Morgunblaðið - 25.11.1987, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987
Dagstjarnan
skírð Sól-
bakur EA 305
NÝJASTI tog'ari Útgerðarfélags
Akureyringa, Dagstjarnan frá
Keflavík, hefur verið skírður
Sóibakur og hefur hann hlotið
einkennisstafina EA 305. Sólbak-
ur var reyndar fyrsti skuttogar-
inn sem útgerðarfélagið
eignaðist eftir gömlu síðutogar-
ana. Sólbak keypti ÚA árið 1972
frá Frakklandi, en honum var
lagt í ágúst 1982 og síðan seldur
í brotajárn.
Vinnuslys
í slippnum
VINNUSLYS varð um borð í
Hvanney frá Hornafirði sem nú
er hjá Slippstöðinni á Akureyri.
Maður um þrítugt féll um tvo
metra niður í lest skipsins klukk-
an rúmlega 8.00 í gærmorgun.
Hann skaddaðist á hné og ökkla
og var fluttur á Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri. Maðurinn var að
vinna uppi á vinnupöllum í lestinni
er óhappið varð.
Hvanney er í lengingu hjá Slipp-
stöðinni auk þess sem verið er að
byggja yfír hana og hækka stýris-
húsið.
Gerist áskrifendur, það borgar sig. Tvær bækur í mánuði
kosta aðeins kr. 620. Hringið í áskriftarsíma 96-24966.
nýjar b/ekur nýjar b/ekur nýjar bækur nýjar baekur nýjar bækur
Vilhelm Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri ÚA, sagði í samtali
við Morgunblaðið að nýi Sólbakur-
inn væri ennþá í slipp og ekki væri
ákveðið ennþá hvenær skipið héldi
til veiða þó að menn gerðu sér von-
ir um'að það gæti haldið á miðin
fyrir áramót. Þá hefur hvorki verið
ráðinn skipstjóri né áhöfn á Sólbak
enn sem komið er.
Morgunblaðið/GSV
Hlið sem notað er við að loka akureyrska rúntinum um helgar.
Lokun rúntsins mótmælt
Sólbakur EA.
„Ef íbúar miðbæjarins sváfu
ekki fyrir gamla rúntinum, hef-
ur þeim örugglega ekki orðið
svefnsamt eftir að rúntjnum var
lokað í fyrrakvöld. Ökumenn
lágu á flautum sínum í rúma tvo
tíma eins og þeir ættu lífið að
leysa eftir að rúntinum var lok-
að. Bærinn var fullur af bílum
og ungum ökumönnum." Ég
held þeir hafi ekki vitað hverju
þeir voru eiginlega að mót-
mæla. Einn byrjaði og þá fylgdu
hinir i kjölfarið," sagði lög-
regluvarðstjóri á Akureyri i
samtali við Morgunbiaðið í gær.
Eins og fram hefur komið í
fréttum var samþykkt í bæjar-
stjóm fyrir skömmu að rúntinum
á Akureyri skyldi lokað frá kl.
22.00 til 6.00 allar nætur vikunn-
ar vegna beiðni frá íbúum í
nágrenni miðbæjarins. Þeir kvört-
uðu um ónæði og hávaða um
nætur. „Sumir ökumannanna óku
mjög ógætilega í fyrrakvöld og
aðrir brutu umferðarlög með ein-
stefnuakstri. Við kærðum heilan
helling af mönnum fyrst og fremst
fyrir glannaakstur og umferðar-
brot. Hinsvegar var ekki um neina
ölvun að ræða enda var markmið-
ið fyrst og fremst það að halda
vöku fyrir því fólki sem hafði far-
ið fram á að rúntinum yrði lokað,"
sagði varðstjóri.
Krossanes verksmiðj -
an kaupir Súluna EA
á 160 milljónir króna
Krossanesverksmiðjan keypti
eitt aflasælasta loðnuskip flotans
í gær, Súluna EA 300, af Leó
Sigurðssyni, eiganda útgerðar-
fyrirtækisins Súlur hf. Kaupverð
skipsins nemur 160 milljónum
króna og eru þá veiðarfæri og
varahlutir taldir með.
Krossanesverksmiðjan er alfarið
í eigu Akureyrarbæjar og er Sigfús
Jónsson bæjarstjóri stjórnarformað-
ur hennar. „Við erum búnir að vera
að svipast eftir skipi síðan í haust.
Verksmiðjan var hráefnislaus fram-
an af loðnuvertíð þó að næg loðna
hefði verið á miðunum. Skipin voru
hinsvegar í öðru, svo sem í rækju.
Við réðumst í kaupin til að lengja
starfstíma loðnuverksmiðjunnar og
( öðru lagi erum við að koma í veg
fyrir að skipið verði selt úr bænum
og gaf eigandi skipsins okkur fyrst
kost á kaupum. Þá erum við auðvit-
að hræddir um að loðnuverksmiðj-
urnar fari í auknum mæli að festa
kaup á skipum og er þá ákveðið
öryggi í því að hafa eitt skip, þó
það dugi hvergi til ef í harða sam-
keppni fer,“ sagði Sigfús.
Nýir eigendur taka við Súlunni
næsta þriðjudag. Súlan var smíðað
í Noregi árið 1967 og hefur ávallt
verið í eigu Leós. Það er 391
brúttórúmlest að stærð og með
1800 hestafla vél. Síðan hefur skip-
ið verið lengt, vélarskipti hafa farið
fram og það yfirbyggt. Sigfús sagði
að skipinu hafí verið mjög vel við
haldið og myndi nafn skipsins fylgja
með í kaupunum. Áhöfn verður hin
sama á skipinu og verið hefur, en
skipstjóri er Bjami Bjamason.
Loftplata
hrundi
FJÖGUR hundruð fermetra
loftplata hrundi siðastliðinn
laugardag eftir að uppsteypu
hennar lauk í nýju fiskverk-
unarhúsi Auðbjargar sf. á
Hauganesi. Talið er að tjón
hafi numið um hálfri milljón
króna.
Ekki urðu nein slys á fólki,
en vinnu var nýlokið þegar
óhappið varð og menn ekki
famir af staðnum. Rúmmál
steypunnar mun hafa verið 90
og þykkt plötunnar 25 sm.
Hjálparsveit skáta á Akureyri
var kölluð til svo hægt yrði að
moka út steypunni áður en hún
harðnaði og auk hennar munu
heimaaðilar hafa tekið til hend-
inni. Að sögn rannsóknarlög-
reglunnar á Akureyri mun
uppslátturinn undir plötunni
hafa gefið sig með fyrrgreind-
um afleiðingum.
nýjar bjekur nýjar bækur nýjar b/ekur nýjar b/ekur nýjar b/ekur
Tvær nýjar bækur
Allt fyrir bílinn
Látið yfírfara bílinn
fyrir veturinn.
Vandið valið -
Við vöndum verkin.
þÓRSIWMR HF.
Við Tryggvabraul, Akurevri - Sími 22700
GLOS
■ y
Jíj
uy
Vfn-
g/ösin
komin
aftur.
VtSA
KOMPAN
SKIPAGÖTU 2 ■ AKUREYRII
SÍMI 96-2 59 17
Rjúpna-
veiðimenn
Eigum öryggisblys í átta
skota pakkningum.
Póstsendum um land allt.
SANDFELL HF
Veiðarfæri - útgerðarvörur
v/Laufásgötu, sími 96-26120
. er\
BÓKVAL