Morgunblaðið - 27.08.1987, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987
Útgefandi tuflifftfrtfe Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri HaraldurSveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen.
Fróttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstrætl 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 550 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 50 kr. eintakið.
Bankamál
í biðstöðu
Allt bendir nú til þess, að
Jón Sigurðsson, viðskipta-
ráðherra, ætli að skjóta því á
frest að taka ákvörðun um
hvoru tilboðanna í Utvegs-
bankann skuli tekið. Miðað við
fyrstu yfirlýsingar ráðherrans
og hve fast Jón Baldvin
Hannibalsson, fjármálaráð-
herra, kvað að orði um nauðsyn
þess fyrir ríkissjóð að fá and-
virði hlutabréfanna í bankan-
um, kemur flestum líklega á
óvart, að endanleg ákvörðun
verður ekki tekin. En miðað
við það, hve lengi uppstokkun
í bankakerfínu hefur verið á
döfínni meðal stjómmála-
manna, er frestun lokaákvörð-
unar ráðherra ekkert nýnæmi.
Viðskiptaráðherra er þeirrar
skoðunar á grundvelli lög-
fræðilegrar álitsgerðar hlut-
lauss fræðimanns, að bæði
tilboðin séu gild og jafnrétthá.
Þá er enginn vafí á því, að
tryggingar að baki tilboðanna
eru metnar gildar. Loks hefur
viðskiptaráðherra sagt, að
valdið til að höggva á hnútinn
sé hjá sér, viðskiptasjónarmið
en ekki stjómmál eigi að ráða
niðurstöðunni.
í tilkynningu viðskiptaráðu-
neytisins _um sölu hlutabréf-
anna í Útvegsbankanum er
kjörum lýst og þar segir enn-
fremur: „Hin sérstöku sölukjör
standa til 15. nóvember 1987
svo og lánafyrirgreiðsla skv.
þeim.“ Eins og fram hefur
komið telja talsmenn þeirra 33
útvegsmanna o.fl, sem boðið
hafa í hlutabréfín, að þeir hafí
í raun haft tíma til 15. nóvem-
ber til að taka ákvörðun um
tilboðið. Talsmenn Sambands
íslenskra samvinnufélaga
(SÍS) em á hinn bóginn þeirrar
skoðunar, að hin sérstöku sölu-
kjör hafí ekki gilt nema þangað
til SÍS lagði fram tilboð sitt;
þeir séu í raun búnir að kaupa
bankann nema það vanti stað-
festingu viðskiptaráðherra á
því. Gefa SÍS-menn jafnframt
til kynna, að ráðheira geti ekki
annað en tekið SÍS-tilboðinu
og er látið að því liggja, að
annars komi til málaferla. í
tilkynningu viðskiptaráðuneyt-
isins um sölukjörin segir:
„Varðandi sölu á hlutabréfum
að andvirði kr. 50.000.000 eða
meira til eins aðila (eða móð-
ur- og dótturfélaga) skaí afla
samþykkis viðskiptaráðherra
áður en kaup eru gerð.“ Ætti
enginn að þurfa að efast um,
að SÍS og dótturfélög þess falla
undir þetta ákvæði. Af því leið-
ir einfaldlega, að SÍS getur
ekki keypt Útvegsbankann
nema með samþykki viðskipta-
ráðherra. Bankinn hefur því
alls ekki verið seldur,_ hvað svo
sem lögfræðingar SIS kunna
að segja.
Ætli Jón Sigurðsson, við-
skiptaráðherra, að beita valdi
sínu á þann veg að hafa banka-
málin áfram í biðstöðu, þarf
hann að gera það með skýrum
og einföldum málefnalegum
rökum. Ráðherrann átti að
geta sagt sér það, að því yrði
ekki tekið með þögninni að SÍS
keypti Útvegsbankann. Umsvif
SÍS snerta óhjákvæmilega
stjómmálabaráttuna. Þetta
stórfyrirtæki hefur hagað sér
þannig á pólitískum vettvangi,
að það hlýtur að vekja tor-
tryggni. Það er ekki næg
ástæða fyrir viðskiptaráðherra
að skjóta ákvörðun á frest
vegna þess að það hafí orðið
pólitískur hvellur út af málinu.
