginlandi Evrópu.
Forlagið hóf starfsemi sína á
kynningu danskra bókmennta en
hefur nú fengið Dr. Gert Kreutz-
er, dósent við háskólann í Kiel til
að hafa umsjón með útgáfustarf-
seminni. Það er Marita Bergsson
sem hefur þýtt ljóð Steins Stein-
arrs en Dr. Gert Kreutzer mun
rita eftirmála um skáldið. Bókin
verður lögð fram á bókamarkaðin-
um í Frankfurt.
Ráðgert er að gefa út yfirgrips-
mikið safn islenskra nútímaljóða
árið 1988. Gert Kreutzer mun
annast útgáfuna og þýða ljóðin
ásamt Maritu Bergsson en safn
íslenskra ljóða hefur ekki birst í
þýskri þýðingu síðan árið 1903.
Þá er einnig ráðgert að gefa út
skáldsögumar, „Grámosinn glóir",
eftir Thor Vilhjálmsson í þýðingu
Maritu Bergsson og Gunther Wig-
and og „Hjartað býr enn í helli
sínum“, eftir Guðberg Bergsson í
þýðingu Maritar Bergsson en Dr.
Gert Kreutzer mun rita inngang
að báðum þessum bókum.
(Úr fréttatilkynningu)
Verðlauna-
höfundar
STARFSLAUNUM Ríkisút-
varpsins hefur verið úthlutað
og þrjú sjónvarpshandrit valin
til þátttöku í Genfar-Evrópus-
amkeppni sjónvarpsstöðva. Á
myndinni eru höfundarnir
ásamt forráðamönnum
Ríkisútvarpsins. Fremst frá
vinstri: Oddur Björnsson sem
hlaut starfslaunin, Vilborg
Einarsdóttir höfundur hand-
ritsins , Steinbarn, Viktor
Arnar Ingólfsson liöfundur
handritsins Engin spor, Mic-
hael Dean Ford og Anna
Heiður Oddsdóttir höfundar
handritsins Heimkoma. Fyrir
aftan þau standa Markús Órn
Antonsson útvarpsstjóri, Egill
Eðvarðsson dagskrárstjóri og
Pétur Guðfinnsson fram-
kvæmdastjóri Sjónvarpsins.