Morgunblaðið - 26.11.1987, Page 35

Morgunblaðið - 26.11.1987, Page 35
35 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1987 Annáll leiðtogafunda risaveldanna Washington, Reuter. ÞRATT fyrir að leiðtogar Bandaríkjanna og Sovétríkjanna hafi hist öðru hvoru frá dögum seinni heimsstyrjaldar er tiltölulega stutt síðan þeir fóru að hittast tveir einir. Hér á eftir fylgir knappur annáll yfir leiðtogafundi risaveldanna. September 1959 Dwight Eisenhower og Níkíta Khrústsjov hittast í Camp David, sumarbústað forsetaembættisins í Maryland-fylki. Þar verða þeir ásáttir um að deilur risaveldanna skuli leystar með samningaviðræð- um og að afvopnun skuli vera helsta viðfangsefni þeirra. Maí 1960 Sovétmenn fresta áætluðum leið- togafundi eftir að þeir skjóta niður bandaríska njósnaflugvél af gerð- inni U-2 yfir Sovétríkjunum og handsama flugmann hennar Gary Powers. Júní1961 John F. Kennedy og Khrústsjov hittast í Vínarborg. Þar reynir kommúnistaleiðtoginn á staðfestu hins unga forseta og snörp orða- skipti endurspegla „kalda stríðið", sem þá nálgaðist hápunkt sinn. Mánuði síðar hefjast Sovétmenn handa við að reisa Berlínarmúrinn og í október 1962 sýður upp úr þegar Sovétmenn taka til við að koma kjarnorkueldflaugum á Kúbu. Júní1967 Lyndon B. Johnson og Alexej Kosygín, forsætisráðherra Sov- étríkjanna og hluti ráðandi þríeykis í Moskvu (hinir voru Leoníd Brez- hnev og Níkolaj Podgorníj), hittast í Glassboro í New Jersey-fylki í Bandaríkjunum. Þar ræða þeir ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs, Víetnam-stríðið og kjamorkuvopn. Niðurstaða fundarins var þó engin. Maí 1972 Richard Nixon og Leoníd Brez- hnev hittast í Moskvu, en þá var Brezhnev orðinn fremstur meðal jafningja í þríeykinu, sem fyrr var nefnt. í þessari fyrstu heimsókn forseta Bandaríkjanna til Moskvu hefst slökunartímabilið, en leið- togarnir nota tækifærið til þess að undirrita fyrsta SALT-samninginn, sem takmarkar kjamorkuherafla risaveldanna, sáttmála um tak- markanir á flugskeytum til þess að granda kjamorkuflaugum og nokkra samninga um samvinnu í vísindum og á menningarsviðinu. Júní1973 Framhaldsfundur leiðtogafund- arins í Moskvu er haldinn í Was- hington, en þar fallast þeir Nixon og Brezhnev á reyna að gera með sér nýjan samning um takmörkun á vígbúnaði fyrir árslok 1974. Júní-júlí 1974 Á fundi í Moskvu undirrita Nixon og Brezhnev samninga um tak- markanir á afli tilraunasprenginga neðanjarðar og takmarka gagn- Reagan Bandaríkjaforseti býður Gorbatsjov velkominn til fundar- ins í Höfða. flaugar við eitt vopnakerfi sitt hvom megin jámtjalds. Mánuði síðar segir Nixon af sér. Nóvember 1974 Gerald Ford og Brezhnev koma sér saman um uppkast að SALT II. í borginni Vladivostok á Kyrrahafs- strönd Sovétríkjanna. Júlí-ágúst 1975 Ford og Brezhnev halda tvo einka- fundi á meðan Helsinki-ráðstefn- unni stendur, þar sem þeir reyna að leysa vandamál varðandi SÁLT II. Áætluð heimsókn Brezhnevs til Washington á árinu á sér hins veg- ar ekki stað. Júní1979 Jimmy Carter og Brezhnev koma til fundar í Vínarborg, þar sem þeir undirrita SALT II., sem tak- markar kjamorkuflaugar, sprengjuflugvélar og stýriflaugar. Sáttmálinn hlýtur þó aldrei stað- festingu öldungadeildar Banda- ríkjaþings, en óopinberlega virtur til ársins 1986. Nóvember 1985 Ronald Reagan og Míkhaíl Gor- batsjov koma til fundar í Genf og verða ásáttir um að hraða beri við- ræðum um kjamorkuvopn og geimvopn. Ennfremur tilkynna þeir að fleiri leiðtogafundir séu á döf- inni. Október 1986 Reagan og Gorbatsjov hittast með skömmum fyrirvara í Reykjavík og ræða þar upprætingu skamm- og meðaldrægra kjam- orkuflauga. Á síðustu stundu gerir Gorbatsjov það að skilyrði að geim- vamaáætlun Bandaríkjanna verði takmörkuð veralega, en á það getur Reagan ekki fallist svo að fundurinn rennur út í sandinn. Þess ber þó að geta að árangur Reykjavíkurfundarins varð meiri en á horfðist rétt eftir fundarslit, því það sem leiðtogunum fór þar á milli hefur verið lagt til grand- vallar samningaviðræðum risa- veldanna í Genf. Afrakstur þeirra hyggjast þeir Ronald Reagan og Míkhafl Gorbatsjov undirrita inn- an tíðar á leiðtogafundi sínum í Washington 7.-10. desember. Danmörk: Verða stofnuð ný sjó- mannasamtök? Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, frétta- rítara Morgunblaðsins. DANSKIR sjómenn, sem nú krefjast bættra kjara og ann- arra úrbóta í atvinnugreininni, faafa hótað að segja sig úr sam- tökum sínum og stofna ný. Sjómennirnir eru nú í tveimur félögum eftir því hvort þeir fiska á grunnslóðinni eða sækja dýpra. Þessar hugmyndir koma frá sjó- mönnum á þeim rúmlega 100 bátum og togurum, sem liggja við Löngulínu, en þangað komu þeir til að mótmæla og láta í ljós óánægju sína með viðræðumar milli forsvarsmanna félaganna og Lars P. Gammelgárd sjávarút- vegsráðherra. Finnst þeim kvótinn vera of lítill og of margir bátar í flotanum en það síðamefnda stafar m.a. af því, að vegna lítils verðs fyrir bræðslufisk hafa marg- ir bátar snúið sér að neyslufiskin- um. Sjávarútvegsráðuneytið ætlar að veija 400 millj. dkr. til endurfj- ármögnunar og til að greiða fyrir úreldingu skipa en sjómönnum finnst ekki nóg að gert. Segja þeir, að fyrir þetta fé megi leggja 40-50 skipum en þeir vilja skera fiskiskipastólinn, 3.000 skip, niður um 20%, um 600 skip. Fym verði veiðamar ekki arðbærar. Á þriðjudag áttu talsmenn sjó- mannasamtakanna og sjávarút- vegsráðherra þriggja tíma fund án þess, að nokkuð þokaðist í átt- ina og á þingi er meirihluti gegn áætlun ráðherrans. I DAG, FÖSTUDAG OG LAUGARDAG FYLGIR 1 BÍÓMIÐI HVERJU EINTAKI AF „DIRTY DANCING" OTIÐ ÞETTA EINSTAKA TÆKIFÆRI OG SLÁIÐ TVÆR FLUGUR í EINU HÖGGI. S • K* I • F • A • N Borgartúni 24, Laugavegi 33 og Kringlunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.