Morgunblaðið - 10.12.1987, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
Sjónvarpssendingar frá leiðtogafundinum:
Hætt við samstarf
„STÖÐ 2 og ríkissjónvarpið
gerðu með sér samkomulag um
að skipta kostnaði við móttöku
frétta um gervihnött vegna leið-
togafundarins, en Stöð 2 féll frá
því þegar ríkissjónvarpið krafð-
ist staðfestingar á því að við
gætum nálgast þessar frétta-
myndir án milligöngu þess,“
sagði Sighvatur Blöndahl, mark-
aðsstjóri Stöðvar 2. Pétur
Guðfinnsson, framkvæmdastjóri
sjónvarpsins, sagði að vafi hefði
leikið á þvi að Stöð 2 hefði rétt
til sýninga á því efni sem RÚV
fengi frá Evrópusambandi sjón-
varpsstöðva.
Síghvatur Blöndahl sagði að
ríkissjónvarpið hefði að öllum
iikindum talið að Stöð 2 vildi sam-
starf við RÚV til að næla í frétta-
myndimar. „Við ákváðum að slíta
samkomulaginu, en við höfum að
sjálfsögðu ekki átt í erfiðleikum
með að útvega þetta efni og höfum
fullan rétt á sýningum þess. Hins
vegar varð þetta til þess að hvor
stöðin þarf nú að borga fullan
kostnað við móttökuna, í stað þeSs
að skipta kostnaðinum."
Pétur Guðfinnsson sagði, að
komið hefði til tals að sjónvarpið.
og Stöð 2 ynnu saman að móttöku
frétta í gegnum gervihnött. „Það
hefði auðvitað verið eðiilegt og þá
hefðum við getað skipt með okkur
kostnaðinum við sendingamar,"
sagði Pétur. „Síðan kom í ljós að
Stöð 2 hafði ekki útsendingarrétt á
því efni sem við fáum gegnum Evr-
ópusamtök sjónvarpsstöðva, að því
er við töldum. Ég hef hins vegar
orðið var við að Stöð 2 fær þetta
sama efni einnig til sýningar, svo
stöðin hefur orðið sér úti um það
með öðrum hætti. Héðan af er hins
vegar of seint að taka upp sam-
starf við Stöð 2 um útsendingar
efnis frá leiðtogafundinum."
Hvor sjónvarpsstöð sendi frétta-
mann til að fylgjast með leiðtoga-
fundinum. FVéttamaður Stöðvar 2
er einn á ferð, en verður sér úti
um myndatökumenn eriendis, þegar
þörf krefur. Sama er uppi á ten-
ingnum með fréttamann ríkissjón-
varpsins. Pétur Guðfinnsson sagði
í fyrstu hefði átt að senda frétta-
mann og upptökustjóra til Wash-
ington. „Það hefði verið leiðangur
með mikilli filmuvinnslu og kostn-
aður var áætlaður um ein milljón
króna. Því var ákveðið að Ámi
Snævarr færi einn út og við njótum
góðs af miklu efni frá öðrum sjón-
varpsstöðvum. Það er auðvitað
mikilvægt að hafa fréttamann úti,
sem upplifir atburðina á staðnum.
Ámi verður með fréttir af fundinum
og þegar hann kemur heim sér
hann um kastljósþátt, þar sem hann
vinnur úr því efni sem hann hefur
viðað að sér úti," sagði fram-
kvæmdastjóri ríkissjónvarpsins.
VEÐURHORFUR í DAG, 9.12.87
YFIRLIT á hédegi i g»r: Yfir Bretlandseyjum er 1028 mb. hæö
og önnur heldur mlnni yfir norðaustur Grænlandi. Yfir noröanverðu
landinu er læQÖardrag sem Iftið mun hreyfast. Áfram veröur hlýtt
( veðri nema á Veatfjöröum, norö- og noröausturlandi, en þar er
nú að kólna.
