Morgunblaðið - 25.11.1987, Side 52
•4/SlA
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987
rokksiíðan
ÁRNl MATTHÍASSON
Mín eigin
tónlist
EinarOddson um Flass
Enn eru að bætast plötur við
hraukinn af útgefnum íslenskum
plötum á þessu ári og í gær bætt-
ist ein plata í, platan Flass sem
gerð er og útgefin af Einari Odds-
syni.
Ekki hefur borið mikið á Einari
í tónlistarlífinu, en þó hefur hann
^ verið að fást við tónlist í yfir tíu
ár. Hann segir enda að hann kunni
best við að vinna í hljóðveri og
þessi plata er unnin á löngum tíma
í samvinnu við Þorstein Jónsson,
sem sá um upptökustjórn. Rokk-
síðan náði tali af Einari í tilefni af
útgáfu plötunnar.
Nú hefur þú ekki verið áber-
andi í íslensku tónlistarlífi Einar
þar til þess að þú gefur allt í einu
út plötu.
Nei, ég hef ekki verið mikið í
þessum hljómsveitabransa. Það
má segja að ég hafi mest verið
að leika tónlist fyrir sjálfan mig.
Ég hef alltaf haft þörf fyrir að vera
að semja, en nú fannst mér tími
^iktil kominn til að leyfa öðrum að
heyra hvaö ég væri að gera og því
er þessi plata gefin út. Ég sem
síðan öll lög á plötunni og alla texta
utan einn.
Hin sígilda spurning: Af hverju
eru alli textar á ensku?
Ég var þegar búinn að semja tvo
til þrjá texta á ensku þegar ég fór
að athuga með útgáfu fyrir tveimur
árum. Þegar ég reyndi síðan að
snúa textunum yfir á íslensku kom
það ekki vel út og því ákvað ég
að hafa þá alla á ensku.
Hvað með framhaldið á þess-
ari útgáfu, ætlar þú að fara að
spila með hljómsveit til að fylgja
plötunni eftir?
Það er allt í athugun.
Gerir þú þér einhverjar vænt-
ingar með sölu á plötunni?
Nei, ég geri mér engar tálvonir.
Hugsunin á bak við þess plötu var
aðallega að koma því efni sem á
henni er frá mér. Ég vil bara að
það heyrist og að fólk geti séð
hvað ég er að pæla.
Hvað með þina framtíð sem
tónlistarmaður? Langar þig ekki
til að stofna hljómsveit og fara í
ballstandið?
Nei, ekki get ég sagt það. Sé
litið á þessa plötu þá er hún miklu
frekar ég en ef hún hefði verið
æfð og unnin með fastri hljóm-
sveit. Eg kann betur við að vinna
í hljóðveri en að vera að þvælast
um og leika danstónlist sem er
kannski ekki mér að skapi. Með
því að vinna plötuna svona er þetta
mín eigin plata og mín eigin tónlist.
Er eftthvað sérstakt sem þú
vilt segja um plötuna.
Á henni er melódísk popptón-
list, efni sem ég hef verið að semja
í nokkurn tíma. Elsta lagið á plöt-
unni er tíu ára en önnu yngri svo
segja má að platan spanni að
nokkru minn feril í tónlist.
Framlag Sogbletta
til jólanna
Af þeim íslensku plötum sem þegar hafa litið dagsins Ijós
eru nær allar helgaðar popp- og sölutónlist í einhverri mynd.
Sárlega hefur vantað framsækna rokktónlist til mótvægis við
allan glassúrinn. Það stendur þó allt til bóta því tvær þeirra
rokksveita sem hófu að starfa á þessu ári, Sogblettir og
Bleiku bastarnir, eru í þann mund af senda frá sér 45 snún-
inga plötur.
Sogblettir voru teknir tali í
hljóðveri, þá er þeir voru að
taka upp þau tvö lög sem á
plötunni verða. Á meðan Gunni
stillti trommusettið ræddi út-
sendari Rokksíðunnar við þá
Arnar, Ara og Nonna.
Eru Sogblettir að gera
diskóplötu?
