Morgunblaðið - 15.11.1987, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1987
hefur opið frá kl. 09.00 -16.00
ásunnudögum.
Brauð og alls kyns meðlœti á
boðstólum.
Komið í Glæsibæ og fáið með-
læti með sunnudagskaffinu.
Sð ÍÍPeinnxtJakan
Lærið í USA
Pacific Lutheran University (PLU) er staðsettur í
Tacoma, 60 km suöur af Seattle i norðvosturströnd
Bandaríkjanna.
Skólinn var stofnaður af skandinavískum innflytjendum árið 1890
og hefur ávallt haldið sambandi við Norðurlöndin. Yfir 60 skand-
inavar stunda nú nám við PLU.
Námið inniheldur m.a. listir, viðskipti, hjúkrun, kennaramenntun,
fjölmiðlafræði og íþróttir.
Fulltrúi frá PLU mun halda 3 fræðslufundi á íslandi.
Á Hótel Esju:
Þriðjudaginn 17. nóvember
Miðvikudaginn 18. nóvember
Á Hótel KEA, Akureyri:
Fimmtudaginn 19. nóvember
Fundirnir verða allir haldnir kl. 20.00.
Allir velkomnir.
«5
Ovenjugóð kornuppskera
Hnauflum, Meðallandi.
10 BÆNDUR í Landbroti og á
Síðu ræktuðu korn nú í sumar.
Viðraði mjög vel á það. Varð
kornuppskera óvenjugóð enda
er þetta eitt hlýjasta svæðið á
landinu. Einnig gekk komrækt
hér mjög vel í fyrrasumar. Var
korn þá ræktað á um 30 hektur-
um og eitthvað aðeins meira
núna.
Tíðarfar
Undanfarið hefur verið hér sum-
arveður. Er ekki annað að sjá en
að þetta óvenjugóða ár ætli ekki
að gera endasleppt við okkur. Jörð
er farin að gróa og mun slíkt ekki
vera vejulegt um þetta leyti. Oft
hefur verið gefið fé alllengi um
þetta leyti, meira að segja í fyrra
haust. Þá kom snjór í október. Nú
kom aðeins frost á og fóru sumir
að gefa. Eru ær nú farnar að missa
átið að sagt er. Ekki álitlegt ef
þeim finnst að komið sé vor og
neiti ef til vill allri þjónustu bæði
hjá hrútum og sæðurum. En sjálf-
sagt kæmi það sér' vel fyrir
Framleiðsluráð landbúnaðarins. Á
Kirkjubæjarklaustri var slátrað um
27 þúsund fjár og mun það vera
öllu meira en í meðallagi.
GRTLA OG LEPPALUÐI
eru komin með margskonar nýjar jólavör-
ur ogjólaskraut og enn meira af jólavörum
eru væntanlegar á næstu vikum.
LOPAPEYSURNAR okkar eru viður-
kenndar fyrir gæði og litasamsetningu.
Mikið úrval af barnapeysum.
•
VÆRÐARVOÐIR í miklu úrvali.
Við sendum um allan heim.
Allar sendingar eru tryggðar af okkur.
ISLEIMSKUR HEIMILISIÐNAÐUR
Hafnarstræti 3, sími 11785
B0MBARDIER
Bombardier Inc.
Snowmobile Division
Valcourt, Québec JOE 2L0
Gísli Jónsson & Co hf.,
Sundaborg 11, sími 686644.
Ski-doo
Mikið úrval vélsleða bæði
nýrra og notaðra
fyrirliggjandi.
Flugvél í eftirleit
Flugvél var fengin til eftirleitar
á afréttum á Síðu og Fljótsskarði.
Kristinn Siggeirsson í Hörgslandi
fór í þennan leiðangur en flugmað-
ur var Reynir Ragnarsson, Vík í
Mýrdal. Sáu þeir 14 kindur á Síðu-
afréttum og tvö lömb í Beinadal á
Eystra-Fjalli. Er það í Núpsstaðar-
landi. Nú er búið að sækja þetta
fé nema lömbin tvö á Eystra-Fjalli.
