Morgunblaðið - 13.09.1987, Side 29
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmaaon
Pétur Friðrik
Á sýningu Péturs í Holyday Inn
er þó ein portrettmynd. Hún sýnir
gamlan bónda með stórar og vinnul-
únar hendur. „Þetta er bóndinn á
Ásum í Gnúpveijahreppi, hann sat
fýrir hjá mér í þrjá tíma,“ segir
Pétur. „Hann er öðruvísi en margt
eldra fólk sem alls ekki vill láta
mála sig af því það heldur að það
sé orðið svo ljótt. Það er mikil íjar-
stæða.
Það er líka gaman að mála ung-
ar konur því litaspil líkama þeirra
getur verið mjög fagurt. Sé konan
með hvíta húð þá koma fallegir
grænir skuggar undir bijóstin og
víóletttónar sem fólk tekur ekki
eftir þó það sjái nakið fólk. Málar-
inn tekur hins vegar eftir þessu og
reynir að raða saman heitum og
köldum litum um líkaman svo þeir
spili saman og úr verði listræn
heild. Það má segja að málverk hjá
mér gangi mikið út á að raða sam-
an heitum og köldum litum. Sá
maður sem hefur litatilfinningu
hann getur málað alla skapaða
hluti.“
Viðfangsefni Péturs eru mjög
mörg úr náttúrunni og umhverfinu.
Hann segir mér að hann grípi góð-
viðrisdaga til að mála. Fari jafnvel
út á sumamóttum til að vinna, sé
veðrið gott. „Ég er þá gjaman byij-
aður að teikna upp og mála í
morgunsárið," segir Pétur. „Við-
fangsefnin vel ég þá eftir birtu og
litum og það hendir oft að ég tek
mér allt annað viðfangsefni en ég
ætlaði upphaflega vegna þess að
birtan og skuggamir eru þannig."
Pétur segir mér að hann eigi fjöl-
margar myndir heima sem hann
hafi aldrei sýnt og hafí þaðan af
síður hugsað sér að selja. „Ég ætla
að eyðileggja þær áður en ég dey,“
segir hann og hlær dálítið. „Ég hef
einu sinni haldið myndabrennu,
þegar ég flutti úr Hafnarfírðinum
eftir að hafa búið þar í 22 ár. Einni
mynd var þó bjargað úr þeim bruna.
Rafvirki einn, kunningi minn, kippti
einni mynd úr brunanum og bað
mig að gefa sér hana. Ég lét það
gott heita og sú mynd hangir upp
á vegg hjá honum enn í dag. Ég
sá hana hjá honum mörgum ámm
seinna og fannst hún þá hreint
ekki svo galin.
Þegar ég spyr Pétur af hveiju
hann máli þá er hann fljótur til
svars. „Ég mála,“ segir hann,
„vegna þess að mér líður illa ef ég
er ekki að mála. Ef ég mála ekki
í nokkra daga þá kemur í mig ein-
hver leiðindatilfinning. Mér líður
hins vegar vel þegar ég er búinn
að vinna við einhveija mynd, fæ
einhveija lífsnautn út úr því jafnvel
þó myndin mistakist. Meðan ég er
að mála gleymi ég mér alveg við
vinnuna, en þegar ég er búinn og
sest inn í bíl þá er ég stundum svo
þreyttur að ég verð að keyra lús-
hægt í bæinn aftur. Það er óskap-
lega gaman að vera úti í náttúrinni
að mála. Ég væri vansæll maður
ef ég gæti ekki málað.
Texti: GUÐRÚN
GUÐLAUGSDÓTTIR
■BBBSSSBSSBSBSSSaSSBSSSSaSSS
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1987
29
Helgarverð frá kr.14,796 —
Vikuverð frá kr. 22.800,-
Innifalið: Flug, gisting og morgunverður.
Hótelmöguleikar: ITALIA, NOBILIS, LE ROYAL,
HOLIDAY INN.
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum
Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum.
•Gildistími frá 1/10 - 30/11 ’87
"Gildistími frá 15/9-31/12 '87
Verð miðast við einstakling í tveggja manna herbergi.
P.S. Þú veist kannski að bílaleigubílar fást hvergi
á betra verði en í LUX!
FLUGLEIÐIR
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2,
Hótel Esju og í Kringlunni.
piDrgiutblafefö
Metsölublaó á hverjum degi!
AUKhl. 110.31/SlA