Nei, en á annarri hliðinni er
lag sem menn eiga kannski
eftir að kalla popplag. Á hinni
hliðinni er lagið Er nema von
sem eins og Sogblettir eru
núna.
Nú veit ég að þig hafið
ekki haft aðgang að æfinga-
húsnæði ansi lengi og hafið
ekki spilað í eina tvo mánuði.
Eru Sogblettir að gefast upp.
Þetta kemur ekki niður á
hljómsveitinni á meðan, við
hittumst reglulega og sukkum
saman um helgar. Þetta kemur
náttúrulega niður á því að við
getum ekki spilað nema geta
æft. Það var reyndar ætlunin
að taka pásu til að semja lög,
en sú pása er þegar orðin of
löng. Við höfum að vísu samið
lög en það eru bara bútar sem
bíða þess að verða að lögum.
Hvað með framtíð Sog-
bletta, nú passið sig ekki vel
í gleðipoppímyndina.
Framtíðin er óráðin, en hvað
gleðipoppið varðar þá vorum
við að heyra jólalag Stuðkomp-
anísins og það finnst manni
helvíti lélegt, þeir eru ekki
orðnir tvítugir og eru farnir að
gera jólalög. Gaurar eins og
Björgvin Halldórsson gera
svona jólalög en hann byrjaði
þó ekki á því fyrr en hann var
orðinn þrítugur. Á plötunni
okkar verður framlag okkar til
jólanna, en það verða þó ekki
jólalög. Við erum ekki orðnir
iðnvarningur.
Hvað með tónlistarlífið?
Okkur finnst Sykurmolarnir
vera að gera góða hluti og S/H
draumur og Daisy Hill. Á móti
koma sveitir eins og og Blátt
áfram sem er hræðileg, með
því hræðilegra sem hefur kom-
ið fram og synd að hún skuli
kenna sig við rokktónlist.
Þið voruð vel grófir á tón-
leikum í sumar. Er tónlistin
að verða mýkri?
Við erum að reyna að gera
vandaðri og harðari tónlist, við
erum að reyna að gera það
sem allar pönksveitir hefðu átt
að gera. Það þýðir ekkert að
spila pönk fyrir íslenska pönk-
ara, þeir eru svo heimskir.
Langar ykkur ekki að slá í
gegn?
Ekki í þeirri merkingu að
fólk sé að benda á þig og þú
sért að skrifa niður brandara
til að hafa með sér í sjón-
varpið. Við viljum bara fá
peninga. Við erum ekki að spila
á tónleikum bara til að láta
fólk sjá okkur, það bara virkar
svo vel, það getur verið svo
gaman. Það er gott að fá pen-
inga, en maður hefur engan
áhuga á að vera kannski að
spila og labba svo niður í bæ
daginn eftir og fólk er að kippa
hvert í annað og æpa á mann.
Það er fáránlegt. Hver hefur
áhuga á því á íslandi? Það
væri miklu betra ef talað væri
um mann á hverju heimili í
Bandaríkjunum, maður er alla-
vegana ekki á staðnum.
Lokaorð?
Arnar á lokaorðin: Ef ég get
ekki fengið peninga út úr því
að spila tónlist þá fæ ég bara
peninga út úr því að ræna
banka.
Ungtfólk
Nú hefur Sjónvarpið tekið upp þráðinn fyrir unglinga á nýjan og spennandi máta:
Annir og appelsínur heita þættir á föstudögum sem nemendur
framhaldsskólanna framleiða upp á eigin spýtur, með fjölbreyttu efni í tali og
tónlist. Hér er skemmtileg nýbreytni á ferðinni og mun einn skóli annast
hvern þátt.
Poppkorn verður nú á þriðjudögum, með breyttu sniði og nýjum
umsjónarmanni, dóni Ölafssyni. Að sjálfsögðu halda Stóra stundin,
Stundargaman og Smeliir einnig áfram.
Yngsta kynslóðin fær efni við sitt hæfi daglega, að viðbættri Stundinni okkar.
Það verður enginn útundan hjá Sjónvarpinu.