Morgunblaðið - 15.11.1987, Síða 33

Morgunblaðið - 15.11.1987, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1987 Gerði hann líkan af hugmyndum sínum um ráðhús og framtíðar- skipulag Tjamarinnar og var líkanið almenningi til sýnis í Har- aldarbúð í Austurstræti 22, þar sem nú er verslun Kamabæjar. Ráðhúsnefndin hafði upphaflega í hyggju að efna til samkeppni um .eikningu hússins. Arkitektafélag íslands mótmælti því að þeir arki- tektar, sem starfað hefðu við undirbúning að byggingu ráðhúss- ins, hefðu heimild til að taka þátt í samkeppninni. Ráðhúsnefndin brá því á það ráð að bjóða sex húsam- eisturum að hanna bygginguna. Hópurinn tók nú til starfa undir fomstu Þórs Sandholts fram- kvæmdastjóra ráðhúsnefndar. Fallegt og stílhreint í byijun árs 1964 vom tillögur húsameistaranna tilbúnar. Teikn- ingarnar af ráðhúsinu sýndu tveggja hæða hús með sex hæða byggingu. Rúmmál hússins var samtals 35.600 rúmmetrar. Einnig var fyrirhugað, í samræmi við eldri áætlanir, að breyta Skothúsvegi þannig að sá hluti hans sem er út í Tjörninni yrði fjarlægður en þess í stað yrði yrði þar hólmi í miðri Tjörninni og var ætlunin að tengja hólma þennan við fastalandið með tveimur léttum göngubrúm. Enn sem fyrr var gert ráð fyrir að gamli Iðnskólinn, Búnaðarfélagshúsið og Iðnó yrðu íjarlægð. Væntanlegt ráðhús var kynnt almenningi með sýningu í Melaskól- anum. Álit manna á væntanlegri ráðhúsbyggingu var margvíslegt. Öm Clausen lögfræðingur sagði í samtali við Morgunblaðið að honum finnist húsið fallegt og stflhreint og í alla staði til sóma fyrir borg- ina. Bróður hans, Hauki Clausen tannlækni, fannst aftur á móti hús- ið vera hinn aumasti kumbaldi og „þessi kassi upp úr því er fyrir neð- an allar hellur". Sigurði Lfndal prófessor féll aftur á móti húsið vel í geð og Birgi Ísleifí Gunnarssyni borgarfulltrúa fannst húsið „einfalt og stílhreint". Teikningar húsa- meistaranna voru lagðar fram í borgarstjóm í janúarmánuði 1964 og samþykktar. Tólf borgarfulltrú- ar vom meðmæltir, Alfreð Gíslason var andvígur, Adda Bára Sigfús- dóttir og Bjöm Guðmundsson sátu hjá. Þrátt fyrir mikið fylgi við ráðhús- byggingu í borgarstjóm, fór þó svo að þessu sinni að ekkert ráðhús var reist. Það vom ávallt einhver önnur verkefni sem vom talin brýnni og einnig reyndist erfítt að ná samn- ingum um kaup á Iðnó og gamla Iðnskólahúsinu. Áform um bygg- ingu ráðhúss vom því lagðar á hilluna um 1970. Samantekt:PLE Hugmynd Lárusar Axels Helgasonar rannsóknarlögreglumanns. enda Tjarnarinnar. Einnig vom veitt þriðju verðlaun B, þeim Þóri Baldvinssyni og Ame Hoff Möller, og gerði þeirra tillaga einnig ráð fyrir byggingu í norðurendanum á Tjöminni. Það var ljóst að það var nokkur andstaða gegn því að rífa Miðbæjarbamaskólann. 21. desem- ber 1950 ályktaði bæjarstjóm um að bæjarráð gerði tillögu um stað- setningu ráðhússins. 8. ágúst 1952 lagði samvinnunefnd um skipulags- mál fram tillögur sínar. Alls sextán staðir fyrir ráðhúsbyggingu höfðu verið athugaðir og mælti nefndin með norðurenda Tjarnarinnar. Borg-arstj órinn átti afmæli Tuttugasta og níunda desember 1955 samþykkti bæjarstjórn Reykjavíkur einróma að ráðhús skyldi byggt við Vonarstræti sunn- anvert, á svæði milli Lækjargötu og Tjamargötu. Jafnframt var kos- in fímm manna nefnd til_ að undir- búa ráðhúsbygginguna. í nefndina vom kosin: Gunnar Thoroddsen, sem var kosinn formaður nefndar- innar, Auður Auðuns, Jóhann Hafstein, Sigvaldi Thordarson og Alfreð Gíslason. í umræðum kom fram að ýmsir bæjarfulltrúar höfðu augastað á öðmm möguleikum, t.d. vildi Geir Hallgrímsson helst byggja inn við Háaleiti og Alfreð Gíslason var þeirrar skoðunar að Klambra- túnið (Miklatún) væri besti staður- inn fyrir ráðhús. Ennfremur taldi hann að hætt yrði við því að skerða Fyrirhugað ráðhús 1964, en einnig var ráðgert að fjarlæga Iðnó og gamla Iðnskólann. þyrfti Tjörnina meira en sérfræð- ingar gerðu ráð fyrir, enda yrði húsið að vera mjög stórt, svo hátt, að engir nema fuglar himins gætu séð ofan á það; því það væri óvið- kunnanlegt að nokkur maður gæti litið niður á ráðhúsið. Þess má geta að Alfreð Gíslason sagði fjórum ámm seinna, á fundi, sem Stúd- entafélag Reykjavíkur efndi til, að hann hefði greitt tillögunni at- kvæði, „til að vera ekki vargur í véum, en einnig hefði borgarstjóri átt afmæli þennan dag“. í umræð- unum í bæjarstjórn komu líka fram áhyggjur vegna umferðar gegnum bæinn og skorts á bflastæðum, en í ráði var að bæta úr þeim vanda- málum með því að breikka Suður- götu og Kirkjustræti og opna það austur í Lækjargötu. Borgarstjóri sagði framtíð Vonarstrætis enn vera óleysta spumingu, sem ekki yrði ákveðin fyrr en nánari tillögur lægu fyrir um gerð ráðhússins, en borgarstjórinn tók fram að gömlu timburhúsin við Vonarstræti ættu að hverfa, s.s. Iðnó, gamli Iðnskól- inn og Búnaðarfélagshúsið og þegar þessi hús hyrfu myndaðist mikið opið svæði. Kríur og- bæjarfulltrúar Þótt bæjarstjóm hefði samþykkt væntanlega staðsetningu ráðhúss- ins einum rómi urðu nokkrir til að lýsa óánægju sinni. Elías Mar rit- höfundur ritaði gegn ráðhúsinu og Sigurður Þórarinsson jarðfræðing- ur taldi að kríumar væm meiri yndisauki við Tjömina en ráðhús, einnig kvað hann Tjörnina fremur vera ætlaða til að spegla ósnortinn náttúmunað en bæjarfulltrúa Reykjavíkur. Láms Axel Helgason rannsókn- arlögreglumaður var meðal þeirra sem vildu byggja ráðhúsið annars staðar en í Tjörninni norðanverðri. Hann vildi að ráðhúsið risi á homi Skothúsvegar og Tjamargötu. AUK hl. x80.7/SlA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.