Um langt árabil hafa verið
skiptar skoðanir um það, hvort
selja eigi ríkisbanka eða ekki
og menn deilt um það á
pólitískum forsendum. Sú
skoðun hefur orðið ofan á,
ríkisbankar skuli seldir. Al-
þingi hefur sett lög um stofnun
hlutafélagsbanka um Útvegs-
banka íslands. Á grundvelli
þessara laga gaf viðskipta-
ráðuneytið út söluskilmála,
sem viðskiptaráðherra sjálfur
hlýtur að virða. Með vísan til
þeirra og laganna um Útvegs-
bankann á að taka ákvörðun
um framtíðareigendur bank-
ans.
í sjálfu sér ætti að vera ein-
falt fyrir viðskiptaráðherra
með aðstoð sérfræðinga að
gera upp hug sinn í þessu
máli og selja þeim aðila, er
býður betur. Kjósi ráðherrann
að fresta þeirri ákvörðun er
nauðsynlegt að binda sem fyrst
enda á óvissuástandið, er nú
ríkir. Nóg hefur á Útvegs-
bankanum dunið, þótt rekstur
hans sé ekki til langframa lát-
inn vera í því tómarúmi, sem
nú hefur skapast.
En kannski einhver ný sjón-
armið séu komin fram sem
skýra þarf áður en endanleg
ákvörðun er tekin?
O kl 8-20 Akureyradlugvöllur: Móttaka Forseta ís-
lands.
0 kl. 9 30 FiólannnSkipagötu 14: Móttakautan-
bœjargesta.
0 kl. 9.45 BæjarstjórnarsalurGeislagötu: Hátíöar-
fundur hjá bæjarstjórn Akureyrar,
o rí. 10.30 i Akureyrarkirkju: Hátiðarsamkoma.
0 kl. 12.00 HótelKea: HádegisveröurtynrgestiI
boöi bæjarstjórnar.
0 kl. 14.00 Skrúöganga leggur af staö frá Hamar-
skotstúm viö Hamarsstig
O u 'k .00 Skrúöganga leggur af stað frá undirhliö
noröan Veganestis i Glerárhverfi.
© M 15 30 Siödegisdagskrá I Gongugotu. flötinni
0 fynr neöan samkomuhúsiö og á Pollinum
0 framan viö T orf unesbryggju
© kl. 18.45 Laxdalshús: Kvöldveröur fyrir aökomu-
gesti.
© kl. 20.30 íþróttaskemmanáOddeyri: Hátiöarsýn-
ing leikfélags Akureyrar
O kl. 21.00 Kvölddagskrá í Göngugötu.
© kl. 22.00 Lystigaröur: Garösamkoma
© kl. 14.00 — 22.00 Iþróttahóll: lönsýnmg Noröur-
lands.
Afmæli Akureyrar:
„Páll er búínn að lofa
suðlægum laufvindum“
Allt komið undir því hvernig viðrar á afmælisdaginn
UNDIRBÚNINGUR fyrir 125 ára afmæli Akureyrarbæjar stend-
ur nú sem hæst; búið er að fullmóta alla hátíðardagskrána og
tímasetja alla dagskrárliði, og undirbúningur fyrir iðnsýninguna
i íþróttahöllinni er langt kominn en hún verður opnuð á morgun.
Kostnaður við hátíðarhöldin
verður í kringum 5 milljónir króna,
og er þá jafnframt reiknað með
kostnaði við iðnsýninguna, og að
auki hefur kostnaður við ýmsar
framkvæmdir í bænum aukist
vegna þess að þeim hefur verið
hraðað.
Ingólfur Ármannsson, Hermann
Sigtryggsson og Ámi Steinar Jó-
hannsson hafa borið hitann og
þungann af öllum undirbúningi við
hátíðarhöldin, og Þorleifur Þór
Jónsson er framkvæmdastjóri iðn-
sýningarinnar sem hefst á morgun.
Blaðamanni Morgunblaðsins tókst
að góma þá í gærmorgun á skrif-
stofu Hermanns þar sem þeir voru
samankomnir og á kafi í undirbún-
ingsvinnu.
