Morgunblaðið - 25.11.1987, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987
57
Kveðjuorð:
Þórður Helgason
frá Þursstöðum
Fæddur 30. desember 1916
Dáinn 18. október 1987
Ég var svo lánsamur að kynnast
Þórði eða Dodda eias og hann var
yfirleitt kallaður af vinum sínum.
Kynni okkar hófust á Þursstöðum
í Borgarhreppi fyrir rúmum 50
árum er ég var í sveit hjá Helga
bróður hans. Doddi starfaði sína
æfidaga við hlið Helga bróður síns
og Guðrúnar konu hans.
Það er búið að höggva stórt skarð
í systkinahóp Dodda, en áður hafa
látist Svava húsmóðir í Reykjavík,
Helgi bóndi á Þursstöðum, Sigur-
björg húsmóðir í Reykjavík og
hálfsystir þeirra Ása húsmóðir í
Borgamesi.
Sigurbjörg móðir mín lést 11.
maí sl. en við jarðarför hennar hitti
ég Dodda í hinsta sinn. Foreldrar
þeirra voru sæmdarhjónin Guðrún
Magnea Þórðardóttir frá Gróttu á
Seltjamamesi og Helgi Jónas Jóns-
son frá Bálkastöðum í Hrútafirði.
Doddi móðurbróðir minn var mér
ákaflega kær. Allt frá því ég steig
mín fyrstu spor minnist ég hans
með þakklæti. Það auðgar lífið að
hafa átt slíkan vin. Allt frá því
fyrsta kenndi hann mér að fara vel
með öll dýr og virða náttúru lands-
ins sem gefur okkur svo margt eins
og hann orðaði það. Ólatur var
hann að róa með sig strákinn út
fyrir Þursstaðarey og dorga fyrir
kola. Þeirra stunda minnist ég ætíð
með þakklæti og seinna var farið á
hjólum um Borgarfjörðinn, og rent
með stöng þar sem leyfi fékkst, en
það var alltaf auðfengið. Þetta voru
okkur báðum miklar ánægjustund-
ir. Seinna er ég fluttist í annan
landsijórðung hélt Doddi sömu
tryggð við mig og fjölskyldu mína,
og oft hittumst við á heimili móður
minnar á Neshaga 13 í Reykjavík
og var þá gjaman spjallað um liðna
tíð.
Doddi veiktist í æsku og bar
þess menjar ævilangt. Fæstir vissu
hve hann leið fyrir það, þó var hann
í góðum vinahóp kátastur allra og
skemmti sér og öðrum. Mér er en
minnisstætt er hann heimsótti mig
og fjölskyldu mína vestur á firði
en þangað hafði hann ekki komið
áður, hve honum fannst landslagið
bæði stórbrotið og fallegt.
Það er mikil eftirsjá að góðum
vinum og því settist ég niður og
skrifaði þessi fátæklegu orð um
Dodda vin minn. Eftirlifandi systr-
um hans, Ingibjörgu og Jórunni
Helgadætrum, votta ég samúð
mína. Gunnar Valdimarsson,
Flateyri.
ALÍS - ný ferðaskrif-
stofa opnuð í Hafnarfirði
ALÍS, ný ferðaskrifstofa var
nýlega opnuð í Hafnarfirði og
er þetta fyrsta ferðaskrifstofan
þar í bæ. Skrifstofan er tíl húsa
í Bæjarhrauni 10.
Hin nýja ferðaskrifstofa mun
veita alla almenna þjónustu og er
tengd beint inn á bókunarkerfi
Flugleiða. Eigendur ferðaskrifstof-
unnar eru Steinþór Einarsson, sem
áður starfaði hjá Samvinnuferð-
um—Landsýn og Atlantik og Skúli
Gunnar Böðvarsson og Laufey Jó-
hannsdóttir, sem áður voru
umboðsmenn reykvískra ferðaskrif-
stofa í Hafnarfirði. Auk þeirra
þriggja starfar Sólveig Hannam á
skrifstofunni.
Ferðaskrifstofan ALÍS hlaut
starfsleyfi þann 18. september
síðastliðinn og hóf starfsemi þá.
Hún var formlega opnuð 20. októ-
ber síðastliðinn.
^Lprnmiun. jjcóbleilut cxj ipennúruíi Le^
Cflœrujjai 5puciwncjcZi ojóv&i
miMuil
Trivial Pursuit
Fæst í bóka- og leikfanga-
verslunum um land allt.
ofiNus vi
„Trivial Pursuit“ er skrásett vörumerki. Dreifing á íslandi: Eskifell hf.,
s. 36228. Leikur frá Horn Abbot. Gefinn út meö leyfi Horn Abbot Intl.
Ltd.
■ I II
SERHONNUÐ
STÖK TEPPIÚR 100% ULL
n /\(\ /ir HÖNNUÐUR:
rLAAI V IL ANNEGRETE HALLING-KOCH
ATMOSPHERE hönnuður: ZIG-#\G
L L METTE USSING U \v_J
HÖNNUÐUR:
PER ARNOLDI
140x200,183x275,250x335.
Skeifunni 3G — Box 740 — 108 Reykjavík — Sími 82111