Morgunblaðið - 27.08.1987, Page 60

Morgunblaðið - 27.08.1987, Page 60
Framtíð ER VIÐ SKEIFUNA aaaa $ SUZUKI Fróöleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Faxamarkaður: Sjö milljón- irfyrirafla Engeyjar NÝTT met var sett í sölu á fisk- mörkuðum hérlendis í gær og í fyrradag þegar seldur var afli úr togaranum Engey RE á Faxa- markaðinum í Reykjavík. Afli skipsins, um 150 tonn af þorski og 10 tonn af ufsa, seldist á tæp- ar sjö milljónir króna, eða 6.871.518 krónur. Hæsta verð sem áður hafði feng- ist fyrir afla úr einu og sama skipinu var fyrir afla úr Otri GK, rúmar 6 milljónir króna fyrir um 180 tonn, sem að mestu var þorskur. Það verð fékkst á fyrsta degi Fiskmark- aðarins hf. í Hafnarfirði, 15. júní. Listasafn íslands: Fimmumsóknir um starf for- stöðumanns UMSÓKNARFRESTUR um starf forstöðumanns Listasafns ís- lands rann út á þriðjudag. Umsækjendur eru fimm og óskar einn þeirra nafnleyndar. Aðrir um- sækjendur eru þessir: Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur, Bera Nordal listfræðingur, Einar Hákon- arson myndlistarmaður og Ólafur Kvaran listfræðingur. Flaggað í Fáni Akureyrarbæjar hefur verið hannaður upp á nýtt. Skjöldur- inn sem fuglinn hvílir á hefur breytt um lögun og auk þess hefur honum sjálfum verið breytt að nokkru leyti. Hönnuður hins nýja fána var Guðmundur Ármann listmálari en þeir Sigurður Bjark- lind og Brynjar Ágústsson svifu til jarðar yfir Eyjafirði með 8000 fetum fánann á milli sin á meðan Sigurður Baldursson stökk á eftir þeim og ljósmyndaði þá á 180 km hraða í u.þ.b. 8000 feta hæð. Fjallað er um afmælisdagskrá Akureyrarbæjar á laugardaginn á miðopnu. Rútan eftir brunann Morgunblaðið/Sigrún Bílstjóri og farþegar sluppu: Rúta brann í Kömbum Hveragerði. RÚTA brann til kaldra kola efst í Kömbum ofan við Hvera- gerði um kl. 13.30 í gær. Rútan, sem er 25 sæta frá Magnúsi Hjartarsyni sérleyfishafa í Reykjavík, var á leið til Reykjavíkur nær full af farþegum þegar óhappið varð. Að sögn bílstjórans, Áma Gunnarssonar, varð hann var við mikinn reyk frá vél rútunnar og síðan blossaði upp eldur. „Ég not- aði handslökkvitæki sem var í bílnum, en fékk ekki við neitt ráðið," sagði Ámi. Slökkvilið Hveragerðis kom á staðinn og slökkti eldinn, en rútan er talin ónýt. Verðmæti hennar var um 5 milljónir króna. Bflstjór- anum tókst að koma farþegunum út og meiddist enginn. Svo illa vildi til á meðan á slökkvistarfinu stóð, að bifreið sem ekið var í suðurátt varð skyndilega bremsulaus. Munaði minnstu að hún lenti á þremur mönnum, lögreglumanni, sem var að stjóma umferðinni og tveimur slökkviliðsmönnum. Áttu þeir fót- um fjör að launa, en annar slökkviliðsmaðurinn meiddist á hendi. Var mesta mildi að ekki fór verr, því þoka var á slysstað og hellirigning. — Sigrún T ilraunaveiðar stundaðar á gulllaxí V estmannaeyjar: Aflinn seldur til Rússlands Vestmannaeyj um. LOÐNU SKIPIÐ Sighvatur Bjarnason VE hefur undanfama daga verið við tilraunaveiðar á gulllaxi. Landaði skipið 4 tonnum á sunnudaginn og á þriðjudaginn kom skipið inn með rifið troll og var aflinn 3 tonn. Eitthvað smá- vegis af öðrum fiski fékkst í trollið með gulllaxinum. Aflinn er unninn hjá Vinnslustöðinni hf. og seldur til Rússlands. Ekki er enn ljóst hvert hráefnisverð í gulllaxi verð- ur en búist er við að það verði 10-12 krónur fyrir kílóið. „Þetta hefur gengið hálfilla hjá okkur, rifrildi og þras, en auðvitað mátti búast við einhveijum bytjunar- örðugleikum," sagði Guðmundur Sveinbjömsson skipstjóri á Sighvati Bjamasyni VE í samtali við Morgun- blaðið. Guðmundur sagði að þennan afla hefðu þeir fengið austur á Ör- æfagrunni. Hann sagðist ætla að reyna við gulllaxinn eitthvað áfram og þegar búið væri að gera við troll- ið ætlaði hann að leita fyrir sér suður með Surtsey og í köntunum. Guð- mundur sagði að erfítt væri að leita svona einskipa og taldi einnig að trúlega væru þeir fullseint á ferðinni með þessar veiðar. „En við viljum fá þetta troll okkar til að virka, þann- ig að við getum verið tilbúnir í vor til að leggjast þá í að veiða úr þess- um vannýtta stofni," sagði Guð- mundur Sveinbjörnsson skipstjóri. Gulllax er miðsævis- og botnfiskur og hann þykir feitur og vel ætur. Stofninn hefur verið lítið rannsakað- ur og lítið gert af því að veiða úr honum. Aflinn sem Sighvatur Bjarnason færir að landi er unninn í Vinnslu- stöðinni. „Fiskurinn er hausskorinn og slógdreginn og síðan heilfrystur í 8 kílógramma öskjur. Þetta er til- raunavinnsla hjá okkur en talið er að við getum fryst allt að 100 tonn til að byija með fyrir markað í Rúss- landi þar sem gulllax þykir góður matfískur," sagði Viðar Elíasson yfírverkstjóri í Vinnslustöðinni. Viðar sagði að þeir gætu með breyttum stillingum notað sömu vélar og not- aðar eru til að hausskera og slóg- draga síld. „Mér líst ágætlega á þessa vinnslu en tíminn á eftir að leiða í Ijós hvemig veiðamar ganga og hvemig markaðurinn og afurða- verðið á eftir að þróast." Mikil vinna hefur verið í frystihús- unum í Eyjum í sumar og mikill afli hefur borist til vinnslu. Einkum hafa togarar aflað vel og komið ört inn til löndunar. Sagði Viðar Elíasson að tilfínnanlega vantaði fólk til starfa og í Vinnslustöðina vantaði að minnsta kosti 25 konur. — hkj. Valur Arnþórsson 1 Landsbankann ÁFORM eru uppi um, að Valur Amþórsson, stjórnarformaður í Sambandi íslenskra samvinnufé- laga, taki við stöðu bankastjóra í Landsbankanum af Helga Bergs. Á almennum fundi sjálfstæðis- manna, sem haldinn var á Bíldudal síðastliðinn laugardag, kom það fram í ræðu Matthíasar Bjamasonar, al- þingismanns og fyrrum viðskiptaráð- herra, að fyrir dyrum stæði að skipa Val Amþórsson, stjómarformann Sambands íslenskra samvinnufélaga og kaupsfélagsstjóra KEA á Akur- eyri, bankastjóra í Landsbanka íslands. Væri ætlunin að Valur tæki við embættinu af Helga Bergs, sem er fæddur í júní 1920 og hefur verið bankastjóri síðan 1971.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.