Morgunblaðið - 15.11.1987, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1987
Rannsóknarnefnd flug'slysa kom
á vettvang í gærmorgun og
skoðaði flakið, en að því loknu
var flugvélarflakinu komið á
bílpall til brottflutnings af slys-
stað. Á myndinni hér að neðan
eru Guðjón Benediktsson með
þriggja ára son sinn Inga Val
og Logi Benediktsson.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Hélt að þetta væru endalokin
- segir Guðjón Benediktsson farþegi í TF AEI sem hrapaði við Selfossflugvöll
Selfossi.
„Ég hugsaði með mér að þetta væru endalokin og það væri
kraftaverk að komast út úr vélinni. Ég var eiginlega búinn að
sætta mig við þetta en hugsaði alltaf að það þýddi ekki að gef-
ast upp,“ sagði Guðjón Benediktsson farþegi í flugvélinni TF
AIE sem nauðlenti logandi við Selfossfliigvöll á föstudag.
Guðjón sagði að allt hefði virst
eðlilegt þar til þeir voru að losna
frá jörðu í flugtakinu á vellinum.
Á myndbandi sem bróðir hans tók
af atburðinum sést að eldur kem-
ur upp fremst í vélinni strax og
hún losnar frá jörðu.
„Þegar við vorum komnir í 50
-100 fet þá sá ég eldtungumar
sleikja vænginn yfir bensíntankn-
um. Mér varð auðvitað mjög
hverft við og gerði mér strax grein
fyrir að tankurinn geti sprungið.
Eftir þetta gerðust hlutimir mjög
hratt og eldurinn magnaðist gífur-
lega.
Þegar við vorum komnir í
beygjuna til vesturs fylltist allt
af reyk. Þór flugmaður kallaði til
mín að opna húsið sem ég gerði
og tókst að opna örlítið en ekki
nóg því opið minnkaði þegar vélin
hallaðist fram. Þá opnaði ég það
aftur með átökum og náði að
þrykkja húsinu aftur. Þá náðum
við andanum stutta stund en reyk-
urinn kom strax beint framan í
okkur og við sáum ekkert til jarð-
ar. Mér varð litið á Þór flugmann
og sá að hann var í örvæntingu
að reyna að sjá út. Ég leit út og
sá glitta í jörðina. Þá gerði ég
mér grein fyrir stöðu vélarinnar
að hún væri í bröttu homi niður
og í um 30 gráðu beygju.
Hélt að dagar okkar
væru taldir
Það eina sem ég hugsaði á
þessu augnabliki var að ef við
færum á þessu horni niður væm
dagar okkar taldir. Ég reif stýrið
að mér og reyndi að ná vélinni
réttri með því að beygja. Síðan
kom ógurlegur dynkur, vélin
pressaðist niður, hoppaði upp,
hallaði og fór á bakið. Ég hugs-
aði um það að ég mætti ekki
rotast í fallinu, ég pressaðist niður
og kastaðist til hliðar. Ég hugsaði
sem svo að þetta væru endalokin
og það væri kraftaverk að komast
út og var eiginlega búinn að sætta
mig við þetta. En- það þýddi ekki
að gefast upp.
Þegar vélin stöðvaðist varð mér
litið til Þórs og sá enga hreyfíngu
með honum. Þá sá ég lítið gat en
datt ekki í hug að ég kæmist út
um það en ekki ir um annað að
ræða en reyna. Ég losaði beltin
og hugsaði mér að fara út og
sækja Þór svo á eftir. En í því
sem ég er að skríða út sé ég að
Þór er að losa sig. Hann kom síðan
út strax á eftir mér og við gengum
frá flakinu," sagði Guðjón Bene-
diktsson um þessa sérstæðu
reynslu sína. Hann hlaut smá-
skrámu í andliti og á fæti en var
annars heill.
