Morgunblaðið - 25.11.1987, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987
Hugleiðing um erfðasynd,
skírn og barnaskírn
eftírJan Habets
Þessari grein var fyrst og fremst
ætlað að flalla um bamaskímina.
En er bamaskímin ekki óaðskiljan-
leg frá skíraarhugtakinu sem slíku
og jafnframt erfðasyndinni?
Skíminni er þó ætlað að frelsa okk-
ur frá erfðasyndinni. Hvað er þá
„erfðasynd"? Hér mætir okkur sann-
kallaður borgarísjaki spuminga og
vandamála. Þegar hugtakið erfða-
synd ber á góma meðal okkar
kristinna manna, þá verður okkur
fyrst hugsað til Adams og Evu.
Hver vom þau eiginlega? Hvenær
voru þau uppi? Fyrir 6000 ámm, eða
fyrir 600.000 ámm, eða er ef til
vill enn lengra frá því þau vom uppi?
Ef til vill hafið þið, eins og ég, séð
tum nokkum í Jeríkóborg. Þessi
tum nær 22 lögum mannvistarleifa
niður í jörðina. Vísindamenn segja,
að þessi tum sé frá sjöunda ár-
þúsundi fyrir Krists burð. Af þessu
má ráða, að þá þegar vom til um
borgir. Og hveijar em skoðanir okk-
ar um Paradís? Var Paradís ef til
vill í Mesopotamíu, við fljótin Tígris
og Efrat? Hvemig er eiginlega hátt-
að upphafi mannkyns? Er mannkyn
r r komið frá einum kynþætti eða fleir-
um? Er hægt að samrýma. það
biblíunni, að maðurinn eigi upphaf
sitt í fleiri en einum kynþætti?
Hvemig eigum við að skilja Biblí-
una? Hvað vissi sá er ritaði fyrstu
Mósebók um sköpunina, og hvemig
hafði honum áskotnast þessi vitn-
eskja? Hver er boðskapur þessarar
sögu um sköpun fyrsta mannsins
úr leir jarðarinnar, og sköpun fyrstu
konunnar úr rifi þessa sama manns?
Hvemig ber okkur að skilja Biblí-
una? Er til eitthvert það yfírvald,
sem getur sagt mér hvaða bækur
séu yfirleitt Guðs orð, þ.e.a.s. inn-
blásnar af Guði, og hverjar ekki, og
er fært um, að raunar skylt að svara
fyrir mig torráðnum spumingum?
Eða er Biblían útlæg gerr? Á ég að
styðjast við grísku Biblíuþýðinguna
frá 2. öld fyrir Krist (Septuagint;
' sjötíumannaþýðingin) sem viðmiðun,
þá hina sömu og Pálí og postulamir
notuðu, eða Júdeubiblíu rabbínanna
í Jamnía (70 e. Kr.), eins og Lúther
gerði að sinni mælistiku? Eða á ég
gera mér mína eigin Biblíu, og styðj-
ast við þá regluna, að nota einungis
„það sem boðar Krist", þ.e.a.s. bend-
ir til Krists? Eða bý ég sjálfur til
reglur um innblástur og túlkun á
—'s, Biblíunni? Að lokum spyr ég: Hefur
Creda
tauþurrkarar
CompactR. 16.270 stgr.
Reversair kr. 22.356 stgr.
Sensair kr. 29.808 stgr.
Söluaðilar:
Viðja, Kópavogi, s. 44444
Rafbúðin, Hafnarfirði, s. 53020
Stapafell, Keflavik, s. 12300
Vörumarkaðurinn, Kringlunnl, s.
685440
GrimurogÁmi, Húsavik.s. 41600
Rafsel, Seifossi, s. 1439
Sjónver, Vestmannaeyjum, s. 2570
Rafland.Akureyri.s. 25010
Blómsturvellir, Hellissandi, s. 66655
Creda-iaboðið, #
Kaftckjarenluísltwis,
BeytjantsÍMÍ 88-8640.
