Morgunblaðið - 27.08.1987, Qupperneq 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987
félk í
fréttum
Nína Hagen og eiginmaðurinn, Lorenz.
Nína
giftir
sig
Þýska söngkonan Nína Hagen
gekk í það heilaga úti á Ibiza
nú á dögunum. Slíkt eru auðvitað
tíðindi í sjálfu sér, en athöfnin vakti
ekki síður athygli fyrir þær sakir
að brúðguminn er 14 árum yngri
en Nína, eða aðeins 18 ára. Menn
kunna annars lítil deili á honum
annað en að hann heitir Lorenz, og
mun vera bassagítarleikari frá Suð-
ur-Afríku.
Nína hitti þáverandi tilvonandi
eiginmann sinn í neðanjarðarlest í
Berlín, og var það ást við fyrstu
sýn. Það er þó ekki nóg með að
þau Nína og Lorenz taki sig vel út
saman, eins og lesendur geta séð á
meðfylgjandi mynd, heldur eru þau
líka andlega skyld. Nína segir að
hún og Lorenz eigi tvö sameiginleg
áhugamál þar sem eru Jesús Krist-
ur og fljúgandi furðuhlutir.
Brúðguminn mun ekki hafa haft
sig sérstaklega til á þessum tíma-
mótum, en Nína festi englavængi
á bakið á sér til að undirstrika hve
hamingjusöm hún væri. Frétta-
menn sem staddir voru á Ibiza
spurðu Nínu um mannsefnið, og lét
hún hafa eftirfarandi eftir sér: „Lor-
enz er hlægilegur og dálítið vitlaus,
en hann er ungur."
Listrænn
sóldýrkandi
Þessi mynd var tekin núna á
mánudaginn á bökkum Tis-
za-ár í Ungveijalandi, nálægt
borginni Csongrad. Ekki vitum
við hvort heldur maðurinn á
myndinni bjó til sandstúlkuna við
hliðina á sér af listrænum hvötum
eða vegna þess að honum tókst
ekki að finna sólbaðsfélaga. Ef
síðari skýringin er rétt vonum við
að tilraunir hans í framtíðinni við
að ná sér í viðeigandi félagsskap
renni ekki út í sandinn.
Reuter
MHK
Viktoría ásamt foreldrum sínum; Karli Gústafi, Svíakóngi, og
Sylvíu drottningu.
Krónprinsessan
kemur fram
Hún Viktoría, krónprinsessa Svía, er nú orðin tíu ára, og þykir
föður hennar vera kominn tími til að hún fari smám saman að
undirbúa sig fyrir hlutverkið sem bíður hennar í framtíðinni. Því kom
Viktoría fram í fyrsta skipti opinberlega nú fyrir skömmu við hátí-
ðahöld í tilefni 450 ára afmælis Gripsholm-kastala.
Þótti hún standa sig mjög vel í hinu nýja hlutverki sínu, en hún hélt
í höndina á pabba mestallan tímann, svona til halds og trausts. Vikt-
oría mun halda áfram að ganga í almennan skóla og leika sér við
félagana þar eins og önnur börn, en nú verður hún einnig að fara
að undirbúa sig að stjórna Svíaríki þegar hún verður þjóðhöfðingi
einn góðan veðurdag.
Reiðhjólaútsalan
er í fullum gangi í Hjólasporti
Allt fyrsta flokks reiðhjól. 30% afsláttur. Tryggið ykkur gæðahjól á frábæru verði.
Sendum í póstkröfu um allt land.
Hjolasport
Gnoðarvogi 44, sími 34580.