Morgunblaðið - 26.11.1987, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 26.11.1987, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1987 49 Suðureyrarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta í tílefni 50 ára afmælis Suðureyri. Á STAÐ í Súgandafirði hefur staðið kirkja frá því á landnáms- öld og í gegnum aldirnar hafa margir prestar setið staðinn. Kirkjan á um þessar mundir 50 ára afmæli og var í þvi tílefni hátiðarguðsþjónusta sunnudag- inn 22. nóvember. Upp úr síðustu aldamótum með tilkomu vélbátanna myndaðist þorp á Suðureyri og var að vonum að íbúar þorpsins vildu eignast kirkju. Það var því 1926 að Kvenfélagið Ársól ákvað að stofna kirkjubygg- ingarsjóð með framlagi að upphæð krónur 300 sem afhent var sóknar- nefnd Staðarprestakalls. Á næstu árum var haldið áfram fjársöfnun til kirkjubyggingar, aðallega með því að beittar voru lóðir sem físki- bátamir tóku með sér á sjóinn og andvirði aflans rann óskipt í kirkju- byggingarsjóð því að öll vinna og annar kostnaður var gefínn. Fleiri aðferðir voru notaðar til fláröflunar kirkjubyggingar, m.a. kirkju- skemmtun á sumardaginn fyrsta. í júní 1936 var gengið til samn- inga við Jón Jónsson húsasmið á Flateyri og honum falið að byggja þá kirkju sem hér stendur. Jón teiknaði kirkjuna og bauðst til að byggja hana fyrir krónur 17.200 sem og varð. Suðureyrarkirkja var síðan vígð 1. ágúst 1937 og á haust- dögum það ár var rekstur kirkjunn- ar formlega falin sóknamefnd. Hafði á einum áratug tekist að ná því markmiði að byggja kirkju á Suðureyri og var byggingin skuld- laus með öllu í verklok. Sunnudaginn 22. nóvember sl. var síðan haldið upp á 50 ára af- mæli Suðureyrarkirkju með hátíð- arguðsþjónustu er hófst kl. 20.00. Þar voru viðstaddir biskup íslands, Sigurður Guðmundsson, er predik- aði, prófasturinn í Isafjarðarsýslu, jS£» Ath! Nýtt heimilisfang Hef flutt skrifstofu mína að Garðatorgi 5, Garðabæ. Sími 656688. Klemenz Eggertsson, héraðsdómslögmaður. Blaðberar Suðureyrarkirkja. Morgunblaöið/Halldór Bemódusson Frá hátíðarguðsþjónustunni í Suðureyrarkirkju. Viðstaddir voru Sig- urður Guðmundsson biskup Islands, sr. Lárus Þ. Guðmundsson, sr. Gunnþór Ingason, og sr. Karl V. Matthíasson. INNLENT sr. Lárus Þ. Guðmundsson í Holti, sr. Gunnþór Ingason prestur í Hafn- arfírði, sem hér gegndi prestakalli fyrir nokkrum árum, og sr. Karl V. Matthíasson sem hér hefur starf- að frá því í vor sl. Sr. Kari V. Matthíasson hefur nú fbrmlega ver- ið kosinn prestur í Staðaprestakalli í Súgandafírði og var á þessari hátíðarguðsþjónustu formlega sett- ur f embætti af prófastinum, sr. Lárusi Þ. Guðmundssyni. Að lokinni guðsþjónustunni var kaffísamsæti í félagsheimilinu og voru þar flutt mörg ávörp og kom þar fram að kirkjan hefði fengið margar gjafir í tilefni afmælisins. HB Símar 35408 og 83 Námskeið fyrir atvinnu- uppfinningamenn Verkfræðingafélag íslands og JHM, alþjóða ráðstefnuþjón- ustan, efna til námskeiðs föstu- daginn 27. nóvember fyrir atvinnuuppfinningamenn. Fyrirlesari verður Lennart Ni- elsson forstjóri Sænska uppfínn- ingafyrirtækisins Teknovator AB sem er í eigu Uppfínningafélags Svíþjóðar og annast ráðgjöf á öll- um sviðum uppfinninga frá öflun hugmynda, einkaleyfísumsókna, fjármögnun og sölu á hugmyndum. Námskeiðið verður haldið á ensku og ber heitið: „The necessity for professional inventions for industr- ial development". Námskeiðið verður haldið í Verkfræðingahúsinu við Suður- landsbraut Allir áhugamenn um uppfinningar eru velkomnir að sækja námskeiðið. Nánari upplýsingar veitir skrif- stofa Verkfrseðingafélagsins og Jón Ásgeirsson, Mannamót sf. (Fréttatilkynning) AUSTURBÆR Lindargata 39-63 o.fl. Skipholt 1-38* Skipholt 40-50 Háahlíð Eskihlíð 5-15 o.fl. VESTURBÆR Ægisíða 80-98 o.fl. Nýlendugata Einarsnes Látraströnd Skildinganes SELTJNES Sæbraut UTHVERFI Skeifan Njörvasund Birkihlíð Ystibæro.fl. KOPAVOGUR Holtagerði Skjólbraut Kársnesbraut77-139 Lennart Nielsson forstjóri Teknovator AB.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.