Morgunblaðið - 26.11.1987, Síða 74
74
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1987
JNBH?
• FOLK
■ VESTUR Þýska knattspymu-
landsliðið heldur í keppnisferðalag
til Suður Ameríku í næsta mán-
uði, leikur þar gegn Argentínu og
' Brasilíu. Horfur eru nú á því að
það verði hálfgert skraplið sem fer
til viðureignanna. Um helmingur
, fastamanna liðsins eiga nú við
meiðsl að stríða eða að þeir fá sig
ekki lausa frá félögum sínum og
frekar ólíklegt þykir á þessu stigi
að þeir hinir sömu verði með í þess-
um leikjum. Og til að bæta gráu
ofan á svart þá á Olympíulið Vest-
ur Þýskalands mikilvægan leik 12.
desember gegn Grikklandi, þannig
að Franz Beckenbauer landslið-
seinvaldur getur ekki fyllt í götin
með B-iiðsmönnum. Horfur eru á
því, að Lothar Mattheus og
Andreas Brehme verði einu leik-
mennimir sem mæta Argentínu
sem vom í liðinu sem tapaði 2-3
fyrir Argentínu í úrslitaleik HM í
fyrrasumar. Þeir leikmenn sem um
ræðir em Rudi Vðller, Klaus Al-
lofs og Thomas Berthold, sem em
á mála hjá félögum utan Þýska-
lands, Uwe Rahn og Wolfram
■' Jtr Wuttke em meiddir og Matthias
Herget er í leikbanni.
■ DREGIÐ verður í riðla loka-
keppni Evrópukeppni landsliða í
knattsþymu í Dusseldorf 12. jan-
úar næst komandi, en keppnin fer
fram í Vestur Þýskalandi 10. til 25.
júní á næsta ári. 8 ára drengur
hefur verið fenginn til þess að sjá
um dráttinn í janúar, Christian
Stielike, sonur hins gamalkunna
landsliðsmanns Uli Stielike, sem
gerði garðinn frægan með Borussia
Mönchengladbach og Real
Madrid. _
■ GRÍSKA knattspymusam-
handlidhefur lýst jrfír, að leikur
Grikkja og Hollendinga í Aþenu
í næsta mánuði, muni fara fram
fyrir luktum dumm og væri það í
mótmælaskini við ákvörðun FIFA,
að milda dóminn yfír Hollending-
um eftir atvikið fræga í Rotterd-
am, er áhorfandi henti bombu
mikilli að markverði Kýpur er
Holland og Kýpur áttust þar við.
Slasaðist markvörðurinn og fyrsti
dómurinn sem féll á Holland var
að 8-0 sigri liðsins var breytt í 0-3
tap. Dómurinn var svo mildaður
eftir áfrýjun Hollendinga og ákveð-
- ið að þjóðimar skyldu leika aftur
fyrir luktum dumm. Sotiris Al-
missis, forseti gríska knattspymu-
sambandsins sagði 1 fyrra kvöld að
áfrýjunardómurinn væri hneyksli.
3-0 sigur Kýpur hefði haldið glóð-
um f möguleikum Grikkja að
komast í lokakeppni HM, en svo
fremi sem Holland vinni aukaleik-
inn gegn Kýpur, em þeir möguleik-
ar ekki einu sinni tölfræðilegir og
því ætluðu Grikkir að láta FIFA
fínna ærlega fyrir óánægju sinni
með hringlandann.
■ ENN þarf að leiðrétta nafn
liðsstjóra GR-sveitarinnar sem
keppti á Aloha-mótinu á Spáni.
Hann heitir Garðar Eyland. Hann
er beðinn er velvirðingar að rang-
lega var farið með nafna hans í
blaðinu í gær.
■ KJÖRINN hefurverið forseti
Alþjóða Júdósambandsins eftir árs-
þing í Essen í Vestur Þýskalandi.
Hinn hlutskarpi heitir Sartkis Ka-
loghlianog er Argentínumaður.
