Morgunblaðið - 15.11.1987, Page 38

Morgunblaðið - 15.11.1987, Page 38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1987 38 Minning: Sólveig Guðmunds- dóttir Kjerúlf FæddG.júlí 1903 Dáin 7. október 1987 Að morgni miðvikudagsins 7. október iést á Elli- og hjúkrunar- heimilinu Grund Sólveig Guð- mundsdóttir Kjerúlf. Sólveig fæddist 6. júlí 1903 að Sauðhaga í Vallahreppi, S-Múlasýslu, en flutt- ist ásamt foreldrum sínum að Hafursá við Hallormsstaðaskóg 1909. Foreldrar Sólveigar voru hjónin Guðmundur Andrésson Kjer- úlf, bóndi, og Vilborg Jónsdóttir. Guðmundur var bróðir Þorvarðar Kjerúlf, alþingismanns og læknis. Vilborg rakti ættir sínar að Kleif í Fljótsdal. Alls voru böm Guðmund- ar og Vilborgar átta, sex komu3t til fullorðinsára. Eftirlifandi eru Guðbjörg, ekkja Odds Kristjánsson- ar, byggingameistara á Akureyri, og Andrés, sem búsettur er að Reykholti í Borgarfirði. Látin eru Anna, gift Sveini Pálssjmi, kaup- manni og bónda í Hábæ í Vogum á Vatnsleysuströnd, Sigríður, gift Guðmundi Guðmundssyni frá Freyshólum í Skógum og Jón G. Kjerúlf, kvæntur Guðlaugu Péturs- dóttur frá Eskifírði. Árið 1924 gekk Sólveig að eiga Gunnar Jónsson frá Hallormsstað. Gunnar fæddist á Keldhólum í Vallahreppi á Fljótsdalshéraði 29. ágúst 1895. Foreldrar hans voru hjónin Margrét Sigurðardóttir og Jón Eiríksson, bæði af kunnum bændaættum þar eystra. Frá tveggja ára aldri ólst hann upp hjá frú Elísabetu Sigurðardóttur að Hallormsstað, en faðir hennar var séra Sigurður Gunnarsson. Þeim Sólveigu og Gunnari varð ii/iikið ÚRVAL HUÓMTÆKJA Videotæki frá kr. 36.000,- Skipholti 21 (Nóatúnsmegin), sími 623890. OplA til kl. 14.00 laugardag fímm bama auðið, en fjögur þeirra lifa nú móður sína, þau Vilborg húsfrú, gift Jóni Vídalín Jónssyni frá Herríðarhóli, Ásahreppi, Rang- árvallasýslu, Guðmundur, verk- fræðingur, kvæntur Önnu Júlíusdóttur frá Atlastöðum í Fljótavík, Margrét, húsfrú, gift Preben Skovsted frá Danmörku, og Jón, heildsali, kvæntur Dóru Reinis Emilsdóttur, hjúkrunarfræðingi. Einnig ólu þau Sólveig og Gunnar upp Sólveigu, dóttur Vilborgar. Ekki sakar að geta þess, að þegar þetta er ritað, hefur Sólveig skilið eftir sig alls 40 afkomendur. Þau Sólveig og Gunnar bjuggu nær óslitið á Akureyri til ársins 1954, er þau fluttust til Reykjavík- ur. Á Akureyri starfaði Gunnar m.a. sem lögreglumaður og fram- kvæmdastjóri Fjórðungssjúkra- hússins á Ákureyri. í Reykjavík var hann lengst af starfsmaður Tímans. Sólveig vann heimili sínu og öll- um sínum nánustu í ríkum mæli. Heimili Gunnars og Sólveigar var alla tíð mjög gestkvæmt og þangað fannst öllum gott að leita. Sólveig bjó yfír mikilli gestrisni og naut þess að hafa margt fólk í kringum sig. Ánægja hennar af því að hlúa að gestum og heimilisfólki virtist vera samofin ákaflega höfðinglegri og tignarlegri framkomu í bland við stillilegt æðruleysi. Er ekki að efa að þá eðliskosti hafí hún fengið í arf úr föðurhúsum. Mér hefur oft flogið í hug fyrsta erindi þekkts ljóðs eftir Davíð Stefánsson þegar ég hef hugleitt eðliskosti Sólveigar. Eg finn það gegnum svefninn, að einhver læðist inn með eldhúslampann sinn, og veit, að það er konan, sem kyndir ofninn minn, sem út með ösku fer og eld að spónum ber og