Morgunblaðið - 27.08.1987, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987
•^píxAcu} Sww:
LUNDUR
VEITINGASALUR
Léttir réttir á góðu verði í hádeginu
og á kvöldin.
FORRÉTTIR:
Rækjukokteill kr. 380,-
Reyksoðinn silungur kr. 350,-
Grænmetissúpa kr. 220,-
AÐALRÉTTIR:
Skýjaloka kr. 390.-
Reykt ýsa með sítrónusósu kr. 480,-
Djúpsteiktur sólkoli kr. 540.-
Steikt fjallableikja kr. 620.-
Hakkað bufí Pojorsky kr. 430,-
Blandað kjðt á teini kr. 710.-
Mínútusteik með kryddsmjöri.... kr. 950.-
Salatbar innifalinn.
Vev
ið
ve
Hótel við Sigtún
■^ofcuAcxy Sww
s. 689000
(§g^ggíj||
Fréttir frá ívrstu hendi!
Athugasemdir vegna gagnrýni FÍI á framleiðniathuganir:
Niðurstöðurnar í sam-
ræmi við innlendar og
erlendar athuganir
eftirBaldur
Pétursson
í seinustu viku voru kynntar nið-
urstöður athugana á framleiðni
vinnuafls hér á landi miðað við
nokkur lönd. Voru þessar athuganir
einn þáttur í framleiðniátaki sem
Iðntæknistofnun íslands stendur
fyrir, en samstarfsaðilar að átakinu
auk hennar eru: Félag íslenskra
iðnrekenda, Alþýðusamband ís-
lands, iðnaðarráðuneytið, Lands-
samband iðnaðarmanna og
Landssamband iðnverkafólks.
Unnið hafði verið að þessum at-
hugunum í ein tvö ár og hefur verið
gott samstarf milli allra þessara
aðila, auk þess sem leitað hafði
verið umsagnar fjölmargra annarra
hagsmunasamtaka einstakra at-
vinnugreina, þjóðhagsstofnunar,
VSÍ o.fl., um þessar athuganir.
Margir hagfræðingar hinna ýmsu
stofnana tengdust því þessu starfi.
Sérstaklega var upp úr því lagt að
hafa gott samstarf við þessar at-
huganir og m.a. dróst útkoma
skýrslunnar verulega þar sem um-
sagnir einstakra aðila bárust mjög
seint.
Vegna framkominnar gagnrýni
Félags íslenskra iðnrekenda á mæl-
ingarnar verður ekki hjá því komist,
að skýra frá því hvernig staðið var
að þessum athugunum, þar sem
yfirumsjón mælinganna kom í minn
hlut m.a. vegna þess að ég hafði
kynnt mér ítarlega slíkar mælingar
erlendis.
Gott samstarf við FÍI
Um athug-anirnar
Ég ætla ekki hér að gera þessa
gagnrýni FÍI að einhverju stórmáli
og tína til öll þau atriði sem gagn-
rýnd hafa verið af félaginu, þar sem
sú gagnrýni dæmir sig sjálf, heldur
að gera grein fyrir aðalatriðum
þessa máls. Niðurstöður skýrslunn-
ar eru alls ekki ótvíræðar eins og
FÍI hefur sagt, heldur þvert á móti,
eins og sést ef menn lesa skýrsl-
una. Þannig eru t.d. nokkrar
greinar sem hafa góða hlutfallslega
stöðu miðað við önnur lönd á sama
hátt og greinar sem hafa slæma
stöðu. Enn fremur er þess að geta
að sú grein sem sýndi mestan vöxt
á tímabilinu, 10% aukningu á ári,
er íslensk (veiðarfæraiðn).
Haldnir voru nokkrir fundir með
fulltrúm FÍI við gerð þessarar
skýrslu. Öll þau atriði sem þeir
bentu á í þessu samstarfi voru at-
huguð og eru gerð skil í skýrslunni,
kafla II, s.s. varðandi upphafsár og
raungengi. Varðandi verðbólgu er
þess að geta að öll gögn voru úr
þjóðhagsreikningum hér á landi
sem erlendis og því ekki unnt að
fá nákvæmari gögn. Við athugun
á þessum þáttum kom ekkert fram
sem gaf tilefni til endurskoðunar á
niðurstöðum. Þetta var sérstaklega
rætt við fulltrúa FÍI og síðan sam-
þykkt af þeim.
Við lokafrágang lá því fyrir sam-
STOLPI
Vinsæli tölvuhugbúnaðurinn
Kynning í dag
tilkl. 19.00
Ármúla 38, Selmúlamegin.
Ath.: Söluskattur 1. september.
Komið og kynnist þessum frábœra viðskiptahug-
búnaði.
Sala, þjönusta
Markaðs- og söluráðgjöf,
Björn Viggósson,
Ármúla 38, 108 Rvk.,
sími 91-687466.
Hönnun hugbúnaðar
Kerfisþróun,
Kristján Gunnarsson,
Ármúla 38, 108 Rvk.,
sími 91-688055.
-\r