Morgunblaðið - 15.11.1987, Síða 27
vts i >nod iioD
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1987
Ríkissjóður býður
nú til sölu ríkisvíxla.
Nýjung í vörslu
skammtímafjár-
muna með háa
ávöxtun
Nú hefur ríkissjóður hafið sölu á ríkisvíxlum
til fyrirtækja og einstaklinga. Ríkisvíxlar eru
nýjung í vörslu skammtímafjármuna og gefa
mjög háa ávöxtun. Þeir eru öflugt tæki í pen-
ingastjórnun og um leið örugg og arðbær fjár-
festing.
Ríkisvíxlar bera háa
vexti
Helsti kostur ríkisvíxla er sá, að á sama tíma
og þú varðveitir skammtímafjármuni á örugg-
an hátt bjóðast þér háir vextir. Ríkisvíxlar
bera nú 32% forvexti á ári, sem jafngildir
39,6% eftirá greiddum vöxtum á ári miðað við
90 daga lánstíma í senn.
Eftirá greiddir vextir
39,6%
39,2%
38,9% -----
38,6% ---------
45 dagar 60 dagar 72 dagar 90 dagar
Rikisvíxlar bjóðast
í 45 til 90 daga
að vali kaupanda
Lágmarksfjárhæð ríkisvíxla er 500.000 kr.,
en getur verið hvaða fjárhæð sem er umfram
það.
Lánstími Forvextir á ári Samsvarandi eftirá greiddir vextir
45 dagar 32% 38,6%
60 dagar 32% 38,9%
72 dagar 32% 39,2%
90 dagar 32% 39,6%
Um skattalega meðferð ríkisvíxla gilda sömu
reglur og gilda hverju sinni um innistæður í
bönkum og sparisjóðum. Ríkisvíxlar bera ekk-
ert stimpilgjald.
Ríkisvíxlar eru til sölu í Seðlabanka íslands.
Einnig er hægt að panta þá í síma 91-699863,
greiða með C-gíróseðli og fá þá síðan senda í
ábyrgðarpósti.
RÍKISSJÓÐUR ÍSIANDS