Morgunblaðið - 25.11.1987, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987
37
Sifélagsins í Odda en þar töluðu ýmsir sérfræðingar um íslenskt mál,
,Öðu þess 1 dag-. Morgunblaðið/Bjarni
kaffísamsæti
íælis Rasks
menn virtust vanda ritað mál sitt
mun meira en talað mál. I rituðu
máli væri minna um slanguryrði
sem oft væri gripið til í almennu
talmáli og gilti það trúlega um
margan manninn. Þess vegna taldi
hann nauðsynlegt að auka kennslu
og æfingu talaðs máls meðal skóla-
barna. Væri almennt talmál vandað
væri minni hætta á varanlegum
erlendum áhrifum.
Bergljót Baldursdóttir greindi frá
rannsókn á máltapi í erindi sínu um
máltöku og málbreytingar. Hefur
hún fylgst með íslensku á erlendri
grund í máli drengs og athugað
hvemig mál hans hefur þróast á
annan veg í erlendu umhverfi en
íslensku. Kemur það einkum fram
í því að hann hætti að nota beyging-
ar, notar einkum eina orðmynd í
stað þess að láta forsetningar og
sagnir stýra beygingum: “Ég fékk
ekki þessi mynd“, og “...með þessi
foringinn", voru dæmi sem hún
nefndi úr máli drengsins.
Af öðrum erindum má nefna at-
hugun Hrafnhildar Ragnarsdóttur
þar sem hún bar saman tímatilví-
sanir í sögum bama og fullorðinna.
Fékk hún 50 einstaklinga, 40 böm
á ýmsum aldri og 10 fullorðna til
að endursegja sögu. Yngstu börnin,
5 ára, lýstu einkum myndum er
fylgdu sögunni og hjá þeim var
ekki um eiginlegan söguþráð að
ræða en við 7 ára aldur minnka
þessar myndlýsingar og þeim slepp-
ir síðan alveg hjá eldri bömum og
fullorðnum.
Birna Arnbjörnsdóttir fjallaði um
flámæli og önnur fyrirbæri í vest-
ur-íslensku, Svavar Sigmundsson
ræddi um íslensku í samanburði við
önnur mál og kennslu í íslensku
fyrir útlendinga. Jörundur Hilmars-
son ræddi um langt e og upgmna
þess í germönsku og Kristján Arna-
son um eðli og uppmna hendinga
í dróttkvæðum hætti. Jón Aðal-
steinn Jónsson sagði frá hvernig
hann hóf athugun á íslensku hey-
skaparmáli og tók dæmi um fáein
orð er tengjast orfinu og Ámi Böð-
varsson fjallaði að lokum um
viðhorf Rasks til tungumála.
Japanska skipið í höfninni á Neskaupstað.
Neskaupstaður:
>
Utskipun á Japanssíldinni hafin
Neskaupstað.
TVÖ japönsk skip hafa komið
hingað með stuttu millibili til að
taka frosna síld og aðrar sjávar-
afurðir sem seldar hafa verið til
Japans. Nú er búið að skipa út
allri þeirri síld sem fryst hefur
verið til þessa, um 500 lestum,
en frystingu er haldið áfram.
í manneklunni sem hér er um
þessar mundir hafa ýmis félaga-
samtök gripið tækifærið og unnið
við útskipunina til fjáröflunar fyrir
starfsemi sína. Félagar úr blakdeild
Þróttar bmgðu sér í útskipun einn
daginn og á meðan eyddi hinn kín-
verski þjálfari þeirra tímanum í að
veiða sér í soðið á bryggjunni. Held-
ur var aflinn lítill en þó nóg í
matinn.
Þess má geta að sumir úr áhöfn
annars skipsins höfðu ekki komið
Fundur utanríkisviðskiptaráðherra Norðurlandanna:
Norðurlöndin sem sameigin—
legur markaður efst á baugi
Morgunblaðið/Júlíus
Utanríkisviðskiptaráðherrar Norðurlandanna á blaðamannafundi.
