Morgunblaðið - 25.11.1987, Qupperneq 44
44
t’ ■
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987
Vilhelmína S. Tómas-
dóttir - Minning
Fædd 21. september 1908
Dáin 13. nóvember 1987
Lífið gengur sinn vanagang. Ein
hringing og enn einu sinni hefur
sláttumaðurinn mikli höggvið í
frændgarðinn. Hún Villa frænka
er dáin. Víst bregður við, en þó
ekki eins óvænt og oft áður — því
hér féll ekki í fyrsta höggi.
Villa, réttu nafni Vilhelmína
Soffía Tómasdóttir, var yngst af
sex bömum hjónanna Tómasar
Jónssonar skútuskipstjóra og síðar
fiskmatsmanns og Vilhelmínu
Soffíu Sveinsdóttur konu hans. Hún
fæddist 21. september 1908 og ólst
upp á heimili foreldra sinna á
Bræðraborgarstíg 35 í Reykjavík.
Systkin hennar voru Louisa, sem
var elst, gift Ásgrími Gíslasyni skip-
stjóra og síðar vörubifreiðastjóra
og eru þau bæði dáin, þá Oddur
Júlíus, málarameistari, fráskilinn,
nú vistmaður á Víðinesi, Sveinn
málarameistari, ekkja hans er
Sigríður Alexandersdóttir, Þuríður,
ekkja Camillusar Bjamasonar mál-
arameistara, og Jóna Guðbjörg,
ekkja Guðna Jóhannssonar, fisk-
matsmanns. Þá var vesturbærinn
færri götur og stærri tún en ungt
fólk í dag gerir sér grein fyrir, og
systkinin af Bræðraborgarstígnum
vel kunnug og þekkt af íbúum, en
föðuramma þeirra og -afi, Guðbjörg
og Jón, bjuggu í Bræðraborg, sem
gatan er kennd við, en móðurafi
og -amma á Grímsstaðarholtinu.
Tómas faðir þeirra var þrjú ár
fiskmatsmaður í Viðey um 1925 og
bjó fjölskyldan þar og minntist Vil-
helmína þeirra ára ætíð með hlýju.
Ung hóf Villa störf í atvinnulífinu
og vann alla tíð við sælgætisiðnað,
fyrst hjá Blöndahl og síðar Nóá og
'' Síríusi allt fram til 1940, að hún
hóf búskap með eiginmanni sínum,
og aftur eftir að hún varð ekkja
1969 hjá Sælgætisgerðinni Opal og
vann þar fram til 1977.
Vilhelmína giftist ekkjumanni,
Sigurgeiri Steindórssyni atvinnubif-
reiðastjóra 1941, en hann hafði
misst konu sína af barnsfararsótt.
Tók hún að sér tvær dætur hans
af fyrra hjónabandi og ól upp sem
sínar eigin og reyndist þeim í alla
staði sem besta móðir. Önnur
þeirra, Elsa Steinunn fædd 1932,
bjó með henni alia ævi síðan og
unnu þær saman hjá Opal. Urðu
þær svo samrýmdar að nöfnin Villa
og Elsa voru ávallt kveðin saman
líkt og tvö vísuorð. Voru þær mjög
vinsælar heim að sækja og einkum
af bömum því bamgóðar vom þær
með afbrigðum og prúðmannleg
hegðun oft launuð með nammi-
mola. Svo einkennilega vill til að
þær mæðgur veikjast hvor um sig
af illkynja sjúkdómi snemma á
þessu ári, í hvorugu tilfellinu til
lækning, falla báðar frá með liðlega
tveggja mánaða millibili. Einkenni-
leg eru forlögin. Hin dóttirin er
Thelma fædd 1934, gift Gunnari
Guðmundssyni trésmið og eiga þau
sex böm. Þau Vilhelmína og Sigur-
geir hófu búskap á Hofsvallagötu
18, Reykjavík og bjuggu þar alla
ævi. Þeim varð þriggja bama auð-
ið. Elstur er Sigurgeir Vilhelm,
vinnuvélaeigandi, fæddur 1942,
kvæntur Elínu Valgerði Guðmunds-
dóttur og eiga þau tvö böm, en
hann átti eina dóttur fyrir. Þá kom
Halldór, fæddur 1948, en hann dó
10 mánaða gamall. Yngstur er svo
Halldór Melsteð, flugvélstjóri,
kvæntur Elísabetu Þórólfsdóttur og
em þeirra böm tvö. Sigurgeir mað-
ur Villu lést af slysförum 1969.
