Morgunblaðið - 26.11.1987, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1987
AFVOPNUNARSÁTTMÁLI RISAVELDANNA:
Hundruð nmnna munu sínna
eftirliti næstu þrettán árin
Genf, Reuter.
GEORGE Shultz, utanrikisráðherra Bandarikjanna, skýrði frá i
Genf á þriðjudag hvernig- staðið verður að eftirliti með því að ákvæði
væntanlegs afvopnunarsáttmála risaveldanna verði virt. ÁgTeiningur
um eftiriitsþáttinn hafði tafið fyrir því að gengið yrði frá lokadrög-
um samkomulags um upprætingu skamm- og meðaldrægra kjarn-
orkuflauga á landi og var ákveðið að þeir Shultz og Eduard
Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, hittust að máli í
Gíenf til að jafna ágreininginn. Það tókst á þriðjudag og verður
sáttmálinn undirritaður 8. desember á þriggja daga löngum fundi
leiðtoga risaveldanna í Washington.
Reuter
Utanrikisráðherrar risaveldanna, George Shidtz og Eduard She-
vardnadze (til vinstri) takast i hendur við upphaf viðræðna þeirra
i Genf á þriðjudag.
Sáttmálinn mun ekki taka gildi
fyrr en öldungadeild Bandaríkja-
þings hefur staðfest hann. Að sögn
Shultz munu nokkur hundruð eftir-
litsmenn beggja risaveldanna he§a
störf um leið og sáttmálinn gengur
í gildi. Munu þeir halda til þeirra
staða þar sem flaugamar eru
geymdar bæði í Austur- og Vestur-
Evrópu og í Sovétríkjunum. Flaug-
amar á hverjum stað verða taldar
og þær tölur bomar saman við upp-
lýsingar sem samninganefndir
risaveldanna í Genf munu þá hafa
látið í té um fjölda þeirra. Shultz
gat þess að fulltrúar Sovétstjómar-
innar hefðu enn ekki afhent
bandarísku samningamönnum
þessar upplýsingar en þeir höfðu
heitið því að koma þeim á fram-
færi síðar í þessari viku.
Fyrirvaralaust eftirlit
Næstu þtjú árin munu eftirlits-
mennimir fylgjast með eyðilegg-
ingu flauganna. Að því loknu verða
geymslustaðimir aftur skoðaðir
rækilega til að ganga úr skugga
um að flaugamar hafi verið upp-
rættar með öllu. Næstu tiu árin
verður eftirlitsmönnunum heimilt
að skoða alla geymslustaðina auk
verksmiðja þar sem smíði og sam-
setning flauganna hafði áður farið
fram.
Ifyrstu þijú árin verður eftirlits-
mönnum heimilt að kreflast þess
tuttugu sinnum, með mjög skömm-
um fyrirvara, að þeim verði leyft
að rannsaka geymslustaðina og
verksmiðjumar. Næstu fímm árin
þar á eftir verða 15 slíkar skoðunar-
ferðir heimilar á ári hveiju og tíu
næstu fímm árin þar á eftir. Þann-
ig er gert ráð fyrir að linnulitlu
eftirliti verði haldið uppi í 13 ár
eftir að samningurinn tekur gildi.
Þar sem samkomulagið tekur til
tæplega 1.500 kjamaodda í eigu
Sovétmanna en einungis 350
bandarískra munu Sovétmenn eyði-
leggja flaugar sínar hraðar en
Bandaríkjamenn. Þegar jöfnuði er
náð í Ijölda kjamaodda verður þeim
eytt samtímis.
Haldið verður uppi stöðugu eftir-
liti í einni verksmiðju hvors stór-
veldisins þar sem samsetning
kjamorkueldflauga fer fram auk
þess sem reglulegt eftirlit mun fara
fram í þeim verksmiðjum sem fram-
leiða skotpalla. Eftirlitsmenn
Bandarílqastjómar munu þannig
fylgjast með samsetningTi lang-
drægra SS-25 flauga, sem svipa
mjög til hinn meðaldrægu SS-20, í
verksmiðju einni í Votinsk austan
Úralfjalla. Þá er ennfremur kveðið
á um að Bandaríkjamenn geti fyrir-
varalítio krafíst þess að skotstaðir
SS-25 flauganna verði „opnaðir" til
að unnt verði að taka myndir af
flaugunum úr gervihnöttum. Shultz
vildi ekki láta uppi hvemig staðið
yrði að eftirliti í Bandaríkjunum og
bar við að ekki hefði gefíst ráðrúm
til að skýra bandarískum embættis-
mönnum frá því en líklegt er talið
að sams konar ráðstafanir verði
viðhafðar þar. Sökum þessa munu
bæði stórveldin þurfa að koma upp
nýjum hliðum í samsetningarverk-
smiðjum þessum þar sem komið
verður fyrir ljósmyndavélum með
tilheyrandi ljósabúnaði.
