Morgunblaðið - 25.11.1987, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987
Carlucci sver
embættiseið
Frank Carlucci, nýskipaður varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sór
í gær embættiseið. Carlucci, sem er arftaki Caspars Weinbergers og
því 16. varnarmálaráðherra landsins, hét dyggum stuðningi við Atl-
antshafsbandalagið þrátt fyrir mikinn niðurskurð á útgjöldum til
varnarmála og sagði að afleiðing hans yrði ekki „innantómur her,
óflughæfar flugvélar og skip, sem ekki gætu siglt.“ Hann gaf í skyn
að herinn kynni að minnka, en að ekki yrði dregið úr hæfni hans.
Ég er vafalaust eini vamarmála- lagi og sagðist þess fullviss að fyrir
ráðherrann í sögunni, sem sver
embættiseið og missir 52 milljarða
dala úr fjárlögunum á sama degi,“
sagði Carlucci þegar hann var boð-
inn velkominn í Pentagon, byggingu
vamarmálaráðuneytisins. Hann
minnti menn þó á að Bandaríkin
væm hluti af stærra vamarbanda-
þær sakir væri hægt að draga úr
þeirri áhættu, sem væri í því fólgin
að minnka útgjöld til vamarmála.
Á myndinni em frá vinstri: Ron-
ald Reagan, Bandarílqaforseti,
Frank Carlucci, Marsha kona hans
og dómarinn Laurence Silberman.
Reuter
Danmörk:
Vilja minnka þorsk-
kvóta í Eystrasalti
Kaupmannhöfn. Frá NJ. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
DANSKIR líf- og fiskifræðing-
ar hafa varað við of miklum
þorskveiðum í Eystrasalti. Ha-
frannsóknaskipið Dana er
nýkomið úr 12 daga leiðangri
og eru niðurstöðurnar þær, að
engin breyting hafi orðið til
batnaðar á stofninum eins og
þó hafði verið búist við.
Ole Bagge, einn af yfirmönn-
um dönsku hafrannsóknastofn-
unarinnar, skýrði frá þessu í gær
en í leiðangrinum var einkum
kannað ástand ungra þorskár-
ganga.
Á þessu ári hafa þorskveiðam-
ar í Eystrasalti gengið mjög vel
og hafa jafnvel verið stundaðar
af skipum frá vesturströnd Jót-
lands. Er aflinn kominn yfír
100.000 tonn en fiskifræðingam-
ir leggja nú til, að kvótinn verði
minni á næsta ári og hlutur Dana
55.000 tonn.
Talið er, að rekja megi ástand
þorskstofnsins í Eystrasalti til
aukinnar sóknar og til þess, að
nú eru menn famir að nota flott-
roll, sem þykir gefa betri raun
en botnvarpan.
Reuter
Uppreisn Kúbumanna í
bandarískum fangelsum:
Höfnuðu tilboði Meese
Kúbanskir flóttamenn eigra um lóð fangelsis
í Oakdale í Kaliforníu þar sem þeir gerðu upp-
reisn í kjölfar samkomulags Bandaríkjanna og
Kúbu um innflytjendur. Kúbanskir fangar
gerðu einnig uppreisn í fangelsi í Atlanta í
Georgíuríki og kveiktu í því. A innfelldu mynd-
inni má sjá þyrlu að slökkistarfi. Leiðtogar
fanganna höfnuðu í gær tilboði Edwins Meese,
dómsmálaráðherra, um að framsali fanganna
yrði frestað þar til fjallað hefði verið um mál
þeirra. Fangarnir kröfðust réttarhalds í máli
hvers og eins þeirra og að á grundvelli þeirra
yrði tekin ákvörðun um framsal. Einnig að
Íeir yrðu ekki sóttir til saka fyrir uppreisnina.
gærkvöldi lágu samningaviðræður niðri. Fan-
gamir halda um 75 mönnum í gíslingu. í
gærmorgun barst sú beiðni til sjúkrahúss í
Atlanta að fimm lík yrðu flutt úr fangelsinu
en talsmaður sjúkrahússins sagði í gærkvöldi
að engin lík hefðu verið sótt þangað. Staðfests
hefur verið að einn maður hafi beðið bana í
uppreisninni í Atlanta-fangelsinu.
Fóstursonur Chou Enlai út-
nefndur forsætisráðherra Kína
Peking, Reuter.
Vatnsorku-
verkfræðing-
urinn Li Peng
var í gær út-
nefndur eftir-
maður Zhao
Ziyang sem
forsætisráð-
herra Kína og
mun því taka
við sama
starfi og fóst-
urfaðir hans,
Chou Enlai, gegndi á sinum tíma.
Fastanefnd kíverska þingsins út-
nefndi Li í gær og er ekki við öðru
Li Peng
búist en að útnefningin verði stað-
fest þegar þingið kemur saman í
marz á næsta ári. Tekur Li við af
Zhao, sem lqörinn var leiðtogi
kínverska kommúnistaflokksins
fyrir þremur vikum. Zhao hafði
gegnt starfi forsætisráðherra frá
árinu 1980. Er hann sagður hafa
stungið upp á Li sem næsta forsæt-
isráðherra.
