Morgunblaðið - 27.08.1987, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987
59
KNATTSPYRNA / ÚRSLITALEIKUR MJÓLKURBIKARKEPPNINNAR
Morgunblaöið/Einar Falur
Hvor nær bikarnum?
Guðjón Guðmundsson fyrirliði Víðis, til hægri, og Pétur Ormslev fyrirliði Fram stefna báðir á að hampa bikamum á sunnudaginn. Það verður Guðmundur
Haraldsson, alþjóðlegur dómari, sem verður við stjómvölinn á Laugardalsvelli. Þeir félagar bmgðu á leik fyrir Morgunblaðið í gær. Fyrirliðamir eru báðir sólgnir
í bikarinn en dómarinn passar vel upp á að þeir nái honum ekki of snemma!
Framarar unnu fyrstu lotuna!
Leika í aðalbúningi sínum en Víðismenn í hvítum treyjum
ÞÞað verða Framarar sem leika
í bláum treyjum í bikarúrslita-
leiknum á sunnudaginn. Aðalbún-
ingur beggja liða er blár, því var
dregið um hvort liðið
Skapti héldi honum og nafn
Hallgrímsson Fram kom upp á
skrífar undan.
Á blaðamannafundi
sem úrslitaliðin héldu í sameiningu
í gær kom fram að meðaltalsúrslit
í úrslitaleikjum bikarkeppninnar frá
upphafi er 2,39 mörk gegn 0,81
marki! Ekki er gott að segja hvem-
ig leikurinn á sunnudaginn fer —
en báðir fyrirliðarnir stefndu auð-
vitað á að vinna. „Þetta verður
mikill baráttuleikur. Taugaveiklun-
in verður mikil í byijun — og það
verður mikið atriði fyrir bæði lið
að ná tökum á miðjunni til að kom-
ast inn í „sinn leik“,“ sagði Pétur
Ormslev, fyrirliði Fram. Guðjón
Guðmundsson, fyrirliði Víðis, tók í
sama streng. „Þetta verður mikil
barátta um miðjuna á fyrstu mínút-
um. Ég hef trú á að leikurinn verði
fjörugur og skemmtilegur. Það
verður ekkert gefíð eftir því bæði
lið ætla að vinna. Það er á hreinu,"
sagði hann.
Áður en Geir Þorsteinsson, formað-
ur mótanefndar, dró um það hvort
liðið léki í aðalbúningi sínum, hafði
Pétur Ormslev orð á því að mörgum
Framaranum þætti vænna um að
spila í bláu. „Þú vannst þessa lotu,"
sagði Víðis-fyrirliðinn þegar kom í
ljós Fram dróst á undan, en menn
verða að bíða til sunnudags hvorir
vinna þá lotu sem skiptir máli —
sjálfan úrslitaleikinn.
Leikurinn hefst kl. 14.00 á sunnu-
dag. Heiðursgestur verður Þor-
steinn Pálsson, forsætisráðherra.
Dómari verður Guðmundur Har-
aldsson og línuverðir hans óli P.
Ólsen og Eysteinn Guðmundsson.
Bragi Bergmann verður þeim til
aðstoðar utanvallar.
KNATTSPYRNA / DANMÖRK - ÍSLAND U-21 í EM
KNATTSPYRNA
ÍA og Valur
sigruðu
ÍA vann UBK1:0 og Valur sigr-
aði KR 5:1 Í1. deild kvenna í
knattspyrnu í gærkvöldi.
Asta Benediktsdóttir skoraði
sigurmark ÍA gegn UBK á 24.
mínútu. Ingibjörg Jónssdóttir gerði
3 mörk fyrir Val gegn KR og
Brynja Guðjónsdóttir tvö. Mark KR
gerði Helena Ólafdóttir.
HSV tapaði
Fjórir leikir fóru fram í þýsku
bundesligunni í gærkvöldi. Lár-
us Guðmundsson og félagar í
Kaiserslautern sigruðu loks — unnu
Hannover 4:1. Bayem vann Num-
berg 1:0 og vom meistaramir
heppnir, Dortmund og Gladbach
gerðu 1:1 jafntefli, en öllum á óvart
tapaði HSV 4:0 heima fyrir Karlsm-
he.
5.flokkur:
Úrslit í dag
Urslitaleikur Vals og ÍBK í ís-
landsmóti fímmta flokks hefst
á Stjömuvelli í Garðabæ klukkan
18 í dag.
HANDBOLTI
AHreð skoraði
sjö og Essen
vann Minsk
Alfreð Gíslason skoraði sjö mörk
í gærkvöldi, þegar Essen vann
Evrópumeistara Minsk 29:24 í mjög
góðum leik á æfingamóti í Sviss.
Fraats skoraði einnig sjö mörk, en
hann meiddist og var talið að hann
hefði slitið liðbönd. Reynist svo vera
verður hann frá í þijá mánuði.
