Morgunblaðið - 27.08.1987, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987
Treystirdu annarri íilmu
fyrir dýrmœtu
minningunum þínum?
Ræðumennska og mannleg samskipti.
Kynningarfundur
Kynningarfundur verður haldinn í kvöld
kl. 20:30 að Sogavegi 69, gengið inn að
norðanverðu.
★ Námskeiðið getur hjálpað þér að:
★ Öðlast HUGREKKI
og meira SJÁLFSTRAUST.
★ Láta í Ijósi SKOÐANIR þínar af meiri sann-
færingarkrafti í samræðum og á fundum.
★ Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér
VIRÐINGU og VIÐURKENNINGU.
★ Talið er að 85% af VELGENGNI þinni séu
komin undir því, hvernig þér tekst að um-
gangast aðra.
★ Starfa af meiri LÍFSKRAFTI
— heima og á vinnustað.
★ Halda ÁHYGGJUM í skefjum
og draga úr kvíða.
Fjárfesting í menntun
gefur þér arð ævilangt.
Innritun og upplýsingar í síma: 82411
Q
STJÓRNUI\IARSKÓLII\ll\i
</o Konráö Adolphsson. Elnkaumboö fyrir Dale Carnegie námskeiðin"
Gunnar Kylén
Greind
og
greindarfötlun
Þroskahjálp:
Ritum
greind og
greindar-
fötlun
LANDSSAMTÖKIN Þroska-
hjálp hafa gefið út ritið Greind
og greindarfötlun eftir sænska
sálfræðinginn Gunnar Kylén, i
þýðingu Þorsteins Sigurðssonar
skólastjóra. Ritið heitir á frum-
málinu Begávning och begávn-
ingshandikapp og kom
upphaflega út hjá Handikapp-
institutet í Svíþjóð 1981.
í ritinu er fjallað um eðli og
þróun greindar, bæði þegar hún
þróast með eðlilegum hætti og
þegar eitthvað ber út af og afleið-
ingin verður greindarskerðing.
Greind og greindarfötlun er eins
konar grunnrit í röð þriggja rita,
þó það komi að fullum notum eitt
og sér. Þroskahjálp mun standa
að útgáfu á síðari ritunum á næsta
ári.
Ritið er 44 bls. að stærð.