Morgunblaðið - 27.08.1987, Page 21
21
Baldur Pétursson
„Þar sem mikið var lagt
upp úr góðu samstarf i
við alla aðila, og gott
samstarf hafði verið við
FII um gerð þessarar
skýrslu, kom hin harða
gagnrýni forráða-
manna þess mér og
öðrum mjög á óvart
sama dag og skýrsla
var kynnt fjölmiðlum.“
þykki FÍI á efni skýrslunnar,
þ. á m. niðurstöðum og var þeim
efnisatriðum í engu breytt. Ég tel
því óþarfi að fara fleiri orðum um
einstök atriði þessarar gagnrýni.
Þar sem mikið var lagt upp úr
góðu samstarfí við alla aðila, og
gott samstarf hafði verið við FII
um gerð þessarar skýslu, kom hin
harða gagnrýni forráðamanna þess
mér og öðrum mjög á óvart sama
dag og skýrsla var kynnt íjölmiðl-
um. Þess má geta að skýrslan var
formlega kynnt eftir prentun, hags-
munaaðilum þ.á.m. FÍI einum degi
áður en hún var kynnt fjölmiðlum
og kom ekki fram nein gagnrýni í
þessa átt á þeim fundi.
Af fyrrgreindum ástæðum tel ég
gagnrýni FÍI vera ákaflega ódrengi-
lega gagnvart þeim aðilum sem að
þessu stóðu, og reyndar ekki í neinu
samræmi við þeirra fyrra álit. Hitt
er svo allt annað mál að gagnrýna
má alla skapaða hluti, og er mál-
efnaleg gagnrýni alltaf af hinu
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987
góða, en á sama hátt getur óvönduð
gagnrýni skaðað að tilefnislausu
einstök mál og jafnvel hagsmuni
viðkomandi aðila, sérstaklega á
þeim Q'ölmiðlatímum sem við lifum
nú á.
Ymsir fyrirvarar eru hinsvegar í
þessum mælingum, sem gerð eru
ítarleg skil í ritinu.
Þess ber ennfremur að geta að
niðurstöður mælinganna eru í sam-
ræmi við fyrri innlendar (t.d. í
fískiðnaði) og erlendar kannanir
sem gerðar hafa verið á framleiðni.
Kjarni málsins týndur??
Það sem kannski verra er í þessu
máli, er að kjami þess máls sem
til umfjöllunar er, þ.e. Framleiðni-
átakið og nauðsyn aukinnar fram-
leiðni, hefur týnst. Sérstaklega er
þetta slæmt á þeim tímum þar sem
alþjóðleg samkeppni fer sífellt
harðnandi, samkeppni sem íslensk
fyrirtæki verða að standast eigi að
vera mögulegt að leggja grunn að
bættum lífskjörum í framtíð.
Ennfremur virðist ekki veita af
almennri kynningu á framleiðni-
hugtakinu og hvað sé framleiðni,
þar sem veruleg vanþekking er á
þessum málum, sem oft leiðir til
misskilnings og deilna af þeim sök-
um. Þannig er því oft haldið fram
að aukin framleiðni þýði aukið álag
á starfsfólk og minnki atvinnu, þó
því sé í raun þveröfugt varið.
Þess má geta, að í mörgum okk-
ar samkeppnislöndum eru í gangi
ýmis verkefni í svipuðu formi og
Framleiðniátak Iðntæknistofnunar
s.s. í Evrópu og t.d. Bandaríkjunum
þar sem 5 ára verkefni er í gangi.
Hagnýt not bæklingsins
í þessu riti er margt annað en
samanburður á framleiðni milli
landa. Þannig er t.d. könnuð þróun
framleiðni í 23 íslenskum greinum,
fyrir utan þann samanburð sem er
gerður á 12 atvinnugreinum á milli
landa. Er þetta gert m.a. til þess
að fyrirtæki í viðkomandi atvinnu-
grein geti notfært sér þessar
upplýsingar (tölulegar sem mynd-
rænar) til að bera sína þróun saman
við þá meðaltalsþróun sem fram
kemur í viðkomandi grein.
