Morgunblaðið - 26.11.1987, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 26.11.1987, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1987 15 Mist Þorkelsdóttir, tónskáld. með íslensku hljómsveitinni og Kammersveit Reykjavíkur. En hvemig er að spila á gítar með sin- fóníuhljómsveit? „Gítarinn er fremur veikt hljóð- færi, þannig að það þarf að magna hljóðið dálítið upp,“ sagði Pétur. „Þó er verkið þannig sett upp, að þar koma fyrir nokkrir einleikskafl- ar á gítar og aðrir kaflar, þar sem strengjahljóðfærin spila ein. Tækn- in i dag við að magna gítartónana er með þeim hætti, að það kemur ekki að sök og skemmir ekki hljóm hljóðfærisins,“ sagði Pétur að lok- um. Lokaverk tónleikanna í kvöld er Sinfónía nr. 1 eftir breska tónskáld- ið William Walton. Þetta er í fyrsta sinn, sem þetta verk er leikið hér- lendis. William Walton er fæddur í upphafi aldarinnar og hafa tónverk hans jafnan vakið athygli. Hann hefur þó ekki verið aflcastamikið tónskáld, t.d. er þessi sinfónía sú eina, sem hann samdi. Walton hefur hlotið margháttaða viðurkenningu fyrir tónlistarstörf í heimalandi sínu og meðal annars var hann aðlaður árið 1951. Eins og sjá má, verður efnisskrá kvöldsins fjölbreytt og vafalaust eitthvað við hæfi allra. Stjómandi verður breski hljómsveitarstjórinn Frank Shipway, sem hefur dvalið hérlendis undanfamar vikur við hljómsveitarstjóm. Texti: Rafn Jónsson Morgunblaðið/Ámi Sæberg Framsögumenn, fundarstjóri og stjómarmenn Félags eldri borgara á fundi félagsins um staðgreiðslu- kerfi skatta. (Talið frá vinstri) Bergsveinn Jónsson, Jón Zophaníasson, Skúli Þórður Eggertsson, Haraldur Steinþórsson, Snorri Jónsson, formaður og Barði Friðriksson. ingu svokallaðs skattkorts. Á þessu skattkorti mun geta að fínna upp- lýsingar m. a. um persónuafslátt viðkomandi. Kortið afhendir launa- maður til síns launagreiðanda, sem tekur tillit til þessara upplýsinga við ákvörðun skattsins. Að sögn Skúla em helstu breyt- ingamar í hinu nýja skattakerfi, að ýmsum frádráttarliðum er rýmt út, sem aftur veitir meira svigrúm til lækkunar skatthlutfalls eða hærri persónuafsláttar. Ætlunin er að mun fleiri verði skattlausir, og er það gert til tryggja hag hinna lægstlaunuðu. Meðferð eftirlauna og lífeyris verður sú sama og launagreiðslna, þannig að Tryggingarstofnun verð- ur stærsti launagreiðandi landsins. „Áður fyrr giltu mismunandi reglur og flóknar um skattskyldu af eftir- launum og lífeyri, en með nýju reglunum er allt gert skattskylt. Þetta mun þó ekki þýða að eldri borgarar verði ver settir en áður, heldur þvert á móti; þeir verða bet- ur settir, þar sem skattleysismörk verða hækkuð verulega. Forsendan er hins vegar sú að Tryggingar- stofnun fá skattkortin í hendur, því annars er ekkert tillit tekið til per- sónufrádráttar," sagði Skúli. Bótaþegum Tryggingarstofnun- ar mun bjóðast að láta skattkort sitt liggja hjá Tryggingarstofnun, sem halda mun þá skatti eftir af greiðslum. Fari þessar greiðslur ekki mikið yfír 40.000 kr á mánuði að sögn Skúla munu viðkomandi bótaþegar ekki þurfa að greiða skatt. Frumkvæði kom frá Trygg- ingastofnun um að þessi þjónusta yrði veitt, enda ættu margir af hin- um 44. 000 bótaþegum stofnunar- innar erfítt með að skila kortinu. Þeir sem vilja geta þó haft þann háttinn á. Utan þessa kerfis verða ákveðnar greiðslur eins og bamabætur, sem verða greiddar út á þriggja mánaða fresti óháð skattgreiðslu. (Svipað og fjölskyldubætumar áður fyrr.) Einnig benti Skúli á, að svokallaðar húsnæðisbætur yrðu reiknaðar út og greiddar mönnum í stað vaxta- frádráttar. Eignaskattur verður áfram greiddur eftir á. Ein breyting verður varðandi greiðslu eigna- skatts, að því er eldri borgara snertir. Áður nýttist persónufrá- dráttur við greiðslu eignaskatts, en nú er gert ráð fyrir að hann greið- ist ávallt. Skúli kvað þetta hafa verið umdeilt á Alþingi á sínum tíma, enda kæmi þetta illa við margt gamalt fólk, sem byggi í stóru hús- næði en hefði litlar tekjur. Síðara erindið flutti Jón Zopha- níasson, en hann skýrði nánar notkun skattkortanna. Allir 15 ára og eldri munu fá kortið sent til sín, nema hvað að kort styrkþega1 Tryggingastofnunar verða send til stofnunarinnar. Fái „launagreið- endur“ greiðslur víðar gefst þeim kostur á að fá korti sínu skipt hjá