6PÁ: ( dag veröur auðvestlæg átt víöast kaldi um sunnan og vest-
anvert landiö, súld á suövestur- og vesturlandi en þurrt suöaustan-
lands og hiti 6—8 stíg. Norðanlands veröur norðaustankaldi, ól og
híti um eða rétt undir frostmarki.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
FÖSTUDAGUR OG LAUGARDAGUR: Breytileg átt, súld við suður-
ströndina, smóél á annesjum norðanlands en þurrt í öörum
landshlutum, Hiti nálægt frostmarki noröantil á landinu en 2—6°
hití syðra.
Á laugardag lltur út fyrlr norölæga átt og kólnandi veður með éljum
um noröaustanvert landið, skúrir viö suðurströndina en þurrt veat-
anlands.
TÁKN:
Heiðskírt
<á
æ.
*
Léttskýjað
HéKskýjaA
Skýjaö
Alskýjað
s, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
# # #
* * * * Snjókoma
# # #
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
V Skúrir
= Þoka
— Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
httl veður
Akursyri 10 akýjað
Raykjavík 8 rlgning og súld
Bargan 3 súldés.klst.
Helalnkl 9 skýjsð
JanMayen +10 snjókoma
Kaupmannah. 2 skýjað
Narasarasuaq 10 skýjað
Nuuk 3 léttakýjað
Ostó 1 akýjað
Stokkhólmur 2 slydda
Þérshöfn • akýjað
Algarve 17 skýjað
Amsterdam 2 þokumóða
Aþena 20 þokumóða
Bsrcelona 10 þoka
Beriin 6 þokumóða
Chlcsgo 8 rignlng
Feneyjar 3 akýjað
Frankfurt 2 helðsklrt
Qlasgow 3 þokaisfð.klst.
Hamborg 3 skýjað
LasPalmaa 21 hílfskýjað
London 4 mlstur
LosAngeles 10 •fyjað
Lúxemborg Madríd +4 12 léttskýjað skýjað
Malaga 1S tkýjað
MaHorca 13 rigning
Montraal +1 þokumóða
NewYork 6 tóttskýjað
Parfa +2 heiðskirt
Röm 12 ®kýj»ð
Vin +4 léttskýjaö
Washlngton 6 skýjað
Uilnnlnnn wmmpey 0 alskýjað
Valencia 12 rigning
Morgunblaðið/Börkur
Hluti bifreiðanna 117, sem Hekla hf. hefur flutt inn frá Noregi.
Bifreiðar þessar lentu f flóðum á hafnarbakka í Drammen í Noregi.
Bifreiðaeftirlit ríkisins:
Skoðar bifreið-
arnar frá Noregi
betur en aðrar
„ÞAÐ hefur verið ákveðið að
Bifreiðaeftirlitið taki fjórar bif-
reiðar til að byrja með og skoði
þær gaumgæfilega á verkstæði
okkar,“ sagði Finnbogi Egilsson,
blaðafulltrúi Heklu hf., en fyrir-
tækið hefur nú flutt inn 117
bifreiðar, sem lentu í flóðum á
hafnarbakka f Drammen í Nor-
egi.
Bifreiðamar komu hingað til
lands um sfðustu helgi og standa
nú við Faxaskála. Alls mun Hekla
hf. flytja inn rúmlega 300 bifreiðar
frá Noregi og verða þær seldar á
mun lægra verði en aðrar nýjar
bifreiðar. „Bifreiðaeftirlitið hefur
valið §órar bifreiðar, sem teknar
verða til nákvæmrar skoðunar,“
sagði Finnbogi. „Starfsmenn okkar
munu taka þær í sundur á verk-
stæði Heklu og þannig gefst bif-
reiðaeftirlitsmönnum tækifæri til
að skoða þær gaumgæfilega. Að
öllum líkindum fer þessi skoðun
fram í dag, eða í síðasta lagi á
morgun, laugardag.“
Guðni Karlsson, forstöðumaður
Bifreiðaeftirlits ríksisins, staðfesti
að stofnunin ætlaði að skoða þessar
bifreiðar enn betur en vani væri
með nýjar bifreiðar við skráningu,
þar sem vitað væri um tjón það sem
bifreiðamar hefðu lent í. Hann
sagði að til að byija með yrðu
nokkrar bifreiðar teknar til mjög
nákvæmrar skoðunar, en nánari
framkvæmd skoðunarinnar yrði
skipulögð síðar.