Þriðji sigur íslensks knattspyrnulandsliðs gegn Dönum:
Skoruðum eflir skyndisóknir
- sagði Rúnar Kristinsson, sem hefur leikið alla sigurleikina
ÍSLENSKA landsliðið skipað
leikmönnum tuttugu og eins
árs og yngri vann Dani 3:1 í
Danmörku í gærkvöldi, en leik-
urinn var liður í Evrópukeppn-
inni.
etta var þriðji sigur íslensks
knattspymulandsliðs gegn
Dönum, en drengjalandsliðið vann
1:0 á Valbjamarvelli 1984 og 4:3
ári seinna í Noregi. „Sigi Held
landsliðsþjálfari sagði okkur fyrir
leikinn að reyna að halda jafntefl-
inu. Því bökkuðum við til að byija
með og leyfðum Dönunum að sækja
fram yfír miðju, en tókum þar á
móti þeim og skoruðum þijú mörk
eftir skyndisóknir,“ sagði Rúnar
Kristinsson, lang yngsti maður
leiksins — aðeins 18 ára, í samtali
við Morgunblaðið eftir leikinn, en
hann skoraði þriðja mark íslands í
gærkvöldi og er eini leikmaðurinn,
sem hefur leikið alla sigurleikina
gegn Dönum.
Að sögn Steins Halldórssonar farar-
stjóra var um einstefnu íslenska
liðsins að ræða í fyrri hálfleik, en
leikurinn var jafnari í þeim seinni.
„Strákamir léku allir mjög vel, liðið
var samstillt og sigurinn sann-
gjam,“ sagði Steinn.
Jón Grétar Jónsson skoraði tvívegis
í fyrri hálfleik — fyrst á 17. mínútu
með skalla af stuttu færi og síðan
á 33. mínútu með mjög góðu skoti
eftir fyrirgjöf frá Ólafí Þórðarsyni.
Danir minnkuðu muninn á 68.
mínútu, en þremur mínútum síðar
innsiglaði Rúnar sigurinn með við-
stöðulausu skoti eftir sendingu frá
Ólafí. „Við vorum líka 2:0 yfír í
hálfleik gegn Finnum á Akureyri í
sumar, en þeir jöfnuðu á fyrstu tíu
mínútunum í seinni hálfleik. við
vorum þess minnugir og vörðumst
vel eftir hlé,“ sagði Rúnar.
Eftirtaldir leikmenn léku gegn Dön-
um:
Páll Ólafsson KR, Þorsteinn Guð-
jónsson KR, Sævar Jónsson Val,
Erlingur Kristjánsson KA, Þorvald-
ur Örlygsson KA, Andri Marteins-
son RR, Rúnar Kristinsson KR
(Júlíus Tryggvason Þór vm. á 81.),
Þorsteinn Halldórsson KR, Ólafur
Þórðarson ÍA, Hlynur Birgisson Þór
(Kristján Gíslason FH vm. á 10.)
og Jón Grétar Jónsson Val.
Staðan
Tékkóslóvakía 4 3 1 0 8:1 7
Danmörk 6 2 1 2 7:6 5
ísland 5 1 2 2 5:9 4
Finnland 5 1 1 2 3:7 3
Sigurður ekki
í uppskurð
Sigurður Gunnarsson, landsliðs-
maður í handbolta, hefur sem
kunnugt er verið meiddur á hné og
til stóð að hann færi í uppskurð.
Læknisskoðun í gær leiddi í ljós að
uppskurður er óþarfur. Sigurði var
ráðlagt að taka sér frí í 7-10 daga
en síðan má hann byija að æfa á
ný af fullum krafti.
TENNIS
Coca-Cola mótið
Coca-Cola mótið í tennis verður
haldið um helgina á tennisvöll-
um Víkings í Fossvogi og hefst á
föstudaginn. Keppt verður í einliða-
og tvíliðaleik í A, B og C flokki
karla, kvennaflokki og unglinga-
flokki. Þátttaka tilkynnist í síma
82266.
HvötogGrótta
leika til úrslita
Hvöt og Grótta leika til úrslita
í 4. deild íslandsmótsins í
knattspymu. í gærkvöldi fóru fram
síðustu leikimir í undankeppninni.
Hvöt vann Huginn í 4:0 í B-riðli og
í A-riðli vann Arvakur Víkveija, 2:0
og Bolungarvík og Grótta gerðu
jafntefli, 3:3.
Úrslit f a-riðli:
Árvakur-Bolungarvfk........:............3:4
Grótta-Víkverji.........................1:3
Bolungarvtk-Víkveiji....................0:0
Árvakur-Grótta..........................1:2
Grótta-Bolungarvík......................6:2
Víkveiji-Árvakur........................0:4
Víkveiji-Grótta.........................2:1
Bolungarvtk-Árvakur.....................1 ;0
Grótta-Árvakur .5:2 .3:3
Árvakur-Víkveiji ..2:0
Lokastadan:
Grótta 6 3 12 18:13 10
Víkveiji 6 3 12 10:8 10
Bolungarvtk 6 2 2 2 11:17 8
Árvakur 6 2 0 4 12:12 6
Úrslit í b-riðli:
..2:3
Hvöt-HSÞc ..2:0
..0:2
..7:1
HSÞc-Hvöt ..0:4
Hvöt-Huginn ..4:0
Lokaataðan:
Hvöt 4 4 0 0 12:0 12
Huginn 4 2 0 2 10:9 6
HSÞc 3 0 0 3 3:16 0
HANDBOLTI
Guðni ráð-
inn til HSÍ
Guðni Halldórsson hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri
HSÍ í stað Jóns Erlendssonar, sem
sagði upp störfum á síðasta árs-
þingi. Guðni var á sfnum tíma
framkvæmdastjóri og formaður
Frjálsíþróttasambandsins og
síðast framkvæmdastjóri Lands-
móts UMFÍ á Húsavík. Starfs-
menn HSÍ verða þrír áfram, Einar
Magnússon og Guðjón Guðmunds-
son auk Guðna. Þremenningamir
em á mynd Júlíusar, Guðni lengst
til vinstri, þá Guðjón og Einar.