Morgunblaðið - 25.11.1987, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987
49
AF ERLENDUM VETTVANGI
Er feitmetið jafn hættulegt
heilsunni o g reykingarnar?
Á sjöunda áratugtium sýndu vísindamenn fram á með óyggjandi
hætti, að tóbaksreykingar stórykju hættuna á lungnakrabba-
meini, og varð það til þess, að skattar á sígarettum og öðru
tóbaki voru hækkaðir verulega og viðvaranir látnar fylgja pökk-
unum. Svokölluðum reyklausum svæðum hefur fjölgað mikið og
við liggur, að reykingamenn séu litnir hornauga á mannamótum.
Nú eru margir vísindamenn farnir að halda því fram, að feitmet-
isbrasið, sem Vesturlandamenn eru svo hrifnir af, sé ekki síðra
sígarettunum að þessu leyti og leggi raunar jafn marga að velli
árlega. Baráttan gegn feitmetinu hefur þó ekki komist í hálf-
kvisti við áróðurinn gegn tóbakinu en það kann að vera að
breytast.
Málið gegn fitunni eða kól-
esterólinu hefur verið lengi
á döfínni en nú má heita, að loka-
sönnunin liggi fyrir og stjóm-
málamenn virðast vera að taka
við sér. í síðasta mánuði kom
saman í Washington í Banda-
ríkjunum nefnd eða ráð skipað
fulltrúum 25 samtaka, allt frá
bandaríska læknafélaginu til
ýmissa neytendasamtaka, og var
þá samþykkt að leggja til, að
hver einn og einasti Bandaríkja-
maður léti athuga kólesterólmagn
í blóði sínu.
Fylgdi það með, að þeir, sem
væru fyrir ofan mörkin (200
milligrömm af kólesteróli í desi-
lítra blóðs), skyldu breyta um
mataræði og ef það hrifi ekki að
verða sér þá úti um viðeigandi
lyf. Samkvæmt útreikningum
nefndarinnar er einn af hveijum
fjórum miðaldra Bandaríkjamönn-
um fyrir ofan fyrmefnd mörk.
í Evrópu er einnig komin nokk-
ur hreyfing á málin og fyrir
skömmu kom saman í Strasbourg
hópur manna til að skipuleggja
baréttuna gegn kólesterólinu inn-
an Evrópubandalagsins.
Sterkar líkur eru á, að hjarta-
sjúkdómar stafi að miklu íeyti af
kólesteróli. Böm, sem pjást af
sjúkdómnum „hypercholesterol-
emia“, hafa rnikið of 'cólesteróli í
bióði állt frá fæðingu, :'á rnjög oft
hjartasjúkdóma ilður en þau lcom-
ast á unglingsár. Japanir, sem eru
meðal mestu reykingamanna í
heimi og hafa yfirleitt háan blóð-
þrýsting, verða Iiins vegar (iltölu-
íega rijaldan fyrir hjartaáfalli. Er
það rakið til jiess, uð þeir éta
mikinn fisk en Ittið 'cjöt Japanir,
sem flytjast til Kalifomíu og taka
upp mataræðið, sem þar tíðkast,
fara aftur á móti fljótt að þjást
af sömu sjúkdómum og annað
fólk á þeim slóðum.
Líffræðilegar sannanir um sök
kólesterólsins verða mönnum
stöðugt ljósari.Árið 1984 sýndu
tveir vísindamenn við háskólann
í Dallas, dr. Michael Brown og
dr. Joseph Goldstein, fram á
hvemig kólesterólið fer að því að
skaða hjartað og fengu Nóbels-
verðlaunin fyrir vikið. Kólesterólið
í blóðinu er flokkað í svokölluð
„lipoprótein" og í mönnum eru
um 80% af því í flokki, sem kall-
ast LDLs og hafa lítinn þéttleika.
Þau bera kólesterólið frá melting-
arfæmm til annarra vefja (
líkamanum þar sem það er notað
til ýmissa gagnlegra hluta, t.d.
við myndun frumuveggja og
hormóna. Ef of mikið er af LDLs
setjast þau innan á æðamar og
haiðna þar. Afleiðingin er sú, að
kransæðamar, sem flytja hjart-
anu blóð, stíflast. Hjartaáfallið
felst í því, að hjartanu berst ekki
nóg af súrefnisríku blóði og hluti
vöðvans deyr.