Ótrúlegt að
þeir slyppu
Manni fannst þetta vonlaust og
ótrúlegt að þeir slyppu,“ sagði
Logi Þorsteinsson sem varð vitni
að því þegar flugvélin fórst. Hann
er bróðir Guðjóns Þorsteinssonar,
farþega vélarinnar.
Logi tók atburðinn upp á mynd-
band. Hann sagðist hafa horft í
gegnum tökuvélina og ekki gert
sér grein fyrir eldinum fyrr en
fímm sekúndur voru eftir í jörð-
ina. „Ég rauk strax í bílinn og
ók niðureftir. Þegar ég kom að
voru þeir að ganga frá flakinu,
heilir á húfi. Þetta var krafta-
verk,“ sagði Logi.
Sig. Jóns.
Davíð Oddsson borgarstjóri á ráðstefnu um byggðamál:
Rangar ákvarðanir og fjármunum
kastað á glæ í nafni byggðastefnu
DAVÍÐ Oddsson borgarstjóri gagnrýndi í ræðu sinni á ráð-
stefnu Byggðastofnunar og Sambands islenskra sveitarfélaga
á Selfossi hvernig opinberu fiármagni er ráðstafað með tilliti
til þess að 55% landsmanna búa í Reykjavík og næsta ná-
grenni. Hann sagði að í nafni byggðastefnunnar hefðu verið
teknar rangar ákvarðanir og peningum kastað á glæ.
Borgarstjóri rakti í ræðu sinni
þróun byggða og atvinnumála á
Islandi og benti á þá þjóðfélags-
þætti sem hafa haft áhrif á búsetu
og sagði að nú væri svo komið að
55% landsmanna byggi í Reykjavík
og nágrenni. Margir sæu ofsjónum
yfír vexti Reykjavíkur og teldu
nauðsynlegt að beita öllum ráðum
og fjárhæðum úr sameiginlegum
sjóðum til að halda aftur af þeim
vexti. Hann fullyrti hins vegar að
þjóðin í heild hefði farið mikils á
mis í mennta-, heilbrigðis- og fé-
lagsmálum ef landsmenn hefðu
dreifst jafnt um bæi ogengin höfuð-
borg myndast.
„Nú vil ég endilega haga orðum
mínum svo, að menn taki þau ekki
á þann veg, að ég geri lítið úr þeim
mikla vanda, sem íbúar sveitarfé-
laga og landshluta eiga við að etja
vegna fámennis, fólksfækkunar eða
annarra aðstæðna, sem ætla mætti
að fólksfjölgun gæti leyst,“ sagði
Davíð. „Og fjarri er að ég telji
æskilegt, að heilu byggðirnar legg-
ist í eyði. Þvert á móti tel ég
nauðsynlegt og skynsamlegt að
reyna að glæða lífvænlegt atvinn-
ulíf á sem flestum stöðum í landinu.
Og jafnframt, að slíkt atvinnulíf
geti borið þjónustu uppi, sem nái
þeim gæðum, sem fólkið á viðkom-
andi stað getur sætt sig við.“
Hann vék síðan að fólksfjölgun
sem orðið hefur í Reykjavík á und-
anfömum árum og þeirri uppbygg-
ingu ásamt kröfti um aukna
þjónustu sem henni fylgir. Borg-
arbúar bæru hlýjan hug til lands-
byggarinnar sem heildar, enda
væru þeir ættaðir þaðan. „Ég held
að þeim sé flestum farið eins og
mér að vilja ekki sjá vaxandi erfið-
leika þar vegna mannaflaskorts og
samdráttar. Þeir hafa tekið því með
þögninni, að stórir fjármunir hafi
farið úr sameiginlegum sjóðum til
annarra svæða, án þess að
Reykjavíkurborg hafi fengið hlut-
fallslega í sinn hlut. I því sambandi
þarf ekki að minnast á neitt annað
en vegagerð, 70-80 heilsugæslu-
stöðvar, sem rísa úti á landi á
meðan engin hefur verið byggð í
Reykjavík. Nýjustu dæmin eru um
stuðning við hitaveitu tiltekinna
sveitarfélaga, sem er slíkur að vöxt-
um, að ef Hitaveita Reykjavíkur
fengi samskonar eða sambærilegan
styrk, miðað við höfðatölu íbúanna,
skattborgaranna í landinu, þá
myndi ríkið borga Nesjavallavirkjun
alla á 3 milljarða króna fyrir borg-
ina, en til virkjunarinnar leggur
ríkið ekki krónu, eins og kunnugt
er. Borgarbúar og þingmenn
Reykjavíkur, sem manni hefur
stundum fundist gera lítið fyrir sitt
kjördæmi, hafa því sýnt byggða-
stefnunni mikla vinsemd, stundum
jafnvel of mikið tómlæti, þegar hún
hefur úr hófí gengið. Ég tel að í
nafni byggðastefnunnar hafí mörg
röng ákvörðun verið tekin og stór-
kostlegum peningum á glæ kastað
og fjármunum beinlínis verið illa
varið," sagði Davlð.