skattstjóra, þannig að það nýtist á öllum stöðum. Einnig mun verða unnt að fá kort fyrir launagreiðanda maka. Þurfa þá nöfn beggja maka að koma fram á kortinu. Er þá unnt að nýta ónotaðan persónuaf- slátt til frádráttar á skatti maka. Kjell Bekkelund Tónlist Jón Ásgeirsson Norski píanóleikarinn Kjell Bekkelund hélt tónleika í Norræna húsinu og flutti tónlist eftir Grieg, Niels Viggo Bentzon, Erik Berg- man, Finn Mortensen og Lars Erik Larsson. Tónleikamir hófust á fjór- um „humoreskum", op. 6, eftir Grieg, elskulegum verkum sem Bekkelund lék fallega en án allrar gamansemi. Annað verkið var „nítján laga“ raddsetningar á norskum þjóðlögum sem er op. 66 og var þar margt undur fallegt að heyra og veit undirritaður ekki til þess að þetta verk hafí verið flutt hér á landi. Tréristur op. 65 eftir Bentzon var þriðja verkið og þar á eftir tónræn- ar „spekulasjónir" eftir Bergman, sem hann kallar Aspekter Mesta og erfíðasta verkið á þessum tón- leikum er eftir Finn Mortensen og það er Fantasía og fúga, op. 13. Tækni Bekkelunds er feikileg og var leikur hans í verki Mortensens Kjell Bekkelund magnaður og stórbrotinn. Síðasta verkið var blíðróma Sónatína eftir Larsson sem Bekkelund lék af glæsileik, eins og hann reyndar gerði í öllum viðfangsefnum tón- leikanna. Gestaguðsþjónusta í Nýju Postulakirkjunni SÉRSTÖK gestaguðsþjónusta verður haldin í Nýju Postula- kirkjunni á sunnudaginn kl. 11.00. Nýja Postulakirkjan starfar i dag í flestum löndum heims og er beint framhald fmmkirkjunnar í nú- tímanum, endurreist í byrjun 19. aldar. Nýja Postulakirkjan er til húsa að Háaleitisbraut 58-60, 2. hæð. Allir eru hjartanlega velkomnir. Kaffíveitingar. (Fréttatilkynning) Verkalýðsfélög á Vesturlandi: Naumlega samþykkt að leggja niður Alþýðu- samband Vesturlands Verkalýðsfélög á Vesturlandi hafa samþykkt naumlega í alls- heijaratkvæðagreiðslu að leggja niður Alþýðusamband Vestur- lands. í framhaldi af atkvæða- greiðslunni verður boðað til aukaþings sambandsins laugar- daginn 5. desember næstkom- andi, þar sem formlega verður gengið frá málinu. Atkvæðagreiðslan fór fram í ell- efu félögum á Vesturlandi. Sex félög vildu hafa sambandið áfram, en fimm voru móti og þar sem þau félög eru stærri réðu þau úrslitum. Á kjörskrá voru 3.288, en 1.165 greiddu atkvæði. 575 vildu leggja sambandið niður en 529 vildu hafa það áfram og 61 seðill var auður. Efirtalin félög vildu leggja sam- bandið niður: Verkalýðsfélag Akraness, Verslunarmannafélag Akraness, Sveinafélag málmiðnað- armanna Akranesi, Verkalýðsfélag Stykkishólms og verkalýðsfélagið Stjarnan Grundarfirði. Eftirtalin félög vildu ekki leggja sambandið niður: verkalýðsfélagið Valur Búð- ardal, Verkalýðsfélag Borgarness, Verslunarmannafélag Borgarness, verkalýðsfélagið Hörður Hvalfirði, verkalýðsfélagið Afturelding Hell- issandi og verkalýðsfélagið Jökull Ólafsvík. Sem dæmi um það hversu mjótt var á mununum má nefna að aðeins munaði tveimur atkvæðum hjá verkalýðsfélaginu Stjömunni á Grundarfirði að þar væri ekki sam- þykkt að leggja Alþýðusambandið niður. Ef úrslitin hefðu verið á hinn veginn hefði ekki verið meirihluti á aukaþinginu fyrir því að leggja sambandið niður, að sögn Jóns Agnars Eggertssonar, formanns Alþýðusambands Vesturlands og verkalýðsfélagsins í Borgamesi. Hann sagði líklegt að þau félög sem voru andvíg myndu stofna samtök með sér, eins og til dæmis fulltrúar- áð verkalýðsfélaga á Vesturlandi, þar sem þessi félög teldu nauðsyn- legt að hafa einhvem samstarfs- vettvang. Hveragerði: Óvænt heimsókn í Hótel Ljósbrá Hverajjerði. SNEMMA á sunnudagsmorg- un sl. vöknuðu menn í Hótel Ljósbrá við vondan draum og mikinn hávaða. Við athug- un kom í Ijós að bifreið hafði ekið á norðurvegg hússins á fullri ferð. Er að var komið stóð bifreið- in mannlaus, en sást í iljar ökumannsins á hlaupum, sem hafði sem betur fer sloppið ómeiddur. Lögreglu var gert viðvart og hafði hún uppá öku- manninum, sem hafði verið að skemmta sér og grunaður var um ölvun. Ekki urðu teljandi skemmdir á húsinu, en málning flagnaði af veggnum á bletti. En bíllinn er mikið skemmdur. Þess má geta að þetta sama hús fékk samskonar heimsókn fyrir nokkrum árum, en lætur ekki haggast, það má nú öllu venjast. — Sigrún
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.