Morgunblaðið - 27.08.1987, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 27.08.1987, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987 47 Sveinn Viggó Stefánsson — Minning Fæddur 9. september 1913 Dáinn 15. ágúst 1987 Ég man fyrst eftir Sveini Viggó Stefánssyni þegar hann á mínum bernskuárum var starfsmaður Sjúkrasamlags Hafnarfjarðar, sem þá hafði skrifstofu á Austurgötu 26 beint á móti húsi foreldra minna. í minningu þeirra ára geymi ég hann sem hógværan og prúðan skrifstofumann, sem gaf sér tíma til að ávarpa mig, lítinn dreng- hnokkann, eða heilsa með brosi, er fundum okkar bar saman á Austur- götur.ni. Síðar átti ég eftir að kynnast honum sem einum af aðalleikurum bæjarins um fjölda ára og fbrystu- manni um eflingu leiklistar í okkar heimabyggð. — Hann var einn af stofnendum Leikfélags Hafnar- fjarðar árið 1936. Og eftir að félagið hætti starfsemi um tíma 1939, hélt hann ásamt Ársæli Páls- syni uppi leikstarfsemi í Hafnarfirði 1942 og 1943. Leikhópur þeirra hét Leikflokkur Hafnarfjarðar. Var sú starfsemi undanfari þess, að Leik- félag Hafnarfjarðar var endurvakið 1943 og starfaði síðan til 1965. Sveinn Viggó var formaður Leik- félags Hafnarfjarðar um sex ára skeið og átti m.a. frumkvæði að því að leiksviði var komið fyrir í Bæjarbíó, sem ekki hafði verið ráð- gert í upphafi. — Á þessum árum stóð leiklistarlíf í Hafnarfirði með miklum blóma og ágæt aðsókn var að leiksýningum í bænum. Þá er mér í fersku minni vaskleg framganga og skörulegur málflutn- ingur Sveins Viggós á kappræðu- fundum áður fyrr, er hann barðist fyrir málstað Alþýðuflokksins. Hann mun alla tíð hafa verið ein- lægur liðsmaður þess flokks og var formaður Félags ungra jafnaðar- manna um árabil. Hann var vara- bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins eitt kjörtímabil og gegndi fleiri trúnað- arstörfum. En efst í minningunni um þennan góða samborgara minn og tilefni þessara kveðjuorða er sú einlæga vinátta, sem skapaðist á milli okkar fyrir nokkrum árum og er mér svo mikils virði. Upphafið að nánum kynnum mínum við þau hjónin, Svein og Huldu, voru ferðir okkar í Sundhöll Hafnarfjarðar. Það var föst regla, að við fórum þangað saman í bíl mínum næstum hvern laugardags- morgun hin síðari ár og stundum oftar. Og eftir hveija sundlaugar- ferðina var haldið heim til þeirra hlýlega heimilis í Fögrukinn 6. Þar bar Hulda fram góðgerðir og spjall- að var saman yfir kaffibolla. Síðan fékk ég tækifæri til að svala löngun minni að syngja við undirleik Huldu, sem fyrrum var organisti við kirkj- una í Bolungarvík. Hafði ég stundum orð á því, að þessar ógleymanlegu ánægjustund- ir við gamla og góða orgelið hennar Huldu minntu mig á þegar móðir mín sat við hljóðfærið heima í stofu á Austurgötu 25 og lét okkur krakkana taka lagið. — Það var eins og ég upplifði bernskudaga mína. Svo sannarlega hefi ég notið ríkulega þessara björtu og glað- væru morgunstunda með góðum vinum. Sveinn hafði yndi af ljóðum og öðrum, bókmenntum. Hann var víðlesinn og vel ritfær. Hann hafði einnig ánægju af söng og tónlist. Oft var efst á óskalistanum, er við komum saman, fallega pólska lagið, sem flutt var við útför hans og hefst með þessum orðum: „Guð þú, sem vorri ættjörð skýldir áður Alvaldur guð, sem vilt að hún sig reisi.