Morgunblaðið - 13.09.1987, Page 39

Morgunblaðið - 13.09.1987, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1987 39 var ekki í kot vísað. Páll var gjör- kunnugur í flestum sveitum lands- ins og kom þessi þekking hans sér mjög vel í þessu oft erfiða og sund- urlausa starfi sem hér um ræðir. Það var mjög gott og ánægjulegt að starfa með Páli að þessum verk- efnum. Ég tel að hann hafí verið sérlega traustur og farsæll í sínu starfí og góður embættismaður. Ut í aðra sálma ætla ég ekki að fara í þessum fáu línum, að leiðarlokum, það munu vafalaust aðrir gera. Ég get þó ekki látið hjá líða að minnast þess hve Páll var traustur og góður félagi, hvort sem um var að ræða í hópi starfsbræðra og kunningja eða á breiðara sviði félagsmála. Blessuð sé minning Páls Hafstað og innileg samúð mín til konu hans, bama og annarra aðstandenda. Guðjón Guðmundsson þó alvörugefna manns koma. Leiðir okkar lágu aftur saman á árunum 1966—1969 þegar ég starf- aði hjá Rafmagnsveitum ríkisins en hann í sama húsi hjá Orkustofnun og störf beggja tengdust rafvæð- ingunni, hvort með sínum hætti. I því samstarfí þróaðist vinátta, sem síðan hélst, þótt starfsleiðir skildu. Ég minnist margra sam- verustunda með Páli og Guðmundi heitnum Hannessyni við störf að línuframkvæmdum og ég minnist góðra stunda í öræfaferðum með þeim félögum og nafna hans Hall- grímssyni, sýslumanni á Selfossi. Fyrst og fremst minnist ég þá að leiðarlokum mannkosta Páls. Páll var þannig maður að eftir honum var tekið. Hann var meðal- maður á hæð og grannvaxinn, beinn í baki og bar sig vel. Hann var skarpleitur og brúnamikill og and- litsfallið stórgert nokkuð og þekkt- ust þeir bræður hver af öðrum. Páll var einarður maður og hafði ákveðnar skoðanir og þorði að standa við skoðanir sínar. Hann var ekki ætíð sammála síðasta ræðu- manni og ekki allra, en traustur vinur vina sinna. Ég hafði ekki séð Pál lengi þegar ég heimsótti hann fyrir fáum vikum. Það var sunnudagsmorgunn eins og hann getur fegurstur orðið í Snekkjuvogi. Páll hafði þá enn fóta- vist, en var brugðið. Við sátum úti í garði og Ragn- heiður færði okkur Egils öl. Páll ságði mér hispurslaust og án allrar viðkvæmni af sjúkleika sínum og síðan fórum _við og heimsóttum nágrannann. A leiðinni sýndi hann mér reyniviðartréð, sem vaxið hefur í víðirunnanum miðjum við inn- ganginn. Eftir að hafa setið þar drykklanga stund gengum við aftur heim til Páls og þar kvöddumst við. „Ég hef ekki kvalir og ég sef á nóttum. Ég er þakklátur fyrir að geta enn verið hér heima hjá þess- um dásamlegu manneskjum sem styðja mig og styrkja á allan hátt og kvarta ekki. Segðu það vinum mínum að ég kvíði ekki morgundeg- inum.“ Þetta voru síðustu orðin sem Páll talaði til mín. Ragnheiði, konu Páls, og bömum þeirra hjóna, Steinunni, Baldri og Völu, sem kom heim frá útlöndum til að geta verið sem lengst hjá föður sínum, votta ég samúð mína. Tryggvi Sigurbjamarson Mánudaginn 14. september kveðjum við á Orkustofnun sam- starfsfélaga okkar Pál Hafstað. Sumir kveðja hann eftir örfárra ára kynningu, aðrir lengri, ég t.d. eftir nær 40 ár. Margs er að minnast og þakka, þegar litið er úm öxl. Páli fylgdi alltaf hressandi and- blær, frískur og hreinn. Ég ætla mér ekki þá dul að lýsa manninum, vini mínum Páli Hafstað. En eitt er það starf eða réttara sagt sam- starf okkar Páls, sem ég vil minnast á, það er samstarf okkar að bænda- virkjununum svonefndu, þ.e.a.s. að litlum vatnsaflsheimilisstöðvum úti