Mýrdalssandur
Nú er hafin undirbygging á nýj-
um vegi yfir Mýrdalssand. Liggur
hann nærri sjó þar sem veður er
miklu betra en á gamla veginum.
Verður þar hægara að veijast sand-
foki og snjór miklu minni en þar
sem vegurinn er nú. Eru þetta góð
tíðindi og ekki aðeins fyrir okkur
hér. Vestur-Skaftafellssýsla er
versti flöskuhálsinn á hringvegin-
um. Er margra hagsmunamál að
úr því verði bætt og hálfnað er
verk þá hafið er segir spakmælið.
Skálholtsskóli
Dagana 17.og 18. október voru
nemendur Skálholtsskóla hér. Sú
ferð var liður í listakennslu skólans
undir leiðsögn Sigrúnar P. Proppé
myndlistarkennara. Fararstjórar
voru séra Hanna María Péturs-
dóttir og séra Sigurður Ámi
Þórðarson Skálholtsrektor. Voru
bæði hér kunnug fyrir, höfðu verið
prestar í Asaprestakalli. Gist var í
samkomuhúsinu í Efri-Ey. Var leit-
ast við að komast í fótspor meistara
Kjarvals. Hann fæddist í Mið-
bænum fyrir 102 árum, 1885. Vorið
1890 er hann kominn á hest þar á
hlaðinu og móðir hans segir er hún
kemur að kveðja soninn: „Nú verð-
ur langt þangað til við sjáumst
aftur, Jói minn.“ Þessi ferð var löng
á þeim tíma enda í Borgarfírði
eystra. Ólst Kjarval þar upp hjá
frændkonum sínum.
Fyrri daginn sem skólinn var hér
var farið á §öru í mjög góðu veðri.
Undu nemnendur sér vel þar í skipa-
kirkjugarðinum sem sér þó lítinn
stað. Hafa sjór og sandur máð út
flest flökin. Seinni daginn var ferð-
ast nokkuð um héraðið. Komið fyrst
að Kirkjubæjarklaustri og farið
vestur Eldhraun með viðkomu í
Botnum. Þá var farið aftur upp á
aðalveginn í hrauninu, ekið suður
með Kúðafljóti í Meðallandið og
Gísli á Melhól heimsóttur. Um
kvöldið var kvöldvaka hér á Hnaus-
um og sagði ég þá frá kynnum
mínum af Kjarval, frá því er hann
kom hér í héraðið síðar á ævi og
að lokum frægur maður.
— Vilhjálmur
Sauðfjárslátrun í
Borgarnesi:
Fallþungi
700 gr meiri
en í fyrra
Stafholti.
SAUÐFJÁRSLÁTRUN hjá Kaup-
féiagi Borgfirðinga i Borgarnesi
lauk hinn 29. október sl. og hafði
þá staðið yfir frá 9. september.
Alls var slátrað 63.150 kindum,
þar af voru dilkar 56.930.
Nokkur fækkun hefur orðið frá
síðasta ári en þá var alls slátrað
65.550 fjár. Meðalvigt var nú 14,7
kíló en var 14 kíló í fyrra. Þetta
þýðir að heildarfallþungi dilka er
nú rúmlega 11 tonnum meiri en
síðastliðið ár. Þrátt fyrir aukinn
meðalþunga fóru aðeins 8-9% í O-
flokka. Af áðumefndum íjáríjölda
var 1.713 kindum slátrað vegna
fækkunarsamninga bænda við
Framleiðnisjóð.
Um 160 manns vinna við slátrun
í Borgamesi meðan á sláturtíð
stendur. Sláturhússtjóri er Gunnar
Aðálsteinsson. _ „
— Br.G.