Jesús yfirgefið hjörð sína, kirkju
sína? Verður sérhver sauður að
ákveða fyrir sig hvort það sé heil-
næmt gras, sem honum stendur til
boða? Hvað þýða þessi orð Jesú: „Sá
sem á yður hlýðir, hlýðir á mig, og
sá sem yður hafnar, hafnar mér,“
og ennfremur þessi orð: „Ég er með
yður alla daga, allt til enda verald-
ar.“ Er þá til sýnileg kirkja og
eftirfylgjendur postulanna sem geta
útskýrt mikilvægustu spumingar lífs
okkar, eða þarf sérhver sauður að
leysa úr öllum spumingum upp á
eigin spýtur?
En snúum okkur aftur að erfða-
syndinni. Aftur kemur mér í hug
líkingin um borgarísjakann. Hvað
var það sem gerðist fyrir — við skul-
um segja 600.000 árum? Var það
ef til vill ekki neitt sem gerðist?
Hvað merkir þá hugtakið erfðasynd?
Þúsundir guðfræðinga hafa spurt
ssarar spumingar í rúm 1900 ár.
„Handbuch der Dogmenge-
schichte" (Handbók um sögu kenni-
setninganna), flalla tveir þekktir
guðfræðingar um bókmenntir um
erfðasyndina á 480 blaðsíðum. Svo
er margt sinnið sem skinnið mætti
ef til vill segja í þessu sambandi.
Er erfðasyndin ef til vill aðeins gyð-
inglegir eða kristnir órar? Undir lok
seinna bindisins fjallar höfundur á
nokkmm blaðsíðum um ekki-kristna
vísindamenn. Er til eitthvað það til
í þeirra hugmyndaheimi, sem svarar
til erfðasyndarinnar?
Ljáum þeim eyra um stund. Höf-
undur nefnir þetta fyrirbæri „hjá-
guðfræðilega skilgreiningu á
erfíðasyndinni í nútímanum". Sam-
kvæmt kenningum Karls Marx
(1818—1883) hefur kapítalisminn
firrt manninn sinni sönnu vemnd.
Frelsunin fæst með afturhvarfí til
glataðrar fortíðar, þ.e.a.s. frelsunin
næst þegar kapítalisminn hefur ver-
ið brotinn á bak aftur.
Að sjálfsögðu _er þetta einnig
kenning Leníns. Árið 1921 sagði
hann í ávarpi til kommúnistaæsk-
unnar, að hinn hreini kommúnismi
kæmist smám saman á, þe.a.s. þeg-
ar þau væm orðin fullorðin.
Jean Jacques Rousseau
(1712—1778) kom líka fram með
þá kenningu, að í upphafi hafi mað-
urinn verið óspillt náttúmbam, sem
virti jafnan rétt allra, en að þetta
náttúmbam hefði úrkynjast vegna
auðsöfnunar og myndunar spillts
menningarsamfélags. Uppeldið
mætti þar af leiðandi ekki hafa nein
mótandi áhrif. Væri þess gætt, kæmi
í ljós, að engin erfðasynd væri til.
Þá kæmi hinn sanni maður aftur
fram í dagsljósið. Hin Hffræðilega
og kynþáttalega útgáfa erfðasynd-
arinnar:
Hér má til dæmis vitna 1 orð
Adolfs Hitlers í „Mein Kampf“ (Bar-
átta mín; sjálfsævisaga Adolfs
Hitlers): „Syndimar sem drýgðar em
gegn blóði og kynþætti em erfða-
syndir þessa heims." Vesaldómur
hinna kynbomu norrænu manna
væri þá þannig til kominn vegna
kynblöndunar. Þetta kallaði fram
óöryggi, samviskubit, og þörf fyrir
frelsun. F. Nietzsche (1844—1900)
flallaði einnig um mismun mann-
anna. „Til herraþjóðarinnar heyrir
sérhver sá, sem stjómar sér og öðr-
um án reglna." Þegar reglur væm
hafnar til vegs, hefði það í för með
sér þrælasiðferði.
Djúpsálarfræðiútgáfa S. Freud
(1856-1939).
Bamið upplifir föður sinn sem
hina hötuðu mótstöðu (ofursjálf;
uber Ich) gegn eigin óskum (libido).