Taldir frá vinstri: Nils Wilhjelm, Danmörku, Pertti Salolainen, Finnl-
andi, Steingrímur Hermannsson, Karin Stoltenberg, Noregi, Anita
Gradin, Svíþjóð.
„Svona fundir eru mikilsverð-
ir. Þeir tengja saman Norður-
löndin í utanríkisviðskiptum
bæði sín á milli og einnig gagn-
vart umhverfinu, til dæmis
gagnvart EFTA og Efnahags-
bandalaginu," sagði Steingrímur
Hermannsson, utanríkisráð-
herra, í upphafi blaðamanna-
fundar, sem boðað var til með
utanríkisviðskiptaráðherrum
Norðurlandanna í gær, eftir fund
þeirra hérlendis.
Steingrímur sagði að á fundinum
hefði meðal annars verið rætt um
sameiginleg viðhorf Norðurland-
anna í útflutningsmálum, Norræna
útflutningssjóðinn og samstarf
Norðurlandanna varðandi GATT
eða hið almenna samkomulag um
tolla og viðskipti. „Auk þess hafa
mörg önnur mikilsverð mál borið
hér á góma, mikilsverð fyrir íslend-
inga í þeirri stöðu sem við erum í
í dag,“ sagði Steingrímur.
I fréttatilkynningu, sem gefin var
út að fundi utanríkisráðherranna
loknum, segir að hæst hafi borið í
umræðunum Norðurlöndin sem eitt
markaðssvæði og í þeim efnum sé
mikilvæg samvinnuáætlun um að
ryðja viðskiptahömlum úr vegi, sem
norræna ráðherranefndin hafi sarn-
þykkt á fundi sínum í febrúar í ár.
Á fundinum kom fram að viðskipta-
hömlum hefur fækkað og að reglur
eru tilbúnar sem koma til með að
einfalda viðskipti milli Norðurland-
anna. Ráðherrarnir fögnuðu þeim
árangri sem náðst hefði, en það
væri þörf á að ná árangri hvað
varðaði tollafgreiðslu, póstsending-
ar og varúðarmerkingar á fram-
leiðsluvörum. Þeir fólu embættis-
mannanefnd að útbúa áætlun um
það sem næst skyldi gera og skyldu
tillögur hennar liggja fyrir innan
sex mánaða. Samvinnuáætlunin sé
mikilvægur hlekkur í þróuninni að
sameiginlegum norrænum markaði
og sé í takt við þróunina í Evr-
ópubandalaginu.
í fréttatilkynningunni kemur
fram að viðskipti milli Norðurland-
anna hafa aukist síðan 1984,
einkum með tilliti til mikilvægustu
útflutningsgreina þjóðanna. Mark-
aðshlutdeild þeirra þar hafi aukist
meira en á fjarlægari mörkuðum.
Ráðherrarnir undirstrikuðu að með
aukinni samvinnu mætti auka út-
Þessar upplýsingar koma fram í
nýútkomnum VSÍ-tíðindum. Þar er
ennfremur gerður samanburður á
þróun meðaltímakaups frá ársbyrj-
un 1986 til loka þessa árs.
Samanburðurinn er þennig fram-
kvæmdur að meðaltímakaup í
hverju landi er reiknað yfir í SDR-
mynt og vísitölur gerðar úr þeim
tölum með 1. ársfjórðung 1986 sem
grunn. Niðurstaðan er sú að á ís-
landi hefur meðaltímakaup hækkað
um 68% samanborið við 15-29%
flutning til annarra landa og
skoruðu þeir á útflutningsráð land-
anna að leggja fram tillögur um
samvinnu. Þá lögðu ráðherramir til
að samnorræni útflutningssjóður-
inn, sem stofnað var til í tilrauna-
skyni árið 1982, verði til frambúðar.
hækkun á hinum Norðurlöndunum.