Skammdrægar eld-
flaugar
Þá hafa risaveldin orðið ásátt um
að sendar verði orðsendingar til
aðildarríkja Varsjárbandalagsins og
Atlantshafsbandalagsins þar sem
því er heitið að lög og sjálfsákvörð-
unarréttur sérhvers ríkis verði
virtur er fylgst verður með útrým-
ingu þeirra vopna sem komið hefur
verið í rílq'um þessum. Skamm-
drægar flaugar, sem Sovétmenn
hafa komið fyrir í nokkrum aust-
antjaldslöndum verða eyðilagðar
innan 90 daga frá gildistöku sátt-
málans og 72 skammdrægar
flaugar í eigu Vestur-þjóðveija af
gerðinni Pershing 1-A, sem unnt
er að búa bandarískum kjarnaodd-
um, verða eyðilagðar innan eins árs.
Hundruð manna munu sinna eft-
irliti þessu næstu 13 árin og benti
Shultz fréttamönnum á blaða-
mannafundinum í Genf á að þama
væri komið kjörið tækifæri fyrir þá
að skipta um starf!
Austur-Þýskaland:
Bækur á
kirkjubóka-
safni gerð-
ar upptækar
Austur-Berlín, Reuter.
AUSTUR-þýskir öryggisverðir
létu greipar sópa um kirkjubóka-
safn í Austur-Beriin og tóku auk
þess fimm manns höndum að því
er Hans Simon prestur sagði
fréttamönnum í gær.
Öryggisverðimir tóku eintök af
neðanjarðartimaritum í sína vörslu.
Fjórtán ára dreng sem var hand-
tekinn var stuttu síðar sleppt.
Bókasafnið tilheyrir zíonistakirkju ?
borginni og þar eru gjaman haldnir
fundir. Bækur safnsins eru einkum
um umhverfísmál. Simon sagði einn-
ig að þijár prentvélar hefðu verið
gerðar upptækar í lögregluaðgerð-
inni sem átti sér stað um miðja nótt.
Opinberir aðilar vöruðu við því í
síðustu viku að þeir teldu að prent-
vélamar væru notaðar til að fjölfalda
efni sem ekki heyrði undir venjulega
kirkjulega starfsemi.
Að undanfömu hafa samskipti
kirkjunnar i Austur-Þýskalandi og
ríkisins versnað, einkum í kjölfar
harðorðrar ræðu aðalhugmynda-
fræðings kommúnistaflokksins,
Kurts Hager.
Tommi og Jenni í Sovétríkjunum
Konan á myndinni heldur hér á stuttermabol með mynd af Tomma
og Jenna. Það sem er frásagnarvert við þetta framferði konunnar er
að hún er stödd á Stavropol-markaðnum í Moskvu.
Noregnr:
EB með fastanefnd í Noregi
Ósló. Norinform.
NEFND á vegum Evrópubanda-
lagsins hefur nú fast aðsetur I
Noregi. Opnaði bandalagið skrif-
stofu í Ósló í síðustu viku, hina
fyrstu f aðildarlöndum EFTA.
í nefndinni verða sjö manns og
verður Aneurin Rhys Hughes frá
Wales oddviti hennar. Skrifstofan á
að sjá Norðmönnum fyrir upplýs-
ingum um hvaðeina, sem fram fer
innan vébanda Evrópubandalags-
ins, og greiða fyrir samskiptum
bandalagsins og norskra stjóm-
valda, að því er sagt var við
opnunarathöfnina.
Gro Harlem Brundtland forsætis-
ráðherra sagði, að þessi atburður
markaði tímamót í samskiptum
Noregs og EB, og Thorvald Stolten-
berg utanríkisráðherra sagði, að
skrifstofan yrði mikilvægur sam-
skiptamiðill milli bandalagsins og
Noregs. Hann bætti við, að enn
væri of snemmt að segja til um,
hvort Noregur sækti um aðild að
EB.