yljar upp hjá mér, læðist út úr stofunni og lokar á eftir sér. Sólveig var einmitt ein af þeim manneskjum, sem hljóðlega létta öðrum lífíð, læðast helst, ef nokkur kostur er, með eldhúslampann sinn, bera eld að spópum og ylja upp — og loka svo á eftir sér hóglátlega og í gleði yfír að hafa ef til vill gert öðrum lífið léttara. Lífíð sjálft er Guðs gjöf og lang- ir lífdagar náð á meðan heilsa og kraftar endast. Sólveig átti langri ævi að fagna, þó heilsan yrði lak- ari og þrek minna hin síðari ár. Ég held að Sólveigu hafí verið það mikið kappsmál að halda reisn sinni til hins síðasta, eða eins og segir í góðu ljóði: Bognar aldrei - brotnar í bylnum stóra seinast. (St.G.St.) Fjölskylda Sólveigar þakkar starfsfólki Grundar góða aðhlynn- ingu og alúð í hvívetna. Líklega er best að hafa sem fæst orð um þá hluti, sem manni eru helgastir. Það er eins og það fari ekki vel að fjölyrða um fólk sem er ofíð úr jafn dýru djásni og hóg- værð og höfðingsskap. Sólveig þekkti reyndar sjálf af eðlisávísun gildi þess að segja fátt en ganga þeim mun ákveðnar fram í önn hinna virku daga. Og einmitt vegna þess skal hér ekki fjölyrt frekar en orðið er um líf og störf Sólveigar. Hver og einn ástvinur geymir með sjálfum sér helgustu minningar og þakkarefni. Útför Sólveigar hefur farið fram. Megi friður Hans, sem mat svo mikils fórnandi ást, ríkja yfír þeim lundi, sem mun geyma jarðneskar leifar Sólveigar og Gunnars. Sit ég og sé, hvemig sólin sindrar, sit hér í skóginum við Hallormsstað. Ljómandi fegurð í ljósi tindrar limið á kvistunum, er skelfur blað. Og nið’r að Leginum þama - þama þar fann ég lund, sem mér geðjast að. Sit því og sé, hvemig sólin sindrar, sit hér í skóginum við Hallormsstað. (M. Joch.) Já, skíni sól yfír þeim lundi. Kristinn Ágúst Friðfinnsson Kær vinkona mín, Sólveig Guð- mundsdóttir, fædd Kjerúlf, lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund þann 7. október sl. Útför hennar var gerð í kyrrþey frá Fossvogskap- ellu þann 12. s.m. að eigin ósk. Ér það ekki einmitt táknrænt að hún skyldi kveðja þennan heim við lok eins yndislegasta sumars, er komið hefur á þessari öld. Konan sem hafði lagt dijúgan skerf til þess að hér á okkar landi mætti verða „gró- andi þjóðlíf með þverrandi tár“. Nokkur síðustu æviárin dvaldist t Þökkum sýndan hlýhug og vináttu við andlát og jarðarför eigin- konu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, KARÓLÍNU LÁRU VIGFÚSDÓTTUR, Lindarholti 4, Ólafsvík. Þorsteinn Hansson, Jóhann Jónsson, Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, Ester Gunnarsdóttir, Gunnar Gunnarsson, Birgir Þorsteinsson, Birna Árnadóttir, Sigurður Þorsteinsson, Margrét Gísladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Málarar - málarar Sérstakur kynningarafsláttur til málara út nóvember á BETT, MILLTEX og VITRETEX Kynnið ykkur kjörin. Málningarverksmiðja Slippfélagsins, Dugguvogi4; Reykjavík, sími 91-84255. Sólveig á Grund, þar sem hún naut góðrar umönnunar starfsfólksins og ekki hefði verið hægt að láta í té heima hjá ástvinum hennar þó að allir væru af vilja gerðir. Sólveig fæddist í Sauðhaga í Vallahreppi þann 6. júlí 1903 og því á 85. aldursári þá er hún lést. Foreldrar hennar voru hjónin Vil- borg