“ Þessi fagra frelsisbæn snart djúpt hans sálarstrengi, enda má segja, að boðskapurinn endurspegli það lífsviðhorf Sveins að hafa sam- úð með þeim, sem búa við kúgun og óréttlæti. — Hann var jafnaðar- maður af hugsjón, en jafnframt umburðarlyndur gagnvart skoðun- um annarra. Hann vildi lofa öðrum að njóta sannmælis, var réttsýnn, laus við illt umtal um náungann, ríkur af einlægni og hlýju viðmóti. Sveinn Viggó fæddist í Hafnar- firði 9. sept. 1913. Þar var heimili hans alla ævi. Foreldrar hans voru hjónin Stefán Ólafur Bachmann Hallgrímsson og Margrét Sveins- dóttir. Þau áttu lengst af heima á Lækjargötu 6. Húsið þar byggðu foreldrar Margrétar og var kallað Sveinsbær. Hann var elstur þriggja bama þeirra hjóna. Á lífi eru dætumar tvær, Þóra og Súsanna, búsettar í Hafnarfirði. I Sveinsbæ ólust einnig upp tveir systursynir Margrétar, Jón Gústafsson, sem fórst með bv Sviða, og Rafn Hafnfjörð, prent- smiðjustjóri. Faðir Sveins var ættaður frá Akranesi, sonur hjónanna Súsönnu f. Clausen og Hallgríms Tómasson- ar, hafnsögumanns og sjómanns, sem var af svonefndri Bjargsætt. — Stefán Ó. Bachmann var lengst af sjómaður, m.a. matsveinn á fyrsta togara Bæjarútgerðar Hafnarfjarð- ar, bv Maí. Síðustu starfsárin var hann við afgreiðslustörf hjá Dvergi hf. Hann var um margt sérstæður maður, einkar geðgóður, mjög vinnusamur og hið mesta snyrti- menni. Móðir Sveins var dóttir hjónanna Vigdísar Jónsdóttur frá Selsgarði á Álftanesi og Sveins Auðunssonar, sem fæddist í Gesthúsum í Hafnar- firði og kom þar mikið við sögu félagsmála. Hann var m.a. bæjar- fulltrúi um skeið og formaður Verkamannafélagsins Hlífar um árabil. Móður sína missti Sveinn 1936. Þá var hún aðeins 46 ára. Var það mikið áfall fyrir þau systkinin. Hún var kærleiksrík og fómfús. Þannig tók hún oft börn til fósturs á heim- ili sitt, jafnt skyld sem vandalaus. Sveinn giftist árið 1940 Margréti Guðmundsdóttur Björnsson frá Pat- reksfirði. Þau slitu samvistir. Á lífi eru tvö börn þeirra, Guðmundur Karl og Margrét, en látinn er sonur- inn Brynjólfur. Seinni kona hans er Hulda Run- ólfsdóttir frá Hlíð, kennari. Þau eignuðust þijá syni, Yngva, Hjálm- ar og Ólaf. Vorið 1935 lauk Sveinn námi frá Samvinnuskólanum. Eftir það vann hann skrifstofustörf eða til ársloka 1985. Þá varð hann að láta af störf- um vegna heilsubrests. Hafði hann fengið heilablóðfall 1981 og átti síðustu árin við að stríða afleiðingar þess. Hann lést á Sólvangi 15. ágúst sl. eftir stutta dvöl þar. Veit ég, að hann var þakklátur öllum þeim,. sem önnuðust hann í erfiðum veik- indum síðustu mánuði. Sérstaklega var hann þakklátur Huldu sinni fyrir þá miklu umhyggju sem hún sýndi honum. Við fráfall Sveins Viggós Stef- ánssonar sakna ég góðs vinar. Glöðu samvemstundirnar geymast í þakklátum huga. Einlægni og góðvild þeirra hjóna gleymi ég aldr- ei. Útförin hefur farið fram í kyrr- þey að ósk hins látna. Guð blessi minningu hans. Árni Gunnlaugsson t Eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir, GERTRUD HAUTH ÁSGRÍMSSON, Skriðustekk 27, Reykjavík, lést á handlækningadeild Landspítalans aðfaranótt miðvikudags- ins 26. ágúst. Páll Ásgrímsson, börn og tengdabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA ÓLAFSDÓTTIR, lést á heimili sínu, Blönduhlíð 26, Reykjavík þann 17. ágúst. Jarðar- förin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ólafur Diðriksson, Málfriður Guðsteinsdóttir, Theodór Diðriksson, Edda Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Maðurinn minn, t SVEINN VIGGÓ STEFÁNSSON, andaðist 15. