Morgunblaðið - 27.08.1987, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987
19
Allt er betra en SIS
eftir Sigurbjörn
Magnússon
Það er fagnaðarefni að innan
ríkisstjórnarinnar virðist vera fylgi
við að einkavæða ríkisbankana. En
hvergi á Vesturlöndum þekkjast
jafnmikil opinber afskipti af banka-
málum og hér á landi. Það er því
kominn tími til að draga úr áhrifum
stjórnmálamannanna í gegnum
ríkisbankana og láta bankastarf-
semina í ríkari mæli ráðast af
heilbrigðum viðskiptasjónarmiðum.
Það er á stefnuskrá Sjálfstæðis-
flokksins að breyta ríkisbönkunum
í hlutafélög og selja hlutabréfín á
almennum markaði. Fyrsta skrefið
er sala Útvegsbankans. En það er
enn fremur skoðun sjálfstæðis-
manna vegna eðlis bankastarfsemi
að bankann beri að selja mörgum
aðilum og að enginn einn aðili eigi
að eiga meirihluta í bankanum.
Þetta kemur raunar vel fram í út-
boðsskilmálum Útvegsbankans þar
sem sagt er að sérstakt samþykki
þurfi ef eitthvert eitt fyrirtæki,
móðurfyrirtæki eða dótturfyrirtæki,
skuli eiga meira en 50 millj. kr. í
hlutabréfum. Það mætir því vita-
skuld fullkominni andstöðu sjálf-
stæðismanna þegar einn aðili,
Sambandið og dótturfyrirtæki þess,
gera tilboð í meirihluta og nær allt
hlutafé Útvegsbankans. Það er
langæskilegast að enginn einn aðili
eigi meira en 10—20% hlutafjár
bankans. Og ætti þetta að vera
meginreglan þegar aðrir ríkisbank-
ar verða seldir.
En það eru fleiri atriði sem valda
því að sjálfstæðismenn eru andvígir
því að selja SÍS Útvegsbankann.
Mörg þau útgerðarfyrirtæki sem
eru í viðskiptum við Útvegsbankann
eru í harðri samkeppni við Sam-
bandsfyrirtæki. Það er mikilvægt
fyrir traust fyrirtæki, ekki síst í
sjávarútvegi, að þau njóti eðlilegrar
bankafyrirgreiðslu. SIS gæti með
eignaraðild að Útvegsbankanum
þrengt verulega að þessum fyrir-
tækjum sem eru í beinni samkeppni
við Sambandið bæði um hráefni og
í útflutningi. Það má ekki gleyma
því að samvinnuhreyfingin hefur
stöðugt aukið hlut sinn í sjávarút-
vegi á undanförnum árum og það
er yfirlýst stefna SÍS að auka þar
Sigurbjörn Magnússon
„I þessari deilu um Ut-
vegsbankann hefur
komið skýrt fram að
Framsóknarflokkurinn
og Sambandið eru eitt
þegar á reynir. Slíkur
er málf lutningur bæði
f ramsóknarmannanna
og Tímans. Að koma
bankanum úr höndum
stjórnmálamannanna
og yfir til SÍS er að
fara úr öskunni í eld-
inn.“
hlut sinn enn frekar. Með kaupum
SÍS á Útvegsbankanum opnast t.d.
bakdyrnar að Vestmannaeyjum en
þar eru nú engin Sambandsfyrir-
tæki í útgerð og fiskvinnslu.
í mörgum byggðarlögum er Sam-
bandsreksturinn kominn út í alger-
ar öfgar. Við sjáum fyrir okkur
byggðarlag þar sem verslunin er
hjá kaupfélaginu, kaupfélagið er í
eigu Sambandsins, útgerðin er í
eigu kaupfélagsins o frystihúsið er
rekið af Sambandinu og síðan er
eini bankinn á staðnum sameinaður
Samvinnubanki og Útvegsbanki í
eigu SÍS. Það eru ekki margir
möguleikar sem einstaklingurinn
hefur í samkeppni við slíkt risavax-
ið skrímsli. Slíkt fyrirtæki er
auðvitað komið langt út fyrir
ramma samvinnulaganna og fellur
fremur undir lög um hringamyndun
og einokun sem Alþingi þyrfti að
beita sér fyrir að sett yrðu hið
fyrsta.
í þessari deilu um Útvegsbank-
ann hefur komið skýrt fram að
Framsóknarflokkurinn og Sam-
bandið eru eitt þegar á reynir.
Slíkur er málflutningur bæði fram-
sóknarmannanna og Tímans. Að
koma bankanum úr höndum stjórn-
málamannanna og yfir til SIS er
að fara úr öskunni í eldinn. Það er
hálfu betra að vera seldur undir
ríkisbankaráð heldur en bankaráð
SÍS og Framsóknarflokksins.
Það er augljóst og liggur fyrir
að tilboð hinna 33 aðila í Útvegs-
bankann er hagstæðara en tilboð
SÍS og af þeirri ástæðu einni ætti
viðskiptaráðherra að samþykkja
það tilboð. Varðandi deilumar um
það hvor hafi gert tilboð á undan
og hvor sé rétthærri af þeim sökum
þá er gott að taka dæmi úr fast-
eignaviðskiptum. Maður sem fær
tilboð í húseign sína og tekur því
með fyrirvara og er að hugsa sig
um hvort hann eigi að taka tilboð-
inu eða ekki fær skömmu síðar
annað og betra tilboð vegna þess
að aðili sem líka var að hugsa um
þessa eign frétti af því að búið
væri að gera tilboð. Seljandinn hef-
ur þá engar skuldbindingar gagn-
vart fyrri tilboðsgjafa heldur getur
einfaldlega tekið seinna tilboðinu,
samþykkt það og þá eru kaupin
gerð. Valur Amþórsson ætti að at-
huga það að kaup em ekki gerð
fyrr en tilboð hefur verið sam-
þykkt. Og að líkja þessu við að
kaupa læri í verslun eins og utanrík-
isráðherra gerði, slíkt gera nú bara
framsóknarmenn.
Núverandi utanríkisráðherra og
formaður Framsóknarflokksins
sagði einu sinni, af öðm tilefni og
um aðra aðila og það á vel_ við í
þessu máli: „ Allt er betra en SÍS.“
Höfundur er varaformaður ungra
sjálfstæðismanna.
SALA
KAPGSALAN
BORGARTÚNI 22
SÍMI 23509
Mæg bflastæði
AKUREYRI
HAFNARSTRÆTl 88
SÍMl 96-25250
/