Morgunblaðið - 26.11.1987, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1987
\y
flð PIONEER
HUÓMTÆKI
Gjafir eru gefnar
eftir Sigurð J.
Líndal
í fjárlagafrumvarpi því sem nú
liggur fyrir Alþingi eru skert ýmis
framlög til landbúnaðarmála. Ekki
verða allar þær skerðingar gerðar
hér að umtalsefni heldur aðeins ein,
þ.e. skerðing á framlögum til starfs
Búnaðarfélags íslands. Á vegum
Búnaðarfélags íslands fer fram öll
ráðunautaþjónusta við landbúnað-
inn. í öllum löndum þar sem
landbúnaður er þróaður, er framlag
ríkisins til ráðunautaþjónustu um-
talsvert. Ráðunautaþjónusta er
nauðsynlegur þáttur í þróun land-
búnaðarframleiðslunnar og bætir
hag bæði neytenda með lægra vöru-
verði og bættum vörugæðum og
bænda með hagkvæmari fram-
leiðslu. Hér hefir Búnaðarfélagi
íslands verið falið að sjá um fram-
kvæmd ráðunautaþjónustunnar.
Það fer með framkvæmd jarðrækt-
arlaga, búfjárræktarlaga, Búreikn-
ingastofu landbúnaðarins, embætti
Veiðistjóra og fleiri þátta sem land-
búnað snerta. Þetta fyrirkomulag
hefir reynst hagkvæmt og árekstra-
laust. En síðustu ár hefir borið á
því að ríkisvaldið hafí viljað þrengja
framlög til þessarar þjónustu. Að
sumra mati er landbúnaður ekki
það sem kallað er arðvænlegur at-
vinnuvegur og ber því ekki að prísa
hátt. Það mun vera af þeim ástæð-
um að ekki hafa verið greidd
„Ef það á að vera gjöf
þjóðarinnar til Búnað-
arfélagsins að draga úr
framlögum til starfs
þess um fjórðung án
þess að annað komi á
móti er hlutunum öfugt
snúið.“
lögbundin framlög samkvæmt jarð-
ræktar- og búfjárræktarlögum,
nema að hluta, og er kominn lang-
ur hali af ógreiddum framlögum.
Ifyrir nokkrum áratugum var til
meðferðar á Alþingi frumvarp sem
gerði ráð fyrir því að Búnaðarfélag
Islands fengi sjálfstæðan tekjustofn
með framlagi bænda. Sú hugmynd
fékk ekki framgang á Alþingi á
þeim tíma. En þrátt fyrir það hefír
Búnaðarfélagið haft viðgang sem
sjálfstæð stofnun og með dugnaði
og framsýni forráðamanna eignast
verðmikla eign með byggingu
Bændahallar sem mun tryggja til-
veru þess um ókomin ár.
Á þessu ári er 150 ára afmæli
Búnaðarfélags íslands. Oft eru góð-
um þegnum færðar gjafir á merkum
tímamótum. Ef það á að vera gjöf
þjóðarinnar til Búnaðarfélagsins að
draga úr framlögum til starfs þess
um fjórðung án þess að annað komi
á móti er hlutunum öfugt snúið og
Búnaðarfélag íslands er ekki neitt
óskabam heldur vandræðaungi sem
nauðsynlegt er að losna við.
Höfundur er bóndi á Lækjamóti í
Húna vatnssýslu.
Sýnir vatns-
litamyndir í
Gerðubergi
ÁSTA Erlingsdóttir grasalæknir
sýnir um þessar mundir 40 vatns-
litamyndir í Gerðubergi.
Þetta er fyrsta myndlistarsýning
Ástu en flesta liti sem Ásta notar
hefur hún sjálf blandað úr íslensk-
um jurtum. Sýningu þessa heldur
Ásta f tilefni þess að út er komin
bók um ævi hennar og störf skráð
af Atla Magnússyni en Öm og
Örlygur gefa bókina út.
Sýningin sem stendur til sunnu-
dagsins 6. desember er opin kl.
13.00-22.00 mánudaga til fímmtu-
daga og kl. 13.00-18.00 föstudaga
til sunnudaga.
FYRIR ALLA
SNORRABRAUT
■■■■■