Willy de Clercq, sem fer með
utanrikismál fyrir hönd EB, sagði,
að skrifstofan yrði ekki áróðursmið-
stöð til að fá Norðmenn til að sækja
um aðild. „Ef breyting verður á
afstöðu landsmanna, verður hún að
þróast hægt og rólega og á breiðum
grundvelli," sagði de Clercq. „Evr-
ópubandalagið hefur ekki áhuga á
nýju aðildarríki með aðeins 51%
þjóðarinnar á bak við sig.“
Rúmenía:
Niður með harðstjór-
ann, við viljum brauð!
- hrópuðu verkamenn í Brasov
Vín, Reuter.
MÓTMÆLI verkamanna f Rúm-
eníu vegna lífsskilyrða og
aðbúnaðar á vinnustað eru þau
mestu í 20 ára sögu stjómar
Nicolae Ceausescus sfðan námu-
menn efndu til verkfalls árið
1977.
Vestrænum erindrekum í Rum-
eníu þykir þó ólíklegt að mótmælin
séu bein ógnun við stöðu Ceau-
sescus sem er nú tæplega sjötugur.
Hann og kona hans Elena stjóma
með harðri hendi svo slíks fínnast
ekki annars staðar dæmi í austur-
blokkinni.
Mótmælaaðgerðimar fyrir
rúmri viku í Brasov, næst stærstu
borg Rúmeníu, bratust meðal ann-
ars út vegna óánægju með launa-
skerðingar samkvæmt frásögn
sjónarvotta. Brátt snerast upp-
steytin upp í almenn mótmæli við
varanlegum fæðuskorti og harðn-
eskjulegri stjóm Ceausescus.
Verkamenn í hinni risavöxnu
bifreiðaverksmiðju, Rauða flagg-
inu, höfðu áður efnt til verkfalls.
Það var árið 1983. Nú eru þeir
sárir því laun þeirra hafa verið
lækkuð vegna þess að þeir hafí
ekki framleitt nóg en samkvæmt
nýjum lögum um sjálfstjóm verka-
manna bera þeir sjálfír ábyrgð á
framleiðslunni og verða að taka
afleiðingum lítillar framleiðslu.
Sárindin jukust þegar starfsmönn-
um á næturvakt var skipað að
vera lengur í vinnunni einn daginn
og taka þátt í bæjarstjómarkosn-
ingum.
Gangan að kosningastöndunum
breyttist brátt í mótmælagöngu
þar sem borinn vora skilti með
áletrunum eins og: „Niður með
harðstjórann" og „Við viljum
brauð". Auk þess sungu verka-
mennimir ættjarðarlög. En
kommúnistastjómir reyna gjama
að bæla niður þjóðemiskenndar
tilhneigingar og höfða frekar til
alþjóðahyggju sósíalismans.
Verkamennimir sem vora um
það bil tuttugu þúsund talsins réð-
ust til atlögu við ráðhús borgarinn-
ar og aðalstöðvar flokksins. Þar
gerðu þeir usla í skjalasafninu og
kveiktu í að minnsta kosti einni
byggingu.
Þremur stundum eftir að mót-
mælin hófust tókst lögreglu og
hermönnum að stöva óeirðimar
og frásagnir sjónarvotta greina frá
því að margir hafí verið hand-
teknir. Óstaðfestar heimildir segja
að tveir lögreglumenn og nokkrir
borgarar hafí látið lífíð.
Menn hafa veitt því athygli að
Ceausescu fór á mánudag til
Egyptalands ( opinbera heimsókn.
Það hefði hann tæpast gert ef
hann væri ekki öraggur með sjálf-
an sig og stöðu sína. Fulltrúar
vestrænna ríkja í Rúmeníu hafa
bent á að sú staðreynd að óán-
ægja skyldi koma upp á yfírborðið
í Brasov sem er ein af auðugari
borgum Rúmeníu bendi til að víðar
sé heitt í kolunum.
Stjómin hefur skorið innflutn-
ing stórlega niður að undanfömu
til að eiga fyrir erlendum skuldum
og mikið af söluvamingi eins og
matvælum er flutt úr landi. Einnig
hafa verið settar strangar skorður
við notkun gass og rafmagns en
slík þjónusta var af skomum
skammti fyrir.