Kjör hans kom í kjölfarið á átta ára
setu Japanans Shigeioshi Mats-
umea, sem sagði af sér. Fram-
kvæmdastjóri var kjörinn Egyptinn
Shawki Shafek. Flestir fulltrúar
júdósambanda þriðja heimsins
stóðu á bak við Kaloghlian, en
mótframbjóðandi hans var Georges
Pfeiffer frá Frakklandi.
■ NM-mót unglinga í sundi fór
fram í sl. helgi. í um^öllun Morgun-
blaðsins var talað um Eyjólf
Jóhannesson frá Akranesi. Pilturinn
heitir í raun Eyleifur og er það leið-
rétt hér með.
Ólafur Qylfason leikmaðurinn efnilegi hjá ÍR, mun leika sína fyrstu lands-
leiki í Luxemborg og Belgfu. Hér sést hann skorað í leik gegn Breiðablik.
FANGBROGÐ
Garðar sigraði
íGlasgow
GARÐAR Vilhjálmsson sigr-
aði í sfnum fiokki í axlatök-
um á alþjóðlegu móti í
fangbrögðum sem fram fór
í Glasgow í Skotlandi um
síðustu helgi. Alls tóku fjór-
ir íslenskir keppendur þátt
í mótinu.
Garðar Vilhjálmsson (Ein-
arssonar) sigraði örugg-
lega í flokki yfír 100 kg í
axlatökum. Pétur Yngvason
varð annar í 90-100 kg flokki,
Ámi Unnsteinsson varð þriðji í
80-90 kg flokki og Amgeir Frið-
riksson, sem jafnframt var
yngsti keppandi mótsins aðeins
17 ára, varð í 4. sæti í flokki
68-74 kg.
Þetta var í fyrsta sinn sem ís-
lendingar senda keppendur utan
í þessari grein íþrótta. Samhliða
mótinu urðu íslendingar aðilar
að Alþjóðasambandi um kelt-
nesk fangbrögð.
KNATTSPYRNA
Steve Walsh lékk
níu leikja bann!
Steve Walsh, miðvörður Leicest-
er City, sem leikur í 2. deild
ensku knattspymunnar, hefur verið
dæmdur í 9-leikja bann af aganefnd
enska knattspymusambandsins og
er það nýtt met í sögu bresku knatt-
spymunnar. Walsh þessi er alltaf
að lenda upp á kant við aganefnd-
ina. 9-leikja bannið samanstendur
raunar af tveimur aðskildum bönn-
um, hann fékk 6-leikja bann fyrir
að kjálkabijóta Dave Geddis hjá
Shrewsbury í bræðiskasti og svo
bætti aganefndin 3-leikja banni við
er Walsh nældi sér í sitt 21. refsi-
stig í deildarleik um síðustu helgi.
Kjálkabrotið var í ágúst, en þar sem
Walsh áfrýjaði dómnum átti bánnið
ekki að taka gildi fyrr en nú. Hann
tók hins vegar strax út 2-leikja
bann fyrir rauða spjaldið sem hann
fékk fyrir lq'aftshöggið, þannig að
í raun missir hann úr 11 leiki vegna
bramboltsins alls. Er nú útséð um,
að Steve Walsh verður ekki í Leic-
ester-liðinu að minnsta kosti fram
í miðjan janúar og hver veit hvem-
ig staðan verður þá í liði Leicester.
Walsh gæti átt erfítt með að kom-
ast aftur í lið.
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Margir nýliðar leika í
Luxemborg og Belgíu
KNATTSPYRNA
Hughes
áframhjá
Bayem?
Við vissum ósköp lítið um
hvemig formi Hughes var
þegar við leigðum hann frá
Barcelona, en urðum forviða er
við sáum hann leika. Hann hefur
verið frábær og ef framhald
verður, þá er ekkert líklegra en
að við reynum að gera kaup-
samning við Barcelona," sagði
Uli Höness í samtali við frétta-
menn í gærkvöldi og ræddi þar
um framtfð velska landsliðs-
mannsins Mark Hughes.