Hann sagðist hafa grun um að
hagkvæmnisskýrslur sérfræðinga
væru samdar til að láta vonlaus
dæmi líta bærilega út en þegar út
af brigði væri aldrei minnst á sér-
fræðingana, né þeir dregnir til
ábyrgðar. Énda væru þeir önnum
kafnir við að fegra næsta verkefni.
„Ég þarf ekki að nefna hér sjóefna-
vinnslu, graskögglaverksmiðju,
þörungavinnslu eða steinullarverk-
smiðju sérstaklega, því dæmin eru
svo mýmörg. Slík byggðastefna,
sem slíkar ákvarðanir þrífast á get-
ur aldrei gengið til lengdar," sagði
Davíð.
Stjórnarand-
staðan sarnmæl-
ist um kjör í
nefndir og ráð
Stjórnarandstaðan á Alþingi
hefur gert samkomulag um kosn-
ingu í þær nefndir sem starfa
utan þingsins. Samskonar sam-
komulag var gert fyrir kosningu
þingnefnda að öðru leyti en því
að þá stóðu Samtök jafnréttis og
félagshyggju þar fyrir utan.
Þórhildur Þorleifsdóttir formaður
þingflokks Kvennalistans sagði að
nefndakosningu hefði verið frestað
um nokkrar vikur og væri nú fyrir-
hugað að hún færi fram 23.
nóvember. Þarna er um að ræða
kosningu í ýmsar nefndir og stjórn-
ir eins og útvarpsráð, Norðurlanda-
ráð, stjóm Byggðastofnunar,
tryggingaráð o. fl.
Málverkauppboð á
Hótel Sögu í kvöld:
Stórt málverk
eftir Kjarval
á uppboðinu
STÓRT Kjarvalsmálverk er með-
al 68 málverka sem boðin verða
upp vegum Klausturhóla á Hótel
Sögu í kvöld, sunnudagskvöld,
klukkan 20.30. Alls eru sjö verk
eftir Kjarval á uppboðinu, auk
verka eftir ýmsa af þekktustu
listmálurum þjóðarinnar, eldri
og yngri.
Stóra Kjarvalsmálverkið á uppboð-
inu heitir Esjan, og er olía á striga,
178,5 x 112,5 sm. að stærð, merkt
1934. Þetta verk er langstærsta
málverkið sem boðið verður upp.
Myndirnar verða til sýnis að
Hótel sögu í dag, frá klukkan 14
til 18.
Fleiri bíla-
stæði við
Kringluna
Ákveðið hefur verið að koma upp
400 nýjum bílastæðum í Kringl-
unni. Verða þau upp á þijár hæðir
til norðurs í beinu framhaldi af
þeim bílastæðum, sem þegar eru
risin, en þau eru tvær hæðir. Eiga
þessi nýju bílastæði að vera tilbúin
næsta sumar.
í dag
JHorflunhhjbH)
I.
blað C