Villa frænka var alla tíð ein af
þessum rólegu en ákveðnu konum,
sem öllum þótti svo gott að leita
til. Hún var ráðagóð, stappaði
gjaman stáli í fólk og var ákveðin
í röddinni fyndist henni bera á upp-
gjöf. Hún lagði vel til allra mála
og aldrei heyrði ég hana tala illa
um nokkum mann, og þoldi sjálf
engum slíkt í sín eyru. Vildi þó
nefna hluti réttu nafni og gaf ekki
eftir þumlung ef á hana eða ætt-
ingja var hallað. Er því mikill missir
þeirra sem næstir henni standa.
Villa bar reisn, var tíguleg og virðu-
leg, hlustaði vel áður en hún lagði
til mála. I vinahópi var hún hrókur
fagnaðar, og einkar góð heim á
Hofsvallagötu að sækja og þar glatt
á hjalla. Ekki var þrautalaus henn-
ar ævi þó einungis væri horft til
þess sem að framan getur. En svona
konur kvarta ekki. Jafnvel í eigin
þrengingum átti hún nóg handa
öðrum að miðla, bæði andlegu og
veraldlegu. Og framkoma hennar
og yfirbragð skóp henni hvarvetna
virðingu. Á síðustu dögum ævi
sinnar ræddi hún ekki eigin líðan,
heldur spurðist um og ráðlagði
varðandi aðra. Þessir fágætu eigin-
leikar em þess eðlis, að viðkomandi
býr með manni í huga alla ævi, líkt
og hefði aldrei dáið.
Eg, líkt og aðrir, naut þess að
eiga Villu að frænku. Eftir heim-
sókn til hennar fór maður fullur
sjálfstrausts, því hún byggði upp.
Einnig rækti hún gamla siði og
venjur og ættartengsl. Hafði hún
þannig að hluta fóstrað upp föður
minn sem ólst upp hjá afa sínum
og ömmu og því að hluta undir
hennar umsjá því tólf ár voru á
milli þeirra. Sýndi Villa fjölskyldu
minni alla tíð mikla tryggð, líkt og
öðrum, og skal það þakkað.
Nú er hljótt á Hofsvallagötunni.
Villa og Elsa hafa svo snögglega
kvatt þennan heim. Baráttan var
stutt en hörð. Kvatt af sömu reisn
og lifað var. En langt yfir dauða
og gröf vakir minningin og æ ljós-
ari verður viska orðanna; En einn
ég veit að aldrei deyr, orðstírr of
genginn hvem.
Fyrir hönd fjölskyldu minnar
votta ég bömum og ættingjum mína
dýpstu samúðarkveðju og bið Guð
að geyma góðar frænkur.
Arnar Hauksson
I dag, miðvikudaginn 25. nóvem-
ber, kveðjum við ömmu okkar
Vilhelmínu Soffíu Tómasdóttur
hinstu kveðju. Hún lést á Borg-
arspítalanum 13. nóvember. Það er
sárt til þess að vita að við fáum
hvorki að sjá hana né heyra fram-
ar, en í hjörtum okkar mun hún
ávallt eiga sess því við minnumst
hennar með hlýhug.
