Morgunblaðið - 26.11.1987, Side 32

Morgunblaðið - 26.11.1987, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1987 Cylinda fe-' ASEA Cylinda þvottavél, gerð 11000 - SÉRTILBOÐ: kr. 37.990.00 stgr. Ath. tilboðið stendur aðeins í nokkra daga. íslensk barnabók fékk viðurkenn- ingu á alþjóðlegri barnabókasýningu Morgunblaðið/Sverrir Ragnheiður Gestsdóttir með viðurkenningarskjalið. Ásgeir Guð- mundsson námsgagnastjóri er til vinstri og Dusan Roll, forseti alþjóða barnabókaráðsins, til hægri. RAGNHEIÐUR Gestsdóttir fékk viðurkenningu á alþjóðlegri barnabókasýningu sem haldinn var í Bratislava í Tékkóslóvakíu í haust fyrir myndskreytingu bókarinnar Ljósin lifna. Náms- gagnastofnun gaf bókina út árið 1985 og sendi myndir úr henni á sýninguna. Doktor Dusan Roll, forseti alþjóða barnabókaráðs- ins, afhenti Ragnheiði, sem bæði myndskreytti og skrifaði bókina, viðurkenningarskjal í húsnæði Námsgagnastofnunar síðastlið- inn þriðjudag. Doktor Roll sagði meðal annars við afhendinguna að sýningar á myndskreytingum bamabóka hefðu verið haldnar annað hvert ár í Brat- isiava síðan árið 1967. 2500 myndskreytingar eftir 363 lista- menn frá 58 löndum hefðu verið sýndar að þessu sinni. Dómnefnd skipuð dómurum frá- 14 löndum hefðu síðan valið þær 24 bækur sem fengu viðurkenningu. A annað hundrað þúsusund manns sóttu sýninguna, sem haldin var í septem- ber og október. Ljósin lifna fékk verðlaun í sam- keppni um létt lesefni sem Námsgagnastofnun efndi til árið 1985 og var gefin út það ár. Ragn- heiður sagði í samtali við Morgun- blaðið að bókin fjalli um strák sem býr með móður sinni í blokk og um samskipti fólks sem lendi í raf- magnsleysi. Myndir bókarinnar, klippimyndir í grátónum og einum lit, hefðu verið unnar úr mislitum pappír, dagblöðum og fleiru. Hún sagði einnig að verðlaunin væri mikil uppörvun fyrir sig og að hún væri einnig ánægð með hversu mik- ið gagn bömin hefðu af bókinni. Ragnheiður vann einnig ein verð- laun af þremur í samkeppni sem Námsgagnastofnun efndi til á þessu ári fyrir bókina Sköpun. Sú bók er byggð á sköpunarsögu Gamla testa- mentisins og verður gefin út í byijun desember. Ragnheiður hefur einnig myndskreytt Sögu af Suður- nesjum eftir Jóhannes úr Kötlum og nokkrar bamabækur. Sýning á myndum Ólafs Jónssonar ER FRÁBÆR GJÖF Leikfélagi, sem áeftiraöendast lengi. Þýsku dúkkurnar fráZapf eru vönduð leikföng, sem ekki láta á sjá við misjafna meöhöndlun ungra eigenda. Póstsendum — Góð aðkeyrsla, næg bílastæði. SÝNING á myndum eftir Ólaf heitinn Jónsson siglingafræðing stendur nú yfir í listakrubbu Bókasafns Kópavogs. Ólafur Jónsson var fæddur 17. ágúst 1906 og lést 15. ágúst 1986. Hann lærði teikningu hjá Stefáni Eiríkssyni og lærði einnig prent- myndagerð í ísafoldarprentsmiðju um tíma. Einnigtók Ólafur ljósmynd- ir allt frá fermingaraldri. Á sýningunni í Bókasafni Kópa- vogs eru gamlar myndir úr Reykjavík unnar með sáldþrykki svo og myndir frá sólarlöndum. Einnig eru á sýning- unni landslagsmyndir frá ýmsum stöðum á íslandi og nokkrar vatn- slitamyndir. Alls em 30 myndir á sýningunni og eru þær allar til sölu. Sýningin er opin á sama tíma og bókasafnið, mánudaga til föstudaga kl. 9-21 og laugardaga kl. 11-14 og stendur til 31. desember. KRINGLUNNI8-12/103 REYKJAVlK/SlMI (91)665868 lSSSLWPQhús, iðhf vegi 164 simi 21901 Fatnaður Skátabúðin býður mjög þægi- legan og vandaðan fatnað sem hentar hvar sem er. Útiveru- fatnaðurtil notkunar vetur, sumar, vorog haust. Hlýlegar jólagjafir keyptar hjá fag- mönnum sem byggja á mikilli reynslu. Skátabúðin — skarar framúr. SKATABUÐIN Snorrabraut 60 sími 12045: Reglur um gullkort samræmdar EUROCARD og Visa-ísland hafa samræmt reglur sinar um notkun gullkorta þannig að allar úttektar- heimildir eru miðaðar við fimm þúsund Bandaríkjadali vegna ferða erlendis, uppfylli korthafar skilyrði Gjaldeyriseftirlits Seðla- banka íslands, og 200.000 krónur vegna notkunar innanlands. Samkvæmt reglum fyrirtækjanna ákvarðast önnur fríðindi sem fylgja kortinu af hvoru fyrirtækinu fyrir sig. Fyrirtækin hafa komið sér sam- an um að nota sameiginlega heitið „gullkort" til aðgreiningar frá al- mennum kortum, segir í frétt frá fyrirtækjunum. Áskriftarsiminn er 83033

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.