um sveitir landsins. Páll var þá rit- ari Raforkuráðs. Fyrirgreiðsla og fjármál þessara litlu virkjana hvíldu á herðum Páls. Hann lét sér afar annt um þær, setti sig vel inn í aðstæður allar, hið verklega úti við, fjármálin og svo hinn mannlega þátt, þ.e.a.s. hina þjóðfélagslegu stöðu dreifbýlismannsins. Fram- faraeldmóður og þor hreif Pál, að slíku lífsviðhorfí vildi hann hlúa, enda af kjarnmiklu bændafólki kominn. Hugsunarlaust fálm eða fullkomið óraunsæi þoldi Páll illa. Þegar reynt var að stimpast eða þráast á móti tölrænum staðreynd- um hitnaði Páli í hamsi. Enda var mikið í húfi. Litla heimilisvirkjunin er í eðli sínu þannig, að hún flytur eiganda sínum og heimili hans ann- aðhvort gleði og hamingju eða þá sár vonbrigði. Það er ógleymanlegt að hafa starfað með Páli Hafstað að bænda- virkjununum á sérstæðu þróun- artímabili íslenskra virkjunarmála. Ljúfar minningar lifa, hugheilar samúðarkveðjur sendi ég vanda- mönnum. Sigurjón Rist Vinur minn, Páll Hafstað, lést á Landakotsspítala laugardaginn 5. sept. sl. Ótímabært andlát hans kom ekki á óvart. Ég kynntist Páli fyrst sumarið 1958 þegar ég ungur stúdent vann eitt sumar á Raforkumálaskrifstof- unni þáverandi. Páll var þar fulltrúi raforkumálastjóra og hafði m.a. með höndum rafvæðingu sveitanna. Mér þótti strax mikið til þessa hressilega, spaugsama og kvika en Blómastofa Friöfmm Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opi^ öli kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. Kostir þess að velja IBM eru yfirgnæfandi: 1. Gott verð. 2. Góður og gangviss vélbúnaður. 3. Margbreytilegur hugbúnaður. 4. Einstök þjónusta. Vert er að gefa sérstakan gaum að rekstraröryggi SYSTEM/36 og /38. Það byggist á: 1. Þaulreyndum búnaði. 2. Óbrigðulli varahluta- þjónustu. 3. Hæfni tæknimanna. 4. Fullkomnum búnaði til að leita uppi bitanir (stöðugu sambandi við gagnabanka IBM erlendis). Samstarfsaðilar IBM eru: ALMENNA KERFISKRÆÐISTOFAN. REYKJAVÍKURVEGI 66, HF. S. 651077. FORRITUN SF, HAMRABORG 12. KÓP. S. 641750. FRUM HF, SUNDABORG 1, RVK. S. 681888. GÍSLI J. JOHNSEN SF. NÝBÝLAVEGI 16. KÓP. S. 641222. HAGRITUN. GRÁNUFÉLAGSGÖTU 4. AKUREYRI, S. 96-27322. HUGBÚNAÐARHÚSIÐ. SÍÐUMÚLA 21, RVK. S 688811. HUGSJÓN, AUSTURVEGI I. ÍSAF. S. 94-4544. IHUGUR HF, HAMRABORG 12, KÓP. S 641230. HUGVIRKl, HÖFÐABAKKA 9c, RVK. S. 671822. KERFI HF, HÖFÐABAKKA 9, RVK. S 671920 ' MIÐVERK, SKÚLAGÖTU 51, RVK.S. 19920. RF.KSTRARTÆKNI HF, SÍDUMÚLA 37, RVK. S. 685311. SKRIFSTOFUVÉLAR HF, HVERFISGÖTU 33. RVK. S 623737 TÖLVER. ÁRMÚLA 40, RVK. S. 681288. TOLVUBANKINN, SÍDUMÚLA 21, RVK. S. 681780. Það orkar ekki tvímælis að nú er rétti tíminn til að skipta yfir í fullkomnari og öruggari tölvu- búnað. Þú getur kvatt fortíðina með góðri samvisku! Hafðu samband sem fyrst við söludeild okkar eða einhvern af samstarfsaðilum IBM. VANDVIRKNIIHVIVETNA____________ Skattahlið 24 105 Reykjavik Simi 27700 IBM REISIR BRÚ MILLI FORTÍÐAR OG FRAMTIÐAR Fram til 30. september tökum við upp þá ný- breytni að kaupa notaðan vélbúnað af fyrir- tækjum sem skipta yfir í ÍBM SYSTEM/36 eða /38. Þannig getur þitt fyrirtæki í senn eignast afar fullkominn tölvubúnað og komið gömlu tölvunni í verð. Þær fjölnotendavélar sem við kaupum eru m.a.: WANG,HP, VAX, PDP, BURROUGHS, ND,TI, QUANTEL, DG, KIENZLE, SAGE, TELEVIDEO, NORTH STAR, LUXOR OG SUPERBRAIN Komdu gömlu tölvunni i verð í skiptum fyrir IBM System/36 eða /38 ■■■

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.