Amma Villa var ákaflega hugul-
söm og ástrík kona. Alltaf lét amma
í sér heyra ef einhver okkar átti
um sárt að binda vegna veikinda
eða annars og gaf hún okkur heil-
ræði góð. Það var ætíð gott að
heimsækja ömmu á heimili hennar
á Hofsvallagötu 18, þar sem hún
bjó ásamt fósturdóttur sinni Elsu
Steinunni Sigurgeirsdóttur sem hún
tók að sér er hún var aðeins sjö
ára gömul, en afa okkar Sigurgeir
Steindórsson missti hún fyrir rúm-
um átján árum.
Þær reyndust hvor annarri vel,
voru góðir félagar og mjög sam-
rýmdar. Var það því mikill söknuður
hjá ömmu er Elsa féll frá fyrir að-
eins tveimur og hálfum mánuði
síðan. Ömmu og Elsu vantaði aldrei
er íjölskyldan kom saman í af-
mælum og á öðrum mannamótum
og var það með þeirra bestu stund-
um. Amma var mjög viljasterk og
staðráðin í að láta sér batna af sjúk-
dómi sínum en eftir að hún missti
dóttur sína var ekki laust við að
svolítillar uppgjafar gætti.
Hún var dugleg að heimsækja
Elsu á spítalann og veitti henni
mikinn styrk í veikindum hennar
þar til hún sjálf lagðist á sjúkrabeð
sitt um miðjan júlí síðastliðinn. Er
það mikill missir hjá íjölskyldunni
að bæði amma Villa og Elsa frænka
skulu vera kallaðar burt með aðeins
tveggja og hálfsmánaðar bili. Við
vitum nú að þær hafa náð saman
á ný og kveðjum þær með söknuði
um leið og við biðjum góðan Guð
að geyma þær.
Fyrir hönd barnabama
og bamabamabama
Margrét H. Gunnarsdóttir.
Þó kveðji vinur einn og einn
og aðrir týnist mér,
ég á þann vin, sem ekki bregst
og aldrei burtu fer.
Þó styttist dagur, daprist Ijós
og dimmi meir og meir,
ég þekki ljós, sem logar skært,
það ljós, er aldrei deyr.
(Sálmur Margrét Jónsdóttir)
Kær vinkona er kvödd, Vil-
helmína Tómasdóttir, Hofsvalla-
götu 18, sem andaðist 13. nóvember
í Borgarspítalanum eftir þriggja og
hálfsmánaðar legu.
Þá sækja minningarnar að, því
að við höfiim þekkst yfir 40 ár og
mann hennar Sigurgeir þekkti ég
sama tíma og af öllu góðu. Og eft-
ir að við hættum að vinna úti fómm
við að fara saman á daginn út að
fá okkur kaffí og sjá og tala við
kunningja, bæði á kaffíhús og út
að borða saman. Og flesta daga
töluðumst við við í síma. Marga
daga og mörg kvöld fór ég út á
Hofsvallagötu 18 til hennar Elsu
og dóttur hennar, þær bjuggu sam-
an. Hún andaðist 31. ágúst, svo
ekki var langt á milli mæðgnanna.
Sakna ég þeirra því mikið og kveð
þau öll.
Blessuð sé minning þeirra allra,
hvíli þau í friði. Ættingjum öllum
og bömum þeirra sendi ég samúðar-
kveðju.
Sísí
Lánasjóður íslenskra námsmanna:
Afgreiðslu meirihluta
mótmælt
Meirihluti stjómar Lánasjóðs
íslenskra námsmanna hefur nú vísað
frá tillögu fulltrúa námsmanna í stjóm
sjóðsins um að gerðar verði nauðsyn-
legar leiðréttingar á námslánum.
Stúdentaráð Háskóla Islands fordæm-
ir þessa afgreiðslu meirihluta stjómar-
innar og bendir á að eitt af hlutverkum
hennar er að tryggja framkvæmd lag-
anna um sjóðinn og þar með að honum
sé gert kleift að sinna hlutverki sínu.