Útnefning Li kom ekki á óvart
og er sögð full eining um hann í
flokknum, jafnt meðal gömlu
íhaldsmannanna sem vilja fara
hægt í umbætur og þeirra sem vilja
skjótar efnahagslegar breytingar.
Hann er sagður mjög hæfur til
starfans. Er háskólamenntaður,
með langa reynslu í stjómmálum,
hefur ferðast víða og nýtur álits
eldri flokksleiðtoga.
Li fæddist í október árið 1928 í
Sichuan-héraðinu. Faðir hans var
einn af frumheijum Kommúnista-
flokks Kína en féll í átökum við
Þjóðemissinna árið 1931, þegar Li
var þriggja ára gamall. Chou Enlai
tók hann þá í fóstur, en Chou varð
forsætisráðherra Kína árið 1949,
hinni fyrsti eftir að kommúnistar
komust til valda þar í landi. Chou
var forsætisráðherra Kína til dauða-
dags, árið 1976.
Markaðurinn:
Dollar og hlutabréf hækka
eftir vaxtalækkun Þjóðverja
Viðskiptahalli Bandaríkjanna eykst enn
Lundúnum, Reuter.
í GÆR voru kauphallarviðskipti
með rólegum hætti í Evrópu, en
Bandaríkjadalur og verðbréf
hækkuðu talsvert eftir að seðla-
banki Vestur-Þýskalands lækk-
aði vexti sfna. Seðlabankar
Frakklands og Hollands fetuðu
sömu slóð skömmu síðar. Þróun
mála í Wall Street var svipuð
eftir þessi tiðindi.
Fréttir að vestan orkuðu þó
tvímælis, því að í skýrslu banda-
ríska viðskiptaráðuneytisins kom
fram að utanríkisviðskiptahalli
Bandaríkjanna hafi aldrei verið
meiri en á þriðja ársfjórðungi þessa
árs. Nam hann alls um 39,56 mill-
jörðum Bandaríkjadala. Haldist
þessi halli út árið mun viðskiptahall-
inn álls nema um 157,5 milljörðum
dala, samanborið við 144,3 millj-
arða á síðasta ári.
Viðskiptahallinn við Japani
minnkaði, en á hinn bóginn jókst
hann gagnvart olíuútflutningsríkj-
unum. Þrátt fyrir að útflutningur
Bandaríkjanna hafí aukist um 9%
á síðasta ársfjórðungi, jókst inn-
flutningurinn einnig — eða um 6%.
Þessi útflutningsaukning þykir
bera vott um að bandarískt efna-
hagslíf hafi verið styrkara, en áður
var talið og kemur það heim og
saman við þá skoðun að í raun
hafí efnahagurinn fyrir verðbréfa-
hrunið á dögunum staðið traustari
fótum, en verðbréfasalar töldu.
Þrátt fyrir að kaupahéðnar hafi
sótt í sig veðrið að undanfömu er
markaðurinn enn viðkvæmur og
telja efnahagssérfræðingar að enn
sé talsvert í að viðskipti verði stund-
uð af sömu áræðni og festu og var.
Li nam vatnsorkuverkfræði við
Orkustofnunina í Moskvu á árunum
1948 til 1955. Við heimkomuna að
námi loknu tók hann við starfí fram-
kvæmdastjóra orkuvers, varð síðan
orkuráðherra, síðan menntamála-
ráðherra og loks aðstoðarforsætis-
ráðherra. Arið 1966, þegar Mao hóf
menningarbyltinguna, var hann
gerður forstjóri rafmagnsveitu Pek-
ing. Fréttastofan Nýja Kína sagði
að hann hefði staðið sig vel í starfí
rafveitustjóra er hún greindi frá
útnefningu hans í gær. „Þrátt fyrir
öngþveiti menningarbyltingarinnar
varð aldrei rafmagnslaust eða raf-
magnsskortur í Peking og Tianjin
á þeim tíma,“ sagði fréttastofan.
Að sögn vestrænna bankamanna
og stjórnarerindreka er ekki að
vænta neinna breytinga á efna-
hagsstefnu Kína með Li við stjóm-
völinn. í mesta lagi megi eiga von
á áherzlubreytingum. Búist er við
því að hann feti í fótspor Zhao og
Deng Xiaoping en hann er sagður
varfæmari en Zhao og ekki líklegur
til að taka miklar pólitískar áhættur
í umbótum sínum.
Li er sagður skipulegur maður
og ganga beint til verks. Hann er
sagður vel að sér á öllum sviðum,
ekki sízt um alþjóða efnahagsmál
og hvemig þróun þeirra getur haft
mismunandi áhrif á Kínvetja.
Útnefning Li er sögð koma í kjöl-
far flókinna samninga, sem leið-
togar hinna ýmsu valdahópa í
kínverska kommúnistaflokknum,
gerðu með sér er þeir hittust í bað-
strandarbæ sl. sumar. Er staða
hans því talin mjög styrk.