Þannig er hækkunin í Danmörku
29%, í Finnlandi 16% í Noregi 22%
og í Svíþjóð 15%.
Talið er að verðbólgan í Svíþjóð,
Danmörku og Finnlandi verði á bil-
inu 2-4% á þessu ári. í þessum
löndum mun því kaupmáttur auk-
ast, því talið er að laun muni hækka
um 6-10%. í Noregi hefur verð-
bólguhraðinn verið nálægt 10% og
má því reikna með óbreyttum kaup-
mætti þar.
Laun verkafólks og iðnaðarmanna:
Meðaltímakaup hækkar
um 68% á tveimur árum
LAUN verkafólks og iðnaðarmanna á íslandi hækka um 38% frá
fjórða ársfjórðungi ársins 1986 til fjórða ársfjórðungs í ár, sam-
kvæmt spá hagdeildar Vinnuveitendasambands íslands. Á sama
timabili munu laun í Danmörku hækka um 8-10%, í Finnlandi og
Svíþjóð um 6% og i Noregi um 8,2%, að mati hagdeilda vinnuveitenda-
sambandanna i viðkomandi löndum.
Búnaðarfélag íslands:
Fiskeldi áfram undir
landbúnaðarráðuneyti
Stofnaður sérstakur starfshópur
ráðunauta í f iskeldi
BÚNAÐARFÉLAG íslands hefur myndað starfshóp ráðunauta i fisk-
eldi. Óskar ísfeld Sigurðsson fiskeldisráðunautur Búnaðarfélagsins
veitir hópnum forystu en með honum eru Magnús Sigsteinsson bygg-
inga- og bútækniráðunautur, Haraldur Árnason vatnsveituráðunaut-
ur og Ketill A. Hannesson hagfræðiráðunautur. Stjórn Búnaðarfé-
lagsins hefur sent frá sér ályktun þar sem fram kemur að stjórnin
leggst gegn því að fiskeldismál verði sett undir sjávarútvegsráðuney-
tið, heldur styður eindregið að þau heyri áfram undir landbúnaðar-
ráðuneytið.
Stjómin færir fyrir því meðal
annars eftirfarandi rök:
Fiskeldi er í eðli sínu búskapur
hliðstæður öðram greinum ræktun-
ar á ýmsum dýrategundum. Um
hann gilda sömu lögmál og við eldi
annarra dýrategunda, t.d. hvað
varðar kynbætur og fóðrun.
Þær stofnanir sem nú starfa og
búa yfír mestri þekkingu og reynslu
á fískeldi heyra flestar undir land-
búnaðarráðuneytið, svo sem Veiði-
málastofnun, Rannsóknastofnun
landbúnaðarins, dýralæknaþjónust-
an og físksjúkdómanefnd, Búnaðar-
félag íslands og bændaskólamir.
Fiskeldi snertir á margan hátt
annan búskap, svo sem í sambandi
við nýtingu lands, vatna og veiði-
hlunninda og gæti það leitt til
árekstra ef farið væri með mál þess
af öðram aðilum en þau heyra nú
undir.
Fiskeldi er ein af þeim nýgreinum
í búskap sem líkleg er til að skapa
aukna atvinnu í sveitum og mikil-
vægt er að hún verði tekin upp af
bændum þar sem náttúraleg skil-
yrði leyfa.
Búnaðarfélagið hvetur til sam-
starfs þeirra aðila sem nú stunda
fískeldi, en þar era bændur í mörg-
um tilfellum eigendur að öllu leyti
eða að hluta. Sérstaklega er hvatt
til samvinnu á milli allra stofnana
sem lagt geta fískeldi lið, hvort sem
er með rannsóknum, kennslu eða
leiðbeiningum.
Þjálfarinn veiðir sér í soðið.
heim til sín í tvö ár, en halda nú
heim á leið eftir að hafa lestað
hérlendis.
— Ágúst.