Morgunblaðið - 27.08.1987, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, PIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987
33
Meðal söngvara, sem fram koma í Allt vitlaust eru Eyjólfur Kristjáns-
son, Eiríkur Hauksson, Björgvin Halldórsson og Sigríður Beinteins-
dóttir.
Rokksýningm
„ Allt vitlaust“
áfram í Broadway
ROKK- og danssýningin „Allt
vitlaust“ verður að nýju sett upp
í veitingahúsinu Broadway í
september. Aætlað er að fyrsta
sýningin verði laugardaginn 5.
september n.k.
I fréttatilkynningu frá aðstand-
endum sýningarinnar segir að
vegna fjölda áskorana hafi verið
ákveðið að endursýna „Allt vit-
laust" sem er ástarsaga rokksins í
tali og tónum.
Meðal þátttakenda í sýningunni
má nefna hljómsveitina Fuglamir
(The Birds) undir stjóm Gunnars
Þórðarsonar og söngsveitina The
Bees en hana skipa Björgvin Halld-
órsson, Sigríður Beinteinsdóttir,
Eiríkur Hauksson og Eyjólfur
Kristjánsson. Þá kemur fram dans-
flokkurinn „Rokk í viðlögum" sem
skipaður er 17 dönsurum.
í fréttatilkynningunni kemur
fram að stefnt er að því að sýna
„Allt vitlaust" út september en þá
mun ný sýning taka við. Sú sýning
hefur hlotið heitið Gullárin og bygg-
ir hún mikið til á sögu KK sextetts-
ins. Þess má geta að þar mun koma
fram í fyrsta sinn eftir langt hlé
söngkonan Ellý Vilhjálms.
Egilsstaðir:
34 pör kepptu á
opnu bridsmóti
E^ilsstöðum.
HOTEL Valaskjálf og Brids-
samband Austurlands gengust
Morgunblaðið/Björn Sveinsson
Hluti af þátttakendum á opna
bridsmótinu á Egilsstöðum.
Leiðrétting
í GREIN minni Hvað er klukkan?
sem birtist 22. þ.m. urðu tvær
prentvillur mjög bagalegar, þar sem
tilvitnun brenglaðist. í handriti
stóð: „Þess má minnast, að „eigi
fellur tré við hið fyrsta högg.““ En
það varð í prentun: „Þess má
minnast, að eigi „fellur tré við
fyrsta högg.“
Með þökk fyrir leiðréttingu.
Helgi Hálfdanarson
fyrir opnu bridsmóti 21. og
22. ágúst sl. á Egilsstöðum.
Þetta er í þriðja sinn sem
Bridssamband Austurlands
gengst fyrir svona móti. Að þessu
sinni kepptu 34 pör á mótinu sem
að sögn þátttakenda heppnaðist
hið besta.
Sigurvegarar urðu Símon
Símonarson og Guðmundur Páll
úr Reykjavík. í öðru sæti urðu
Páll Valdimarsson og Magnús
Ólafsson úr Reykjavík og í þriðja
sæti bræðurnir Kristján og Val-
garð Blöndal úr Reykjavík.
— Bjöm
Ekið á bíl
og brott
EKIÐ var á nýja bifreið á Geirs-
götu í Reylqavik á þriðjudag, en
sá sem það gerði ók á brott.
Geirsgata liggur á bak við Hafn-
arhúsið við Reykjavíkurhöfn. Um
kl. 8 á þriðjudagsmorgun var silfur-
grárri Mazda 626 bifreið árgerð
1987 lagt þar í stæði. Þegar eigand-
inn kom aftur að bifreið sinni um
kl. 16 hafði verið ekið aftan á hana
og er hún stórskemmd. Þeir sem
kynnu að hafa upplýsingar um
óhappið eru beðnir um að snúa sér
til slysarannsóknardeildar lögregl-
unnar í Reykjavík.
SPECK
Lensi-, slor-, skolp-,
sjó-, vatns- og
holræsa-dælur.
Útvegum einnig dælu-
sett meö raf-, Bensín-
og Diesel vélum.
SöyirteQJigjMir
Vesturgötu 16,
sími 1 3280
lm!l tí
IHer inn á lang JL flest heimili landsins!
«J
GARÐABÆR* BREIÐHOLT • HAFNARFJÖRÐUR
LANGAR ÞIG
AÐSLÁST
í HÓPINN?
Við opnum nýtt dansstúdíó að Smiðsbúð 9 Garðabæ,
rétt við nýju Reykjanesbrautina.
7. september byrjum við á haustnámskeiði í leikfimi og eróbik.
Morgun-, hádegis- og kvöldtímarfyrir byrjendur og framhaldshópa.
Einnig er hafin innritun í jassballett, modemdansi, steppi og bamadönsum,
þau hefjast 14. september.
Kennarar verða Hafdís Jónsdóttir
og gestakennari frá New York.
UÓSABEKKIR • GUFA • NUDDPOTTUR
DANSSTÚOÍQ
DISU
DANSNEISTINN
Smiðsbúö9, Garðabæ
rétt við nýju Reykjanesbrautina. Félagi í F.I.D.