Jónsdóttir bónda á Kleif í Fljótsdal og Guðmundur Andrésson Kjerúlf bónda og bókbindara á Melum í sömu sveit, Jörgenssonar læknis á Brekku í Fljótsdal. Foreldr- ar Jörgens læknis voru bæði dönsk og búsett í Kaupmannahöfn, en kona hans Arnbjörg var íslensk. Föðurbróðir Sólveigar var Þor- varður Kjerúlf læknir og alþingis- maður á Ormarsstöðum í Fellum. Hann lést aðeins 45 ára gamall, þá orðinn þjóðkunnur maður. Vil- borg og Guðmundur voru mikil sæmdarhjón, hún lifandi, elskuleg og sérstaklega gestrisin kona og hann mikill bókamaður og sýnt um að miðla öðrum af fróðleik sínum. Árið 1909 flytjast þau Vilborg og Guðmundur Kjerúlf með bama- hópinn sinn, sex að tölu, að Hafursá í Skógum, en Skógar nefnist innsti hluti Vallahrepps. Á Hafursá bjó þá á eignaijörð sinni Sólveig Andr- ésdóttir Kjerúlf, systir Guðmundar, ekkja eftir Sigurð Einarsson bónda þar, ásamt dóttur sinni Guðrúnu. Það verður að teljast mikið gæfu- spor hjá foreldrum Sólveigar að flytjast að Hafursá. Þar er nátt- úrufegurð mikil. Jörðin liggur að landi Hallormsstaðaskógar að aust- an. Útsýni frá Hafursá er feikifag- urt yfir Lagarfljót inn með eggsléttri brún Fljótsdalsheiðar með Snæfell fyrir stafni. Á þessum fagra stað var systkinunum á Haf- ursá búin ákjósanleg aðstaða til vaxtar og þroska á myndarheimili í sátt og samlyndi við frænkuna góðu, Sólveigu, og dóttur hennar. Þessu til stuðnings leyfí ég mér að endurtaka orð er Jón G. Kjerúlf, bróðir Sólveigar, lét falla í mann- fagnað þá nær níræður að aldri: „Það var gott mannlíf í Skógum." Systkinin á Hafursá voru þessi, talin í aldursröð: Anna, Jón, Sigríð- ur, Guðbjörg, Sólveig og Andrés. Sigríður dó úr brjósthimnubólgu á miðjum aldri, þá gift en bamlaus. Eftir lifa nú Guðbjörg og Andrés. Það var einstaklega kært með þeim Hafursár-systkinum öllum. Árið 1924 giftist Sólveig Gunn- ari Jónssyni frá Hallormsstað, þá starfandi lögregluþjóni á Akureyri. Gunnar var fæddur á Keldhólum í Vallahreppi hinn 29. ágúst 1895. Foreldrar hans vom Margrét Sig- urðardóttir og Jón Eiríksson, bæði af kunnum bændaættum á Héraði. Tæplega tveggja ára var hann tek- inn í fóstur af ömmu minni, Elísa- betu Sigurðardóttur á Hallorms- stað, er þá var ekkja eftir Pál Vigfússon bónda og ritstjóra. Gunn- ar hafði sem ungur maður hlotið góða menntun, fyrst í heimahúsum hjá fóstm sinni og dóttur hennar, Sigrúnu P. Blöndal. Gunnar taldi það gæfu sína að hafa alist upp á Hallormsstað. Það hafði ætíð verið mikill vinskapur á milli heimilanna á Hafursá og Hallormsstað og með giftingu Sólveigar og Gunnars styrktust böndin enn meir. Fljótlega prýddu myndir af ungu hjónunum kommóðuna í stássstofunni á Hall- ormsstað ásamt helstu ættmennum og vinum heimilisins. Gunnar lauk búfræðinámi frá Eiðaskóla og um eins árs skeið dvaldist hann í Dan- mörku, m.a. við Lýðháskólann í Askov. Þar var þá skólastjóri hinn merki skólamaður Jakob Appel. Eftir heimkomuna frá Danmörku gerist hann bamakennari í Valla- hreppi. Það var á þessum árum sem leiðir þeirra Sólveigar og Gunnars lágu saman. Eftir giftinguna lá leið hinna ungu hjóna til höfuðstaðar Norður- lands, Akureyrar. Sólveig, sem hér er kvödd, hin unga brúður, fylgdi manni sínum til nýrra heimkynna. Hún var þá tæplega 