Morgunblaðið - 27.08.1987, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987
Ættfræðiþj ónustan:
Ættfræði-
námskeið
að hefjast
ÆTTFRÆÐINÁMSKEIÐ hefj-
ast senn hjá Ættfræðiþjón-
ustunni í Reykjavík. Markmið
námskeiðanna er að gera menn
færa um að rekja ættir sínar
og annarra af öryggi og kunn-
áttusemi með notkun aðgengi-
legra heimOda, segir í fréttatil-
kynningu um námskeiðið.
Þetta er annað starfsár Ætt-
fræðiþjónustunnar. Starfsemi
hennar er fyrst og fremst fólgin
í námskeiðahaldi. Tækjabúnaður
og gagnasafn hefur verið aukið í
kjölfar góðrar aðsóknar í fyrra.
Boðið er upp á átta vikna grunnn-
ámskeið og fimm vikna framhalds-
námskeið. Fjöldi þátttakenda er
takmarkaður við átta manns í
hveijum námsflokki og geta menn
valið um námsflokka að kvöldi
dags eða á laugardögum.
Kennslan fer að hluta til fram
í fyrirlestraformi, en áhersla verð-
ur lögð á rannsóknir á frumheim-
ildum um ættir þátttakenda
sjálfra. Þátttakendum eru útveguð
þau frumgögn, sem til þarf svo
sem ættartré, heimildarskrár og
aðrir leiðarvísar. Þá er veitt hand-
leiðsla í þeim rannsóknarverkefn-
um, sem þátttakendur velja sér.
Forstöðumaður Ættfræðiþjón-
ustunnar og leiðbeinandi á
námskeiðum er sem fyrr Jón Valur
Jensson. Skráning á námskeiðin
er hafin hjá forstöðumanni.