„Við tilheyrum þessum vinnuhópi
sem settur var á laggimar til að
skipuleggja hátíðarhöldin; emm
nokkurs konar vinnuþrælar því það
hefur verið alveg nóg að gera und-
anfama 2-3 mánuði við að vinna
að undirbúningnum," sagði Her-
mann Sigtryggsson, sem aðallega
hefur haft með alla skipulagningu
að gera í göngugötunni.
„Annars byijaði undirbúnings-
vinnan að sumu leyti fyrir 6
mánuðum síðan því þá var hafíst
handa við að skipuleggja iðnsýning-
una sem auðvitað er hluti afmælis-
haldsins," sagði Þorleifur Þór
Jónsson.
„En auðvitað hvílir undirbúnings-
vinnan ekki bara á okkar herðum
þvf öll íþrótta- og æskulýðsfélög í
bænum leggjast á eitt við að leggja
eitthvað af mörkum til dagskrárinn-
ar, og þau verða til dæmis vel flest
með skemmtiatriði, sem þau standa
og falla með, á síðdegisskemmtun-
inni í göngugötunni sem hefjast
mun klukkan 14.30," sagði Ingólfur
Ármannsson.
„Það er meira að segja svo að
dagvistarstofnanir fyrir litlu krakk-
ana taka þátt í þessu því þar hafa
börnin verið undirbúin til að taka
þátt í skrúðgöngunum, án þess að
um skipulega þátttöku þeirra verði
að ræða,“ sagði Hermann.
„Hollur er heima-
fenginn baggi“
Aðspurðir um síðdegisskemmt-
unina í göngugötunni sögðu þeir
að reynt hefði verið að hafa sem
mest af akureysku skemmtiefni á
dagskránni og hefði það stjómast
af ýmsu.
„Ég held að það sé ekki nema
eitt aðkeypt skemmtiatriði á allri
dagskránni og það er með „Látúns-
barkanum" svonefnda. Og ég heyri
það á yngri kynslóðinni að hún er
mjög spennt fyrir því að hlusta á
hann," sagði Hermann. „Að öðru
leyti verður skemmtidagskráin í
höndum Akureyringa."
„Það má kannski segja að við
höfum haft málsháttinn „Hollur er
heimafenginn baggi" að leiðarljósi
í þessu sambandi, en auðvitað er
undirbúningsnefndinni settar vissar
fjárhagslegar skorður," sagði Þor-
leifur.
Lystigarðurinn verður svo
þungamiðja dagskrárinnar um
kvöldið, en klukkan 22.00 verður
hann opnaður almenningi, og boðið
verður upp á kaffi, kleinur og soð-
brauð. Garðurinn verður allur
upplýstur með ljósum og kösturum,
og skemmtuninni þar mun ljúka
með flugeldasýningu um miðnætti.
Ámi Steinar Jóhannsson hefur
aðallega haft með undirbúning-
svinnu í Lystigarðinum að gera og
sagði hann að þar yrði hljómsveitum
komið fyrir á fjórum stöðum þannig
að allir Akureyringar og aðrir við-
staddir ættu hæglega að geta
fundið sveiflu sér við hæfi.
„Það er meiningin að reyna að
skapa svolítið afslappað andrúms-
loft þama í Lystigarðinum; fólk
geti komið og notið tónlistar og
veitinga í þægilegu unfhverfi, og
ef það kærir sig um, dillað sér í
hveijum þeim takti sem best hent-
ar,“ sagði Ámi Steinar. „Auðvitað
verður það mjög undir veðrinu kom-
ið hvemig til tekst, eins og með
allar útiskemmtanir, en Páll Berg-
þórsson er búinn að lofa okkur
suðlægum laufvindum á afmælis-
daginn," sagði Ámi Steinar, og
vonandi bregst það ekki.
Morgunblaðið/KJS
Þeir undirbúa hátiðarhöldin: Ingólfur Ármannsson, Hermann Sigtryggsson, Ámi Steinar Jóhannsson
og Þorleifur Þór Jónsson