Líkur á 380.000
tonna þorskafla
á þessu ári
Heildarafli gæti
orðið nálægt 1,6
milljónum iesta
HEILDARAFLI landsmanna um
siðustu mánaðamót var 1,4 millj-
ónir lesta, 75.000 lestum minni
en á sama tima síðasta ár. Munur-
inn liggur i því, að nú hefur
127.713 lestum minna veiðzt af
loðnu. Afli annarra tegunda er
meiri þrátt fyrir fremur slakan
nóvembermánuð. Þorskaflinn nú
er 867.942 lestir og áætlar Fiski-
félag íslands að hann nái um
380.000 lestum f árslok. Þorsk-
aflinn er þegar orðinn 27.483
lestum meiri en á sama tima i
fyrra, þó þorskafli hafi verið
minni nú í nóvember en á siðasta
ári. Heildarafli á árinu ætti að
geta orðið nálægt 1,6 milljónum
lesta, en það veltur fyrst og
fremst á loðnuveiði fram að jól-
um. í síðustu viku veiddust
59.000 lestir af loðnu.
Þorskafli í nóvember varð 21.811
lestir og þar af öfluðu bátar 9.497
lesta. I fyrra varð aflinn 23.108
lestir, þar af af bátum 5.240. Afli
af öðrum botnfiski nú varð 4.115
lestum meiri. Heildarafli togara
dróst saman um 2.747 lestir en
botnfiskafli báta jókst um 5.500
lestir. Síldarafli varð 4.435 lestum
minni og loðnuafii 10.621 lest minni
nú. Samtals varð bátaflinn 8.077
lestum minni að þessu sinni.
Aflinn til nóvember loka er
1.401.260 lestir, en var í fyrra
1.476.853. Þorskafli var nú
357.942 lestir á móti 330.459. Ann-
ar botnfiskafli nú er 264.068 lestir
á móti 249.937. Síldarafli er nú
61.548 lestir, 8.752 lestum meiri.
Mismunur á loðnuafla milli áranna
er 127.713 lestir. Nú hafa veiðzt
670.471 lest en 798.184 í fyrra.
Rækjuafli er nokkru meiri nú, en
minna af hörpudiski. Mismunur á
heildarafla er því 75.593 lestir.
Ekki óskað
eftir endur-
greiðslu tolla
Félag íslenskra stórkaupmanna
hefur ekki farið fram á það við
fjármálaráðuneytið að endur-
greiddur verði tollur af birgðum
vara sem lækka um áramótin og
ekki heldur einstakir stórkaup-
menn fyrir hönd stéttarinnar, að
sögn Árna Reynissonar fram-
kvæmdastjóra félagsins.
í Morgunblaðinu (gær er sagt frá
því að fjármálaráðuneytið hafni mála-
leitan stórkaupmanna um að endur-
greiddur verði tollur af birgðum um
áramót og er fréttin byggð á upplýs-
ingum sem fengnar voru hjá upplýs-
ingafulltrúa ráðuneytisins. Það er
ekki rétt að stórkaupmenn hafi mælst
til að tollurinn verði endurgreiddur,
heldur spurðist einn fulltrúi stórkaup-
manna fyrir um þetta atriði eftir að
formlegum viðræðufundi var lokið i
ráðuneytinu. Morgunblaðið biðst vel-
virðingar á mistökunum.