Fmmmaðurinn drap ættföðurinn til
að uppfylla eigin líbídisku óskir.
Þetta segir Freud vera orsök þess,
að almenn sektarvitund tók að þró-
ast með manninum, sem Páll postuli
lýsti síðar í kenningu sinni um erfða-
syndina.
Þessar tilvitnuðu skoðanir ekki-
kristinna manna ættu að nægja til
að sýna fram á, að hin kristna kenn-
ing um erfðasyndina getur ekki verið
hreinir órar, þó svo að þeir komi
fram með aðrar skýringar og lausn-
ir á bágindum heimsins. Heimspek-
ingurinn Arthur Scophenhauer
(1788—1860) lýsir hinni kristnu
kenningu um erfðasyndina sem „hin-
um stóra sannleika og kjama kristin-
dómsins" og lítur svo á að lok þeirrar
kenningar tákni það að kristindóm-
urinn úrkynjist og verði að litlu
meira en innantómri bjartsýnis-
hyggju. Félagsfræðingurinn M.
Horkheimer lítur á „hina stórfeng-
legu kenningu um erfðasyndina sem
eina gagnmerkustu kenningu hinnar
gyðinglegu-kristnu trúar". Pólski
heimspekingurinn L. Kolakowski tel-
ur það hættulegt að hafna kenning-
unni um erfðasyndina.
Við getum lesið um það hjá Páli
í bréfí hans til Rómveija (8:15—24),
hvað það er sem erfðasyndin kemur
til leiðar í lífi okkar, þ.e.a.s. hinn
mikla þverbrest sem finna má hjá
öllum, einnig hjá þeim er góðan
hafa vilja. Og Jesús segir: „af hjart-
anu koma illar hugsanir, manndráp,
hórdómur, saurlifnaður, þjófnaður,
ljúgvitni, lastmælgi." I Rómveija-
bréfínu, 5:12-21 rekur Páll erfða-
syndina til Adams og frelsunina
Jan Habets
„ Vatnsskírnin er það
tákn, er Jesús sjálfur
setti til merkis um, að
Guð tæki inn í kirkju
sína sem Guðsbörn, fólk
sem væri syndugt að
eðli til. Maðurinn hafn-
ar hátiðlega sínu
synduga eðli og skirnin
er hin sakramentala,
helgandi endurfæðing
mannsins og sáttmáli
Guðs við hann til merkis
um að hann vilji hjálpa
hinum synduga manni
að þreyta göngu sína í
átt til himnaríkis."
tengir hann Kristi. Hvað er þá erfða-
synd? — Leyfist mér að bera fram
með eigin orðum mjög svo ófull-
komna útskýringu? Svo dæmi sé
tekið af litlu bami, þá hefur það að
sjálfsögðu engar persónulegar synd-
ir til að bera, heldur aðeins hina
svokölluðu erfðasynd. Til em þeir
guðfræðingar, sem vilja breyta heit-
inu erfðasynd vegna þessa. En hér
má vissulega finna sekt, eða sök.
Við erfum þegar við fæðingu eðli,
sem hneigist til hins illa. Hvemig
getur eðli bamsins þegar verið
„sekt“? Biblían boðar okkur, að
„Drottinn vill (ekki) að neinir glat-
ist“ (lTm 2,4: 2. Pét. 3:9) og
Ágústínus kirkjufaðir segir, að Guð
hafi skapað okur „ad te“, þ.e.a.s.
ætlaða til Hans. Þessar fyirnefndu
tilhneigingar okkar standa þó allar
þversum á himnaríki — og Guð.
Biblí-
an rekur þetta ástand til einstakra
upphafssyndar. Dyr himnarikis
stóðu manninum opnar. Synd hins
fyrsta manns lokaði þessum dyram.
Það var persónuleg synd að hafna
boði Guðs. Hin svokallaða „sjmd“
okkar eða sekt er sú, að við stöndum
frammi fyrir dyram himnaríkis, sem
eru okkur lokaðar, jafnvel þó að Guð
vilji að við komumst inn. Vegna
þess varð sonur Guðs maður og
veitti okkur fijálsan aðgang að
himnaríki með dauða sínum á krossi.