21 árs að aldri, ung og hraust, fríð sýnum með höfðinglegt yfirbragð. Á fyrri hluta þessarar aldar var ekki al- gengt að stúlkur færu í langskóla- nám, en það vitum við sem þekktum Sólveigu að þar hefði hún ekki orð- ið eftirbátur annarra, því að hún var skarpgreind eins og margir í hennar ætt. Hún lauk tilskilinni bamafræðslu auk þeirrar menntun- ar sem mannmargt menningar- heimili gat veitt bömum sínum. Á heimilum, á ámnum um og eftir heimsstyijöldina fyrri, var mikið lesið og um margt rætt og að sjálf- sögðu vom störfín við sameiginleg- an rekstur heimilisins fjölþætt. Af framansögðu má marka að þessi nýgiftu hjón vom vel í stakk búin til að takast á við lífíð, enda kom í ljós að þau skorti ekki mann- dóm. Þau vom bæði bjartsýn á framtíðina og snortin af andblæ nýrra tíma sem boðaði upphaf hinn- ar miklu framfarasóknar þjóðarinn- ar á sviði efnahags og mennta. Það var ekki algengt að fólk af Héraði settist að á Akureyri, en allt hefur sinn tíma, og svo tel ég að hafí verið í þetta sinn. Það var heldur ekki algengt á þessum ámm að eignalítið ungt fólk réðist í að eignast sitt eigið húsnæði, en Sól- veig og Gunnar keyptu fljótlega hús og skömnmu síðar byggðu þau ann- að stærra hús við Barmastíg 15 á einum fegursta stað í bænum með útsýni yfir Pollinn. Þar átti heimili þeirra eftir að standa í nær 30 ár. Rétt upp úr 1930 með tilkomu bílvegar milli Akureyrar og Austur- lands íjölgaði ferðum fólks að austan til Akureyrar. Þá kom sér vel fyrir frændur og venslafólk að eiga vini í varpa þar sem Sólveig og Gunnar vom. Fyrsta koma mín á heimili þeirra, þá ung að ámm á leið suður, stendur mér ljóslifandi fyrir hugskotssjónum. Svo mikið fannst mér til alls koma á þessu heimili, að Akureyri naut þess einn- ig, því að lengi á eftir áleit ég Akureyri einn ákjósanlegasta stað að búa á. Heimilið á Bjarmastígnum varð fljótlega með stærri heimilum í bænum, þar ríkti framúrskarandi gestrisni og rausnarskapur. Sólveig laðaði fólk að sér með höfðinglegri en þó látlausri framkomu og hlýju sem hún átti í svo ríkum mæli. Henni tókst ásamt manni sínum að skapa menningarheimili þar sem öllum er það gistu leið vel. Gunnar og Sólveig eignuðust fímm böm, sem öll eru fædd á Akureyri: Vil- borg, giftist Poul Hansen, dönskum manni, þau skildu síðar. Seinni maður hennar er Jón V. Jónsson og eru þau búsett í Vogum. Elísa- bet, önnur dóttir þeirra, andaðist á fyrsta ári. Guðmundur, búsettur í Reykjavík, kvæntur Önnu Júlíus- dóttur. Margrét, gift dönskum manni, Preben Skovsted, þau em búsett á Fjóni í Danmörku. Jón, giftur Dóm Reinis Emilsdóttur og búsett í Reykjavík. Afkomendur Sólveigar og Gunnars em nú fjórir tugir talsins. Um miðjan áratuginn 1930—40 keyptu hjónin jörðina Hafursá og fluttu heim á æskustöðvamar, líklega með það fyrir augum að böm þeirra, sem þá vom að vaxa úr grasi, kynntust lífinu í sveitinni. Miklar umbætur vom gerðar á jörð- inni, bæði í ræktun og húsakosti, studdar af frændfólki og tengda- fólki. Þetta hefur verið heillandi verkefni, en kreppuárin vom þá f algleymingi og því varla von að auðvelt væri að láta draum um stór- búskap rætast og urðu þau að hætta við búskaparáformin og

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.