Ennfremur er vikið að því hvern-
ig framleiðni er skilgreind. Þá er í
ritinu vikið að mælingaraðferðum á
framleiðni á einstaka vinnusvæðum
innan fyrirtækja, en þar er stuðst
við leiðbeiningar sem VSÍ gaf út
undir heitinu „Framleiðnimælingar
með hliðsjón af markmiðum". Vikið
er einnig að framleiðnimælingum
fyrir fyrirtækið í heild skv. aðferð
sem notuð er m.a. í Bandaríkjunum,
og aðstoðuðu kennarar við við-
skiptadeild Háskóla íslands við
framsetningu hennar. í þeirri að-
ferð er ennfremur vikið að beinum
tengslum milli framleiðnimælinga
og arðsemismælinga í viðkomandi
fyrirtæki. Báðum þessum aðferðum
fylgja áætlunarblöð sem auðveld
eru í notkun og nýtast þau fram-
leiðslufyrirtækjum jafnt sem
þjónustu- og verslunarfyrirtækjum
auk stofnana.
í ritinu er ennfremur vikið að
þeim þáttum sem áhrif hafa á fram-
leiðni innan fyrirtækja (innri þættir)
sem utan (ytri þættir). Varðandi
innri þætti má nefna: sjálfvirkni,
sérhæfingu, þjálfun o.fl. o.fl. sem
áhrif hefur á framleiðni. Varðandi
ytri þættina er þess að geta að
verðbólga var hér á landi margfalt
meiri en í viðmiðunarlöndunum sem
ekki einungis hafði í för með sér
verulegt tjón fyrir viðkomandi fyrir-
t'æki, heldur var mesti skaðinn e.t.v.
fólginn í því að stjómendur og
starfsfólk gátu ekki einbeitt sér að
endurbótum og framþróun á innri
þáttum í rekstri fyrirtækja, sem
sífellt aukin samkeppni kallar á.
Enn þann dag í dag er munur á
innlendri og erlendri verðbólgu
margfaldur, en slíkt getur ekki
gengið lengi, þar sem atvinnulíf
verður að búa við svipuð skilyrði
og eriendis gerist ef það á vera
samkeppnishæft á alþjóðamörkuð-
um.
„Framleiðni og arðsemismæling-
ar leysa engan vanda í sjálfu sér
en þær geta hinsvegar leitt hann í
ljós. Tilgangur slíkra útreikinga er
því að leiða í ljós staðreyndir sem
nota má til þess að fínna skýringar
á þróun, greina orsök og afleiðingar
í rekstri. Asamt öðrum upplýsingum
eru slíkir útreikningar mikilvægir
þegar taka þarf ákvarðanir varð-
andi stefnumótun, stjórnun og
framleiðslu fyrirtækisins í því skyni
að auka samkeppnishæfni þess,
verðmætasköpun og arðsemi" eins
og segir í skýrslunni.
Ljóst er því að rit þetta getur
verið mjög gagnlegt fyrir þá stjórn-
endur og starfsfólk fýrirtækja sem
áhuga hafa á að auka framleiðni,
arðsemi og samkeppnishæfni við-
komandi fyrirtækis til að mögulegt
sé að standa undir betri lífskjörum
í framtíð, vilji þeir hagnýta sér
slíkar upplýsingar á annað borð.
Höfundur er viðskiptafræðingur
að mennt og deildarstjóri í iðnað-
arráðuneytinu.
10% stgr. afsl.
meðan sýningin
„Veröldin ’87<f stendur
Jíafa ^Royal
Hvítar badinnréttingar
í miklu úrvali
Baðinnréttingar fyrir þá sem hafa
góðan smekk
Útsölustaðir:
Atlabúðin
Málningarþjónustan
Vöruval
Valberg
Har. Johansen
Brimnes
Akureyri,
Akranesi
ísafirði
Ólafsfirði
Seyðisfirði
Vestmannaeyjum
og flest kaupfélög um land allt.
Powfeeti
Suðurlandsbraut 10
S. 686499