Svo segir í Pétursbréfi: „Guð vill að
allir komist til iðranar." Pétur orð-
aði þetta enn skýrar þegar Gyðingar
spurðu hann eftir að hann hafði flutt
Hvltasunnuræðu sínæ „Hvað eigum
við að gjöra, bræður?" Pétur svaran
„Gjörið iðran og látið skírast í nafni
Jesú Krists til fyrirgefningar synda
yðar.“ Að sjálfsögðu vora þessir full-
orðnu menn syndugir á persónuleg-
an hátt, þ.e.a.s. höfíu sjálfir drýgt
syndir. Hver er þá tilgangur skímar-
innar? Vatnsskímin er það tákn, er
Jesús sjálfur setti til merkis um, að
Guð tæki inn í kirkju sína sem Guðs-
böm, fólk sem væri syndugt að eðli
til. Maðurinn hafnar hátíðlega sínu
synduga eðli og skímin er hin sakra-
mentala, helgandi endurfæðing
mannsins og sáttmáli Guðs við hann
til merkis um að hann vilji hjálpa
hinum synduga manni að þreyta
STOLPI
Vinsæli tölvuhugbúnaðurinn
Fjárhagsbókhald
Nýtt bókhaldskerfi sem byggir á hinu vinsæla bók-
haldskerfi okkar.
• Mjög sveigjanlegt og létt í uppsetningu.
• Uppfærslur sjálfvirkar um leið og þú færir.
• Tilvísunarnúmer, 999999 deildireða kostnaðarstaðir.
• Fylgir ströngustu kröfum skattayfirvalda.
• Alsamhæft, sjö önnur kerfi í STÓLPA.
• Góð þjónusta og kennsla.
NÁMSKEIÐ: 2., 8. og 15. des. kl. 8.00-17.00.
Uppsetning á reiknilyklum, æfingar og útskriftir.
FRAMHALDSNÁMSKEIÐ degi síðar fyrir byrjendur í
bókhaldi.
FYRIRTÆKJAAÐSTOÐ t.d. mánaðarleg samkvæmt
samkomulagi.
Verð: STÓLPI með fjárhagsáætlanakerfi kr. 33.000,-
LITLI STÓLPI fyrir minni fyrirtæki kr. 16.000,-
Námskeið pr. dag kr. 4.000,-
Hringið og fáið nánari upplýsingar.
Sala, þjónusta
Markaðs- og söluráðgjöf,
Björn Viggósson,
Ármúla 38, 108 Rvk.,
sími 91-687466.
Hönnun hugbúnaðar
Kerfisþróun,
Kristján Gunnarsson,
Ármúla 38, 108 Rvk.,
sími 91-688055.
göngu sína í átt til himnaríkis. Er
Guði þá ekki fært að bjarga mannin-
um án vatnsskímarinnar? Enginn
er sá er gæti bannað Guði það. Hins-
vegar er það víst, að allar þjóðir
munu verða lærisveinar Krists og
taka á móti skím hans og eiga að
halda boð hans. Hveijir eru það, sem
mega taka skím? Pétur talar um
iðran. Jóhannes segir (lJóh. 2:23):
„Sá sem játar soninn (Jesú) hefur
og fundið föðurinn." Og Páll segir
svo (Róm. 10:9: „Ef þú játar með
munni þínum: Jesús er Drottinn —
og trúir í hjarta þínu, að Guð hafi
uppvakið hann frá dauðum, muntu
hólpinn verða." Hinsvegar leggur
hin kristna kirkja stund á bama-
skím. Með hugtakinu „hin kristna
kirkja" á ég hér til dæmis við ka-
þólsku kirkjuna, rétttrúnaðarkirkj-
una og lútersku kirkjuna.
Hva má sjá merki iðranar, játn-
ingar eða trúar meðal ungbama?
Hversvegna leggur kirkjan samt sem
áður stund á bamaskím? Gyðingleg
hugsun ætti aftur á móti ekki í nein-
um vanda hvað þetta atriði varðar.