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Hulda Runólfsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR BENEDIKTSDÓTTIR, Ijósmóðir, Þorvaldsstöðum, Skriðdal, lést í sjúkrahúsinu á Egilsstööum 23. þ.m. Jarðarförin fer fram frá Þingmúlakirkju laugardaginn 29. ágúst kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Jóna Vilborg Friðriksdóttir, Margrét Friðriksdóttir. t Móðursystir mín, SIGURLAUG ÞÓRÓLFSDÓTTIR, andaðist á Droplaugarstöðum sunnudaginn 23. ágúst. Útför henn- ar fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 28. ágúst kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Rósa Björk Þorbjarnardóttir. t •Konan mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALBJÖRG HALLDÓRSDÓTTIR, Vörðustíg 5, Hafnarfirði, sem lést í Borgarspítalanum 16. ágúst, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 27. ágúst kl. 15.00. Georg Sigurðsson, Sjöfn Georgsdóttir, Grétar Hinriksson, Sigurður Georgsson, Erla Georgsdóttir, Karl Egilsson, Margrét Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, ÓLAFS JÓNSSONAR læknis, Hamrahlíð 33, sem andaðist i Landspítalanum 17. ágúst, fer fram frá Dómkirkj- unni í Reykjavík föstudaginn 28. ágúst kl. 13.30. Drifa Garðarsdóttir, Garðar Ólafsson, Edda Ólafsdóttir, Kjartan Árnason, Kristín Hildur Ólafsdóttir, Sigurður Sverrisson, Ólafur Sverrir Kjartansson. t Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, ÞÓREY HEIÐBERG, fædd Eyþórsdóttir, Laufásvegi 2A, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 31. ágúst 1987 kl. 13.30. Jarösett verður i Fossvogskirkjugaröi. SigríðurS. Heiðberg, Einar Jónsson, Eyþór Heiðberg, Christa Heiðberg, Valgerður Anna Eyþórsdóttir. barnabörn og barnabarnabörn. t Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLEIF JÓHANNA JÓHANNSDÓTTIR, Kárastíg 14, Hofsósi, verður jarðsungin frá Hofsóskirkju laugardaginn 29. ágúst kl. 11.00. Jóhann Kristinsson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir min, tengdamóðir og t amma, ^ GUÐNÝ SIGURÐARDÓTTIR, Ásvallagötu 57, • er lést 21. ágúst sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu- daginn 28. ágúst kl. 15.00. Auðbjörg Pétursdóttir, Ögmundur Frímannsson, Pétur Jónsson, Sigrún Jónsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Guöný Jónsdóttir, Haraldur Ögmundsson. t Útför litla drengsins okkar, GUNNARS FINNS GUÐMUNDSSONAR, Klausturhólum, er lést á gjörgæsludeild Landspítalans 18. ágúst fer fram frá Stóruborgarkirkju laugardaginn 29. ágúst kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans er bent á að láta Barnaspítala Hringsins njóta þess. Þórleif Gunnarsdóttir, Guðmundur Jóhannesson. t Móðurbróðir minn, SIGHVATUR GÍSLASON, Vík í Mýrdal, verður jarðsunginn frá Vikurkirkju laugardaginn 29. ágúst kl. 14.00. Ferð verður frá Sigtúni 3, Reykjavík kl. 9.30. Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna, Jónína Böðvarsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö við andlát og útför móður okkar og tengdamóöur, SIGRÍÐAR GÍSLADÓTTUR, Droplaugarstöðum. Guðný Matthíasdóttir, Garðar Finnsson, Áslaug Svane, Svandis Matthiasdóttir, Haukur Kristjánsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.