Morgunblaðið - 15.11.1987, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1987
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Stýrimaður
og vélstjóri
Stýrimann og vélstjóra vantar á 75 tonna
rækjubát sem gerður er út frá Norðurlandi.
Upplýsingar í síma 96-71634 á daginn og
96-71689 á kvöldin.
Tæknifræðingur
af veikstraumssviði óskar eftir starfi. Hefur
reynslu af videotækni og tölvutækni ásamt
kennslustörfum.
Gjörið svo vel að leggja inn boð til auglýsinga-
deildar Mbl. merkt: „A - 1984“ fyrir 20.
nóvember n.k.
Skrifstofustarf
- Kópavogur
Starfskraftur óskast til skrifstofustarfa hálfan
daginn. Umsóknir sendist auglýsingadeild
Mbl. merktar: „P - 6139“.
Beitningarmaður
Beitningarmann vantar á línubát sem rær frá
Hafnarfirði.
Upplýsingar í símum 50571 og 51990.
Heimilishjálp
Starfsfólk óskast í heimilishjálp.
Upplýsingar veitir félagsmálastjóri í síma
666218.
Aukatekjur
- desember
Sölufólk óskast frá 28. nóvember til 20. des-
ember. Vinnutími virka daga frá 17.00 til
20.00 og laugardaga frá 15.00 til 19.00.
Mjög góð laun eru í boði fyrir duglegt fólk.
Æskilegt að viðkomandi hafi bíl til umráða.
Áhugasamir skili inn umsóknum, sem til-
greini aldur, heimili og hvort að viðkomandi
hafi bíl, á auglýsingadeild Mbl. merktar:
„D - 4902“ fyrir föstudaginn 20. nóv.
Sölumaður
Steinar hf. stálhúsgagnagerð óskar að ráða
áhugasaman sölumann, karl eða konu, til að
selja húsgögn. Æskilegt væri að viðkomandi
hefði stúdentspróf eða hefði að minnsta
kosti gott vald á íslensku og helst ensku.
Vinnutími er frá kl. 9.00 til 18.00. Mötuneyti
er á staðnum.
Ef þú ert áhugasamur/söm og vilt vinna með
góðu fólki þá gæti þetta verið starf fyrir þig.
Eiginhandarumsóknir berist fyrir miðvikudag
18. nóvember.
STEINAR HF
STÁLHÚSGAGNAGERÐ
Smiðjuvegi 2,
200 Kópavogi.
Afgreiðsla
Viljum ráða nú þegar starfsmann til af-
greiðslustarfa í fiskþorði í matvöruverslun
okkar í Kringlunni.
Um er að ræða heilsdagsstarf.
Nánari upplýsingargefurverslunarstjóri (ekki
í síma) í versluninni mánudag og þriðjudag.
Umsóknareyðublöð fást hjá verslunarstjóra
og starfsmannahaldi.
HAGKAUP
Skeifunni 15.— Starfsmannahaid.
Matvælaiðnaður
Fyrirtæki í nágrenni Reykjavíkur óskar eftir
starfsmanni til uppbyggingar og umsjónar á
framleiðslu fullunninna sjávarafurða. Leitað
er að sjálfstæðum starfskrafti með reynslu
og menntun í matvælaiðnaði.
Skriflegar umsóknir er tilgreini menntun,
starfsreynslu og launahugmyndir leggist inn
á auglýsingadeild Mbl. fyrir föstudaginn 20.
nóvember merktar: „Matvæli - 4647“.
Lyfjafræðingar
Lyfjafræðingur óskast í hlutastarf. Vinnutími
kl. 13-18 daglega eða eftir nánara samkomu-
lagi. Vinsamlega leggið umsóknir inn hjá
auglýsingadeild Mbl. fyrir 19. nóv. merktar:
„L - 6601.
BorgarApótek.
Álftamýri 1-3.
REYKJKJÍKURBORG
jlcucátln Stöcáci
Skóladagheimili
Breiðagerðisskóla
Starfsmaður með uppeldismenntun (helst
fóstra) óskast í 75% starf. Einnig vantar fólk
(t.d. skólafólk) í afleysingar.
Upplýsingar í síma 84558.
REYKJMJÍKURBORG
Jhza&eui St&dwi
Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur
óskar eftir að ráða SJÚKRALIÐA við HEIMA-
HJÚKRUN, til afleysinga.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
22400.
Umsóknum skal skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9,
Reykjavík, fyrir kl. 16.00 mánudaginn 23.
nóvember nk.
Frá Æfinga- og
tilraunaskóla
Kennaraháskóla
íslands
Starfsmaður óskast vegna fyrirhugaðrar til-
raunar með nám fatlaðra barna í almennum
bekk. Til greina kemur sérkennari, kennari
með reynslu af kennslu fatlaðra barna,
þroskaþjálfi eða sérmenntuð fóstra. Um er
að ræða tvo þriðju úr starfi á yfirstandandi
skólaári. Viðkomandi þarf að geta hafið starf
nú þegar.
Upplýsingar veitir skólastjóri Æfingaskólans
í símum 84565 og 44837.
REYKJKMIKURBORG
JLcuuwt Stöcátx
Heimilisþjónusta
fyrir aldraða
Starfsfólk óskast í heimilishjálp, heilsdags-
störf/hlutastörf.
Hentugt fyrir húsmæður og skólafólk.
Upplýsingar í síma 18800.
MFj Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar
w Vonarstræti 4 sími 25500
Útideild
Útideild Félagsmálastofnunar sinnir leitar-
og vettvangsstarfi meðal unglinga í
Reykjavík. Markmiðið með starfinu er að
hjálpa unglingum til að koma í veg fyrir að
þeir lendi í erfiðleikum og aðstoða þá ef slíkt
kemur fyrir.
Við óskum eftir starfsmanni í dag- og kvöld-
vinnu. Æskilegt er að viðkomandi hafi
menntun/starfsreynslu á sviði félags- og upp-
eldismála. Umsóknarfrestur er til 1.12. '87.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 621611
og 20365 alla virka daga milli kl. 13-17.
Umsóknum skal skilað til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar á umsóknareyðublöðum
sem þar fást.
Ríkisútvarpið
vill ráða dagskrártæknimenn til starfa:
1. Rafeindavirkja eða fólk með sambærilega
menntun.
2. Ófaglærða starfsmenn, með stúdents-
próf eða sambærilegt nám, sem fyrir-
hugað er að fái bóklega kennslu og þjálfun
í dagskrártæknistörfum. Gert er ráð fyrir
að námið og þjálfunin taki um 18 mánuði.
Umsóknarfrestur er til 18. nóvember og ber
að skila umsóknum til útvarpsins, Efstaleiti 1,
á eyðublöðum sem þarfást. Nánari upplýsing-
ar gefur rekstrarstjóri, tæknideildar útvarps,
í síma 693000.
RÍKISÚTVARPIÐ
ÞJÓDLEIKHÖSIÐ
Aðalbókari
Starf aðalbókara Þjóðleikhússins er laust til
umsóknar frá og með 1. janúar nk. Staðgóð
þekking á bókhaldi og tölvuvinnslu bókhalds
nauðsynleg. Þekking á kerfisfræði æskileg.
Laun skv. launakjörum ríkistarfsmanna.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Þjóðleik-
hússins, á eyðublöðum sem þar fást, fyrir
10. desember nk.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Þjóðleik-
hússins, Lindargötu 7, sími 11204.
Þjóðleikhússtjóri