Samkvæmt boði Drottins bar Gyð-
ingnum að láta umskera 8 ára son
sinn (1. Mósebók, 10. og áfram):
„Þetta er minn sáttmáli, milli mín
og yðar og niðja þínna eftir þig:
Allt karlkyn meðal yðar skal um-
skera ... bæði þann sem fæddur er
í húsi þínu, og eins þann, sem þú
hefír verði keyptan." Þannig var
bamið þegn þjóðar Guðs. í ijölfræði-
riti um guðfræði og kirkju (Das
Lexikon fur Theologie und Kirche)
segir svo: „Guðfræðin telur um-
skumina eins og sakramenti G.T.
sem tákn þess, að einstaklingurinn
tilheyri sáttmálaþjóðinni. Umskum-
in réttlætir fyrir trú sáttmálaþjóðar-
innar." Nú vitum við, að það gerist
fyrir fóm Jesú. Einnig vitum við,
segir fyrmefnt rit: „Með lokum hins
gamla sáttmála er umskuminni
varpað fyrir róða og hún fólgin í
skíminni sjálfri." Væri umskuminni
haldið áfram, táknaði það þá að hinn
gamli sáttmáli væri ekki undir lok
liðinn." Sú staðreynd, að skímin
kæmi stað umskumarinnar, var
mörgum lögmálstrúum Gyðingnum
illskiljanleg. Umskumin væri vissu-
lega Guðs lög, skýrt fram sett og
af þunga. Var kirkunni stætt á því
að varpa þessu boði Drottins fyrir
róða? Nauðsyn reyndist að setja á
þing postulanna í Jerúsalem, þar
sem Pétur neytti alls síns kennivalds
til að vinna þessari skoðun Páls
fylgi. Skímin tók við hlutverki um-
skumarinnar. Við þetta má því bæta,
að skímin hafi einnig tekið við hlut-
verki Jóhannesarskímarinnar, og
gekk rejmdar lengra en hún, eða
eins og Jóhannes sagði sjálfur (Mt.
3:11): „Ég skíri yður með vatni, er
sá sem kemur á eftir mér... hann
mun skíra yður með heilögum anda
og eldi.“ Þá staðreynd, að birting
heilags anda er tengd skím fullorð-
inna, getum við lesið af. P 19:1 og
áfram. Páll spyr menn nokkra frá
Efesus: „Fenguð þér heilagan anda,
er þér tókuð trú?“ — „Nei, vér höfum
ekki einu sinni heyrt að heilagur
andi sé til.“ — „Upp á hvað erað
þér þá skírðir?" — „Upp á skím
Jóhannesar." Páll bendir þeim þá
að Jóhannes sjálfur hafi bent fram
á við til Jesú. „Þá létu þeir skírast
til nafns Jesú. Er Páll hafði lagt
hendur jrfir þá, kom heilagur andi
yfir þá og þeir töluðu tungum og
spáðu." Þegar ungaböm eiga í hlut,
er að sjálfsögðu ekki um að ræða
slík sýnileg ytri tákn. Er þá minnst
á bamaskím í Nýja testamentinu,
þegar rætt er um skímina?
Nei, samt er hægt að benda á og
taka undir þessi orð ritverksins
„Evangelischen Erwachsenen
Katechismus" (bls. 1066): „Nýja
testamentið segir viða frá þvi að
einhver hafi tekið skím „með öllum
á heimili hans" (Post. 16:15,33:
18:18; 1. Kór. 1:16). Hugtakið „allt
heimilið" er afmarkað, formlegt
orðatiltæki, sem felur í sér alla á
heimilinu, böm jafnt sem þjónustu-
fólk. „Hér má benda á það, hvenær
og hvemig framkvæmd umskumar-
innar var háttað. Þar sem ung böm
era hvergi nefnd sérstaklega, þá er
ekki hægt að byggja á ritningunni
einni hvað varðar fulla sönnun. í
fyrmefndu riti, „Handbuch der
Dogmengeschichte" (Handbók um
sögu kennisetninganna), IV 2.S.27
segir svo um þetta atriði: „Þar með
er ekkert sagt um réttlæti bama-
t