Stúdentaráð skorar á stjómvöld að
viðurkenna nauðsyn þess að náms-
mönnum sé tryggð ömgg afkoma
meðan á námi stendur. Að öðmm
kosti er allt tal um jafnrétti til náms
hjóm eitt.
MORGUNBLAÐHTU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Stúdentaráði íslands:
Stúdentaráð Háskóla íslands telur
það vera hlutverk Lánasjóðs íslenskra
námsmanna að tryggja jafnan rétt
allra til að afla sér menntunar. Til
þess að sjóðurinn fái sinnt þessu hlut-
verki sínu verða námslán að nægja
námsmönnum til að standa straum af
eðlilegum náms- og framfærslukostn-
aði. I dag em námslánin hins vegar
löngu úr takt við þann kostnað sem
námsmenn þurfa að mæta meðan á
námi stendur. Þetta stafar meðal ann-
ars af því að námslán fylgdu ekki
verðlagsþróun í 9 mánuði á síðasta ári.
t
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
Sjálfstæðiskvennafélag
Borgarfjarðar
heldur aðalfund sinn þann 30. nóvember kl. 21.00 i Sjálfstæðihús-
inu, Brákarbraut 1, Borgarnesi.
Fundarefni:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Vetrarstarfið
3) Fréttir af formanna- og flokksráösfundi.
4) Inntaka nýrra félaga.
5) Önnur mál.
Konur mætið með gesti!
Sjórnin.
FUS, Njarðvík
Kynningarfundur fyrir vetrarstarf félagsins
verður haldinn miðvikudaginn 25. nóv. kl.
20.30.
Gestur fundarins verður Árni Sigfússon,
formaður SUS og mun hann t.d. ræða um
hvaöa áhrif ungt fólk getur haft í bæjarmálum.
Veitingar verða á vægu verði.
Allt ungt fólk á Suðurnesjum er sérstaklega
boðið velkomið.
Stjórn Féiags ungra sjálfstæðismanna,
Njarðvik.
Aðalfundur
sjálfstæðiskvennafélagsins Varnar á Akureyri
verður haldinn í húsakynnum Sjálfstæöis-
flokksins í Kaupangi fimmtudaginn 26.
nóvember nk. og hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf.
2. Bergljót Rafnar ræðir bæjarmálin.
Stjórnin.
Austurland
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Aust-
urlandskjördæmi boðar til fundar i Hótel
Valaskjálf, Egilsstöðum, laugardaginn 28.
nóvember nk. og hef st fundurinn kl. 14.00.
Málefni fundarins veröa:
Stjórnmálaviðhorfið og byggðamálin.
Frummælendur verða:
Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra og
formaður Sjálfstæðisflokksins, Árni Sig-
fússon, formaður SUS, Sverrir Hermanns-
son, alþingismaður og Egill Jónsson,
alþingismaöur.
Allt sjálfstæðisfólk er hvatt til að mæta.
Stjórn kjördæmisráös Sjálfstæðisflokksins
i Austurlandskjördæmi.
Keflavík - félagsvist
Félagsvist sjálfstæðisfélaganna i Keflavik verður haldin miðvikudag-
inn 25. nóvember nk. kl. 20.30 i lönsveinahúsinu, Tjarnargötu 7.
Félagar fjölmenniö.
Stjórnir sjálfstæðisfélaganna.
Austurland
- haustfagnaður
Haustfagnaður Sjálfstæðisflokksins á Aust-
urlandi verður haldinn í Hótel Valaskjálf,
Egilsstöðum, laugardaginn 28. nóvember
nk. og hefst hann með boröhaldi kl. 20.00
og siðan verður dansað fram eftir nóttu.
Gestir á hátiðinni verða:
Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra, sem
flytur ávarp, alþingismennirnir, Sverrir Her-
mannsson og Egill Jónsson og Árni Sig-
fússon, formaður SUS.
Allt sjálfstæðisfólk er hvatt til að mæta og
taka með sér gesti.
Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins
í austurlandskjörmi.
'I'