Fyrstu beinu sannanimar um
að kólesteról veldur hjartaáföllum
komu einnig fram árið 1984 og
síðan hafa aðrar rannsóknir ieitt
bað sama í Ijós. Vom niðurstöður
einnar slíkrar rannsóknar, nem
fram fór i Finnlandi um fimm ára
skeið, birtar fyrir nokkmm dögum
en liún sýndi, að „Wamer-Lam-
Iiert’s gemfibozil", lyf gegn
kólesteróli, minnkaði lyartaáföll
meðd miðaldra manna með of
mikið icólesteról um 34%. Rann-
sóknin ataðfesti Síka í fyrsta ainn,
að LDLs er sökudólgurinn, og að
auki, að HDLs, annar hópur lipo-
próteina, sem flytur kólesteról,
getur vemdað menn fyrir hjarta-
áföllum. HDLs sér um að losa
lifrina við umframmagn af kól-
esteróli.
Þessar röksemdir gegn kólest-
eróli hrína þó ekki á' öllum og
má nefna sem dæmi nýútkomna
bók eftir breskan lækni, dr. James
Le Fanu. Efast hann um, að nokk-
urt samband sé á milli kólesteróls
og hjartasjúkdóma og raunar, að
nokkurt samband sé yfirleitt á
milli mataræðis og sjúkdóma.
Það er líka nefnt til, að þótt
Japanir í Bandaríkjunum verði
oftar fyrir hjartaáfalli en þeir, sem
búa í Japan, fái þeir aftur á móti
sjaldnar magakrabba og heila-
blóðfall. Það væri því unnt að
koma með þau rök, að feitmetið
sé heilsusamlegt að þessu leyti.
Frakkar og Finnar neyta um
það bil jafn mikillar fitu en samt
er Finnum fímm sinnum hættara
við að deyja úr hjartasjúkdómum
en Frökkum. Auk þess eru engar
beinar sannanir fyrir, að breytt
mataræði geti dregið úr dauðs-
föllum vegna hjartasjúkdóma —
nema þegar feitmetinu er alger-
lega kastað fyrir róða, kjöti,
eggjum og mjólk. Hvað sem þessu
líður hafa a.m.k. 40 heilbrigðis-
stofnanir og læknasamtök slegið
því föstu, að of mikið kólesteról
í blóði sé bein orsök þjartasjúk-
dóma.
Þeir, sem ætla að segja kólest-
erólinu stríð á hendur, munu
komast að raun um, að mörg ljón
eru í veginum. Aðferðir við að
mæla kólesterói eru t.d. bæði óná-
kvæmar og erfiðar í framkvæmd.
Tveir næringarfræðingar, dr. |
Mark nHegsted og dr. Robert
Nicolisi, Uomust að því, að við i
kólesterólmælingar í sama fólkinu |
getur ;nunað 26-50 stigum frá
ainni nælingu vil annarrar og við
lcönnun arið 1986 & 6.000 iækna-
og i’annsóknarstöðum í Banda-
•fíyunum nýndi það eig, að J7%
beirra gátu ekki inælt kólesteról-
nagnið íákvæmlega.
Heimild: The Sooaomisl)
Útflutningsfyrirtæki sem framleiðir um 100.000
tonn á ári af stálköðlum vill selja framleiðslu sína
á íslandi. Fyrirtækið sérhæfir sig í stálköðlum til
fiskveiða og flytur út um 50% af framleiðslunni.
Þeirleitaað: '
- mjög góðum umboðsmanni
- möguleika á að komast í samband við mann,
jafnvel meðeiganda, sem hefur reynslu ífiskiðn-
aði og hefur áhuga á að setja á stofn fyrirtæki
sem tengist fiskiðnaði.
Ef þið hafið áhuga á að hitta okkur á íslandi vin-
samlegast hafið samband við:
FERRO NOVA STAHL G.M.B.H.
Postfach 101235
D-4300 ESSEN-1
WEST GERMANY
AUSTURBÆR
Lindargata 39-63 o.fl.
Skipholt 1 -38
Skipholt 40-50
UTHVERFI
Skeifan
Háagerði
Njörvasund
Birkihlíð
VESTURBÆR
Ægisíða 80-98 o.fl.
Nýlendugata
Einarsnes
' Látraströnd
Skildinganes
SELTJNES
Sæbraut
Ystibæro.fl.
KÓPAVOGUR
Holtagerði
Skjólbraut
Kársnesbraut 77-139
GARÐABÆR
Háholt
Hrísholt
Eskiholt