Morgunblaðið - 26.11.1987, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1987
Saga íslensks málmiðnaðar komin út:
Grunnur lagður að
almennri iðnsögu
FYRSTA bindið , í ritsafninu
„Safn til Iðnsögu íslendinga" er
komið út. Þetta fyrsta bindi fjall-
ar um sögu málmiðnaðar á
íslandi og ber heitið „Eldur í
afli“. Höfundur verksins er Sum-
ariiði ísleifsson sagnfræðingur,
en hann er einnig menntaður
ketil- og plötusmiður og hefur
starfað að þeirri iðn. Ritstjóri
ritsafnsins er Jón Böðvarsson,
fyrrum skólameistari.
Jon Böðvarsson sagði á fundi
með fréttamönnum, þar sem ritið
var kynnt, að Sverrir Hermannsson
hefði í iðnaðarráðherratíð sinni haft
forgöngu um að ráðist var í verkið
og eftir að Sverrir varð mennta-
málaráðherra varð að ráði að stjóm
iðnsöguritunar flyttist með honum
og lyti stjóm menntamálaráðherra.
Skyldi að stefnt að skýra þátt iðnað-
ar í íslenskri atvinnusögu og beina
kastljósi einkum að 20. öld. Athug-
un leiddi í ljós að skráðar heimildir
um iðnsögu eru svo fáskrúðugar
og tilviljunarkenndar að ógerlegt
þótti að semja yfírlitsrit nema
kanna fyrst og skrá sögu helstu
iðngreina sem hér hafa verið og em
stundaðar. Því var ákveðið að láta
semja og gefa út nokkur bindi af
„Safni til Iðnsögu íslendinga" er
verða skyldu gmnnur að almennri
iðnsögu. Hagkvæmisástæður réðu
því að málmiðnaður og ullariðnaður
völdust sem fyrstu viðfangsefni.
Samkomulag varð milli ráðherra og
ritstjöra um að hafa í fyrirrúmi lýs-
ingar á vinnunni sjálfri og tækni-
legri framvindu í iðnaði. Því er lýst
gömlum vinnubrögðum og verk-
fæmm, bæði tækjum og vélum, sem
ekki em lengur notuð.
Að sögn Jóns þótti einsýnt að
treysta yrði á munnlegar frásagnir
í ríkara mæli en tíðkast í hefðgrón-
um fræðiritum. Heppilegt var talið
að hveijum texta fylgdu margar
vel útskýrðar ljósmyndir, og ráð-
gert var að hveiju bindi fylgdi
myndband tengt bókarefni. Sumar-
liði ísleifsson, ketil- og plötusmiður
og sagnfræðinemi við Háskóla Is-
lands tók að sér að rita kandídatsrit-
gerð um sögu málmiðna á 19. öld
og fyrri hluta 20. aldar og um samd-
ist að ritsmíð sú yrði stofn að
bókinni „Eldi í afli“.
Bókin skiptist í fjóra megin-
þætti. Fjallar hinn fyrsti um
málmiðnað og réttindi iðnaðar-
manna, annar um málmiðnað á 19.
öld, þriðji um jámsmíði er vélarafl
kemur til sögu og hinn fjórði um
málmiðnað 1920 til 1950. Aðal-
ritsmíðin er skýr og greinargóð
efnisgrind. Rammagreinar, myndir
og myndatextar eru ítarefni sem
tengjast frásögninni og gæða hana
lífí. I bókinni birtast nokkur kvæði
íslenskra höfuðskálda um iðngrein-
Morgunblaðið/Börkur
Jón Böðvarsson, ritstjóri rit-
safnsins, með fyrsta bindið
„Eldur í afli“.
ina. Loks er bókarauki, sem er
yfírlit um orðtök runnin frá
málmsmíð eftir Halldór Halldórs-
son, fyrrverandi prófessor.
