Morgunblaðið - 27.08.1987, Síða 22

Morgunblaðið - 27.08.1987, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987 KÓPAVOGUR Yörumarkaöurinn hí. ÞJÖNUSTUDEILDIN ER FLUTT AÐ SMIÐJUVEGI D 18 OPIÐ9-18 SÍMI: 78800 SÍMATÍMI: kl: 10 -12 og 14 - 17 - ÞJÓNUSTUDEILD - SMIÐJUVEGI D 18 - 200 KÓPAVOGUR FÆRIBANDA- MÓTORAR = hEoinn = VÉLAVERSLUN SÍMI 624260 SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER Glæsilegar haustvörur svanurinn Skólavörðustíg 6, s. 623525 Gínur og glugga- skreytingar KVIKMYNPIR Arnaldur Indriðason Gínan (Mannequin). Sýnd í Háskólabíói. Stjörnugjöf: ★. Bandarísk. Leikstjóri: Mic- hael Gottlieb. Handrit: Micha- el Gottlieb og Edward Rugof. Framleiðandi: Art Levinson. Helstu hlutverk: Andrew McCarthy, Kim Cattrall og G. W. Bailey. „Hvað er vitlaust við þessa mynd?“, spyr einhver í Gínunni (Mannequin) á sinn uppskrúfaða, óekta og kjánalega máta sem er svo einkennandi fyrir þessa lap- þunnu „skemmtun“. Sú sem spyr á að sjálfsögðu ekki við myndina sem hún leikur í en það hefði verið hollt fyrir leikstjórann, Mic- hael Gottlieb og handritshöfund- inn Edward Rugof, að velta spurningunni fyrir sér nokkrum sinnum á meðan á framleiðslunni stóð. En líklega hefðu þeir engu getað bjargað. Gínan, sem sýnd er i Háskólabíói, er kristalskýrt dæmi um það sem kallað hefur verið lámenningarrusl. „Hvað er vitlaust?" Þegar stórt er spurt verður oft lítið um svör. En ekki í þessu tilviki. Það er næstum allt vitlaust við þessa mynd. Fyrir utan hryllilega ófyndinn gamanleik níðist hún á hverri einustu gömlu klisju sem hægt er að níðast á í sögu, sem hægt er að sjá fyrir hvemig end- ar áður en poppinn klárast, um iistamann í atvinnukröggum sem reddar n.k. Kringlu frá gjald- þroti með fallegum, takið nú eftir, gluggaskreytingum. Þama er „hlægilegi“ og skrautlegi homminn með til- heyrandi fettum og brettum; efnilegi en fátæki listamaðurinn, sem bjargar lífi stórverslunareig- andans er tekur hann samstundis upp á arma sína, stefnir frá fyrsta degi í forstjórastólinn og áður en nokkur veit af er hann búinn að forða versluninni frá því að fara á hausinn og setja reksturinn í blóma; vondi kallinn sem á stórverslunina í nágrenn- inu og vill gabba hinn knáa gluggaskreytingamann yfir til sín; spillti bókarinn sem rær að því öllum árum að setja stórversl- unina góðu á hausinn og síðast og síst G. W. Bailey, sem er allt- af eins og einhver mest óþolandi „grínfígúra" hvíta tjaldsins. Það, sem gerir svo útslagið en kvikmyndagerðarmennimir hafa sjálfsagt haldið að væri hinn frumlegi hápunktur gamansins, er andi egypskrar stúlku sem svifíð hefur yfír vötnunum í meira en 4000 ár og tekur sér bólfestu í gínu, sem gluggaskre- ytingamaðurinn hefur smíðað, og gefur henni líf. Andrew MacCarty, sem leikur gluggaskreytingamanninn, sýnir það helst að gamanleikari er hann ekki. Og myndin sýnir að þegar þeim í Hollywood tekst verulega illa upp verður útkoman eitthvað eins og Gínan. tJr myndinni Gínan, sem sýnd er í Háskólabíói. MEÐEINU SÍMTALI gT3fniíku«iMWíiITTflE^M greiðslukortareiknmg mánaðarlega SÍMINNER V7S4 691140- ■B 1 691141 Jk FQSTUDAGA 9-20 IAUGARDAGA10-16 ' £ *$"■: xí' íf HAGKAUP

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.