Mér líkar afar vel í Munchen
og Bayem hefur sett traust sitt
á mig. Ég hef verið að reyna
að standa undir því. Ég gæti
vel hugsað mér að leika áfram
með Bayem ef félagið hefur
áhuga á slíku," sagði Hughes
sjálfur. Þessar vangaveltur allar
em nokkuð áfall fyrir Alex
Ferguson stjóra Manchester
Utd, en Ferguson hefur lengi
haft áhuga á því að fá Hughes
aftur til United fyrir næsta
keppnistímabil, lítur á hann sem
mikilvægan hlekk í púslu sinni.
Morgunblaðið/Júlíus
BSÍ sér um hópferða-
akstur fyrir HSÍ
Handknattleikssamband íslands og BSÍ Hópferðarbílar hafa gert með
sér samstarfssamning sem gildir frá 1. nóvember 1987 og fram yfír
Olympíuleikana í Seoul, eða til 1. nóvember 1988. BSÍ Hópferðarbílar
munu sjá um allan hópferðaakstur á vegum HSÍ á því tímabili sem um
ræðir. A meðfylgjandi mynd má sjá f.v. Guðna Halldórsson framkvæmda-
sfjóra HSÍ, Guðlaugu Þórarinsdóttur formann BSÍ Hópferðarbfla, Kristinn
Bárðarson framkvæmdastjóra BSÍ Hópferðarbíla og Jón Hjaltalín Magnús-
son formann HSÍ.
- Hilmar Bjömsson hefur ekki valið endanlegan landsliðshóp sinn
FJÓRIR landsleikir í handknatt-
leik verða leiknir f Luxemborg
og Belgfu um miðjan desem-
ber. Það er B-landslið íslands
sem heldur utan til að leika
þessa landsleiki, sem eru
skráðir a-landsleikir. Hilmar
Björnsson, fyrrum landsliðs-
þjálfari, mun stjórna landslið-
inu í ferðinni.
Hilmar hefur enn ekki valið
endanlegan landsliðshóp fyrir
ferðina, þar sem hann hefur hug á
að nota leikmenn sem leika með
21 árs landsliðinu í HM í Júgó-
slavíu. Hilmar verður að bíða og
sjá hvort þeir leikmenn sem hann
hefur augastað á sleppi við meiðsli
í HM.
U 21 leikmennimir Skúli Gunn-
steinsson, Stjömunni, Guðmundur
Amar Jónsson, markvörður úr
Fram og Siguijón Sveinsson, sem
leikur með Schutterwald í V-Þýska-
landi, hafa gefíð Hilmari jákvætt
svar um að leika. Nokkrir leikmenn
em að athuga með frí úr vinnu og
skóla.
Hilmar hefur valið níu leikmenn,
sem em nú þegar byijaðir að æfa
fyrir ferðina. Það em þeir Ólafur
Gylfason, ÍR, Sigmar Þröstur
Óskarsson, Stjömunni, Hans Guð-
mundsson, Breiðablik, Bjöm Jóns-
son, Breiðablik, Gylfí Birgisson,
Stjömunni, Óskar Armannsson,
FH, Valdimar Grímsson, Val, Birg-
ir Sigurðsson, Fram og Hermann
Bjömsson, Fram. Hilmar mun síðan
bæta leikmönnum við þennan hóp.
Landsliðið heldur til Luxemborgar
15. desember. í Luxemborg verður
leikinn einn vináttuleikur. Liðið fer
þaðan til Belgíu og tekur þátt í fjög-
urra þjóða móti, ásamt Belgíu-
mönnum, Alsírsbúum og Svisslend-
ingum.
Margir af þessum leikmönnum hafa
ekki leikið a-landsleiki, eins og Sig-
uijón, Skúli, Guðmundur Amar,
Hermann, ólafur og Óskar.