Myndbandið sem fylgir bókinni
fjallar um sama efni, sýnir fram-
vindu frá handverki til sjálfvirkni.
Það gerði Þorsteinn Jónsson, kvik-
myndagerðarmaður í samráði við
Sumarliða ísleifsson, sem einnig
samdi myndatexta, en þulur er
Bjöm Th. Bjömsson. Bókin er unn-
in í Prentsmiðjunni Odda og gefín
út af Hinu íslenska bókmenntafé-
lagi.
Gert er ráð fyrir að tvö næstu
bindi ritsafnsins „Safn til Iðnsögu
íslendinga" komi út haustið 1988.
Munu þau ijalla um ullariðnað og
sögu bifvélavirkjunar á íslandi.
.. -C',
Samskipti foreldra og
-að ala upp ábyrga æsku
í bókinni mælir höíundurinn Dr. Thomas Gordon með aðferðum sem miða
að gagnkvæmum skilningi milli foreldra og bama og niðurstöðum sem byggjast
á sameiginlegri lausn vandamálanna. Þannig geta bömin litið á sig sem ábyrga
aðila við hlið foreldra sinna.
Aðferðir Thomasar Gordons em heimsþekktar, bókin heíiir verið þýdd á
fjölmörg tungumál og hvarvetna orðið metsölubók.
<§
bók
góð bók
Á áttunda tug Jjósmynda prýða bókina „Eldur í afli“. Hér má sjá
gamla mynd af Þorsteini Tómassyni járnsmið og Sveini Guðmunds-
syni lærlingi. Þorsteinn hefur lagt glóandi járn á steðja og heldur
við með smiðjutöng. Sveinn er reiðubúinn að slá á.
Tónlistarhátíð ungra einleikara 1988:
Áshildur Haralds-
dóttir fulltrúi íslands
DAGANA 9.-10. nóvember fór
fram í Gautaborg lokaval þátt-
takenda í Tónlistarhátíð ungra
einleikara sem haldin er í höf-
uðborgum Norðurlanda á
tveggja ára fresti og verður
næst haldin í Reykjavík 25.-30.
október 1988. Fulltrúi íslands
á hátíðinni verður flautuleikar-
inn Áshildur Haraldsdóttir.
Norræn dómnefnd valdi þátt-
takendur að undangengnu forvali
í hveiju landi fyrir sig. Að þessu
sinni voru átta eftirtaldir þátttak-
endur valdir: píanóleikarinn Leif
Ove Andsnes frá Noregi, sellóleik-
arinn Michaela Fukacová Christ-
ensen frá Danmörku, harmoniku-
leikarinn Geir Graugsvoll frá
Danmörku, sellóleikarinn Jan-
Erik Gustafsson frá Finnlandi,
píanóleikarinn Anders Kilström
frá Svíþjóð, blokkflautuleikarinn
Dan Laurin frá Svíþjóð, bariton-
Áshildur Haraldsdóttir flautu-
Ieikari.
söngvarinn Hans Olle Person frá
Svíþjóð og flautuleikarinn Áshild-
ur Haraldsýóttir frá íslandi.
Fulltrúi íslands í norrænu dóm-
nefndinni var Gunnar Kvaran
sellóleikari.
I
Morgunblaðið/Börkur
Svandís Dagbjartsdóttir, Kristín Óskarsdóttir og eigandi Hár GaU-
erís Lilja Sveinbjömsdóttir.
Eigendaskipti á
Hár Galleríi
EIGENDASKIPTI hafa orðið á
hársnyrtistofunni Hár Gallerí að
Laugavegi 27. Nýi eigandinn er
Lilja Sveinbjömsdóttir en hún
starfaði áður á Saloon Ritz.
Á stofunni starfa ásamt Lilju
Kristín Óskarsdóttir, Svandís Dag-
bjartsdóttir og Erla Eyjólfsdóttir. Á
stofunni er boðið upp á alla al-
menna hársnyrtiþjónustu.